Tíminn - 01.08.1992, Page 17
Laugardagur 1. ágúst 1992
| Tlminn 17
Sumarferð Framsóknar-
félaganna í Reykjavík
laugardaginn 8. ágúst 1992
Farið verður um:
Gullfoss — Geysi — Hveravelli — Blönduvirkjun
Kl. 08:00 Lagt af stað frá BSl og ekið að Geysi i Haukadal, þar sem fólki gefst
kostur á að skreppa i sjoppu.
Kl. 10:30 Lagt af stað frá Geysi. Ekiö norður Kjöl að Hveravöllum.
Þar munu ferðalangar borða nesti sitt.
Kl. 15:00 Lagt af stað frá Hveravöllum og ekið norður að Blönduvirkjun, þar
sem virkjunin verður skoðuð I fylgd leiðsögumanns. - Áður en komið er
að Blönduvirkjun verður stansað og Páll Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, flytur stutt ávarp.
Kl. 18:00 Lagt af stað frá Blönduvirkjun og er ekið að Staðarskála.
Kl. 21:00 Lagt af stað frá Staöarskála og ekið tii Reykjavlkur.
Áætlað er að koma til Reykjavikur kl. 23:45.
Fargjald kr. 2.800,-.
Tekið verður á móti sætapöntunum I sima 624480 eða á skrifstofu Framsóknar-
flokksins, Hafnarstræti 20, 3. hæð, 4.-7. ágúst.
V-Húnvetningar - Sumarferð
Framsóknarfélag V-Húnvetninga fer I sumarferð laugardaginn 1. ágúst n.k. -1 þetta
skipti verður slldarstemningin á Siglufirði upplifuð.
Einstakt tækifæri til að upplifa stemningu sildaráranna I góðum hópi.
Nánari upplýsingar hjá Elinu I slmum 95-12596 og 12570 og hjá Kristjáni I slma 95-
10016.
Framsóknarfélag V-Húnvetnlnga.
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. mai er skrifstofa okkar I Hafharstræti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin. Framsóknarfíokkurinn.
SUF-þing á Egilsstöðum
28.-30. ágúst
DAGSKRÁ
Föstudagur 28. ágúst:
Kl. 16.00 Setning. Siv Friöleifsdóttir, formaður SUF.
Ki. 16.30 Kosning embættismanna, skipað I nefndir
Ki. 16.45 Ávörp gesta.
Kl. 17.15 Lögð fram drög að ályktunum.
Almennar umræður.
Kl. 19.00 Kvöldverður.
Kl. 20.00 Fyririestrar um sjávanjtvegsmál.
Fyrirspumir og umræður.
Kl. 21.30 Nefndastörf.
Kl. 22.30 Óvæntar uppákomur á Munaðarhóli og/eöa I Hliöskjálf.
Laugardagur 29. ágúst:
K). 08.30 Árbltur.
Kl. 09.00 Nefndastörf.
Kl. 11.00 Umræður.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
Kl. 13.00 Umræður og afgreiðsla ályktana.
Kl. 14.30 Hlé.
(0. 16.00 Afgreiðsla stjómmálaályktunar.
Kl. 17.00 Kosningar.
Önnur mál.
Kl. 18.00 Þingslit.
Kl. 19.30 Grillveisla að hætti Héraðsbúa.
Kl. 23.00 Sveitaball (með þverpólitlsku yfirbragði).
Sunnudagur 30. ágúst:
Kl. 09.00 Árbítur.
Brottför.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1992
Dregið var i Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 10. júli 1992. Vinningsnúmer eru
sem hér segir:
1. vlnningur nr. 29595
2. vlnningur nr. 26487
3. vinningur nr. 1668
4. vinnlngur nr. 36086
5. vlnnlngur nr. 9702
6. vinningur nr. 23897
7. vinningur nr. 24772
8. vinningur nr. 39900
9. vinningur nr. 715
10. vinningur nr. 17477
11. vinningur nr. 4527
12. vinnlngur nr. 36239
13. vinnlngur nr. 3146
14. vlnningur nr. 30173
15. vinningur nr. 1992
Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá útdrætti. Frekari upplýs-
ingar eru veittar I slma 91-624480.
Með kveðju og þakklæti fyrir veittan stuðning.
Framsóknarfíokkurinn.
Isaac Dog Eagle á gresjunni meö mynd af forfööurnum fræga.
Barnabarnabarnabarn Sitjandi tudda eraö reyna að sameina Sioux-indíána að nýju:
Vill feta í fót-
spor feðranna
Þessi mynd af þeim Sitjandi tudda og Buffalo Bill hefur gengiö í arf
kynslóöa á milli sem tákn um vináttu þessara tveggja þjóösagna-
hetja.
Isaac Dog Eagle er 52 ára og
barnabarnabarn fóstursonar hins
fræga indíánahöfðingja Sitjandi
tudda.
„Ég lifði sem hvítur maður á
yngri árum,“ segir hann. „Ég fór á
böll og borðaði kalkún á jólunum.
En svo rann það upp fyrir mér
einn góðan veðurdag að við áttum
nákvæmlega ekkert sameigin-
legt.“
I dag berst afkomandi höfðingj-
ans, sem er frægastur fyrir að hafa
stráfellt Custer hershöfðingja og
menn hans við Little Big Horn ár-
ið 1876, fyrir því að endurheimta
land forfeðra sinna og afla þjóð
sinni pólitísks og efnahagslegs
sjálfræðis.
Hann starfar nú sem ættbálka-
dómari og rær að því öllum árum
að sameina ættbálk Siouxa á nýj-
an leik. Hann býr skammt frá
þeim stað þar sem forfaðir hans
lét lífið, er hann reyndi að flýja
lögregluna í „draugadansa“-upp-
reisninni árið 1890.
Sitjandi tuddi var fæddur árið
1834 rétt hjá Grandefljóti í Suður-
Dakota. Hann er orðinn þjóð-
sagnapersóna fyrir baráttu sína
gegn nýlendustefnu ameríska
hersins á síðari hluta nítjándu
aldar.
Hann var leiðtogi andspymunn-
ar á árunum 1876-77 og, eins og
áður segir, stjómaði hann herför-
inni gegn Custer hershöfðingja og
267 mönnum hans. Indíánarnir
vom í miklum meirihluta og hafa
amerískar sögubækur lýst þessum
atburði sem fjöldamorði af hálfu
indíánanna.
Sitjandi tuddi neitaði því ávallt
að um fjöldamorð hefði verið að
ræða. Amerískir hermenn hefðu
ráðist inn í land hans og gert til-
raun til að drepa hann og fólk
hans. Því hafi þetta verið hrein og
klár sjálfsvöm.
Hann gerði sér þó ljóst að hann
hafði vakið reiði ameríska hersins
svo um munaði. Hann greip því
til þess ráðs að fara með ættbálk
sinn, 500 Sioux-stríðsmenn,
1.000 konur og 1.400 börn, auk
3.500 hesta og 30 múlasna, til
Kanada.
Næstu fjögur árin stóð höfðing-
inn í samningaviðræðum við kan-
adísk og amerísk yfirvöld um að fá
leyfi til að snúa heim aftur. Árið
1881 var honum veitt sakarupp-
gjöf og hann sneri til verndar-
svæðisins Standing Rock.
Um tíma var Sitjandi tuddi
skemmtikraftur í sýningarflokki
Buffalo Bill.