Tíminn - 22.08.1992, Blaðsíða 13
Laugardagur 22. ágúst 1992
Tlminn 13
Lögreglubílar voru orðnir helstu farartæki sem Hermína ferðaðist í.
Þegar bankaránið var framið báru
sjónarvottar að Ijóshærð stúlka
hefði setið undir stýri á flóttabíln-
um. Það var því erfitt fyrir Hermínu
að sanna sakleysi sitt, því enn hafði
hún ekki fjarvistarsönnun, enda
ekki aðalstarfi saklauss fólks að
verða sér úti um fjarvistarsannanir.
Lögreglan yfirheyrði hana og
krafðist þess að hún segði til sam-
starfsmanna sinna. Hún var síðan
sett í gæsluvarðhald, þar sem hún
hélt stöðugt fram sakleysi sínu.
í þetta skipti liðu tveir sólarhring-
ar áður en Hermína slapp úr prí-
sundinni. Bankaræningjarnir náð-
ust til allrar hamingju og þá kom í
Ijós að það var ekki kvenmaður sem
keyrði flóttabílinn, heldur karlmað-
ur með hárkollu.
Handtekin fyrir alla
glæpi
Og svona hélt þetta áfram. Herm-
ína var handtekin fyrir morð, fleiri
mannrán og yfirhöfuð alla alvarlega
flæpi sem framdir voru í borginni.
hvert skipti sem fréttir bárust af
slíkum atburðum barst lögreglunni
nafnlaust bréf þar sem því var hald-
ið fram að Hermína Ernst væri
sökudólgurinn.
Lögregluna var farið að gruna að
eitthvað gruggugt væri þarna í spil-
inu. En lögum samkvæmt ber
henni að fylgja eftir öllum slíkum
vísbendingum sem henni berast,
þannig að Hermínu var hætt að
koma það á óvart er hún var hand-
tekin.
Þetta tók þó mjög á taugarnar.
Margir voru farnir að líta Hermínu
hornauga, því menn töldu að varla
myndi lögreglan ofsækja hana á
þennan hátt ef hún hefði ekki að
minnsta kosti eitthvað óhreint í
pokahorninu.
Hermína giftist á þessum árum og
eignaðist þrjú börn. En álagið af
stöðugum handtökum og yfir-
heyrslum og handtökum var orðið
slíkt að hjónabandið þoldi það ekki
og maður hennar fór frá henni.
Jafnvel hann átti erfitt með að trúa
því að hún væri alsaklaus.
RÁDNING Á
KROSSGÁTU
Líf Hermínu gekk oröið út á það
að afla sér fjarvistarsannana.
Fjarvistarsönnun
óskast
Hermína var farin að gera alls kyns
varúðarráðsstafanir. Hún forðaðist
það eins og heitan eldinn að vera ein
til þess að hafa stöðugt vitni að því
hvar hún hefði verið á hverjum tíma.
Hún gekk með vasabók þar sem hún
skráði hjá sér allt sem hún gerði og í
fylgd með hverjum hún hefði verið á
hverjum tíma.
Ef hún neyddist til að vera ein á ferð
einhverra hluta vegna skráði hún hjá
sér alla sem hún hitti og lagði sig f
framkróka um að láta afgreiðslufólk
og aðra sem hún átti samskipti við
muna eftir sér.
Hún henti aldrei aðgöngumiðum
eða kvittunum. Allt hennar líf var
farið að snúast um að hafa fjarvistar-
sönnun vegna glæpa sem hún hafði
ekki komið nálægt.
Lögreglan fór að reyna að kanna
það hver það kynni að vera sem legði
sig svo í framkróka um að koma
Hermínu ívandræði.
Hermína kvaðst ekki vita til þess að
neinn bæri til sín slíkan haturshug
að vilja raska allri hennar tilveru.
Lögreglan yfirheyrði þó alla karl-
menn sem hún hafði átt einhver
skipti við áður en hún giftist. Þeir
voru þrír og enginn þeirra virtist
hafa ástæðu til að hata Hermínu eða
bera kala til hennar.
Jósef Ernst fer á
stúfana
Að lokum fór svo að Hermína var
farin að velta því alvarlega fyrir sér
að flytja úr landi með börnin. Hún
hafði verið ofsótt af lögreglunni í
þrettán ár og var búin að fá nóg.
Hún var einkadóttir foreldra sinna
og þeim fannst það hræðilegt ef hún
þyrfti að hrekjast úr landi með
barnabörnin þeirra.
Faðir hennar bað hana því að gefa
sér tækifæri til þess að komast að því
hvað á seyði væri, hreinsa nafn
hennar og koma á friði í lífi hennar.
Hann byrjaði á því að fara til lög-
reglunnar og fá afrit af öllum nafn-
lausu bréfunum. Þau fór hann með
til sérfræðings í ritvélategundum og
-letri. Sá sagði honum að greinilegt
væri að karlmaður hefði skrifað bréf-
in og að sá væri ekki vanur vélritari.
Hann sagði Jósef Emst ennfremur
að ritvélin sem notuð hafði verið við
að skrifa bréfin væri gömul ferðarit-
vél af Olympia- gerð.
„Ef þú getur fundið ritvélina, skal
ég sjá til þess að sá seki fái að standa
fyrir máli sínu,“ sagði ritvélasérfræð-
ingurinn.
Með þetta í farteskinu hófst Jósef
Ernst handa. Hann byrjaði á því að
útbúa viðgerðarbeiðnir, sem litu út
fyrir að vera frá ritvélaþjónustu. Síð-
an fór hann á stúfana til að kanna
mennina þrjá sem Hermína hafði
verið í tygjum við.
Hann fór heim til þeirra þegar hann
var viss um að þeir væru við vinnu.
Tveir þeir fyrstu voru giftir og eigin-
konur þeirra sögðu að um mistök
hlyti að vera að ræða, þeir ættu enga
ritvél.
En þegar Jósef kom heim til þess
þriðja, Franz Heiring, kom annað
hljóð í strokkinn.
Ritvélin fínnst
Hermína hafði kynnst Franz Heir-
ing þegar hún var 18 ára gömul. Þau
höfðu farið út saman nokkrum sinn-
um, en Hermínu féll ekki við hann er
hún kynntist honum nánar og sleit
því sambandi þeirra. Hann hafði tek-
ið því óstinnt upp og margbað hana
um að endurskoða hug sinn. Hún
neitaði því stöðugt og að lokum gafst
hann upp og hún heyrði ekki frá
honum eftir það.
Þegar Jósef Ernst kom heim til
Franz kom öldruð móðir hans til
dyra. Hann kvaðst vera kominn til að
gera við ritvél sonar hennar. Hún
kannaðist strax við að sonur hennar
ætti Olympia ferðaritvél, en vildi
ekki hleypa Jósef inn þar sem sonur
hennar hefði ekki sagt henni að
hann ætti von á viðgerðarmanni.
Jósef sýndi henni þá beiðnina sem
hann hafði útbúið og lét hún þá und-
an.
Hún vísaði honum á vélina og þeg-
ar hún brá sér frá dró hann upp blað
og setti í vélina. Hann gerði eins og
sérfræðingurinn hafði sagt honum,
sló inn alla stafi á ritvélaborðinu í
hástöfum, ásamt greinarmerkjum og
tölustöfum.
Að því loknu kvaddi hann gömlu
konuna og fór.
Hann hélt með feng sinn á fund sér-
fræðingsins sem kannaði blaðið og
bar þaö saman við nafnlausu bréfin.
Að þeirri könnun lokinni kvað hann
engan vafa leika á því að nafnlausu
bréfin hefðu verið skrifuð með ritvél
Franz Heiring.
Fáránleg hefnd
Þeir sneru sér til lögreglunnar með
vitneskju sína. Lögreglan hraðaði sér
heim til Franz Heiring, því vitað var
að tíminn væri naumur. Franz Heir-
ing myndi eflaust losa sig við ritvél-
ina hið snarasta er hann frétti að við-
gerðarmaður, sem hann hafði ekki
beðið um, hefði komið og litið á vél-
ina.
Þegar Franz Heiring hafði verið
handtekinn og honum sýnd sönnun-
argögnin gegn honum, gafst hann
upp ogjátaði.
Hann skýrði frá því að Hermína væri
eina stúlkan sem hann hefði nokkru
sinni elskað og hann hefði aldrei náð
sér eftir að hún sagði honum upp.
„Henni fannst ég ekki nógu góður
fyrir sig,“ sagði hann beisklega. „Ég
ákvað því að koma henni í vandræði
hjá lögreglunni og vonaði alltaf að
hún yrði dæmd fyrir einhvem þeirra
glæpa sem ég sakaði hana um. Síðan
taldi ég að þegar hún kæmi úr fang-
elsinu myndi enginn vilja líta við
henni og þá myndi hún taka mér feg-
ins hendi."
Heiring var ásakaður um að hafa
sakað annan mann ranglega um
glæp, villt um fyrir lögreglunni og
þar með tafið störf hennar og glæp-
samleg rógskrif.
Hermínu, sem hafði mátt þola þessa
fáránlegu hefndaráætlun í 13 ár,
fannst sem þungu fargi væri af sér
létt. Hún var orðin 34 ára gömul og
sagðist sem betur fer enn vera nógu
ung til að geta byggt upp líf sitt að
nýju ásamt börnum sínum.
Fiskistofa
auglýsir eftir starfsfólki
Fiskistofa er stjórnsýslustofnun á sviði sjávarút-
vegsmála sem heyrir undir sjávarútvegsráð-
herra og skal m.a. annast framkvæmd laga um
stjórn fiskveiða, eftirlit með fiskveiðum, söfnun,
úrvinnslu og útgáfu upplýsinga á því sviði.
Stofnunin tekur til starfa 1. september 1992 og
verður til húsa í Ingólfsstræti í Reykjavík.
Endanlegar starfslýsingar fyrir allar stöður liggja
ekki fyrir en ráða þarf:
Lögfræðing — fyrir fiskveiðistjórn og veiðieftirlit.
Viðskiptafræðing — fyrir sömu svið.
Starfsfólk í tölvudeild.
Ritara, bókara, skjalavörð og símavörslu á
skrifstofu.
Um er að ræða áhugaverð störf og uppbygg-
ingu nýrrar stjórnsýslustofnunar á sviði sjávar-
útvegsmála.
Laun verða í samræmi við launakjör ríkisstarfs-
manna.
Umsóknir sendist sjávarútvegsráðuneytingu,
Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, merktar „Fiski-
stofa“ fyrir 1. september nk.
Fiskistofustjóri
aÓNSKÓLi
SIGURSVEINS D. KRISTINSSQNAR
| Hellusundi 7 Reykiavik
Innritun
hefst mánudaginn 24. ágúst. Nemendur í hjóðfæra- og
söngdeildum þurfa að staðfesta umsóknir sínar með
greiðslu eða samningi um greiðslu námsgjalda.
Nýjar umsóknir aðeins teknar á biðlista.
Athugið að forskólanemar sem sótt hafa um nám verða
boðaðir sérstaklega.
Skrifstofa skólans verður opin sem hér segir: í Helluhrauni
7 mánudaginn 24. ágúst til miðvikudags 2. september, í
Hraunbergi 2 laugardag 29. ágúst kl. 10-14, í Árbæjarskóla
mánudag 31. ágúst kl. 17-19.
Skólastjóri
Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar, f.h. garöyrkjustjórans I Reykjavlk,
óskar eftir tílboöum I lóöartögn á leiksvæöi viö Leiöhamra.
Verkinu skal lokiö 20. október 1992.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavlk,
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 1. september 1992, kl.
11.00
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Getum afgreitt
fjölmargar harðviðartegundir; fullverkaður
viður með stuttum afgreiðslufresti.
Beiki, Askur, Kirsuberjaviður, Eik, japönsk og
evrópsk, Iroco, Mahogani, brasilískt og afrík-
anskt, Poplar USA, Thailand Teak,
Hnota, Paranafura.
Vikulegar ferðir
Byggir hf. sími 677190