Tíminn - 15.08.1992, Blaðsíða 11
Laugardagur 15. ágúst 1992
Tíminn 11
/V'
Ásgeirsson hlýtur að verðleikum
sess í sögunni, Jens Benedictsen má
heita gleymdur.
í tveim ritum sem fjalla um sjávar-
útveg er sagt að Jens Benedictsen
hafi fýrstur manna gert þilskip út til
fiskveiða frá ísafirði, en því er bætt
við að Benedictsen hafi ekki verið
gáfumaður en kunnað að græða. Til
þess að reka stórt fyrirtæki að gagni
þarf þekkingu, reynslu, útsjónar-
semi, fyrirhyggju, reglusemi, ár-
vekni, þrek og er ekki ljóst hvað
meira þarf að heimta í sambandi við
gáfnafar. ísiendingar hafa löngum
farið kollsteypu af hrifningu ef ein-
hverjum hefur tekist að krækja sér í
lærdómsgráðu, klambra saman mis-
góðu hrafli sérfræðiritgerða eða
endurminninga eða bókarkorni.
Færra er ritað um þá sem halda
þessu öllu í gangi, borga lærdóminn
og skriffmnskuna, en það eru at-
hafnamenn og alþýða manna.
„Hér tölum við ekki
um lýsi!“
Árið 1830 gekk Jens Benedictsen
að eiga danska konu, Anne Marie
Frohm, og hefur hún fengið heldur
ómilda dóma. Er hún sögð hafa ver-
ið dramblát og litið niður allt ís-
Ienskt, þar með mann sinn. Er sú
saga sögð, en ekki getið heimilda,
að í veislu hafi frú Benedictsen sagt:
„Þegiðu, Jens, hér tölum við ekki
um lýsi.“ Þótt ekki sé hægt að taka
þetta alvarlega, þá má benda á að
það var ekki óeðlilegra á þessum
tíma að tala um lýsi í Kaupmanna-
höfn en hitaveitu í Reykjavík. Það er
a.m.k. hæpin fræðimennska að taka
veisluhjal, þótt rétt væri eftir haft,
sem sönnun um innræti og gáfnafar
veislugesta.
Sagt hefur verið og túlkað illa að
frú Benedictsen hafi ekki linnt Iát-
um fyrr en maður hennar flutti frá
ísafirði til Kaupmannahafnar. Þetta
er ekki rétt. Frúin var á ísafirði
meira en 5 ár eftir að hún giftist
Jens Benedictsen og þar átti hún 2
börn, hið síðara í apríl 1835. Það
hefur verið fátt til afþreyingar eða
þæginda á malareyrinni norður við
heimskautsbaug. Þar voru innan við
40 íbúar og hafa líklega ekki getað
talað við þessa dönsku konu og síst
af skemmtilegu viti. Samband við
önnur lönd og fréttir af ættingjum
og vinum svo sem einu sinni á ári
og annað eftir þessu. Þess eru raun-
ar mörg dæmi nú á dögum að fólk
getur ekki unað lífi í litlum sjávar-
þorpum, þrátt fyrir fjölmiðla og
samgöngur.
Hið rétta í þessu máli er það að
Jens Benedictsen varð að setjast að í
Kaupmannahöfn, því hann varð
brátt svo mikill viðskiptahöldur að
hann gat varla verið búsettur ann-
ars staðar. Um þessar mundir var
búseta íslenskra athafnamanna í
Kaupmannahöfn ekki spurning um
vistlegan og skemmtilegan dvalar-
stað, heldur lengi vel óhjákvæmileg
nauðsyn.
Jens Benedictsen átti 6 börn við
konu sinni, 4 pilta og 2 stúlkur. Eru
afkomendur þeirra hjóna margir og
í ábyrgðarstöðum og hafa farið víða,
en flestir í Danmörku. Hér á landi er
e.t.v. kunnastur dóttursonur hjón-
anna, Aage Meyer Benedictsen,
ferða- og fræðimaður, rithöfundur
og afburða mælskumaður. Hann var
mikill íslandsvinur og frumkvöðull
að stofnun Dansk- ísienska félags-
ins.
Kom ísafirði á kortið
Jens Benedictsen afrekaði miklu á
stuttri starfsævi og niðjatal hans
sýnir að hann hefur skilað ósvikn-
um arfi frá merkum forfeðrum.
Hann byrjar athafnaferil sinn með
því að kaupa Hæstukaupstaðarversl-
un á ísafirði 1829 og taka þar fyrst-
ur manna til við þilskipaútgerð. Að
því leyti kom hann ísafirði á kortið,
ef svo má segja, og ætti skilið að
honum væri reistur þar bauta-
steinn. Þegar hann fellur frá hefur
hann á 13 árum margfaldað eignir
sínar um það bil 80 sinnum. Að svo
miklu leyti sem ráða má af verslun-
arskjölum og stökum ummælum
sem finnst hér og hvar, hefur Jens
Benedictsen verið vinsæll af alþýðu
manna, talinn mjög sanngjarn í við-
skiptum og ekki orðaðu við okur,
hvað þá ránsskap eða valdbeitingu
fjáraflamanns. Hann hverfur af svið-
inu á besta aldri og rétt er að benda
á það að ýmsir frændur hans fóru þá
fyrst að láta til sín taka í menningar-
og þjóðmálum þegar þeir voru
komnir yfir þann aldur sem örlögin
sköpuðu Jens Benedictsen. Enginn
veit hver framvindan hefði orðið, en
allar líkur benda til þess að fjár-
málaumsvifin hefðu ekki nægt Jens
Benedictsen til lengdar, því að hann
virðist að eðlisfari hafa verið braut-
ryðjandi og maður nýjunga.
Það skortir nógu góðar og traustar
sagnir til þess að lýsa persónunni Jens
Benedictsen. Að minnsta kosti í þrem
prentuðum heimildum er sagt frá láti
Jens Benedictsen og ein heimildin
bætir við:
„Hann var fríður maður og gerðar-
legur, karlmenni og glíminn."
„Hann var drengur góður og harm-
dauði öllum sem hann þekktu," seg-
ir á öðrum stað.
Loks hefur annáll um fréttina um
fráfall Jens Benedictsen og bætir
við: „Hann var ágætismaður."
Þessar umsagnir, þótt stuttar séu,
eru fortakslaust vitni um manngildi
þess sem frá er sagt. Hins vegar er
Vestmannaeyjar 1855 eöa
þrettán árum eftir aö Jens Jak-
ob féll frá. Hér rak hann Garös-
verslun og geröi út sjö þilskip
og fimm flutningaskip.
það athyglisvert og næstum tákn-
rænt að nær ekkert er sagt frá at-
höfnum og brautryðjandastarfi þess
forystumanns í verslunar- og út-
gerðarmálum.
(Bárður Jakobsson skráði)
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 S622901 og 622900
tyJl-GsiCiJfUttl
Olíufýllti rafmagnsofhinn frá ELFA LVI er skrefi framar!
V£W»
* Jafn og
þægilegur
hiti.
■ Enginn bruni ó
rykögnum né jónabreytingar
sem orsaka þurrt loft.
k I nnnr vfirknrÁckiti
ELFA LVI ofnarnir
eru framleiddir í
Svíþjóð með sama
og útliti og
venjulegir vatnsofnar.
Hagstætt verð og
greiðsluskilmólar.
Aftur
til mttúmnmr
med
l honwng
Morgunmaturinn er ein mikilvægasta máltið dagsins. 1
Vegna innihalds er MUSLI tilvalið með morgunverði. /
dööium
MÚSLI ER BRAGÐGÓÐ HEI
plSi! •“ 1
Seljum af lager flestar gerðir
af þessum þekktu þýsku
gírmótorum og rafmótorum.
Hagstætt verð!
Sérpantanir afgreiddar
með stuttum fyrirvara.
Sala og þjónusta á sama stað.
GIRMOTORAR / RAFMÓTORAR
Mtiðsorffý
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000