Tíminn - 15.08.1992, Side 5
Laugardagur 15. ágúst 1992
Tíminn 5
Jón Kristjánsson skrifar
Við upphaf sumarþings
Sumri er nú farið að halla. Þetta hefur ver-
ið heitt sumar í stjómmálum, hvað sem veð-
urfarinu líður. Það hefur engin gúrkutíð ver-
ið í fréttum af þeim vettvangi.
Alþingi mun hefja störf á mánudaginn eftir
hlé á reglulegum þingstörfum í sumar.
Nefndir þingsins hafa þó verið að störfum,
þar sem þær hafa nú umboð milli þinga, eft-
ir nýjum þingsköpum. Formlega situr Al-
þingi að störfum og það er hægt að kalla það
saman með litlum fyrirvara.
Annríkí og átök
Það þing sem hefur störf nú eftir helgina
fær ærinn starfa í hendur. Tilgangurinn með
sumarþinginu er að ræða EES-samninginn.
Það er í samræmi við samkomulag sem gert
var um þau vinnubrögð síðastliðið vor. Það
samkomulag gerði ráð fyrir að nefndir ynnu
við fylgifrumvörp í sumar og fyrsta umræða
um málið hefjist þegar þing kemur saman.
Ekki verður betur séð en að þetta mál sé allt
í uppnámi. Veigamestu þættir þess eru óút-
kljáðir. Tvíhliða samningur um sjávarút-
vegsmál liggur ekki fyrir, en hann og fram-
kvæmd hans eru svo mikilvægir hlutir máls-
ins að umræðan er út í högg án þess að þetta
mál sé frágengið.
Bullandi ágreiningur er meðal fræðimanna
um hvort samningurinn brýtur í bága við
stjómarskrá íslenska lýðveldisins. Þing-
menn geta ekki látið þennan ágreining sem
vind um eyru þjóta. Þeir hafa svarið þess eið
að virða stjórnarskrána.
Mikilvæg fylgifrumvörp um eignarrétt
lands og auðlinda liggja ekki fyrir og sá þátt-
ur er algjörlega óljós.
Með illu eða góðu
Eins og stendur er útlit á því að stjómar-
flokkamir ætli að keyra EES-samninginn í
gegnum þingið og hlusta ekkert á gagnrýni
á stjómarskrármálið eða annað. Kratar, und-
ir forystu Jóns Baldvins, hafa lagt allt undir í
málinu og ljóst er að Jón mun leggja mjög
ríka áherslu á það við Davíð Oddsson að
hann tryggi málinu framgang í Sjálfstæðis-
flokknum refjalaust. Ljóst er að umræður
fara fram um það í fullri alvöm milli stjóm-
arflokkanna að koma Eyjólfi Konráð Jóns-
syni úr stóli formanns utanríkismálanefndar
og fá þar harðlínumann í Evrópumálum í
staðinn. Ekki er ólíklegt að kratamir vilji
koma Karli Steinari í stólinn því hann er sá
sem lengst hefur gengið í yfirlýsingum um
Evrópumál af þingmönnum flokksins og er
reiðubúinn að ganga í EB.
Ég hef unnið undir stjórn Eyjólfs Konráðs í
þingnefndum og þekki því til starfa hans á
þeim vettvangi. Eyjólfur er ákafamaður, en
hann leggur sig fram um að gæta réttar
minnihlutans og afla þeirra upplýsinga sem
um er beðið. Ég hef enga trú á því að hann
hefði tafið fram-
gang þessa máls
fram yfir það
sem eðlileg upp-
lýsingaöflun og
umræða hefði
krafist. Ljóst er
að stjórnarliðar
vilja skipta um
formann utan-
ríkismálanefndar
til þess að vera
viðbúnir átökum og vaða yfir minnihlutann
og afgreiða málið með valdi úr nefnd ef þurfa
þykir. Til slíkra verka er Eyjólfur áreiðanlega
ófús. Hins vegar veit ég ekki betur en að
hann hafí haldið fundi baki brotnu í utanrík-
isnefnd og störf þar hafi verið með fullkom-
lega eðlilegum hætti.
Staða atvinnuveganna
Hins vegar er það margt fleira en EES-sam-
ingurinn sem þarf að koma til kasta Alþing-
is. Þar ber hæst stöðuna í atvinnumálum og
gildir þar einu hvort um er að ræða sjávarút-
veg eða landbúnað. Satt að segja eru engin
dæmi þess að ríkisstjórn hafi á síðari árum
mætt til þings með málin í svo fullkomnu
uppnámi sem þessi. Atvinnuleysi er hraðvax-
andi og höfuðútflutningsatvinnuvegur
landsmanna hefur verið rekinn með halla
allt þetta ár, án þess að nokkrar fullnægjandi
aðgerðir hafi verið boðaðar til þess að skapa
honum bærilegt umhverfi. Ljóst er að þetta
reynir mjög á innviði Sjálfstæðisflokksins og
landsbyggðarþingmönnunum og þeim for-
ystumönnum í sjávarútvegi sem styðja
flokkinn líður illa. Einnig liggur í augum
uppi að sambúð Davíðs Oddssonar og Þor-
steins Pálssonar er afar stirð og engar beinar
línur eru á milli forsætisráðuneytisins og
sjávarútvegsráðuneytisins. Átökin um út-
hlutun heildarafla og ráðstafanir í tengslum
við þá úthlutun eru til marks um þetta.
Hitt má svo landsbyggðarþingmönnum
flokksins vera ljóst að það eina sem getur
skotið frjálshyggjuforystu flokksins skelk í
bringu er að sýna henni í tvo heimana á Al-
þingi. Yfirlýsingar út og suður gagna ekki
meðan hægt er
að ganga að at-
kvæðunum vís-
um á Alþingi á
hverju sem
gengur.
Haustmyrkur
yfir ríkisstjórn-
inni
Það er Ijóst að
þetta haust verður ríkisstjórninni afar erfitt.
Þau mál sem verða verst viðfangs eru EES-
samningurinn, afkomumál sjávarútvegsins,
nýr búvörusamningur og fjárlagagerð fyrir
árið 1993. Atvinnuleysi heldur áfram að vaxa
og getur farið að nálgast þau mörk sem valda
verulegri ólgu í þjóðfélaginu.
Þegar þing byrjar eru öll þessi mál í upp-
námi og sér ekki fyrir endann á einu einasta
þeirra með viðunandi lausnum.
Verður hrókerað?
Það vakti athygli þegar átök voru mest um
úthlutun heildarafla í sumar að Alþýðublað-
ið dró ekki afsér að draga fram í dagsljósið
klofning Sjálfstæðisflokksins um það mál.
Sýnt er að kratar mundu gráta það þurrum
tárum að Þorsteinn viki úr ríkisstjóminni og
veldur þar um ásetningur þeirra að koma á
veiðileyfagjaldi í sjávarútvegi. Það liggur og
ljóst fyrir að Jón Sigurðsson hefur um langt
skeið litið stól sjávarútvegsráðherra hým
auga og ætli hann sér eitthvað gefst hann
ekki svo glatt upp.
f einhverju glansmyndatímaritinu lét Dav-
íð Oddsson að því liggja að til greina kæmi
að hrókera ráðhermm í ríkisstjórninni eða
skipta um þá. Sú spuming vaknar hvort ein-
hver slík áform séu á döfinni. Ekki er langt
síðan slíkt var gert í Sjálfstæðisflokknum við
magnaða óánægju. Frekar ótrúlegt er að
Davíð leggi í að taka þann slag nú, þótt krat-
arnir væm mjög áfjáðir í að komast t.d. í
sjávarútvegsráðuneytið.
Hækkun skatta?
Fjárlagagerðin verður svo afar erfitt mál
fyrir ríkisstjórnarflokkana. Samdráttarstefn-
an hefur komið hart niður á tekjum ríkis-
sjóðs og þau markmið sem sett vom í upp-
hafi árs hafa ekki náðst. Tekjur ríkissjóðs af
einkavæðingunni eru nálægt því heímingi
minni en áætlað var og nú leggja postular
hennar til að einkavæðingin fái andlitslyft-
ingu með því að leggja hluta af fjármagninu
til rannsókna og nýsköpunar. Stjórnarand-
staðan benti á það þráfaldlega þegar fjárlög
yfirstandandi árs vom til umræður að rann-
sóknir væm í fjármagnssvelti, en talað var
fyrir daufum eyrum stjórnarliða.
Ég heyrði ekki betur en að Karl Steinar
Guðnason, formaður fjárlaganefndar boðaði
skattahækkanir í útvarpsviðtali nú núverið.
Ef þar fylgja aðgerðir máli myndast enn einn
núningsflöturinn í stjórnarsamstarfinu. Þá
rís upp hin efnaða millistétt í Sjálfstæðis-
flokknum og fjármagnseigendur sem ekki
má koma nálægt hversu miklir erfiðleikar
sem em í þjóðfélaginu.
Lifír stjómin haustið af?
Þetta haust verður því viðburðaríkt í stjóm-
málum. Spurt er hvort ríkisstjómin standi
af sér þessa storma. Því er til að svara að enn
virðist samband þeirra Davíðs og Jóns Bald-
vins, sem myndaðist fyrir síðustu kosningar,
haldast. Spurningin er hins vegar hvort
stjórnarliðar láta sér lynda að dansa í kring-
um þá félaga á hverju sem gengur. Næstu
vikur munu leiða það í ljós.