Tíminn - 15.08.1992, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Laugardagur 15. ágúst 1992
Hi ÍÞRÓTTIR f
Samskipadeildin:
Staðan
Akranes.. ..13 93 125-1330
Þór ..13 74 2 18-8 25
KR ...13 733 22-13 24
Valur ...13 64 323-1422
Fram ...13 6 1 620-18 19
FH ...13 454 19-21 17
Víkingur ...13 44 5 19-20 16
KA ...13 247 14-25 10
UBK ...13 238 8-19 9
ÍBV ...13 2 1 10 13-30 7 2. deild
Fylkir ...13 10 1 2 29-12 31
Keflavík . ..12 83 125-11 27
Þróttur .. ...13 7 1 522-21 22
Grindavík .13 6 2 5 24-19 20
Leiftur ... ...13 53 523-16 18
Stjarnan ...13 44 5 18-16 16
ÍR ...13 35 5 14-21 14
BÍ ...12 34 5 16-2513
Víðir ...13 256 12-1811
Selfoss ... ...13 04 8 12-36 4 -PS
Frjálsíþróttakonan Katrin Krabbe og félagi hennar Grit Breuer féllu báðar á lyfjaprófi:
Krabbe á yfir höfði
sér fjögurra ára bann
Tvöfaldur heimsmeistari og silf-
urhafi á heimsmeistaramóti,
þýska hlaupakonan Katrin
Krabbe, féll á lyfjaprófi, ásamt
Grit Breuer, en sýni voru tekin á
æfingu fyrir mánuði síðan.
Krabbe á yfir höfði sér fjögurra
ára keppnisbann vegna málsins,
en eins og kunnugt er slapp
Krabbe við keppnisbann fyrir um
sj'ö vikum vegna tæknilegs galia
við framkvæmd lyfjaprófs, en þá
fundust ólögleg lyf í líkama
Krabbe.
Þegar tekið er lyfjapróf eru tekin
tvö þvagsýni og þau rannsökuð í
hvort í sínu lagi, en til að hægt sé að
gera ráðstafanir verða bæði sýnin að
innihalda ólögleg lyf. Það var raunin
með sýnin úr Krabbe. Sýnin inni-
héldu lyfið Clenbuterol, sem er ana-
bólískir sterar.
„Hvíta vonin" eins og hún hefur
verið kölluð varð heimsfræg á einni
nóttu þegar hún sigraði í 100, 200
og 4x100 metra boðhlaupi á móti í
Split og ekki lækkaði stjarna hennar
þegar hún vann gullið á HM í fyrra í
100 og 200 metra hlaupum og einn-
ig vann hún silfur í 400 metra
hlaupi. Eftir það hefur hún verið eft-
irsótt af auglýsendum og hún hefúr
gert hvern risasamningin á fætur
öðrum, en nú er komð annað hljóð í
strokkinn. Þýskur almenningur
leggur fæð á hana eftir það sem á
undan er gengið og hún er kölluð
„Nornin að austan", en hún er frá
fyrrum A-Þýskalaridi. Stjórn þýska
frjálsíþróttasambandsins kemur
saman fljótlega til að kveða upp úr-
skurð um lágmarksrefsingu til
handa Krabbe og Breuer, sem er
fjögurra ára keppnisbann. Síðan er
úrskurður sendur Alþjóða frjáls-
íþróttasambandinu sem tilkynnir
bannið á alþjóðavettvangi. -PS
Enska knattspyrnan:
Southampton sektað
fyrir grófan leik
Ekki er enn Ijóst hvort Napólí gengur að kröfum Maradona, sem hann setur fyrir
að koma og leika með liðinu á komandi keppnistímabili:
Eru kröfur Maradona of
miklar fyrir Napólí?
Enska knattspyrnusambandið hef-
ur ákveðið að sekta úrvalsdeildarlið
Southampton vegna fjölda gulra og
rauðra spjalda á síðasta keppnis-
tímabili, en eins og sjá mátti á síðum
Tímans nú fyrr í vikunni var liðið
langefst á lista yfir gulu og rauðu
spjöldin. Sektin nemur 20 þús.
pundum, sem jafngildir um tveimur
milljónum íslenskra króna. Að vísu
er greiðslan bundin „skilorði" og
fellur niður ef ástandið hjá liðinu
batnar, en ef leikmenn halda áfram
því sem þeir voru að gera á síðasta
ári, þ.e.a.s. leika grófan leik, þá
gjaldfellur greiðslan. Framkvæmda-
stjóri liðsins hefur lofað því að liðið
taki sig saman í andlitinu hvað þetta
varöar og sagði að hann og strákam-
ir í liðinu myndu vonandi læra af
þessum dómi knattspyrnusam-
bandsins. -PS/reuter
Ekki hefur enn verið tilkynnt hvort
Napólí hyggst taka tilboði Maradona
um að koma og klára samning sinn
við félagið, en eitt ár er eftir af
samningnum. Diego Maradona hef-
ur sett ýmis skilyrði lyrir endur-
komu og herma heimildir Reuter
fréttastofunar að sumar þeirra séu
félaginu ekki aðgengilegar. Marad-
ona sækist eftir níu milljónum doll-
ara fyrir að koma aftur.
Þau skilyrði sem félagið hefur get-
að sætt sig við eru að kempan fengi
stórt einbýlishús fyrir utan bæinn,
hann fengi að æfa einn síns liðs og
ennfremur fengi hann að velja þá
leiki sem hann leikur. Það sem
stendur helst í forráðamönnum Na-
pólí er sú krafa að Maradona fái að
fara af og til til Argentínu á meðan á
tímabilinu stendur og dvelja þar í
nokkurn tíma í senn til að halda
áfram þeirri meðferð sem hann er í
vegna misnotkunar fíkniefna. Þá
þykir sú peningaupphæð sem hann
fer fram á í það mesta og vill félagið
halda við samning þann sem gerður
var upphaflega.
Ekki er talið líklegt að félagið gefi
svar strax, en þó er talið að afstaða
þess liggi fyrir fljótlega og að forráð-
menn þess óski fljótlega samninga-
viðræðna við Maradona og umboðs-
menn hans. Tálið er að Maradona
hætti alveg knattspyrnuiðkun ef Na-
pólí gengur ekki að kröfúm hans um
að leika með liðinu.
Enska knattspyrnan:
Keegan sektaður og
Dalglish áminntur
Fyrrum Liverpool leikmennirnir og
núverandi framkvæmdastjórar Black-
burn og Newcastle eiga í útistöðum
við enska knattspyrnusambandið
vegna ummæla þeirra um dómara eft-
ir leiki félaganna á síðasta ári. Keegan
var sektaður um eitt þúsund sterlings-
pund, sem svarar til um rúmlega eitt
hundrað þúsunda íslenskra króna,
vegna ummæla hans í blöðum um
dómara í leik Newcastle og Derby á
síðasta keppnistímabili. Sömuleiðis
var Terry McDermott sektaður um 250
pund, eða 25 þús íslenskar krónur
vegna svipaðs máls. Kenny Dalglish
slapp hins vegar með áminningu
vegna ummæla um dóma í leik
Blackuburn Rovers á heimavelli gegn
Wolves. Tálsmaður enska knatt-
spyrnusambandsins sagði eftir fund
þar sem þetta var ákveðið, að sam-
bandið myndi ekki hika við að beita
sektarákvæðum ef svipuð atvik kæmu
upp aftur -PS/reuter
Enska knattspyrnan:
Framlína Blackburn
er ein sú dýrasta
Nýliðarnir í efstu deild ensku knatt-
spyrnunnar, sem nú heitir Úrvals-
deild, Blackburn Rovers, teflir fram
einni af dýrustu framlínu í deildinni
enda hefur Kenny Dalglish ekki
haldið fast utan budduna. Hann hef-
ur nú nýverið keypt tvo leikmenn,
þá Stuart Ripley frá Middlesbro fyrir
um 115 milljónir króna og Alan She-
arer fyrir um 380 milljónir króna.
Fyrir var Mike Newell sem kostaði
115 milljónir króna og verðmæti
þessara þriggja leikmanna sem leika
í framlínunni er því rúmlega 600
milljónir króna og er án efa ein sú
dýrasta í deildinni.
-PS Stuart Ripley.
Knattspyrna:
Jean-Pierre Papin þriðji
dýrasti leikmaðurinn
Sala Jean Pierre Papin frá Mar-
seille til AC Milan var sú þriðja
stærsta í sögunni, en söluverð hans
nam um 1.040 milljörðum króna.
Það eru aðeins sölurnar á þeim Gi-
anluigi Lentini, sem seldur var frá
Torino til AC Milan, og Gianluca Vi-
alli, sem seldur var frá Sampdoria til
Juventus. AC Milan varð að punga
út sem nemur 1.350 milljónum
króna og Juventus varð að greiða
1.250. AC Milan hefur því greitt um
2.400 milljónir íslenskra króna fyrir
þá Papin og Lentini. Dýrasti Bretinn
er David Platt, en Juventus greiddi
um 676 milljónir króna fyrir kapp-
ann. -PS
Jean-Pierre Papin.
Mikið annríki hjá íslenskum knattspyrnudómurum á erlendri grund í september:
Tólf íslenskir dómarar
erlendis sama daginn
Það verður nóg að gera hjá ís-
lenskum dómurum á erlendum
vettvangi í september, en alls eru
sextán dómarastörf í fjórum lönd-
um sem falla íslenskum dómur-
um í skaut. Af þessum sextán
stðrfum eru tólf þeirra á sama
tíma, þann 30 september.
Eyjólfur ólafsson dæmir leik
Porto og US Luxemburg og með
honum verða á iínunni þeir Ari
Þórðarson og Kári Gunnlaugs-
son, en einnig verður Sæmundur
Víglundsson með í för sem fjórði
maður og varadómari. Gylfi Orra-
son dæmir leik Derry City og Vlt-
esse Arnheim sem fram fer í
London Derry í Belfast og með
honum verða þeir Ólafur Ragn-
arsson og Pjetur Sigurðsson, en
Bragi Bergmann verður fiórði
maður og varadómari. Guðmund-
ur Stefán Maríasson dæmir sinn
fyrsta ieik sem alþjóðlegur dóm-
ari, en hann dæmir leik Spora
Luxemburg og Sheff.Wednesday
og með honum fara þeir Gísli
Guðmundsson og Gísli Björg-
vinsson, en Egill Már Markússon
fer sem Qórði maður og varadóm-
ari. Aliir þesslr leitór fara fram
þann 30. september og eru seinni
leikir i fyrstu umferð í evrópu-
keppninni í knattspymu.
Að auki var Bragi Bergmann til-
nefndur af UEFA tii að dæma leik
Noregs og San Marínó U-21 árs
sem fram fer þann 8. september.
Þeir félagar verða einnig fjórir á
ferð, en auk Braga fara þeir EgUI
Már Markússon og Gísli Guð-
mundsson sem línuverðir og
Gylfi Orrason sem fjórði maður
og varadómari.
-PS