Tíminn - 09.05.1992, Blaðsíða 24

Tíminn - 09.05.1992, Blaðsíða 24
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 HEIÐI BILAPARTASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir Kaupi bíla til niðurrifs HEIÐI • BÍLAPARTASALA Flugumýrl 1SD • Mosfellsbæ Slmar 668138 & 667387 AUÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 Úðruvísi bílasala BlLAR • HJÓL • BÁTAR•VARA- HLUTIR. MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 \M (P ra J i ^"Sabriel HÖGG- DEYFAR Verslió hjá fagmönnum i varahlutir tV-í^ Hamarshofóa 1 - s. 67-ó744t| Tíminn LAUGARDAGUR 9. MAl 1992 Stjórnarandstæðingar gera sér enn vonir um að ríkisstjórnin geri breytingar á frumvarpinu um Lánasjóð íslenskra námsrnanna: Lánasjódsfrumvarpið er að verða að lögum Frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna var afgreitt til þriðju umræðu á Alþingi í gær. Breytingartillögur stjórnarliða í mennta- málanefnd voru samþykktar, en allar tillögur stjórnarandstæðinga voru felldar, þar á meðal tillaga um að vísa frumvarpinu frá. Össur Skarphéðinsson, formaður þingflokks Alþýðuflokksins, sat hjá þeg- ar greidd voru atkvæði um þá grein frumvarpsins sem kveður á um námslán séu greidd eftir á. Menntamálaráðherra sagði undir Iok umræðu um frumvarpið í fyrrakvöld að hann væri tilbúinn til að skoða þessa grein sérstaklega við lokaafgreiðslu málsins. Lánasjóðsfrumvarpið er án efa því loknu. Ríkisstjórnin hefur fallist eitt umdeildasta mál þessa þings. Stjórnarandstæðingar hafa lagt mikla áherslu á að reyna fá stjórnar- liða til að breyta frumvarpinu, en stjórnarandstæðingar segja að frumvarpið þýði í reynd að ekki ríki lengur jafnrétti til náms ef það verði að lögum. Stjórnarandstæðingar segja þó að þær breytingar sem meirihluti menntamálanefndar gerði á frumvarpinu miði í rétta átt en með þeim sé ekki gengið nægi- lega langt. Það er einkum tvennt sem stjórn- arandstæðingar hafa lagt mesta áherslu á að fá breytt. Þeir vilja að námslán beri ekki vexti og að þau verði greidd á námsárinu en ekki að á að hafa vexti 1% til að byrja með, en upphaflega áformaði hún að vextiryrðu3%. Ríkisstjórnin hefur hins vegar ekki fallist á að breyta ákvæði frum- varpsins um að námslán séu greidd eftir að niðurstöður prófa liggja fyr- ir. Stjórnarandstæðingar hafa bent á að þetta ákvæði þýði að námsmenn verði að fjármagna nám sitt með því að leita til bankakerfisins með skammtímalán á meðan þeir bíði eftir láni frá LÍN. Til að fá þessa lána- fyrirgreiðslu frá bankakerfinu verði námsmenn að útvega ábyrgðar- menn og greiða háa vexti. Ef náms- árangur verði ekki í samræmi við vonir námsmannsins sitji hann uppi með miklar skuldir, en fái ekkert námslán til að greiða þær með. Bent hefur verið á að fyrir foreldra sem eiga fleiri en eitt barn í námi geti þessi eftirágreiðsla verið þungur baggi, ekki síst ef um efnalitla for- eldra er að ræða. Menntamálaráðherra sagði undir lok umræðu um lánasjóðsfrum- varpið í fyrrakvöld að hann væri til- búinn til að skoða betur ákvæðið um eftirágreiðslu. Stjórnarandstæð- ingar vonast eftir að með þessu hafi hann verið að gefa til kynna að hann væri til viðræðu um að breyta því. Frumvarpið fer til menntamála- nefndar að nýju milli annarrar og þriðju umræðu, en gert er ráð fyrir að það fái lokaafgreiðslu strax eftir helgi. Allir stjórnarliðar greiddu at- kvæði með frumvarpinu í gær. Öss- ur Skarphéðinsson sat þó hjá þegar atkvæði voru greidd um hið um- deilda ákvæði um eftirágreiðsluna. Stjórnarandstæðingar greiddu at- kvæði gegn frumvarpinu og lögðust einnig gegn því að því yrði vísað til þriðju umræðu. -EÓ Lokun öldrunardeildar LSP í Hátúni: BSRB mótmælir lokun í Hátúni BSRB telur tímabundna lokun öldrunardeildardeildar í Hátúni ekki samræmast yfirlýsingu ríkisstjómarinnar við nýafstaðnar kjaravið- ræður. Þar segir að tryggja eigi öldrunar- þjónustu „þannig að ekki þurfi að koma til samdráttar í heimahjúkrun eða að loka þurfi öldrunardeildum sjúkrahúsa". Stjórn BSRB hefur sent frá sér yf- irlýsingu þar sem þessari ráðstöfun er mótmælt og ítrekað er að tryggt verði að sjúkir og aldraðir búi við mannsæmandi skilyrði. Einnig er lýst yfir vonbrigðum yfir því að rík- isstjórnin taki ekki eigin yfirlýsingar alvarlegar. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir ríkisstjórnina hafa brot- ið þau fyrirheit sem gefin voru: „Við sátum fund í gærmorgun með heil- brigðisráðuneytinu og þeim sam- tökum sem hlut eiga að máli og þar vorum við fullvissuö um að málin yrðu endurskoðuð í ljósi yfirlýsingar ríkisstjórnar." Ögmundur telur niðurskurðinn vera mjög vanhugsaðan og ranglát- an: „Það hlýtur að vera öllum áhyggjuefni ef ríkisstjómin tekur ekki sjálfa sig alvarlega." —GKG. 5UNNY Frábær verð Verðdæmi: Nissan Sunny stallbakur SLX 1600 cc 4ra dyra 16 ventla vél, 4ra þrepa sjálfskipting, aflstýri, samlæsingar á hurðumT rafdrifnar rúður, upphituð sæti og margt, margt fleira Staðgreiðsluverð er kr. 1.014.000 fHiureiiri, 5 Keflovih oo K • •' JíT bílum frá kl. 14-17 á fjórum stöðum á landinu, Sigurði Valdimarssyni Akureyri, íþróttahúsinu Sauðárkróki, Bílakringlunni Keflavík og að Sævarhöfða 2 Reykjavík. Á Akureyri verðurt.d. boðið uppá reynsluakstur Nissan Patrol diesel NISSAN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.