Tíminn - 07.03.1992, Síða 19
Laugardagur 7. mars 1992
Tíminn
Alan Kingsley lét gamminn geisa í réttarsalnum og lét einskis
ófreistaö til aö sieppa.
amar ekki merkilegar. Þegar þeir
komu að blokkinni, hittu þeir hjón-
in þar sem þau voru í óðaönn að
raða eigum sínum inn í flutninga-
bíl.
Aðspurð kváðust þau hafa flutt til
Kansas í von um góða vinnu. Þær
vonir hefðu brugðist og því hefðu
þau ákveðið að flytja aftur til Flór-
ída. Sagan var trúleg, en lögreglan
ákvað þó að athuga manninn, Alan
Kingsley, betur. Þá kom í ljós að
hann hafði verið dæmdur fyrir stór-
þjófnað og greiðslukortamisnotk-
un. Húsgögnin, sem þau hjónin
vom að raða í bílinn, höfðu verið
keypt fyrir stolið greiðslukort.
Alan Kingsley var settur í gæslu-
varðhald. Þá skýrði hann frá því að
þegar þau hefðu frétt af morðinu,
hefðu þau orðið hrædd, því Alan
væri á skilorði og hefði alls ekki
mátt fara frá Flórída. Þau hefðu því
ákveðið að forða sér hið snarasta.
Heimskulegt framferði
En þá bámst þær upplýsingar frá
banka Donnu Baker að ávísun af
reikningi hennar, stíluð á eiginkonu
Kingsleys, hefði verið leyst út dag-
inn eftir morðið. Lögreglumennim-
ir ætluðu ekki að trúa að þau hefðu
farið svo heimskulega að ráði sínu.
En eiginkona Kingsleys var sam-
stundis handtekin og færð í gæslu-
RÁDNING Á
KROSSGÁTU
□ co □ I I
JL - n
3 a W a rn" eH
SEJQ aaa
hhrnrpM
ssia i 39
hb aa □□ N
3 Sð
Cn xj Oxj c* 13 |1/11 ^ - 3 In
* >u*Mc 9 x>
t-’ a CA H
t> |~o pHr-kTW- 9 x> X r
21 3 w É
3 a IfT i
3 —" E
- r a zT 3>' [F"
< rWÆc * a s Irí IT' m
C- 7i CH-4 X Sl 3 £
9 aa Q a p F
■frr 3 O' r 3» tn a Z. e F
c. r o.' ^ 3 cv 73 F
?3 C [o=já po|cn|^:|m|^3
varðhald og húsleitarheimild feng-
in.
Lögreglan leitaði bæði í íbúðinni
og í flutningabílnum. Þar fundust
skartgripir, peningar, greiðslukort
og ávísanahefti.
Eiginkonan var yfirheyrð fyrst.
Hún skýrði frá þvf að þau hefðu ver-
ið í miklum kröggum, þar sem Alan
hefði ekki tekist að fá vinnu. Daginn
sem morðið var framið, hafði hann
farið að heiman og sagst ætla að
ræna bensínstöð eða ná í peninga,
hvemig sem hann færi að því. Hún
reyndi að telja hann ofan af þessum
fyrirætlunum, en árangurslaust.
„Hún ætlaði aldrei að
drepast“
Þegar hann kom aftur var hann
blóðugur. Hann sýndi konu sinni
skartgripi og annan ránsfeng og
skýrði frá því að hann hefði drepið
leigusala þeirra. „Ég hélt að gamla
tíkin ætlaði aldrei að drepast. Hún
hélt áfram að bíta mig og klóra
þangað til ég skar hana á háls,“ sagði
hún að hann hefði sagt.
Alan sagðist hafa fundið lítið af
reiðufé í íbúðinni, en það þurftu þau
til að komast burt. Hann lét því
konu sína æfa undirskrift Donnu og
síðan skrifa ávísun stílaða á sjálfa sig
upp á 500 dollara. Þegar henni hafði
verið skipt, notuðu þau peningana
til að leigja flutningabflinn.
Þegar Kingsley var skýrt frá fram-
burði konu sinnar, trylltist hann al-
veg. „Hún er helv... lygatík. Ég drap
ekki Baker-kerlinguna. Konan mín
gerði það!“
Lögreglan hafði búist við að Alan
myndi halda fram sakleysi sínu, en
ekki því að hann ásakaði háófríska
eiginkonu sína.
Götótt saga
í framburði sínum viðurkenndi
Kingsley að hafa farið heim til
Donnu Baker til að ræna hana, en
bætti svo við: „Ef ég hefði farið einn,
væri Donna Baker enn á lífi. Ég ætl-
aði alls ekki að drepa gömlu kon-
una.“
Kingsley sagðist hafa farið ásamt
konu sinni til Donnu og skýrt henni
frá því að þau ætluðu að flytja og
beðið hana um að greiða þeim aftur
Sakamál
100 dollara tryggingu, sem þau
höfðu lagt fram er þau leigðu íbúð-
ina.
Hann sagði að þegar Donna hefði
snúið sér við til að sækja peningana,
hefði hann slegið hana í höfuðið og
rotað hana.
„En þá þurfti ég að pissa og fór á
klósettið. Þegar ég kom til baka lá
konan mín á hnjánum hjá Donnu
og hélt á stærðar breddu. Ég spurði
hvað hún væri eiginlega að gera.
Hún æpti þá að Donna vissi hver
hefði slegið hana og rænt. „Þú verð-
ur að hjálpa, annars er það vont fyr-
ir bamið,“ sagði hún þá.“
Hann kvaðst ekki hafa hjálpað
konu sinni, en hún hefði stungið
Donnu og síðan skorið hana á háls.
Hann kvaðst þá hafa dregið líkið inn
í svefnherbergið og kveikt í, í von
um að eyða sönnunargögnum.
Saga Kingsleys var eins og gata-
sigti. í fyrsta lagi var greinilegt að ef
hann hefði haldið til húss Donnu og
ætlað að ræna hana, hlyti hann að
hafa gert ráð fýrir að hún gæti borið
kennsl á hann. Hann hefði því ef-
laust ráðgert það að bana henni.
í öðm lagi hafði fundist blóð á föt-
um hans, en ekkert á fötum konu
hans.
í þriðja lagi lá í augum uppi að
kona, komin átta og hálfan mánuð á
leið, hefði ekki burði til að standa í
þeim átökum við Donnu, sem blóð-
blettir og önnur ummerki bám
vitni um að átt hefðu sér stað. Og
hefði vanfær kona reynt að kveikja í
líkhárum kynsystur sinnar eftir að
hafa myrt hana?
Við sama heygarðs-
homið
Hvorki saksóknari né lögreglan
trúðu orði af því sem Kingsley sagði.
Hann var ákærður fýrir morð að yf-
irlögðu ráði.
Við réttarhöldin hélt Kingsley
áfram að þvæla og ásakaði eigin-
konu sína stöðugt um að hafa myrt
Donnu Baker.
Aðalvitnið gegn Alan Kingsley var
eiginkona hans. Lögum samkvæmt
má eiginkona ekki vitna gegn
manni sínum eða öfugt. En þar sem
Kingsley beindi spjótum sínum
harkalega að konu sinni, var unnt
að fara kringum lögin að þessu
sinni.
Þegar kviðdómur hafði lýst því yfir
að hann teldi Alan Kingsley sekan
um morð að yfirlögðu ráði, var hon-
um boðið að segja sína hlið á mál-
inu áður en dómur yrði upp kveð-
inn.
Hann lét dæluna ganga í rúmlega
hálfa klukkustund. Hann hélt áfram
að ákæra konu sína og reyna að
koma sökinni yfír á hana. Að því
loknu tók hann til við verjendur
sína, sem hann taldi vanhæfa á allan
hátt og sagði að réttlætinu yrði að-
eins fullnægt með nýjum réttar-
höldum þar sem hann fengi verj-
endur sem væru starfí sínu vaxnir.
Morð getur leitt til laga-
breytinga
En allt kom fyrir ekki. Alan Kingsl-
ey var dæmdur í 55 ára fangelsi. í
Kansas er dauðadómur ekki mögu-
legur, en aftur á móti er þar klásúla
í lögum sem tryggir að þeir, sem eru
ákærðir um alvarlega glæpi, geta
ekki sótt um náðun fyrr en í fyrsta
lagi eftir 40 ár. í tilfelli Kingsleys,
sem var 23 ára gamall, gat hann sótt
um náðun eftir 47,5 ár.
Þetta mál varð til þess að tveir
þingmenn Kansas-fylkis lögðu fram
frumvarp til laga, þess efnis að
dauðarefsing yrði þar tekin upp að
nýju. Það kemur fram í árslok 1992
hvort það tekst.
Sænskunám - Sumarleyfi
Norræna félagið á íslandi í samvinnu við Nor-
ræna félagið í Norrbotten í Norður-Svíþjóð gefur
15 íslendingum kost á 2ja vikna sænskunámi í
Framnás folkhögskola dagana 27. júlí til 7. ágúst
næst komandi.
Kenndar verða 6 stundir á dag og auk þess fer
fram kynning á lífi og starfi fólks á Norðurkollu.
Eftir námskeið ) gefst kostur á þriggja daga æv-
intýraferð um Lappland.
Námskeiðið kostar 45.000,- krónur. Innifalið er
ferðir báðar leiðir, kennsla og dvalarkostnaður í
tvær vikur.
Umsóknir skal senda til skrifstofu Norræna fé-
lagsins í Norræna húsinu í Reykjavík á sérstöku
eyðublaði sem þar fæst.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl.
Kjörið tækifæri til að sameina sumarleyfi og
sænskunám.
Norræna félagið.
Samvinnuháskólinn
— rekstrarfræði
Rekstrarfræðideild
Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum mið-
ar að því að rekstrarfræðingar séu undirbún-
ir til forystu-, ábyrgðar- og stjórnunarstarfa í
atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða
viðskiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við
Samvinnuháskólann eða annað sambærilegt
nám.
Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, viðskipta
og stjórnunar, s.s. markaðsfræði, tjármálastjórn,
starfsmannastjórn, stefnumótun, lögfræði, fé-
lagsmál, samvinnumál o.fl.
Námstími: Tveir vetur, frá september til maí.
Frumgreinadeild
til undirbúnings rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á framhalds-
skólastigi án tillits til námsbrautar.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugrein-
ar, enska, íslenska, stærðfræði, lögfræði og fé-
lagsmálafræði. Einn vetur.
Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir á
Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum, bóka-
safni, tölvubúnaði o.fl. Barnaheimili og grunn-
skóli nærri.
Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætluð
um 38.000 kr. á mánuði fyrir einstakling næsta
vetur.
Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnuhá-
skólans á Bifröst. Umsókn á að sýna persónu-
upplýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu
með afriti skírteina og um fyrri störf. Tvenn skrif-
leg meðmæli fylgi. Veitt er innganga umsækj-
endum af öllu landinu. Þeir umsækjendur ganga
fyrir, sem orðnir eru eldri en 20 ára og hafa öðl-
ast starfsreynslu í atvinnulífinu. Námið hentar
jafnt konum sem körlum.
Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan eft-
ir því sem skólarými leyfir.
Samvinnuháskólanám er lánshæft.
Samvinnuháskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi — sími 93-50000.