Tíminn - 15.08.1992, Side 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Askriftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Oðruvísl bílasala
BjLAR * HJÓL *
BATAR • VARA-
HLiíTIR.
WNDMJÁ OKKUR ■ BlLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
"JO HOGG-
i DEYFAR
Verslió hjá fagmÖRnum
varahluti
LtL
Hamarsböfða 1 - s. 67-6'
i
TVÖFALDUR1. vinningur
Tíminn
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1992
Nefnd ráðuneytismanna með arð af sölu ríkisfyrirtækja:
Fé Rannsóknasjóðs aukið
til örvunar nýsköpun
Að tillögu menntamálaráðherra
ákvað ríkisstjórnin í júnímán-
uði sl. að fela fulitrúum nokk-
urra ráðuneyta að gera tillögur
um málefni Rannsóknasjóðs.
Ólafur Davíðsson, ráðuneytis-
stjóri í forsætisráðuneyti, var
formaður nefndarinnar og hann
segir að niðurstaðan hafi orðið
sú að gera tillögu um að árlegt
framlag til Rannsóknasjóðs
hækki í tvö hundruð milljónir
kr. á næstu tveimur árum, en
það var á þessu ári um 110
milljónir kr. Tillögur nefndar-
innar voru kynntar ríkisstjórn-
inni í gær.
Ólafur Davíðsson segir að helstu
rökin fyrir þessu séu að starfsemi
sjóðsins sé í nokkuð föstum skorð-
um. Næg vænleg verkefni virðast vera
fyrir hendi.
Styrkir úr sjóðnum koma að góðum
notum við undirbúning frekari þátt-
töku íslendinga í alþjóðlegum rann-
sóknaáætlunum. Nú sé verið að
ganga inn í mjög víðtækt rannsókna-
samstarf í Evrópu, þannig að þetta
styrki okkar fyrirtæki og rannsókna-
stoftianir til að taka þátt í því sam-
starfi.
Þá er talið að þetta sé mikilvæg að-
ferð til að örva nýsköpun í atvinnulífi
og ríksstjómin geti með þessu lagt
áherslu á það markmið. Hins vegar sé
þetta aðeins lítill hluti af því opinbera
fé sem varið er til rannsókna og vís-
indastarfsemi og ekki er tekin afstaða
til heildarstærðar í því dæmi. Áfram
verði fjallað um framlög til vísinda-
starfsemi í Háskólanum eða til rann-
sóknastofnana á sínum vettvangi.
í gangi er á vegum OECD úttekt á
vísinda- og rannsóknastarfsemi á ís-
landi og sú stofnun mun væntanlega
gera tillögur um skipulag þessara
mála, þannig að ekki sé tímabært að
fjalla um þetta í víðtækara sambandi
en þama er gert nú.
Rannsóknasjóður var settur á lagg-
imar 1985 og heldur hefur dregið úr
íramlögum til hans úr ríkissjóði und-
anfarin ár. Vilhjámur Lúðvíksson,
framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs
ríkisins, fagnar því að lagt sé til að
framlög til sjóðsins verði aukin. Hann
segir að að Rannsóknaráð hafi fengið
sívaxandi fjölda umsókna og æ
áhugaverðari viðfangsefni, en minni
peninga úr að spila. Menn hafi kvart-
að yfir því að það vanti eitthvað nýtt
Almenningsvagnar bs.
hefja fólksflutninga í dag:
SAMGONGUR
SAMRÆMDAR
Fyrirtækið Almenningsvagnar bs.
hefur fólksflutninga á morgun um
Bessastaðahrepp, Carðabæ, Hafn-
aijörð, Kjalameshrepp, Kópavog og
Mosfellsbæ. Aksturinn er í höndum
fyrirtækjanna Hagvagnar hf. og
Meiriháttar hf.
„Með þessu kerfi samræmum við
almenningssamgöngur á svæðinu
sem auðveldar fólki að ferðast á
milli aðildarsveitarfélaga Almenn-
ingsvagna," segir Örn Karlsson, for-
svarsmaður fyrirtækisins.
Þrír aðilar óku áður um þessi svæði
og vom leiðakerfi þeirra ekki sam-
ræmd sem torveldaði fólki að skipta
á milli vagna frá fyrirtækjunum. En
nú er einnig unnið að því að sam-
ræma leiðakeríi Almenningsvagna
leiðum vagna SVR.
„Við ökum á allar aðalskiptistöðvar
SVR, þ.e.a.s. Mjódd, Grensás,
Hlemm og Lækjargötu," segir örn.
„Síðan er það markmið okkar að
samræma leiðakerfin enn betur í
framtíðinni."
21 vagn verður í akstri í einu og ek-
ur hver á 20 mínútna fresti á milli
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, sem
og á innanbæjarleiðum í Hafnar-
firði, Garðabæ og Kópavogi frá kl.
7:00 til 19:00. Þá verður ekið á hálf-
tíma fresti um kvöld og helgar.
Minni tíðni verður á akstri í Mos-
fellsbæ eða á 30 mínútna fresti og
klukkutíma fresti um kvöld og helg-
ar. Leiðirnar eru alls 16 talsins.
Fyrsti vagninn rennur úr hlaði kl.
6:20 á laugardagsmorgun frá skipti-
stöðinni við Fjarðargötu í Hafnar-
firði og verður boðið upp á ókeypis
ferðir með vögnunum um helgina.
Fargjöld Almenningsvagna verða
annars þau sömu og hjá SVR fyrir
utan staka barnafargjaldið. Stjórn
fyrirtækisins þótti rétt að miða við
50% af fargjaldið fyrir fullorðna og
nemur það því 50 kr. en hjá SVR er
það 25%.
Fargjöldin eru að hækka og frá og
með 15. ágúst verða einstök fargjöld
fyrir fúllorðna á 100 kr., farmiða-
spjöld með 5 miðum á 500 kr., far-
miðaspjöld með 10 miðum á 900 kr.
Öldruðum og fötluðum gefst kostur
á að kaupa kort með 20 miðum á
500 kr. Einnig verður hægt að nota
Græna kortið á leiðum Almennings-
vagna en það kostar 2.900 kr. Hægt
verður þó að kaupa það á 2.000 kr. til
15. sept.
og nýsköpun, en hafi svo minnkað
peninga til sjóðsins.
Þá hafi fengist þær fréttir að menn
ætluðu að nota fé af sölu ríkisfyrir-
tækja að einhverju leyti í þetta líka og
það væri geysilega mikilvægt, það
hefði vantað upp á að hægt hafi verið
að fylgja eftir málum yfir á fram-
kvæmdasviðið.
Ólafur Davíðsson staðfestir að ríkis-
stjómin hyggst nota hluta af fé úr
sölu ríkisfyrirtækja til að auka ný-
sköpun. Hann segir að nú sé unnið að
tillögum um hvemig þeim málum
verði hagað. -BS
Hafnardagur í Reykjavíkurhöfninni gömlu:
Fisksölutorg, furðu-
fiskar og teygjustökk
Hafnardagurinn undirbúinn í hausthryssingnum í gær.
Tímamynd Árni Bjama
Hafnardagur verður haldinn í
Reykjavíkurhöfn í dag í tilefni 75 ára
aftnælis hafnarinnar og verður dag-
skrá dagsins afar IjölbreytL
í júní var haldinn hafríardagur í
Sundahöfn af tilefni afmælisins en nú
er komið að sjálfri Reykjavíkurhöfn
sem er fiski- og þjónustuhöfn.
„Við leggjum áherslu á að reyna að
hjálpa atvinnulífinu enda erum við
tengdir því. Hér verður því stóreflis
sjávarútvegssýning, sem 40 fyrirtæki
taka þátt í,“ segir Ágúst Ágústsson,
forsvarsmaður hátíðarinnar.
Fisksölutorg verður á hafriarbakkan-
um þar sem mikið úrval af ferskum
fiski verður í boði en einnig saltfiskur,
lýsi og söl. Veitingahúsin Jónatan Li-
vingston mávur, Gullni haninn, Hótel
Holt og Við Tjömina ætla að koma
upp sameiginlegu veitingarhúsi með
sérrétti úr sjávarfangi. Einnig bjóða
olíufélögin fólki að skoða fyrirtækin
sín og verða með fríar veitingar.
Hægt er að taka þátt í siglingakeppni
Brokeyjar, dorgkeppni og getraun um
fyrirtækin á hafnarsvæðinu, þar sem
1. verðlaun em ferð fyrir tvo til ír-
lands.
„Boðið verður upp á furðufiskasýn-
ingu sem er á vegum Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins. 20-30 teg-
undir verða sýndar, sem hægt verður
að kaupa á fiskmarkaðstorginu," seg-
irÁgúst.
Ef veður leyfir verður sjóskottuleiga
á staðnum og þeir sem þykjast hafa
prófað allt geta reynt teygjustökk en
það er að sjálfsögðu einnig komið
undir veðri. Dagskránni lýkur kl.
17:00. —GKG.
Verðlaunakrossgáta
Tímans:
„Ég hlakka til aö grllla um helg-
Ina,“ sagði Erla Alfreðsdóttir,
Brckkutúni 10 í Kópavogi, en
hún hrepptl vandað gasgrill frá
Olfufélaginu hf. sem var vinning-
ur í verðlaunakrossgátu Tímans
er birtist laugardaginn 25. júlí sl.
Gcysilegur fjöldi fóiks glímdi vlð
verðlaunakrossgátuna, en lausn-
arorð hennar voru „ostur er
velslukosturí*.
Erla Alfreösdóttír og dóttir
hennar Berglind Ásgeirsdóttir
taka viö vönduöu gasgrilli frá
Esso búöinni. Grillið varvinn-
Ingur í verölaunakrossgátu
Tímans 25. júli sl. Stefán Ás-
grfmsson fréttastjóri Tímans
afhenti mæögunum vinning-
ínn.
Timamynd PJetur
—GKG.