Tíminn - 01.08.1992, Blaðsíða 10

Tíminn - 01.08.1992, Blaðsíða 10
10 Tíminn Laugardagur 1. ágúst 1992 Landsnefndin fyrri vildi stuðla að framförum og þar á meðal tækninýjung- um meðal íslendinga. Árið 1784 hét amtmaðurinn fyrir norðan því 5-8 ríkis- dölum þeim, er fundið gæti snjöll ráð til þess að veiða 100 seli á tveimur árum án byssu eða skut- uls. Margir urðu til að spreyta sig og segir hér af framgangi samkeppninnar, sem leiddi í Ijós að ýmsir hugvitsmenn leyndust með þjóðinni. Landsnefndin fyrri, sem svo hefir verið kölluð, var skipuð 1770. Hún gerði margar tillögur, er miðuðu til þjóðheilla, og komust ýmsar þeirra í framkvæmd á næstu árum. Eitt af því, sem komst á vegna tilstuðlunar hennar, var það, að menn skyldi fá verðlaun fyrir ýmiss konar nýbreytni og framtakssemi, svo sem garða- hleðslu, mótak, bátasmíði, kvarna- smíði, vefnað o.fl. Af þessu mun það og sprottið, að árið 1784 hét Stefán amtmaður Þórarinsson verðlaunum fyrir ýmsar nýjar framkvæmdir nyrðra. Hann hét og 5-8 ríkisdala verðlaunum þeim Skagfirðingum og Eyfirðingum, er gæti fundið upp snjöll ráð til selveiða (án þess að skjóta selina eða skutla) og hefði veitt 100 seli fyrir árslok 1786. Ætl- aði hann að fá fé til þessara verð- launa með almennum samskotum, en rentukammerið féllst á hugmynd- ina og ákvað, að verðlaunin skyldi veitt úr opinberum sjóði. Eftir að hafa ráðgast um við emb- ættismenn landsins, ákvað svo rentukammer að verölauna selveiðar víðar en á Norðurlandi. Var þessi ákvörðun þess birt fyrir Vesturamtið 1789 og fyrir Suðuramtið 1790. Er þar svo fyrir mælt, að þeir sem veiða sel á þeim stöðum, þar sem hann hefir ekki veiðst áður, skuli fá 16 skildinga verðlaun fyrir hvern sel (kæpur þó ekki taldar þar með), en þar sem selveiði hafi verið stunduð áður, skuli ekki nein verðlaun veitt fyrir fyrstu 50 selina, en 16 skilding- ar fyrir hvern sem veiðist þar um- fram. Þessi ákvæði skyldu gilda um þrjú ár. Umsóknum um þetta áttu að fylgja vottorð málsmetandi manna, og sýslumenn að skýra frá á hvern hátt selveiðin hafi verið rekin og hvar. Út af þessu komu fram þrjár um- sóknir um verðlaun, er nú skal sagt frá: Selveiöi í Kúöaós Árið 1793 sækir Jón ögmundsson bóndi á Nýjabæ í Leiðvallahreppi í Vestur-Skaftafellssýslu um verðlaun fyrir selveiði í Kúðaósi, og fylgja vottorð frá hreppstjórunum í Leið- vallasókn, Ólafi Jónssyni og Árna Ei- ríkssyni, og ennfremur frá Lýð Guð- mundssyni sýslumanni. Á vottorði hreppstjóranna er svo að sjá sem Jón Ögmundsson hafi fundið upp nýja veiðiaðferð í ósnum, en vegna þess hvað hann var fátækur, hafi hann ekki haft efni á því að búa sér til þau veiðarfæri, er til þess þurfti. Hafi hann þá fengið nágranna sína, Jón Eiríksson og Eirík Bjarnason á Rofa- bæ í Meðallandi, til liðs við sig. Voru þeir þeim mun betur efnaðir, að þeir gátu lagt fram kostnað við veiðar- færin. Síðan hafi Jón Ögmundsson kennt þeim, hvernig átti að fara með þau og hvernig veiðunum skyldi hagað. Bar þetta þann árangur, að fjögur seinustu árin höfðu þeir veitt 200 fullorðna seli og 27 kópa í ósn- um. Segja hreppstjórarnir, að þeir Rofabæjarbændur hafi gefið mikið af sínum hlut til fátækra í sókninni, en nokkuð hafi verið selt efnaðri mönn- um með mjög vægu verði. Þeir hreppstjórarnir segja, að fyrr- um hafi selveiðar verið mikið stund- aðar í ósnum, en af ýmsum ástæðum hafi þær lagst niður fyrir nokkrum I lok 18. aldar var seturinn ekki talinn hálfgerð skaðræðisskepna eins og nú er, heldur þótti hann ein blessuö guðsgjöf. árum. Fyrir þennan dugnað og fram- takssemi bændanna við selveiðarnar verði að telja að þeim beri verðlaun. Lýður sýslumaður staðfesti þessa umsögn þeirra. Hann segir ennfrem- ur, að ef fleiri hefði efni á því að út- vega sér veiðarfæri, mundi selveiðin aukast mjög framvegis, enda hafi ósinn breytt sér nýlega og sé nú betri veiðiskilyrði þeirra megin en áður var. Segir hann, að straumurinn í fljótinu hafi áður legið við vestur- landið og þá hafi verið betri selveiði þeim megin, en stunduð með öðrum hætti. Selveiöi og refadráp Árið 1795 sækir Jón Jónsson í Skildinganesi við Skerjafjörð um viðurkenningu og er sú umsókn á þessa leið: „Þar sem ég hefi nú um nokkur ár kappkostað að iðka skotfimi og lagt í nokkurn kostnað til þess, og mér hefir orðið svo vel ágengt, að ég hefi skotið rúmlega 80 fullorðna seli og náð þeim, en auk þess 19 fullorðna refi, að ekki sé minnst á aðra veiði, þá hefir mér komið til hugar að biöja yðar hágöfgi virðingarfyllst að mæla fram með mér við hans hátign kon- unginn, í þeirri von að honum mætti þóknast náðarsamlegast að veita mér verðlaun fyrir þetta og þar með hvetja mig og aðra til að sýna ástundun framvegis." Stefán Þórarinsson amtmaður. Hann ætlaði í upphafi að afla verðlaunafjárins meö almenn- um samskotunm, en rentu- kammerinu hugnaðist hug- myndin svo vel aö það bauöst til að leggja peningana fram úr opinberum sjóöum. — En loks fékk enginn nein verðlaun! Bréfið er stílað til Ólafs Stefánsson- ar stiftamtmanns í Viðey. Selveiöi í Holtsósi Árið 1794 sækir Ólafur Jónsson gullsmiður og bóndi í Selkoti undir Eyjafjöllum um viðurkenningu fyrir selveiði og fyrir að hafa fundið upp alveg nýtt veiðarfæri til þess. Fylgir með eftirfarandi vottorð frá hrepp- stjórunum í Eyjafjallasveit, Ólafi Einarssyni og Bjarna Bjarnasyni: „Hve marga seli gullsmiðurinn Ól- afur Jónsson, bóndi í Selkoti undir Eyjafjöllum, hefir veitt í Holtsósi síðan hann fyrst upp fann þar veiði fyrir 24 árum, kunnum við ekki með vissu að segja, nema eftir því sem hann sjálfur hefir sagt okkur, að það sé alls 900 selir og þar af 300 kópar, en það vitum við, að stundum hefir hann fengið 70 seli á ári og þar yfir og undir. Líka vitum við, að hann hefir upp fundið verkfæri til þess að koma nótinni út með, þegar ei hefir orðið komist með hana á báti.“ Séra Jón Hálfdanarson prests Gísla- sonar, sem þá var prestur að Eyvind- arhólum (d. 16. júlí 1797) vottaði, að þessi vitnisburður hreppstjóranna væri réttur. Þá var sýslumaður í Rangárvalla- sýslu Vigfús Þórarinsson á Hlíðar- enda (1789-1816), faðir Bjarna Thor- arensen skálds. Hann staðfesti þessa vitnisburði og segir svo: „Við þessi vottorð hefi ég ekki öðru að bæta, en láta hér með fylgja upp- drátt, sem veiðimaðurinn hefir sjálf- ur afhent mér, af „vél“ þeirri, er hann lætur draga nótina út úr brimgang- inum. Hann á hrós skilið fyrir dugn- að sinn og framtakssemi við veiðarn- ar, og hann mun áður hafa fengið styrk hjá inu konunglega rentu- kammeri til hákarlaveiða." Þessu fylgir svo mynd og lýsing á þessari „vél“, sem Ólafur Jónsson í Selkoti hefir fundið upp. Er það þrí- hyrndur fleki með segli, sem hafður er til þess að draga selanótina frá landi. Lýsing fylgir og er hún á þessa leið: „Þar sem straumur er, má nótin ekki vera lengri en 20 faðmar, en í lygnu vatni má hún vera 30-40 faðma Iöng og 14 möskvar á dýpt. Með tveggja faðma millibili verður að vera flá á nótinni, en beinsoppar aðeins fáir. Ef vindur er ekki hag- stæður, má þó haga seglum og beita upp í, alveg eins og á báti, því að hægt er að stýra með nótinni til beggja handa eftir viid. Seglið er fest í þríhyrninginn frámarlega eða aftar- lega, eftir því sem henta þykir. Flek- inn siglir þannig undan vindi yfir djúp og grynningar, og þótt blásandi byr standi í seglið, verða fullorðnir selir samt fastir í nótinni. Hægt er að búa þannig um, að unnt sé að fella seglið eða draga það niður í einu vet- fangi. Flekinn sjálfur er úr tré, 3 áln- ir á hvern veg. Úr nótinni liggur svo festi í land, löng eða stutt eftir því sem á stendur. Hugvitsmaðurinn telur, að þennan útbúnað, eða svipaðan, megi með góðum hagnaði nota til þorskveiða." Merkileg nýbreytni Um margar aldir var íslendingum annað lagnara en að búa sér í hend- urnar. Og þeim var illa við alla ný- breytni. Reyndi einhver að létta sér störf og vinna þau af meiri hagsýni en áður var gert, var hann talinn sér- vitringur og hæðst að honum fyrir það. Engum kom til hugar að taka hann sér til fyrirmyndar. Þess vegna var það, að þótt eitthvað nýtt kæmi fram í vinnubrögðum, þá hvarf það úr sögunni með þeim, sem átti frum- kvæði að því. Og þessi merkilega ný- breytni Ólafs í Selkoti er gott dæmi um það. Hann hafði sýnt meira hyggjuvit en almennt gerist, og hann hafði líka sýnt, að hafa mátti góðan arð af því, það varð beinlínis í askana látið. En ekki þótti þessi nýja veiði- aðferð hans merkilegri en svo, að ég veit ekki til að hennar sé nokkurs staðar getið nema í skjölum þeim, er fylgdu umsókn hans og nú eru geymd í Þjóðskjalasafni. Sennilega hefir veiðiaðferðin lagst niður þegar hann féll frá. En einhvern tíma mun Ólafur verða settur á bekk með öðr- um íslenskum hugvitsmönnum. Ólafur var lærður gullsmiður og enn munu vera til smíðisgripir eftir hann. Á þeim tímum þurftu iðnaðar- menn að vera „sigldir", og er því lík- legt, að Ólafur hafi farið utan til iðn- náms og fengið við það víðari sjón- deildarhring en allur almenningur. Hann tekur eftir því, að oft er mikið af sel við Holtsós. En selurinn er ekki veiddur. Þarna er ákaflega brimasamt og opin sandströnd og illt að koma bátum við. Þá fer Ólafur að hugsa um það, hvernig hægt sé að ná í selinn. Hann sér, að ef hægt er að koma út nót, þá muni selurinn festa sig í henni. Er ekki hægt að koma nótinni út, þótt enginn sé báturinn við? Hvaða kraft er hægt að nota til þess? Og þá verður vindaflið fyrst fyrir honum, þetta afl, sem kynslóð- irnar hafa hver fram af annarri notað til þess að knýja áfram fleytur sínar. Er ekki hægt að nota vindinn til þess að draga nótina út í sjó? Og Ólafur fer að hugsa um, hver ráð muni til þess. Árangurinn verður sá, að hann smíðar þennan seglfleka. Reynslan sýnir honum, að flekinn megnar að draga nótina frá landi. Og reynslan kennir honum það líka, að hægt er að stýra flekanum með nót- inni og hafa má grannt færi úr segl- inu í land, til þess að geta kippt því niður, áður en flekinn skyldi aftur dreginn að landi. Með því að hafa langt band í nótinni, mátti láta hana fara lengra frá landi en lengd hennar nam. Og tilganginum var náð — sel- urinn fór í nótina og þarna gat hann tekið allt að 70 seli á ári á þurru landi. Flekinn hefir ekki verið dýr, hefir varla kostað nema örlítið brot af því,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.