Tíminn - 01.08.1992, Qupperneq 6
6 Tíminn
Laugardagur 1. ágúst 1992
Mesta ferðahelgi ársins er gengin í garð og óskandi að allir komi heilir heim
að henni lokinni. Hvernig má draga úr líkum á umferðarslysum nú um helgina
og framvegis? Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs:
„Helst vildi ég óska að sem minnst verði
í fréttum af umferðinni eftir helgina,“
segir Óli H. Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Umferðarráðs, en hann, samstarfs-
fólk hans hjá ráðinu og lögregla um land
allt munu starfa alla helgina við að fylgj-
ast með umferðinni og miðla upplýsing-
um um hana til almennings um fjöl-
miðla. Þannig verða þessir aðilar með
sérstaka útvarpsstöð sem mun koma inn
í dagskrá allra útvarpsstöðvanna og er
útvarpsstjóri Sigurður Helgason, starfs-
maður Umferðarráðs, eins og greint var
frá hér í Tímanum í gær.
„Ég renni hýru auga til þeirra
möguleika sem þarna skapast," segir
Óli. Verslunarmannahelgarútvarp
Umferðarráðs er þó ekki nýtt fýrir-
bæri. Umferðarráð hefur um margra
ára bil haft yfir að ráða útvarpshljóð-
veri um verslunarmannahelgi og
komið inn í dagskrá ríkisútvarpsins,
en að þessu sinni verður komið inn í
útsendingar flestallra hinna út-
varpsstöðvanna. „Þetta er samstarfs-
verkefni okkar og útvarpsstöðvanna,
lögreglu, vegagerðar og FÍB svo ein-
hverjir séu nefndir," segir Óli. Gott
samstarf og samstarfsvilji er Iykilat-
riði í þessu og það er augljóst að við
förum ekkert í loftið hjá útvarps-
stöðvunum nema dagskrárgerðar-
menn séu hlynntir málefninu. Því
ríður mikið á að samband milli
þeirra og okkar sé jákvætt og gott,
en á það hefur engan skugga borið
hingað til og engin ástæða til að
ætla annað en svo verði áfram."
— Nú er mesta umferðarhelgi árs-
ins hafin. Hvaða ráð vill Umferðar-
ráð gefa vegfarendum?
„Nú á laugardagsmorgni er fjöldi
fólks að leggja af stað út á þjóðveg-
ina. Ég vona að allt þetta fólk sé vel
afslappað en því miður hefur fólk
verið nokkuð stressað í umferðinni
hér á Reykjavíkursvæðinu undan-
farna daga og nokkur alvarleg slys
hafa orðiö. Við viljum óska þess að
þau séu víti til varnaðar og að engin
slík slys, né önnur slys, verði um
helgina. Fólk leggi upp í ferð heim-
an og heim með því hugarfari að
himinn og jörð farist ekki þótt örlít-
ið lengri tíma en endranær taki að
komast milli staða vegna mun meiri
umferðar.
Lendi ökumenn í bílalest þá eru
tvær aðferðir til að losna úr henni:
Önnur, og sú sem við mælum ekki
með, er sú að sperrast fram úr öll-
um. Hin er að fara út fyrir veg á góð-
um stað þar sem hægt er að komast
í var og hleypa lestinni fram hjá sér.
Þá ætti að vera, í einhvern tíma að
minnsta kosti, hægt að aka sæmi-
lega afslappaður á eftir. Þetta á auð-
vitað sérstaklega við um þá sem eru
hægfara einhverra hluta vegna, t.d.
með einhver tengitæki aftan í bíln-
um. Ökumenn slíkra farartækja
þurfa að vera sérstaklega vel á verði
gagnvart því að hleypa fram úr sér.“
— En skiptir ekki máli að umferð-
in sé í takti, að sem fæstir séu út úr
þeim takti og enginn aki miklu
hraðar eða miklu hægar en allir aðr-
ir?
„Jú, það er rétt. Við höfum lengi
brýnt fyrir fólki nauðsyn þess að
halda jöfnum ferðahraða og auðvit-
að er Ijóst að mikill hraði er afar
hættulegur. En lítill hraði getur á
sinn hátt verið hættulegur gagnvart
öðrum vegfarendum. Við getum
auðvitað ekkert ætlast til þess að all-
STOFNLANADEILD
LANDBÚNAÐARINS
Laugavegi 120, 105 Reykjavík
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1993 þurfa að berast
Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir 15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni,
þar sem meðal annars er tilgreind stærð og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar og veðbókarvott-
orð. Þá skal fylgja umsókn búrekstraráætlun til 5 ára og koma þarf
fram hverjir væntanlegir fjármögnunarmöguleikar umsækjanda eru.
Þeir, sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1993,
þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31. desember n.k.
Allar eldri umsóknir falla úr gildi 15. september n.k.
Það skal tekið fram, að það veitir engan forgang til lána þó
framkvæmdir séu hafnar áður en lánsloforð frá deildinni liggur
fyrir.
Sérstök athygli er vakin á því, að Stofnlánadeild landbúnaðarins er
óheimilt lögum samkvæmt að fara á eftir öðrum veðhöfum en opinber-
um sjóðum. Lántakendum er sérstaklega bent á að tryggja sér veðleyfi
vegna væntanlegrar lántöku frá Lífeyrissjóðum öðrum en Lífeyrissjóði
bænda og öðrum þeim aðilum, sem eru með veð í viðkomandi jörð.
Umsóknareyðublöð fást hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins, útibúum
Búnaðarbanka íslands og búnaðarsamböndum.
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS
Breskur biskup varð að skilja píanóið sitt eftir
í Bandaríkjunum. Ástæðan:
Svörtu nóturnar
eru úr fílabeini
Enskum biskup, sem dvalið hefur
átta ár í Bandaríkjunum, var mcin-
að að taka píanóið sitt með sér heim
þegar hann hugðist flytja búerlum,
sagði í fréttaskeyti frá Reuter í gær.
Tollayfirvöld gerðu píanó biskups-
ins upptækt og sögðu að bannað
væri að flytja fflabein frá Bandaríkj-
unum. Já, þið lásuð rétt lesendur
góðir, fflabein. í Bandaríkjunum eru
lög sem kveða á um verndun ffla og
taka þau m.a. til flutnings á fflabein-
um.
Nú spyrja eflaust einhverjir: „Hvað
hefur fflabein með píanó að gera?“
Jú, svörtu nóturnar á píanói bisk-
upsins eru úr fflabeini.
Séra Michael Marshall, en það heit-
ir biskupinn, þótti heldur súrt í
broti að þurfa að skilja hljóðfærið
við sig og skrifaði grein í dagblað
ensku biskupakirkjunnar. í grein-
inni segir hann að bandarískir toll-
verðir hefðu krafið sig svars um það
hvar á jörðu ffllinn hefði veriö skot-
inn. Ekki vissi biskupinn það enda
píanóið komið allnokkuð til ára
sinna og sjálfur kom hann hvergi
nærri smíði þess.
Þegar biskupinn hafði mótmælt
þessari „afturvirku reglugerðarná-
kvæmni" var honum svarað: „Sorry!
Biskupinn hefði ekki átt að koma
með píanóið til Bandaríkjanna,
hann getur sjálfum sér um kennt.“
Séra Marshall hefur búið undanfar-
in átta ár í Missouri í Bandaríkjun-
um vegna starfa sinna sem eru á
vegum kirkju hans.
—Reuter/Krás.