Tíminn - 15.08.1992, Side 19
Laugardagur 15. ágúst 1992
Tíminn 19
AKUREYRI
Vantar
réttinda
kennara
11.8. — Enginn kennari með full
kennsluréttindi hefur sótt um tvær
stöður ,í dönsku og stærðfræði við
Menntaskólann á Akueyri. Fram-
lengdur umsóknarfrestur rann út í
gær og segir Tryggvi Gíslason skóla-
meistari MAað því megi búastvið að
ekki verði unnt að sinna allri þeirri
kennslu sem tilskilin sé í þessum
greinum.
Nú er unnið að undirbúningi
stundaskrár fyrir skólaárið sem
hefst þann 15. september nk. í
skólaslitaræðu sinni á þjóðhátíðar-
daginn sagði skólameistari að ekki
yrðu ráðnir réttindalausir kennarar
að MA næsta skólaár.
„Meginástæðan fyrir því að ekki
fást kennarar með full réttindi er lé-
leg kjör kennara," segir TVyggvi
Gíslason í samtali við Dag.
Urriði át
mús!
Músin komin úr kviöi urriöans.
(Mynd GG)
„Helv ... kötturinn étur allt“ var
haft eftir Bakkabræðrum, en skyldi
það sama gilda um urriða? Einar
Ingi Einarsson var við veiðar í Eyja-
fjarðará fyrri föstudag og fékk tvo
urriða og 17 bleikjur. Við vestustu
brúna yfir Eyjafjarðará fékk hann
annan urriðann, 1,5 punda, og var
hann miklu gráðugri en hinn.
Þegar gert var síðan að fiskinum
kom í ljós að urriðinn hafði gleypt
heila mús sem ekki virtist vera farin
að meltast. Hvernig leiðir urriðans
og músarinnar hafa Iegið saman er
sjálfsaagt ærið rannsóknarefni.
Gistiiými að
þrjóta
11.8.— Útlit er fyrir að á fjórða
hundrað manns muni taka þátt í
ferðkaupstefnu Vest Norden sem
haldin verður á Akureyri dagana
23.- 26. september nk. Hér er bæði
um seljendur og kaupendur að
ræða, en fyrirtækin sem selja
verða rúmlega hundrað að tölu.
„Við erum að sprengja allt gisti-
rými í bænum utan af þessu“,
sagði Sigríður Þrúður Stefáns-
dóttir sem sæti á í undirbúning-
nefnd kaupstefnunnar. Þegar er að
verða uppbókað á hótelunum fjór-
um í bænum og reiknar hún með
að öll gistiheimilin verði líka not-
uð. Hún segir að kaupstefnan
verði að líkindum sú stærsta sem
haldin hefur verið til þessa og jafn-
framt er þetta í fyrsta skipti sem
hún er haldin utan höfuðborgar
hvers lands.
Eins og staðan er í dag hafa 80 ís-
lensk fyrirtæki tilkynnt þáttöku, 9
færeysk og 22 grænlensk. Starfs-
fólk þessara fyrirtækja mun telja
um 190 manns, en um 140 kaup-
endur frá Evrópu, Ameríku og Jap-
an hafa tilkynnt komu sína. Undir-
búningur kaupstefnunnar gengur
vel, þó enn sé eftir að hnýta
nokkra lausa enda.
Suwikiwka
Byggöasafniö í Skógum.
Byggt við
saftiið í Skóg-
um
Hluti nýbyggingarinnar við byggða-
safnið í Skógum hefur nú verið tek-
inn í notkun. Áraskipið Pétursey hef-
ur verið flutt í aðalsal nýbyggingar-
innar og þar stendur nú yfir sumar-
sýning, en í framtíðinni er ráðgertað
aðlasalurinn verði helgaður minjum
frá sókn Rangæinga og V-Skaftfell-
inga til sjávar og sveita.
Nýbyggingin, sem alls er um 750
fermetrar að stærð á þremur hæð-
um, er tengd eldri safnbyggingunni
með glerhýsi sem gefur safninu
skemmtilega möguleika hvað varðar
birtu og form. Nýbyggingin er að
mestu kostuð af héraðsnefndum
Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu,
en einnig Ieggur safnið til á þriðju
milljón króna og ríkið „lítið eitt“,
eins og Þórður Tómasson safnvörður
komst að orði í samtali við Sunn-
lenska.
Þórður sagði að aðsókn að safninu
væri mjög góð nú yfir sumarmánuð-
ina og að fjöldi gesta komist iðulega
í 700-800 á dag. Safnið er opið dag-
lega frá kl. 9-19 yfir sumartímann.
Símsvari lög-
reglu vegna
afbrota
Lögreglan í Ámessýslu hefúr nú
tekið í notkun símsvara þar sem tek-
ið er á móti ábendingum um afbrot.
Fólk sem af einhverjum ástæðum
getur ekki gefið upp nafn sitt getur á
þennan hátt komið á framfæri upp-
lýsingum um alvarleg brot, svo sem
fikniefnadreifingu eða notkun.
Símsvarann fékk lögreglan að gjöf
frá Rauðakrossdeildinni í Árnes-
sýslu, en reynslan af slíkum tækjum
hefur verið allgóð. Nafnlausar upp-
hringingar hafa jafnvel leitt til þess
að upplýst hefur verið um alvarlega
glæpi. Númerið í símsvaranum er
22444.
Láttu
TÍMANN
ekki
fljúga frá
þér
Áskriftarsími
TÍMANS
mTFlRM
ÍSAFJÖRÐUR
Mikið af er-
lendu verka-
fólki á
Tálknafirði
7.8.— Atvinnuástand á Tálknafirði
er gott að sögn Brynjólfs Gíslasonar
sveitarstjóra. Mikið af aðkomufólki
starfar við fiskvinnslu, bæði innlent
og erlent verkafólk.
í sumar hefur verið mikið Iíf við
höfnina, því handfærabátar hafa
fiskað ágætlega. Mikill fjöldi að-
komubáta landar afla sínum á
Tálknafirði, ýmist í fiskvinnslufyrir-
tækin eða á Fiskmarkað Tálknafjarð-
ar. „Hér er óhemju mikið af erlendu
verkafólki, en heldur fleiri íslend-
ingar eru hér við fiskvinnslu. Ef eitt-
hvað er þá vantar frekar fólk í vinnu.
En hvað atvinnuástandið varðar þá
er það gott í dag,“ sagði Brynjólfrir
Gíslason sveitarsjóri.
Hjónin Hannes Friöriksson og
Þórunn Helga Sveinbjörnsdóttir
veitingamenn á Bíldudal.
Gistiheimili
á Bíldudal
7.8. — Nýtt gistiheimili hefúr verið
tekið í notkun á Bíldudal. Það eru
hjónin Þórunn Helga Sveinbjörns-
dóttir og Hannes Friðriksson sem
reka gistiheililið, en þau eiga og reka
einnig veitingahúsið Vegamót á
Bíldudal.
VÉLBODA
rafgirðingar
GRAND
spennugjafar
i miklu úrvali, á mjög góðu verði,
220 v. -12 v. - 9 v.
ásamt öllu efni til rafgirðinga.
Hafið samband við
sölumenn okkar í síma
91-651800.
VÉLBOÐIhk
Hvaleyrarbraut 2
220 Hafnarfjörður
Sfmi 91-651800
Gistiheimilið er með fjórum stórum
herbergjum, sturtu og baði og setu-
stofu með sjónvarpi. Rúm eru fyrir
átta manns, en hægt að bæta við dýn-
um í svefnpokapláss ef óskað er. Stór-
ar svalir fylgja íbúðinni með útsýni
yfir höfnina. f tengslum við gisting-
una er boðið upp á morgunmat,
heimilismat, kaffi og grillmat á veit-
ingahúsinu Vegamótum, sem er fyrir
ofan gistiheimilið.
Sundlaugin
kostaði 15
milljoniir
7.8.— Sundlaugin á Suðureyri er nú
fullfrágengin með öllu tilheyrandi. í
tilefni af því var efht til fjölskylduhá-
tíðar við sundlaugina (og i henni)
þann 8. ágúst sl. og laugin opnuð
með hátíðlegri athöfn. Framkvæmd-
ir við sundlaugina hófust sl. haust.
Aðallaugin sem er 8x16,67 metrar
var tekin í notkun í byrjun febrúar.
Auk hennar er barnalaug sem er 4x8
metrar að stærð, nuddpottur og heit-
ur pottur. Allt þetta og svæðið í kring
er nú fullfrágengið. Heildarkostnað-
ur er um 15 milljónir króna.
rWI'm^l.EHTTEl
ÓgnareAII
Myndin sem er að gera allt vitlaust.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.30
Stranglega bönnuð innan 16 ára
Loststl
Hrikalega fyndin og góð mynd.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Bönnuð innan 14 ára
Freejack
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Bönnuð innan 16 ára
Homo Faber
33. sýningarvika
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Léttlynda Rósa
Sýndkl. 5, 7, 9og11
Frumsýnir trytlinn
Ástrfðuglæplr
Sean Young og Patrick Bergin I einum
mest eggjandi trylli ársins.
Hann nær algjöru valdi á fómariömbum
slnum.
Hann er draumsýn allra kvenna.
Hann er martröð hverrar konu.
Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05
Bönnuð innan 16 ára
Grin- og spennumyndin
Fallnn fjársjóður
Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05
Gamanmyndin
„Bara þú“
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Grelólnn, úrlA og stórflskurlnn
Sýnd kl. 5 og 7
Veröld Waynes
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
RefskAk
Sýnd kl. 9 og 11.05
Bönnuð innan 16 ára
Stelktlr grænlr tómatar
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10
LAUGARAS= =
Sfmi32075
Frumsýnir
Beethoven
Sinfónla af gríni, spennu og
vandræðum
Sýnd f A-sal kl. 5, 7, 9 og 11
Miðaverð kr. 450 á allar sýningar, alla daga
Töfralæknlrlnn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Miðaverð kr.300 kl 5 og 7.
Stopp eöa mamma hleyplr af
Sýnd I B-sal kl. 5, 7, 9 og 11
Miðaverð kr.300 kl 5 og 7.
■
6575
Lárétt
1) Þjóðhöfðingjar 5) Illæri 7) Föður-
faðir 9) Liðinn dagur 11) Horfa 12)
Svik 13) Óhreinka 15) Útsær 16)
Húsdýra 18) Partar
Lóðrétt
1) Ákærir 2) Biblíumaður 3) Líta 4)
Öskur 6) Klókur 8) Fum 10) Spúa
14) Keyra 15) Tog 17) Sepa
Ráðning á gátu nr. 6574
Lárétt
1) Lagleg 5) Rit 7) Mjó 9) Asi 11) Pó
12) 01 13) Alt 15) Lap 16) Ósa 18)
Glásin
Lóörétt
1) Lampar 2) Gró 3) LI 4) Eta 6)
Vilpan 8) Jól 10) Sóa 14) Tól 15) Las
17) Sá
Gengisskránini [
14. ágúst 1992 kl.9.15 Kaup Sala
Bandaríkjadollar ....54,010 54,170
Sterílngspund ..104,201 104,510
Kanadadollar ....45,274 45,408
Dönsk króna ....9,5911 9,6195
Norsk króna ....9,3776 9,4053
Sænsk króna ..10,1593 10,1894
Finnskt mark ..13,4739 13,5138
Franskur frankl ..10,9058 10,9381
Belgfskur franki ....1,7951 1,8004
Svlssneskur frankl. ..41,1035 41,2253
Hollenskt gyllini ..32,8079 32,9051
Þýskt mark TtT1T, ..36,9919 37,1015 0,04880
ítölsk llra ..0,04865
Austurrfskur sch.... ....5,2513 5,2669
Portúg. escudo ....0,4314 0,4326
Spánskur peseti ....0,5769 0,5786
Japanskt yen ..0,42802 0,42929
írskt pund ....98,150 98,440 78,6803
Sérst. dráttarr. ..78,4479
ECU-Evrópumynt... ..75,2170 75,4399
Almannatryggingar, helstu bótaflokkar
1. júll 1992 Mánaöargrelötlur
Elli/örorkullfeyrir (grunnllfeyrir).........12.329
1/2 hjónallfeyrir...........................11.096
Full tekjutrygging ellillfeyrisþega.........29.036
Full tekjutrygging örorkiilfeyrisþega.......29.850
Heimiisuppbót................................9.870
Sérstök heimiisuppbót........................6.789
Bamallfeyrirv/1 bams.........................7.551
Meölag v/1 bams..............................7.551
Mæöralaun/feöralaun v/lbams..................4.732
Mæöralaun/feöralaun v/2ja bama..............12.398
Mæöralaun/feöralaun v/3ja bama eöa fleiri ....21.991
Ekkjubætur/ekkisbætur 6 mánaöa ...........„.15.448
Ekkjubætur/ekkisbætur 12 mánaöa.............11.583
Fullur ekkjullfeyrir.........................12329
Dánarbætur 18 ár (v/slysa)...........„.15.448
Fæöingarstyrkur........................... 25.090
Vasapeningar vistmanna.................... 10.170
Vasapeningar v/sjukratrygginga..............10.170
Daggrelöslur
Fullir fæöingardagpeningar...............„.. 1.052
Sjúkradagpeningar einstaklings..............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert bam á framfæri 142.80
Slysadagpeningar einstaklings...............665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri 142.80
28% tekjutryggingarauki, sem greiöist aöeins I júli. er
inni I upphæöum tekjutryggingar, heimilisuppbótar
og sérstakrar heimlisuppbótar.
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIE).
MUNIft ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar