Tíminn - 04.07.1992, Síða 8

Tíminn - 04.07.1992, Síða 8
STfmirm Laugardagur4. júlf 1992 Arne TVeholt látinn laus í gær, föstudag, létu Norðmenn Arne Treholt lausan úr fangelsi, af mannúðarástæðum. Treholt var dæmdur til 20 ára fangeisisvistar fyrir njósnir í þágu KGB, rússnesku ieyniþjónustunnar, meðan hann var starfsmaður í norsku utanríkisþjónustunni. Dómsmálaráðherra Noregs, Kari Gjesteby, sagði fréttamönnum í gær að þessi málsmeðferð væri ekkert óvenju- leg. Hvaða fangi sem var hefði fengið sömu meðferð. Þótt TVeholt hefði verið vel á sig kominn líkamlega, hefði and- legt ástand hans verið afleitt. „Hann hefur þjáðst af þunglyndi um hríð og það varð hálfu verra eftir að kona hans dó fyrir mánuði síðan," sagði hún. Treholt, sem náði það langt að verða aðstoðarmaður utanríkisráðherra, hef- ur ævinlega haldið fram sakleysi sínu. Hann var sakaður um að hafa afhent útsendurum Sovétríkjanna leynileg gögn, sem vörðuðu hagsmuni Noregs ogNATO. Gjesteby neitaði því að TVeholt hefði verið látinn laus vegna þess að Sovét- Arne Treholt. ríkin eru nú liðin undir lok. Sjálfúr hafði TVeholt haldið því fVam að sú staðreynd, að Sovétríkin væru ekki lengur til, undirstrikuðu hve fáránlegt væri að hann væri látinn afplána dóm- inn. Hins vegar sagði Gjesteby að Nor- egi stafaði ekki lengur nein ógn af því að Treholt gengi laus. Sjálfur sagði TVeholt að honum væri mjög létt Hann hygðist ferðast til út- landa, en sagði ekki hvert „Það er mér mikilvægt að komast í burtu frá Nor- egi,“ sagði hann á fréttamannafundi í gær. „Ég er í góðu líkamlegu formi," sagði TVeholt, en hann hefúr þjálfað sig til þess að hlaupa maraþonhlaup. Hann hafði reyndar verið látinn laus úr Ila- fangelsinu eftir að kona hans lést fyrir skömmu. TVeholt kynntist konu sinni í fangelsinu og voru þau gefin saman ár- ið 1987. Treholt hafði verið undir eftirliti um skeið, eða í allt að sjö ár, þegar hann var handtekinn árið 1984 á flugvellin- um í Ósló. Þá fannst í fórum hans skjalataska fúll af pappírum frá norska utanríkisráðuneytinu. Sagt var að TVe- holt hefði þá verið á leið til fundar við KGB-manninn Gennady Titov í Vínar- borg. Nú, þegar TVehoIt er látinn laus, hefúr hann afplánað átta og hálft ár af 20 ára fangelsisdómi. Treholt var blaðafulltrúi norska utan- ríkisráðuneytisins þegar hann var handtekinn. Hann sagði eftir handtök- una að hann hefði starfað sjálfstætt að „glasnost" og reynt að vinna að betri samskiptum austurs og vesturs á dög- um kalda stríðsins. Aldrei sagðist hann hafa látið Sovét- mönnum í té neinar aðrar upplýsingar en þær sem hefðu getað birst í dag- blöðum. Hins vegar sagðist hann sjá að það hefði verið einfeldni af sér að gera slíkt. TVeholt sagði í viðtali við Reuter íyrr á þessu ári að ef hann yrði látinn laus, myndi hann líklega flytjast til Grikk- lands. Hann vann að þriðju bók sinni í fangelsinu — sjálfsævisögu — auk rit- gerðar um samskipti Grikkja og Sam- einuðu þjóðanna. _ Reuter/Krás. Japanskur læknir á yfir höfði sér dauða- dóm fyrir morð: Líkn eða ótínt morð? Japanskur læknir, sem gaf sjúklingi sínum banvænan lyfjaskammt til þess að binda endi á kvalafullt líf hans, á nú yfir höfði sér dóm fyrir morð. Læknirinn Masahito Tokunaga er fyrrverandi læknir við Tokai- há- skólasjúkrahúsið í Japan og verður hugsanlega tekinn af lífi, ef hann verður sakfelldur. Fjölmiðlar í Japan segja þetta mál hið fyrsta sinnar tegundar þar sem látið skal reyna á sakhæfi læknis sem hjálpar sjúklingi yfir móðuna miklu með reisn. í fréttaskeytum segir að læknirinn, sem er 38 ára gamall, hafi byrjað á því að sprauta 58 ára gamlan krabba- meinssjúkling með deyfilyfjum. Síð- an hafi hann, án þess að bera málið undir starfsfélaga sína, gefið sjúk- lingnum lyf sem stöðvaði hjarta hans. Sjúklingurinn dó fljótlega eftir lyfjagjöfma, þar sem hjarta hans stöðvaðist. Hann hafði verið meðvit- undarlaus um hríð vegna bein- krabba á háu stigi. Ættingjar sjúklingsins höfðu þrá- beðið Tokunaga lækni um að lina þjáningar sjúklingsins, eftir því sem segir í fréttaskeytum. Kyodo-fréttastofan japanska hefur eftir Táneo Oki, sem er forstöðu- maður samtaka fólks sem vill deyja með reisn, að nauðsynlegt sé að mál þetta fari fyrir dóm. „Það er rökrétt skref og verður kannski til þess að sannleikurinn um þessi mál verði loks sagður,“ sagði Taneo Oki. Hann sagðist jafnframt vonast til þess að dómstólar myndu gera skýr- an greinarmun á líknardauða og morði. Heim úr hafi Komi einhverju sinni sá tími, að laxinn snýr ekki aftur, veit maðurinn, að honum hefur mistekist enn einu sinni, og færst nær því að hverfa endanlega. Roderick Haig-Brown, rithöfundur Villtir laxastofnar í löndum við Norður Atlantshafið eru nú taldir vera um 10% af því, sem þeir voru fyrir 300 árum og innan við 3% af því, sem þeir voru við landnám Islands. Við höfðum til virðingar Islendinga fyrir íslenskri náttúru, hvar sem þeir búa á landinu, og biðjum þá að veita villta laxinum fullt frelsi til að leita í heimaárnar, og hafbeitarlaxinum heim af afréttinum. Island bannaði laxveiðar í sjó fyrir 60 árum og hefur á alþjóðavettvangi verið forystuafl á sviði verndunar og laxastjórnunar með aðgerðum gegn úthafsveiðum á laxi. Með þessa vitneskju í huga er það metnaðarmál, að Islendingar sjálfir stundi ekki ólöglegar laxveiðar í sjó. AT/ Verðum fyrirmynd annarra þjóða í þessu efni sem öðrum, er snerta umhverfisvernd. ^ON ^ NORÐURATLANTSHAFS LAXSJÓÐURINN alþjóðleg verndunarsamtök með aðsetur á Islandi Eiður Guðnason Umhverfisráðherra Halldór Blöndal Landbúnaðarráðherra — Reuter/Krás.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.