Tíminn - 22.08.1992, Blaðsíða 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
ððruvísl bilasala
BlLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUT1R.
MVND HJÁ OKKUR - BlLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
E5,
A
/AJ HÖGG-
> DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
varahluti
Hamarshöföa 1 - s. 67-67-44
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992
Ýmislegt ábótavant í kurteisi landans:
Skortir okkur
tillitssemi?
Sífellt færíst í aukana að félagasamtök óski eftir fyrirlestrum um
mannleg samskipti, framkomu og kurteisi. Einnig sækja ungir karl-
menn meira í þau en áður.
Að sögn Unnar Arngrímsdóttur, framkvæmdastjóra Módelsamtak-
anna, bjóða þau upp á fyrirlestra þar semfjallað er um þijú ofan-
greind atríði auk borðsiða og samskipta starfsmanns og yfírmanns.
Séu fyrirlestramir fyrir starfsfólk fyrirtækja er jafnframt komið inn
á þjónustu við viðskiptavini.
Gunnar Elnarsson, Elnar I Götu og
Johnny Sfmonarson viö grisjun f Loö-
mundarvatnl I Landmannaafréttl.
LJósmynd: Sunnlenska fréttablaðlð
Grisjun í veiðivötnum
Vannýtum við
veiðivötnin?
Grisjun á murtustofni Þingvallavatns hefur enn ekki komist í gang
þar eð hringnót sú sem nota átti til verksins reyndist ekki nógu síð.
Veiðifélag Þingvallavatns stendur að framkvæmdunum og notar
hringnót svipaðri þeirri sem beitt er við loðnuveiðar.
„íslendingar eru búnir að vera til
sveita til svo langs tíma, þar sem
þeir hafa orðið að berjast fýrir því að
halda lífi. Síðan hoppum við yfir
hundrað ára tímabil og komumst á
malbikið," segir Unnur. „Það skort-
ir þarna ákveðna þróun í menningu
okkar og við finnum það á okkar
nemendum."
Helsta Akkillesarhæl okkar íslend-
inga segir Unnur vera skort á tillits-
semi.
„Það vantar alla tillitssemi og virð-
ingu og þá sérstaklega hjá böm-
um,“ segir Unnur. „Maður sem hef-
ur tillitssemi innra með sér, hann
kemst af."
Grunnreglur ríkja í fatavali og þær
vefjast líka oft fyrir fólki.
„Það er oft hringt í okkur þegar
verið er að fara í forsetaveislur og
brúðkaup og spurt hvort megi fara í
hinu eða þessu, hvort liturinn hæfi
eða hvort það megi borða með hatt
á höfðinu," segir Unnur.
Það fer eftir því á hvaða tíma sóiar-
hringsins verið er að borða hvort
borða má með hatt á höfði en fólki
til glöggvunar á að vera með höfuð-
fat í guðshúsi.
Unnur bendir á að hver og einn
geti verið snyrtilegur við hvaða
tækifæri sem er og þykir vinsældir
einkennisbúnings íslenskra hús-
mæðra hafa gengið út í öfgar: „Þú
getur verið í jogginggallanum þeg-
ar þú ert að hlaupa en ekki þegar þú
Fastlega má búast við að tekist
verði á um þetta atriði á þinginu en
Framsóknarflokkurinn hefur í ára-
tugi talið að misjafnt vægi atkvæð-
isréttar sé einn þáttur í því að vega
upp misjafna aðstöðu kjósenda úti
um land þegar kemur að ýmiss
konar þjónustu sem þéttbýlingar á
höfuðborgarsvæðinu eigi auðveld-
ara með að nálgast en dreifbýlis-
fólk. í ályktunardrögunum segir
ennfremur:
ert að versla í Kringlunni," segir
hún.
„Við reynum að gera fólki grein
fyrir því að það er mikið atriði að
skórnir séu hreinir og hælarnir
ekki uppétnir sem við göngum,
stöndum og berum okkur á,“ segir
Unnur. „Ég sá í sjónvarpinu fyrir
kosningarnar fjóra menn í sitjandi í
hornsófa. Þrír voru ungir og
huggulegir með flibba og sátu upp-
réttir en svo var einn á sextugsaldri
spikfeitur með jakkann frá, sat á
annarri rasskinninni, hallaði sér
aftur með aðra höndina á sófabak-
inu. Ég myndi aldrei kjósa þennan
mann, hann var ekki traustvekj-
andi. Það er ekki bara málefnið sem
verður að vera í lagi heldur líka út-
litið.“
Unnur tók útlit fréttamanna Ríkis-
sjónvarpsins í gegn fyrir kosninga-
sjónvarpið í fyrra og lét þá m.a.
„klippa af sér lubbann". Hún sótti
meira að segja um sérstakan fata-
styrk þeim til handa, sem hún og
fékk.
Það er afar misjafnt frá ári til árs
hvaða aldurshópar eru fjölmennast-
ir á námskeiðum Módelsamtak-
anna. í fyrra flykktist til dæmis hóp-
ur ungra manna úr viðskiptafræði í
Háskólanum á námskeið hjá Unni
og er ekki að efa að árangur þess
skilar sér von bráðar út í íslenskt
viðskiptalíf.
„SUF telur að Alþingi eigi að end-
urspegla vilja þjóðarinnar, en geri
það ekki nema allir hafi jafnan at-
kvæðisrétt. Til að sýna misvægið
má benda á að yfir 63% þjóðarinn-
ar búa á höfuðborgarsvæðinu, en
þaðan koma um 30% af fulltrúum á
Alþingi.
SUF telur brýnt að Framsóknar-
flokkurinn og önnur lýðræðisöfl
vinni markvisst að jöfnun atkvæð-
isréttar."
Þegar búið var að síkka nótina sem
nota átti bilaði biökkin sem notuð er
til að hífa hana upp. En að sögn
Sveinbjörns Jóhannessonar bónda á
Heiðabæ 1 er þó fyrirhugað að hefj-
ast handa við grisjunina eftir nokkra
daga.
„Við þyrftum að fá svör við því
hvaða áhrif mikil veiði hefur á fiski-
stofn í vatni og hvað þarf að taka
marga fiska til að fá breytingu á
stærðarsamsetningu fiskstofnsins
og fæðudýrastofnana," segir Guðni
Guðbergsson hjá Veiðimálastofnun.
„Það hefur mikið vantað upp á að
menn hafi náð því magni sem hafi
skilað þessum svörum, því þolin-
mæði hefur skort til að taka nægjan-
í sérstökum drögum að ályktun
um byggðamál er hins vegar talað
um að efla beri völd og ábyrgð
heima í héraði og efla sjálfstæði
kjördæmanna.
Annars er aðalmál þingsins sjávar-
útvegsmál og hafa tveir utanað-
komandi ræðumenn verið fengnir
til að flytja erindi en það eru þeir
Jón Kristjánsson vatnalíffræðing-
ur, sem viðrað hefur óhefðbundnar
skoðanir um fiskveiðistjórnun,
annars vegar og hins vegar Svein-
björn Stefánsson, forstjóri á Seyð-
isfirði.
Á þinginu verður kosinn nýr for-
maður SUF, en Siv Friðleifsdóttir,
núverandi formaður, hefur ekki
gefið kost á sér til endurkjörs.
legt magn.“
Áhöld eru svo um hvað er venjuleg
veiði hins vegar og grisjun annars
vegar að sögn Guðna. Grisjun er það
venjulega nefnt þegar veitt er mikið
magn af fiskistofni þar sem hann er
mjög þéttur til að vaxtarhraði hans
aukist sem og stærð hans. Þar með
eykst verðmæti hans.
í Sunnlenska fréttablaðinu frá 20.
ágúst sl. kemur fram að vötnin í
Landmannaafréttum hafi verið
grisjuð undanfarnar vikur. Til þess
er loðnunót notuð og hún dregin af
tveimur litlum bátum frá miðju
vatninu í land. Þannig geta um 300
fiskar veiðst í einu hali.
Önnur ráð eru notuð í vötnunum á
Jökuldalsheiði en þar hafa egndar
vírgildrur verið teknar í gagnið. í
þær er sett agn eins og til dæmis
þorskahrogn. Þar hafa veiðst um 5-
7000 fiskar undan ís á viku á vet-
urna. Enginn árangur er enn kom-
inn af þeirri grisjun sem þegar hefur
verið framkvæmd.
Að mati Guðna mætti nýta afla
veiðivatnanna betur en gert hefur
verið: „Þessi fiskur sem menn hafa
verið að veiða er smár og því léleg
söluvara og menn byrja ekki að veiða
fyrr en þeir geta selt aflann og byrja
ekki að selja fyrr en þeir hafa veitt
hann. Þannig að þetta er vítahring-
ur. Mér finnst að með þau verðmæti
í huga séu bændur upp til hópa frek-
ar daufir við það að nýta þessa veiði,“
segir Guðni.
Nokkur átaksverkefni hafa verið
gerð til að koma á veiðum og hefur
orðið minna úr þeim en vonir hafa
staðið til, sérstaklega með tilliti til
stöðu greinarinnar.
„Ég held að ýmsir gætu drýgt tekj-
ur sínar með því að líta á veiðarnar
sem vinnu og gera þetta af alvöru
eins og gert er við Mývatn og Þing-
vallavatn þar sem að fara á net þykir
jafnsjálfsagt og að smala á haustin,
en er annars staðar bara gert þegar
menn eru í góðu stuði,“ segir Guðni.
Hann segir hins vegar stangveiði
hafa færst í aukana og laxveiðileyfi
seljast vel. Færri komast að en vilja í
laxveiðiárnar og færa margir sig því
yfir í silungsveiðina í ám og vötnum.
„Veiðiréttareigendur mættu gera
meira til að hlúa að sínum vötnum
og auðvelda aðgöngu. Ferðaþjón-
usta bænda hefur verið að gera svo-
lítið í þessu en það mætti gera
meira,“ segir Guðni að lokum.
—GKG.
Norræn ráð-
stefna um
umhverfismál
á Spáni
Norræn umhverfisráðstefna verður
haldin á heimssýningunni í Sevilla á
Spáni næstkomandi mánudag á veg-
um norrænu ráðherranefndarinnar.
Embættismannanefnd ráðherra-
nefndarinnar um umhverfismál
hefur undirbúið ráðstefnuna, en
hún fjallar um norræn viðhorf til
umhverfismála og tillögur Norður-
landanna um úrbætur.
Á ráðstefnunni verða flutt tvö erindi
frá hverju Norðurlandanna og munu
Norðmenn fjalla um loftslag, Finnar
um líffræðilegan fjölbreytileika, ís-
lendingar um mengun sjávar, Svíar
um súrt regn og Danir um þátttöku
aimennings í umhverfismálum.
Ríkisstjórn íslands fól í aprfl síðast-
liðnum umhverfisráðuneytinu að
annast þátttöku í ráðstefnunni fyrir
Islands hönd. Eiður Guðnason um-
hverfisráðherra mun koma fram sem
fulltrúi norrænu ráðherranefndar-
innar og setja ráðstefnuna. Hann
mun einnig flytja erindi fyrir hönd
íslands um norræn sjónarmið og
stefnu varðandi verndun sjávar gegn
mengun og Davíð Egilsson, deildar-
stjóri Mengunardeildar Siglinga-
málastofnunar, mun fjalla um meng-
un sjávar.
—GKG.
Óvænt tillaga á 24. sambandsstjórnarþingi ungra framsóknarmanna á
Egilsstöðum um næstu helgi:
SUF vill jafna
atkvæðisréttinn
„Samband ungra framsóknarmanna telur að jafna eigi atkkvæðisréttinn.
Úrs'it kosninga ættu að sýna vilja þjóðarinnar þar sem hvert atkvæði hafi
jafn vægi.“ Þannig hljóðar upphaf draga að ályktun sem málefnahópur
ungia framóknarmanna hefur ákveðið að leggja fyrir sambandsþing ungra
fram iknarmanna sem haldið verður í Menntaskólanum á Egilstöðum um
næstu helgi, 28.-30. ágúst.