Tíminn - 15.08.1992, Blaðsíða 13
Laugardagur 15. ágúst 1992
Tíminn 13
greinilega var af erlendu bergi brotin,
skúra útídyratröppumar á einu hús-
anna. Skyndilega hafi kona komið út í
dymar og byrjað að berja stúlkuna
með háhæluðum skó þar tíl úr henni
blæddi. Eftír það hurfu þær báðar inn
í húsið. Hún kvaðst ekki vita hvað
fólkið hétí sem byggi í húsinu, en hún
gat bent lögreglumönnunum á það.
Lögreglan hélt til hússins og kvaddi
þar dyra. Glæsileg kona um þrítugt
svaraði. Aðspurð sagði hún að eigin-
maður hennar væri ekki heima,
hann væri við vinnu sína sem yfir-
maður póstverslunar bandaríska
setuliðsins. Hún sagðist sjálf heita
Birsen og maður hennar Raymond
Birsch.
Lögreglumaður spurði hversu mörg
böm hún ætti og svaraði hún því til
að þau væru fimm. Allt stemmdi við
frásögn Naidu.
Þessar upplýsingar vom taldar nægi-
legar til að handtaka konuna. Þegar
henni var tilkynnt það trylltist hún al-
veg. Hún lét skammir og svívirðingar
dynja á lögreglumönnunum, hótaði
þeim með samböndum sem þau hjón
hefðu meðal heldri manna borgar-
innar og að þeir skyldu ekki láta sér
detta í hug að þeir héldu starfi sínu út
vikuna.
Hjónin neita öllum
sakargiftum
Þegar á lögreglustöðina var komið
vom frúnni sýndar myndir af Naidu.
Hún kannaðist strax við að hún væri
þjónustustúlka sín, en neitaði að
svara hvemig á áverkunum stæði íyrr
en maður hennar væri kominn á lög-
reglustöðina og þau hefðu haft sam-
band við lögfræðing.
Þegar Raymond Birch kom á stöðina
kvaðst hann einnig kannast við Na-
idu, en ekki hafa hugmynd um hvers
vegna hún væri svo illa útleikin. Þau
hjón hefðu ávallt verið henni góð.
Þrátt fyrir að Naida hefði enn ekki
fengist til að vitna gegn þeim hjónum
var ákveðið að hneppa þau í gæslu-
varðhald þar til frekar sannanir lægju
fyrir.
Mánuðimir liðu. Aðgerðir vom
gerðar á Naidu tíl þess að lagfæra
áverkana í andliti hennar og flikka
upp á margbrotið nef hennar. En hún
neitaði stöðugt að skýra frá því hvem-
ig hún hefði hlotíð alla þessa áverka
og óttaðist þó stöðugt að verða send
aftur til Birch- hjónanna.
Læknir einn á sjúkrahúsinu, sem
hafði ofboðið ástand Naidu þegar hún
var lögð inn, neitaði að gefast upp og
smám saman tókst honum að vinna
trúnað Naidu, sem að lokum fékkst til
að segja sögu sína.
Saga Naidu
Þá skýrðist eitt atriði sem lengi hafði
vafist fyrir mönnum. Naida hafði sagt
að hún hafi verið gefin frú Birch fyrir
þremur ámm er hún eignaðist sitt
fyrsta bam. En nú áttu þau hjónin
fimm böm. Skýringin var sú að þau
höfðu átt þrjú stúlkuböm fyrir, bam-
eignir í Týrklandi teljast ómark þar til
sonur kemur í heiminn.
Naida sagði frá því að eftír að þau
komu til Þýskalands hefði frú Birch
orðið stöðugt óánægðari með hana
RÁÐNING Á
KROSSGÁTU
aa
E1ES31S
a aa
aaa I
■BQaca m
□a ði3BES
SBBQSBB
BB3BB
ES3SB SIQ
BQB BBSS
□□ SIBQfsl
BB323I BS
■aa m®
BBsrca a
B 3IHHO
baBBsa
HBB E!B
Birsen Birch kvaöst hafa verið
sérlega góð við þjónustustúlk-
una sem henni var gefin.
og farið verr með hana. Hún var látin
sofa í ókyntum kjallara og fékk ekki
svo mikið sem teppi til að breiða ofan
á sig. Hún fékk ekkert að borða nema
nokkra mjölsnúða á kvöldin og ef hún
reyndi að laumast til að ná sér í auka-
bita úr sorptunnunni var hún barin.
Hún sagði að frú Birch hefði iðulega
hárreytt sig svo að flyksumar hefðu
og saksóknari vom mikið á mótí því,
en dómarinn leyfði það.
Að því samtali loknu hafði Naida al-
veg snúið við blaðinu. Hún neitaði nú
harðlega að vitna gegn fyrrum hús-
bændum sínum og krafðist þess að fa
skýrsluna aftur sem hún hafði undir-
ritað.
Naida sagði að húsmóðir sín hefði
sagt að hún vildi fé Naidu til sín aftur
og þá skyldi hún vera henni góð. Enn-
fremur kvaðst frúin ekki lifa það af ef
hún yrði tekin frá bömum sínum og
hefði hún hlotíð slæma meðferð hjá
lögreglunni.
Naidu var þrælslundin svo samgróin
að hún vorkenndi húsmóður sinni af
öllu hjarta og vildi ekki eiga þátt í því
að hún yrði tekin ffá bömum sínum.
Svo vildi hún vitanlega ekki gera hús-
bónda sínum á móti skapi, sem aldrei
hafði kvalið hana nema honum væri
sagt það. Lögreglan stóð því skyndi-
lega uppi tómhent í þessu alvarlega
máli.
En á meðan Naida hafði verið á
sjúkrahúsinu höfðu verið fengnir
tyrkneskir túlkar til að ræða við hana.
Hún giftist fljótt einum þeirra og
eignaðist með honum son.
„Víst eru drengir
seldir“
Lögreglan var ákveðin í því að
Birch-hjónin skyldu fá að komast að
því að þrælahald og pyndingar væru
hlutur sem menn kæmust ekki upp
með í Þýskalandi og greip því til
þess að plata Naidu til að vitna fyrir
rétti.
Frúin missti algerlega stjórn á sér í réttarsalnum.
farið upp með rótum. Einnig barði
hún hana oft með borðfætí sem hún
hafði rekið í stóra nagla til þess að
gera barsmíðamar áhrifaríkari.
Þegar Naida var ekki við heimilis-
störfin var henni fyrirskipað að halda
sig í kjallaranum. Þegar þannig lá á
frúnni kom hún niður í kjallarann
með rauðglóandi skömng.
„Hún rak hann í handarkrikana og
brjóstín á mér. Einu sinni rak hún
hann milli fóta mér, það var sárt,"
sagði Naida.
Einnig skemmti ffúin sér við að
koma niður með hnífa úr eldhúsinu,
skera Naidu og láta hana síðan þrífa
upp blóðið.
Þegar Naida var spurð hvort henni
hefði aldrei dottið í hug að reyna að
hrópa á hjálp, varð hún undrandi og
kvað nei við. Hún var eign frúarinnar
og eigur hrópuðu ekki á hjálp eða
mótmæltu illri meðferð.
Hún varð þó að viðurkenna að kvöld-
ið sem hún fannst hafði hún reynt að
flýja því að hún óttaðist um lff sitt.
Naida lét vel af hr. Birch. Sagði að
hann hefði aldrei kvalið sig nema
þegar kona hans krafðist þess. Þetta
virtist henni finnast alveg einstök
manngæska.
Sinnaskipti
Þegar leið að réttarhöldunum fékk
frú Birch því framgengt að hún fengi
að tala við Naidu í einrúmi. Lögregla
Læknirinn, sem áður var minnst á,
fór til hennar og ræddi við hana.
Hann spurði hana hvemig henni
fyndist ef sonur hennar yrði seldur
eins og hún og hlyti svipaða meðferð.
Það leist Naidu ekkert á, en sagði:
„Drengir em ekki seldir, bara stúlk-
ur.“
Læknirinn hélt það nú. Þess væm
mörg dæmi í Þýskalandi að drengir
væm seldir í ánauð jafnt og stúlkur.
Og eina leiðin til að stöðva slíkt væri
að Naida bæri vitni.
Þá fóm að renna tvær grímur og Na-
idu. Því þrátt fyrir óeðlilega hús-
bóndahollustu hennar, var sonurinn
henni þó kærari en Birch- hjónin.
Hún ákvað að lokum, eftir tveggja
sólarhringa umhugsun, að vitna fyrir
réttínum.
Réttarhöldin hófust síðan í október
1970. Þó svo að Birch-hjónin neituðu
því harðlega að hafa misþyrmt þjón-
ustustúlku sinni fór svo að þau vom
dæmd sek.
Frúin var dæmd í þriggja og hálfs árs
fangelsi en maður hennar í átján
mánuði, aðallega fyrir að vera sam-
sekur konu sinni og hafa ekkert gert
tij að hindra gerðir hennar.
Við réttarhöldin missti Birsen Birch
algerlega stjóm á skapi sínu, reytti
hár sitt, fleygði sér í gólfið og æpti:
„Dæmið mig til dauða! Ég get ekki lif-
að án bamanna minna!"
Lögfræðingur hjónanna áfrýjaði
málinu, en án árangurs.
Framkvæmdastjóri
Ráðstefnuskrifstofa íslands
óskar aö ráða framkvæmdastjóra til starfa.
Starfið er laust strax eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Ráðstefnuskrifstofa Islands var stofnuð af Ferðamálaráði Islands,
Reykjavlkurborg, Flugleiðum hf., Félagi Islenskra ferðaskrifstofa og
Sambandi veitinga- og gistihúsa.
Tilgangur félagsins er:
— Að koma upplýsingum um Island á framfæri á alþjóðamarkaði og
möguleika landsins til funda- og ráðstefnuhalds og móttöku hvata
ferða.
— Aö miöla á hlutlausan hátt upplýsingum um aöila að RSl og á sama
hátt aö miöla upplýsingum á hlutlausan hátt til sömu aöila.
— Að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar af móttöku erlendra ferðamanna,
stuöla aö faglegum vinnubrögöum allra þeirra, er veita þjónustu viö
fundi og ráöstefnur.
— Að afla tölfræðilegra upplýsinga um feröamál.
Leitað er að drífandi og kröftugum einstaklingi, sem hefur
góða markaðsþekkingu, ásamt skipulags- og stjórnunar-
hæfileikum, er nýtast í þetta nýja og krefjandi starf.
Góð tungumálakunnátta er skilyrði.
Nánari upplýsingar um starfið fást á skrifstofu Guðna
Jónssonar, Tjarnargötu 14.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun ásamt starfs-
reynslu, sendist Guöna Jónssyni, ráögjöf og ráöning-
arþjónustu, Tjarnargötu 14, Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst nk.
QtdniTónsson
RAÐGJQF & RÁÐN I N CARÞJ ÓN U STA
TJARNARGÖTU 14. 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Húsbréf
_________ Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
Innlausnardagur 15. ágúst 1992.
1. flokkur 1989
Nafnverð:
5.000
50.000
500.000
Innlausnarverð:
7.002
70.024
700.236
1. flokkur 1990 Nafnverð: 5.000 50.000 500.000 Innlausnarverð: 6.182 61.822 618.223
2. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 12.189
100.000 121.892
1.000.000 1.218.915
2. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 11.330
100.000 113.301
1.000.000 1.133.011
Innlausnarstaður;
Veðdeild Landsbanka Íslands
Suðurlandsbraut 24.
qa HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
U HÚSBRÉFADEILD SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI 91-696900
Varanleg lausn
á vatnsbrettum, sterk, rakaþétt og viðhaldsfrí.
Margir litir. Staðgreiðsluafsláttur.
Einnig sólbekkir og borðplötur i mörgum litum.
Ótrúlega lágt verð á legsteinum með rafbrenndum álplötum.
Sterkt og fallegt.
Marmaraiðjan, Höfðatúni 12.
Sími 629955. Fax 629956.