Tíminn - 09.05.1992, Blaðsíða 11

Tíminn - 09.05.1992, Blaðsíða 11
Laugardagur 9. maí 1992 Tíminn 11 Llk flutt á kviktrjám áriö 1898. Dauöans gátu menn vænst hvenær sem vera skyldi, og hvert ráö til aö tefja komu hans um stund var gripiö feg- ins hendi aö vonum. skeggjar í hinu undarlega landi, sem í lögun líktist ókennilegu dýri, er liggur fram á lappir sínar, bæru þó skyldleika með hinu synduga fólki, sem lifði á suðlægari gráðum, þar sem vínþrúgur spruttu í dölum og hátt í hlíðum. Því var það, að doktor Bela, París, 6 Place de la Nation, meðlimur ýmissa vís- indafélaga, bað Reykjavíkurblöðin íyr- ir eftirfarandi orðsendingu: „Leynilegir sjúkdómar læknast gersamlega með minni að- ferð, sem byggð er á nýjum vísindaleg- um rannsóknum, án þess að störfum líffæranna sé í neinu raskað, og þó að veikin sé mjög slæm. Sömuleiðis lækna ég hinar óþægilegu afleiðingar af æskusyndum, taugasjúkdóma og holdlegan vanmátL Þagmælsku ábyrgist ég. Gjörið svo vel.“ Þó að ekki beri að fortaka, að árið 1883 bæru einhveijir íslendingar leynilegar afleiðingar af æskusyndum, fara ekki sögur af því, að neinn tæki í framrétta hönd doktors Bela. Hann varð ekki heldur ffægur á eylandinu fyrir að viðrétta náttúruna, að minnsta kosti vitnaði enginn opinberlega um að hafa öðlast holdlegan mátt fyrir hans tilstuðlan. Og er hann þar með úr sögunni. Um svipað leyti kom önnur orðsend- ing frá París, svohljóðandi: „Áríðandi. Flogaveiki, sinadráttur, bamakrampi og taugasjúkdómar læknast gersam- lega, ef fylgt er minni aðferð. Lækn- ingalaun þarf eigi að borga, fyrr en batnað er. Læknishjálpina má fá bréflega. Prófessor dr. Albert 6, Place du TVöne, 6, París.“ Ekki fara heldur neinar sagnir af því, að menn vitnuðu um ágæti doktors Alberts prófessors. En í kjölfar Kínverjans með glasið áttu efdr að fylgja ýmis meðöl fleiri en að ofán eru greind, og ollu læknum landsins áhyggjum og stríði við að kveða niður hégiljutrú manna. En hið merkilega er að alltaf hafa „töftalyfin", þau sem eru eins og komin úr dul- heimum utanhjá viðurkenndum vís- indastofnunum og löggiltum apótek- urum, sitt aðdráttarafl. Svo er enn á okkar tímum. Þannig hefur manneðl- ið lítið breyst frá því er Kínveijinn með glasið kvaddi hér fyrst dyra. (Frdsögn Gurmars M. Magnúss) U 0|Cf 1f I þessum mánuöi fá nemendur u O U í grunnskólum Reykjavíkur í hendur bækling meö upplýsingum um framboö á frístunda- og sumarstarfi félagsmiöstööva, borgarstofnana og íþrótta- og æskulýösfélaga í Reykjavík. Foreldrar eru hvattir til að skoöa bæklinginn með börnum sínum og leiöbeina þeim í vali á frístunda- og sumarstarfi sem bjóöast á hinum ýmsu sviöum. ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ Sooarstarf

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.