Tíminn - 22.08.1992, Síða 6
6 Tíminn
Laugardagur 22. ágúst 1992
UKTOðgl^r^ fnt'-1 lniffff :'' ' WM 9 ■
v
Hin nýja Corolla hefur bæöi stækkaö og fríkkaö og er nú oröin mjög evrópsk í útliti og akstri. Þetta er Liftback útgáfa Corollunnar.
Toyota Corolla Liftback:
Gamall kunningi sem er
kominn í betri fötin
Reynslubíllinn var af gerðinni Lift- snúningi vélarinnar um eina 1800
Tíminn reynsluók á dögunum hinni nýju útgáfu af Toyota Co-
rolla og það varð strax ljóst að á hinni nýju árgerð, 1993 módel-
inu, hafa verið gerðar veigamiklar breytingar sem eru að því best
verður séð allar til bóta. Þannig er hin nýja Corolla bæði stærri,
rúmbetri, hljóðlátari og aflmeiri en fyrirennarinn. Þá er fjöðrun-
in orðin evrópskari í háttum og bíllinn því þægilegri í akstri,
einkum á langleiðum.
back, fimm dyra og sjálfskiptur með
yfirgír sem stendur vel undir nafni.
Vélin var, eins og í öllum aíbrigðum
nýju Corollunnar, 1587 rúmsenti-
metra og með fjórum ventlum á
hverju sprengihólfi, eða alls 16 stykki.
Hámarkstog vélarinnar er 145 Nm við
5200 snúninga en hestöflin eru 115 á
hámarkssnúningshraðanum 6000
snVmín. Ekki varð annað fundið en
vélin hæíði bílnum prýðilega og
vinnslan er fullnægjandi og vel það.
Reynsluaksturinn fór fram á mjög
mismunandi vegum bæði með
bundnu og lausu slitlagi, blautu sem
þurru og fjöðrunin kom þægilega á
óvart við allar aðstæður. Þá er jafn-
vægi bflsins gott og hann því mjög
viðráðanlegur á vegi við allar aöstæð-
ur og það er ástæða til að hrósa heml-
unum sérstaklega. Þeir taka mjög
jafnt í og það er með auðveldara móti
hægt að nauðhemla þannig að hjólin
stöðvist ekki heldur séu rétt við það.
Það er sem sagt mjög auðvelt að
stjóma hemluninni með fætinum
þannig að hún nálgist það að verða
eins og í bflum með læsivörðum
hemlum (ABS). Það varð ekki merkt
að eitt eða tvö hjól vildu stöðvast á
undan hinum heldur læsast þau öll í
einu. Þótt ökumenn séu almennt ekki
í þannig aðstæðum dags daglega að
þeir þurfi að nauðhemla og standa yf-
irhöfuð í rosalegum stórreddingum í
umferðinni, þá hlýtur það að vera tals-
vert góð tilhugsun að hemlamir og
aksturseiginleikar bílsins yfirleitt séu
þannig að það sé ýmsu hægt að bjarga
ef í nauðir rekur, þótt maður sé svo
sem enginn súper rallíbflstjóri.
Toyota Corolla er fáanlegur bæði sem
langbakur, stallbakur og hlaðbakur
eins og sá sem prófaður var. Allir ofan-
nefndir Corolla bflar eru síðan fáan-
legir ýmist með fimm gíra beinskipt-
ingu eða þá með þriggja hraða sjálf-
skiptingu og yfirgír sem er svo sann-
arlega ekkert fiff heldur
raunverulegur yfirgfr sem hægir á
snúninga ef við munum rétt. Yfirgír-
inn ásamt hraðgengri vélinni gera það
að verkum í sameiningu að Toyota
Corolla er ansi hraðskreiður bfll en
uppgefinn hámarkshraði er 195 km.
Bfllinn þolir ágætlega að vera ekið
hratt en hann er líka mjög þægilegur
á langkeyrslu á íslenskum hámarks-
hraða eða þar um bil.
Vinnslan var sem fyrr segir ágæt og
bfllinn ók léttilega upp á og yfir Hell-
isheiðina og fór vel á veginum. Suður-
landsvegurinn austan Selfoss er ansi
öldóttur og þar fannst vel að fjöðrun-
in hefur verið endurbætt. Það fannst
líka greinilega þegar ekið var hinn
krókótta, holótta og afleita veg yfir
Gjábakkahraun. Vegdynur var hvergi
til óþæginda og raunar með minnsta
móti í þessari stærð bíla. Honum hef-
ur framleiðandi náð m.a. með meiri
hljóðeinangrun og stærri gúmmí-
fóðringum í hjólaupphengjum og -
sperrum. Þá er mótorinn á púðum
sem eru að hálfu vökafylltir sem dreg-
ur mjög úr titringi og vélarhljóði
bæði inni í bflnum og fyrir utan hann.
Sætin eru ansi þægileg og öku-
mannssætið fellur vel að baki, sitjanda
og lærum en stilla má halla setunnar
sem er kostur. Öll stjómtæki em við
hendina og mælaborðið er þægilega
læsilegt Hins vegar fannst undirrit-
uðum heldur lágt til lofts og glugga-
pósturinn vinstra megin við framrúð-
una ekki alveg nógu langt til vinstri.
Þetta helgast kannski af því að skrifari
hefur um margra ára skeið ekið prívat
í bandarískum og þýskum bflum af
stærri gerðum, enda gefúr vaxtarlag
og þyngd mannsins kannski ekki til-
efni til þess að aka um á smábílum.
Annars var það eflirtektarvert hvað
Corollan nýja er um margt lík hinum
nýja og breytta Mitsubishi Lancer. Sá
bfll hefur einnig gengist í endumýjun
og er vemlega breyttur og bættur frá
fyrri árgerð. Tímamenn kynntust
honum fyrir faum vikum og eftir að
hafa nú kynnst nýju Corollunni þá
Mæiaborö og allt umhverfi ökumanns er smekklegt og þægilegt.
Ekki er þó frítt viö að hinn verktegi gluggapóstur til vinstri hindri út-
sýni.
Rýmið er ágætt í farangursgeymslunni og aðgengi
er bærilegt.
verður ekki hjá því litið að endurbæt-
ur beggja bflanna og breytingar hníga
mjög í sömu átt Það má því reikna
með að samkeppni milli umboðsaðila
þessara tveggja bfla verði mikil á ný-
byrjuðu bílaári enda báðir með mjög
frambærilega vagna á verði sem telja
verður afar sanngjamL
Toyota Corolla er vel búinn bfll. Rúð-
ur em rafdrifnar og sömuleiðis úti-
speglar sem em sæmilega stórir. Á
Liftback bflnum em útispeglamir
mikil þarfaþing því að neðri brún aft-
urgluggans er nokkuð há og útsýnið
þar með minna en t.d. á Sedan bflnum
- stallbaknum eða þá Stationbflnum.
Þá er í öllum bflunum samlæsingar
og mjög góð útvarpstæki og fjórir há-
talarar, snúningshraðamælir, vökva-
stýri svo nokkuð sé nefnt. Staðalbún-
aður er mjög ríkulega útilátinn og það
er því fátt eitt sem manni gæti dottið í
hug að fá sem aukabúnað nema þá
ABS, læsivarðir hemlar.
—Stefán Ásgrímsson