Tíminn - 09.05.1992, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Laugardagur 9. maí 1992
Fílharmonía flytur
meistaraverk Rossinis
„Messe Solenn-
elle“ flutt í
Langholtskirkju
kl. 17 á morg-
un,sunnudag,
ásamt kvartett
þekktra ein-
söngvara og
undirleikara
Á morgun, sunnudag 10. maí, er
að vænta ágæts tónlistarviðburðar
í Langholtskirkju, er Söngsveitin
Fflharmonía flytur þar „Messe So-
lennelle" eftir G. Rossini undir
stjórn Úlriks Ólasonar. Þekktir
einsöngvarar munu taka þátt í
flutningi verksins ásamt söng-
sveitinni og eru söngvararnir þau
Elísabet Erlingsdóttir sópran, AI-
ina Dubik alt, Ólafur Árni Bjarna-
son tenór og Viðar Gunnarsson
bassi.
Hér er um frægt og marglofað
kórverk að ræða. Sagði tónskáldið
Meyerbeer, er hlýddi á frumflutn-
ing þess, að kórfúgan „Cum
sancto spiritu" væri besta tónlist
sem samin hefði verið sinnar teg-
undar. Verkið samdi Rossini
(1792-1868) seint á ferli sínum, er
hann löngu hafði hætt óperutón-
smíðum sem hann nú er kunnast-
ur fyrir. Nefndi hann messu þessa,
sem fullu nafni heitir „La Petite
Messe Solennelle", raunar „síð-
ustu syndina í elli minni“. En sú
synd var betur drýgð en ódrýgð,
því eins og segir í kynningu Söng-
sveitarinnar Fílharmoníu á verk-
inu er messan „eitt innblásnasta
og athyglisverðasta verk Rossinis
og má öllum vera ljós fegurð þess,
hugmyndaauðgi og dýpt“.
Fílharmonía var stofnuð þann
24. aprfl 1959 og var fyrsti stjórn-
andi hennar dr. Róbert Abraham
Ottósson. Tónleikarnir verða á
morgun, sunnudag, sem áður seg-
ir og hefjast þeir klukkan 17. Er
að vænta að tónlistarunnendur
bíði þeirra með tilhlökkun. Að-
sókn hefur verið mikil þegar Ffl-
harmonía hefur flutt ýmis hin
bestu kórverk, svo sem í mars
1989 er Requiem Mozarts var flutt
þrívegis fyrir fullu húsi í Krists-
kirkju.
„Messe Solennelle" er í fjórtán
köflum og er hlé eftir sjöunda
kaflann, en hann er einmitt „Cum
santo spiritu", sem Meyerbeer lét
svo fögur orð um falla og getið er
hér að ofan. AM
. . ' ■ BÉil
í 'í”
. •
ÍÍÍII
í , - ***
:
Viöar Gunnarsson bíöur á milli
kafla eftir aö rööin komi aö sér.
(Ljósm. O.Ó.)
Úlafur Árni Bjarnason tenór.
Meira um flytjendur
Messan er samin fyrir kór, ein-
söngvarakvartett (sjá nöfn söngv-
aranna hér að ofan), píanó og
harmoníum. Hljóðfæraleikararnir
eru þau Hrefna Unnur Gunnars-
dóttir píanóleikari og Ferenc Ut-
assy á harmoníum. Auk þátttöku
sinnar í sjálfum flutningnum hef-
ur Elísabet Erlingsdóttir annast
raddþjálfun á æfingum, en Hrefna
Unnur undirleik.
Stjórnandinn, Úlrik Ólason, er
fæddur 1952 og stundaði hann
framhaldsnám í tónlist í Regens-
burg í Þýskalandi með orgelleik
sem aðalnámsgrein, ásamt kór- og
hljómsveitarstjórn. Hann starfaði
lengi á Húsavík, en starfar nú sem
organisti og kennir orgelleik og
kórstjórn við Tónskóla þjóðkirkj-
unnar. Sl. vetur æfði hann Requi-
em Verdis með íslandsdeild
„Heimskórsins", sem tók þátt í
flutningi verksins í Svíþjóð í aprfl
sl. þar sem fram kom m.a. Luciano
Pavarotti. Úlrik hefur verið stjórn-
andi Söngsveitarinnar Fílharmon-
fu frá hausti 1988 og er Messe So-
lenelle fjórða stórverkið, sem
hann stjórnar á sjálfstæðum tón-
leikum Fílharmoníu. Þar á meðal
má nefna Þýska sálumessu
Brahms, er flutt var á 30 ára af-
mæli Söngsveitarinnar í apríl
1990.
• ' • .. . •... -
;•■•: ■■ . • ■•' ■'•
Á „generalprufunni". i kvartettnum eru, taliö frá vinstri: Elísabet Erlingsdóttir sópran, Alina Dubik alt, Ólafur Árni Bjarnas