Tíminn - 22.08.1992, Blaðsíða 14

Tíminn - 22.08.1992, Blaðsíða 14
14 Tíminn Laugardagur 22. ágúst 1992 Hólmfríður Sigurjónsdóttir frá Siglufirði Fædd 5. ágúst 1899 Dáin 13. ágúst 1992 Mánudaginn 24. ágúst fer fram frá Fossvogskirkju útför Hólmfríðar Sigurjónsdóttur, ekkju Gunnlaugs Guðjónssonar útgerðarmanns frá Siglufirði, f. 11. mars 1894, d. 17. febrúar 1975. Foreldrar Hólmfríðar voru hjónin Kristjana Bessadóttir frá Stór-Holti í Fljótum og Sigurjón Benediktsson járnsmiður frá Bráðræði á Skaga- strönd. Þau hjón bjuggu fyrst á Blönduósi. Böm þeirra voru Páll, Eyþóra, Jóhann, Hólmfríður og Sig- urjón og eru þau nú öll Iátin. Fjölskyldan flytur 1907 til Siglu- fjarðar og eru íbúar þar þá 363 tals- ins. Á Blönduósi vann Sigurjón hjá kaupmönnum sem beykir og eld- Einlægar þakkir sendum viö öllum sem auösýndu okkur samúö og hlý- hug viö andlát og útför Páls Líndal ráöuneytisstjóra. Fyrir hönd aöstandenda: Guörún Jónsdóttir Þórhildur Lfndal Jón Úlfar Llndal Björn Lindal Páll Jakob Lfndal Hulda Sigdóur Jeppesen Anna Salka Jeppesen Stefán Jón Jeppesen og barnabörn Eiríkur Tómasson Sólveig Guömundsdóttir Bára Magnúsdóttir cifms Gæðavara sem allir þekkja fyrirliggjandi Rúllubindivél á síðsumarkjörum Nánari upplýsingar hjá okkur og umboösmönnum Td lihs \)d HÖFÐABAKKA 9 • 112 REYKJAVÍK • SÍMI 91-634000 SIÐSUMAR- TILBOÐ Kverneland baggagreipin fer betur með baggana við lestun og hleðslu og hlífir umbúðunum. Nánari upplýsingar hjá okkur og umboösmönnum J@uflJ)[íflftfl M tiís od fuj HÖFÐABAKKA 9 • 112 REYKJAVÍK • SlMI 91-634000 smiður og eftir að hann flutti til Siglufjarðar kom hann sér upp eigin smiðju er hann starfrækti til hárrar elli, f. 1869, d. 1945. Hann var brautryðjandi í þessari iön í byggðarlaginu, enda var mikil þörf fyrir fagmanna á þessu sviði þar sem byggðin var í örum vexti. Norðmenn höfðu reist þar síldar- verksmiðjur og sfldarsöltun hafin. Árið 1903 hafði norskt skip komið til Siglufjarðar með timbur og tunn- ur í fyrstu söltunarstöðina. Voru konur þá í fyrsta sinn ræstar til sölt- unar á Siglufirði að verka sfld og salta við mjög frumstæðar og erfiðar aðstæður. Fríða, en svo var hún jafnan nefnd, hafði gaman af að rifja upp gamla tíma, en hún var sex ára er foreldrar hennar fluttu til bæjarins. Hún minntist oft á bæjarbraginn, hversu uppbyggingin var hröð, en fólk streymdi til Siglufjarðar víða að. Greindi hún frá erfiðleikum fólks á tímum fyrri heimsstyrjaldar, 1914- 1918, og vöntun og skorti á flestum lífsnauðsynjum. Hafís var fyrir öllu Norðurlandi 1918 er Sigluflörður öðlaðist kaupstaðarréttindi, hinn sjötti kaupstaður er öðlaðist slík réttindi. Þá var frostaveturinn mikli og aflabrestur. Vel mundi hún snjóflóðin miklu aðfaranótt 12. aprfl 1919, er snjóflóð hljóp úr fjallinu ofan Staðarfjalls og flóðbylja æddi yfir fjörðinn, laskaði skip og eyðilagði hafnarmannvirki. Sópaði snjóflóðið í burt sfldar- bræðslu Evengerbræðra og fimm öðrum húsum á haf út. Stórhríð var á og fannfergi mikið. Atburður þessi fékk mjög á Sigl- firðinga og Fríða sagði að í mörg ár hafi fólk rætt þessa voveiflegu at- burði og beygur sótti að er stórhríð- ar æddu yfir, sem oft er á vetrum, og fannfergi mikið. í þessu umhverfi ólst Fríða upp. Eftir að barnaskólanámi lauk komu foreldrar hennar henni í nám í hannyrðum og fatasaumi svo og fékk hún góða leiðsögn í dönsku, en þá var lögð áhersla á að ungtingar lærðu það mál ef þeir skyldu eiga þess kost síðar að fara til Danmerk- ur til að framast. Þó vinnan væri erfið var hún skemmtileg og Fríða var fljót til verka en vandaði þó vinnu sína. Hún segist hafa átt ánægjulega æsku með foreldrum sínum og systkinum og hún var heilsugóð. Systir hennar, Eyþóra, hafði eftir fyrri heimsstyrjöld farið til náms til Kaupmannahafnar og þar kynntist hún ungum menntamanni er hún síðar gekk að eiga, Magnúsi Kon- ráðssyni verkfræðingi. Fríða hafði mikinn áhuga á að sigla til systur sinnar og menntast. Hún lét verða af þessu og er til Kaupmannahafnar kom fékk hún vinnu í tískuhúsi á „Strauinu" við sauma. Þar lærði hún að teikna kjóla, kápur og annan kvenfatnað, það sem nú er kallað tískuhönnun, en hún var listfeng, smekkleg í lita- vali og með afburðum vandvirk. í Höfn vann hún ein fjögur ár hjá sama tískuhúsi við góð kjör og laun og undi hag sínum vel. Eignaðist þar góða vini er héldu tryggð við hana og síðast fyrir tveimur árum fékk hún kveðju frá danskri vinkonu sinni frá þessum árum. Eftir langa vist í Danmörku langaði hana að skreppa heim til íslands, enda eggjuðu foreldrar hennar hana á að koma, fannst útivistin orðin nógu löng. Fékk hún tveggja mánaða leyfi frá vinnuveitanda sínum til að fara til íslands. En það átti ekki eftir að liggja fyrir henni að snúa aftur til Danmerkur. í heimferðinni kynntist hún föður- bróður mínum, Gunnlaugi Guð- jónssyni, og þau gengu í hjónaband á Akureyri 21. maí 1927 og reistu sér hús í Oddeyrargötu. Systkini Gunnlaugs voru þá öll bú- sett á Akureyri svo og faðir þeirra, Guðjón Helgason fiskmatsmaður, en kona hans, Kristín Árnadóttir, var þá látin. Á Akureyri vann Fríða í verslun en nokkru áður en þau hjónin eignuð- ust sitt fyrsta og eina barn, stúlku er heitin var Hólmfríður, f. 29. aprfl 1929, hafði hún hætt útivinnu. Gunnlaugur vann við verkstjórn og á sumrum á sfld á Siglufirði og þá voru þau hjón þar bæði með dóttur- ina og oft langt fram á haust. Til Siglufjarðar flytja þau alfarin 1932. Þar var lífsstarf þeirra og bæði undu þau hag sínum þar vel. Er ald- ur færðist yfir og sfldveiðar höfðu brugðist sumar eftir sumar fluttu þau sem margir Siglfirðingar suður og settust að í Reykjavík. Einkadóttir þeirra, Hólmfríður, nefnd Lúlú, var þar búsett og var yf- irflugfreyja hjá Flugfélagi íslands. Hún giftist Magnús Jóhannssyni kaupmanni, en þau slitu síðar sam- vistum. Börn þeirra eru tvíburarnir Gunnlaugur og Jóhann, f. 14. aprfl 1966, og Hólmfróður, f. 22. júlí 1967. Eftir lát eiginmanns síns átti Fríða heimili hjá dóttur sinni, en er hún féll frá 17. ágúst 1987 eftir langa og stranga sjúkdómslegu, hafði hún vistast á Hrafnistu í Hafnarfirði. Á skólaárum mínum í MA og há- skóla var ég í sfldarvinnu á sumrum á Siglufirði og var í fæði hjá þeim hjónum, Fríðu og Gunnlaugi og kynntist heimilinu vel. Oft á þessum tíma var gestkvæmt á heimili þeirra af sfldarsaltendum og útgerðarmönnum og einnig erlend- um sfldarkaupendum. Þau hjónin tóku vel á móti gestum og vinum, veittu vel. Fríða var hlý í viðmóti, ræðin og talaði við Danina á sinni góðu dönsku. Framkoma hennar var fáguð, svo tekið var eftir. Hún var vel að sér í sögu lands og þjóðar og þó sérstak- lega um þróun Siglufjarðar. Enda fræddi hún útlendingana um slíkt er eftir var leitað. Heimili þeirra hjóna var snyrtilegt og vel búið. Fríða var reglusöm og fyrirmyndar húsmóðir, laus við arg og þras og hugsaði af mikilli nær- færni um eiginmann sinn sem ekki var hraustur, fatlaður með staurfót. Er hún kom á Hrafnistu í Hafnar- firði var hún í fyrstu nokkuð hress og sjálfbjarga, en hún lærbrotnaði og eftir það var hún bundin að mestu við hjólastól og þurfti að flytj- ast á sjúkradeild. Hún gerði allt til að halda sér við, fór í þjálfun svo lengi sem hún hafði þrek til. í fyrstu átti hún erfitt með að sætta sig við hvernig komið var, en síðar breyttist viðhorf hennar og hún sátt við vistina og sagði oft að margur væri verr settur en hún. Hún hafði misst sjón á öðru auga og heyrnin dauf. Þakklát var hún hjúkrunarfólki fyrir góða umönnun og forstöðukonu Hrafnistu, frú Sig- ríði Jónsdóttur, Iofaði hún mjög lyr- ir hlýja og Ijúfa framkomu og hjálp- semi við sig. Hún reyndi eftir bestu getu að styrkja dótturbörn sín. Þau höfðu ætíð samband við ömmu sína, heimsóttu og hringdu til hennar. Sem dæmi má nefna að Jóhann dóttursonur hennar, sem er fatlaður, að nokkru lamaðar eftir að hafa orðið fyrir bifreið sem barn, tal- aði svo til hvert kvöld við ömmu sína í síma eða hún við hann. Grannt fylgdist hún með öllu er gerðist á Siglufirði og leitaði oft eft- ir fréttum þaðan. Safn átti hún af gömlum myndum frá Siglufirði og fólki og vildi að það færi norður. Gengin er merk kona er lifði sem margur gleði og mikla sorg, en var sátt við lífið og þráði hvfld. Við hjónin vottum dótturbörnum hennar dýpstu samúð. Björn Ingvarsson Sigurgrímur Vemharðsson Fæddur 7. janúar 1958 Dáinn 9. ágúst 1992 Kœri Siggi bróðir. Nú ert þú farinn yfir á annað til- verustig eftir því sem við báðir trú- um. Ég kveð þig við brottförina samkvæmt sömu sannfæringu og bið þig að fyrirgefa mér allt sem ég og fyrirgef þér. Ég reyni að tileinka mér til eftir- breytni þá sérstöku sterku manns- kosti sem þú hefur. Þú hefur mjög jákvæða og bjartsýna hugsun. Á stundum fór þessi hugsun fyrir brjóstið á samferðamönnum þín- um vegna þess að þeim fannst hún bara vera mannalæti, eins og hún móðir okkar hefði orðaö það. Það er þegar þú blést á erfiðleika og mótlæti og sagðir þetta og hitt ekki vera mikið mál. Ég var til dæmis í þeim hópi þeg- ar þú sagðist ekki vita hvað það væri að hafa áhyggjur. Þá trúði ég þér ekki því í mínum huga hljóta allir að hafa áhyggjur, sérstakíega af peningamálum. Þá hafðir þú oft ástæðu til að hafa peningaáhyggjur vegna utanaðkomandi áfalla, en lést aldrei fallast í þunglyndi. Og þú glottir á móti hverri raun og sýndir heiðarleika í viðskiptum og mikinn manndóm. Við brottför þína verða allar áhyggjur og vandamál smámunir. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Og þrátt fyrir alla trúa, sannfæringu og skynsemi þá taka tilfinningar yfirhöndina á slíkum stundum. Ég kveð þig, kæri bróðir, með sár- um söknuði. Ég elska þig og þakka sameiginlega reynslu á þessu til- verustigi. Eg óska þér velferðar á öðrum tilverustigum. Þeim sem þyngsta sorgarbyrði bera bið ég alls hins besta. Algóður guð styrki þá í að snúa sér að eigin lífshlaupi án góðs vinar, Sigur- gríms Vernharðssonar. Mummi bróðir (Guðmundur Vemharðsson)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.