Tíminn - 26.09.1992, Blaðsíða 17
Laugardagur 26. september 1992
Tíminn 17
Lögreglan kippti sér ekki upp við það
þegar Isobel hvarf, taldi víst aó hún
hefói strokið meó elskhuga sínum. En
tvíburasystir Isobel þekkti hana og
skapgerð hennar og vissi að eitthvaö
annaó og meira haföi gerst.
voru liðnar frá hvarfi Isobel var lög-
reglan loks til viðræðu um að leita
hennar. Enginn gaf sig fram sem
hafði séð til ferða hennar né heldur
nokkur sem vissi deili á hinum dul-
arfulla kærasta. Douglas, fyrrverandi
unnusti hennar, kvaðst ekki hafa séð
hana í tíu til tólf daga áður en hún
hvarf.
Christine geríst
innbrotsþjófur
Christine gafst ekki upp. Hún gekk
með mynd af systur sinni á milli
allra staða sem henni komu til hug-
ar að Isobel kynni að hafa komið á og
spurðist fyrir. Enginn árangur varð
að þessu framtaki hennar.
Uppgötvunin sem Christine gerði
andvökunóttina var fyrsta vísbend-
ingin sem hún fékk í málinu. Hún
hélt á fund lögreglunnar og skýrði
frá grun sínum.
Lögreglan kvað þetta heldur veikan
grunn að byggja á. Þó svo að Dou-
glas hefði talað um Isobel í fortíð,
var engan veginn víst að hann vissi
meira um afdrif hennar en aðrir.
Christine hafði ekki skýrt lögregl-
unni frá þessu með úrið. Það var
hennar tromp sem hún ætlaði að
hafa í erminni aðeins lengur. Hún
tók sér nokkurra daga frí úr vinn-
unni og ákvað að láta til skarar
skríða.
Ráðið sem henni kom helst til hug-
ar gat varla talist löglegt Christine
sá þá leið eina í örvæntingu sinni að
brjótast inn hjá Douglas Cole og afla
þannig þeirra sönnunargagna sem
hún þyrfti til þess að fá lögregluna
til að trúa sögu sinni.
Christine hagaði sér eins og hetja í
glæpamynd. Hún dulbjó sig, fór í allt
of stóra kápu og setti upp ljósa hár-
kollu. Síðan hélt hún heim til Dou-
glas Cole snemma morguns og beið
þess að hann og móðir hans yfirgæfu
húsið.
Leynihólfíó
í gólfínu
Þegar mæðginin voru farin snaraði
Christine sér bak við húsið og þar
inn um opinn eldhúsgluggann. Hún
fann fljótlega herbergi Douglas og
hóf leitina.
í vasa á jakka í fataskápnum fann
hún veskið sem hann hafði verið
með kvöldið sem þau hittust í því
fann hún myndina af Isobel. Hún
tók myndina ekki og sagði síðar að
hún hefði ekki viljað spilla fingraför-
um Douglas á henni svo hann gæti
ekki þrætt fyrir að hafa haft myndina
undir höndum.
Christine þóttist nú nokkuð góð að
hafa fundið myndina, en lét þó ekki
staðar numið og svipaðist betur um í
herberginu.
Hún veitti því athygli að gólfteppið
hafði verið losað í einu homi her-
RÁÐNING Á
. f7!-
/"! - ;'rI h • \ , CT»
Trx
o> ± xy
m x>
bergisins. Hún lyfti teppinu og þá
kom í ljós að losað hafði verið um
gólfborð við vegginn. Hún fjarlægði
gólfborðið og þá mætti henni sjón
sem tók af allan vafa.
Undir gólfborðinu lá veskið sem
Isobel hafði verið með kvöldið sem
hún hvarf, hringur sem hún jafnan
bar og úrið sem hún hafði fengið í
afmælisgjöf þegar hún varð 22 ára.
Þama var einnig karlmannsúr, veski,
skyrtuhnappar og signethringur.
Hún gekk aftur frá öllu eins og það
hafði verið og hraðaði sér sfðan á
fund lögreglunnar og skýrði frá því
hvað hún hafði gert og fundið í
framhaldi af því.
Játningin
Lögreglan aflaði sér þegar húsleit-
arheimildar og handtökuskipunar á
hendur Douglas Cole.
Þegar Douglas Cole hafði verið
handtekinn var hann fljótur að sjá
að spilið var tapað og játaði að hafa
bæði myrt Isobel og hinn nýja kær-
asta hennar.
„Ég drap þau bæði og ég skal sýna
ykkur staðinn þar sem ég gróf líkin,“
sagði hann. „Isobel var stúlkan mín
þar til þessi flagari kom á sínum fína
og flotta bfl og plataði hana upp úr
skónum. Hann hét Charles O’Malley
og kom frá Liverpool. Það var útilok-
að að sætta sig við að einhver fra-
skratti kæmi og stæli frá manni
kærustunni fyrirhafnarlaust Kvöld-
ið sem ég drap þau sat ég fyrir þeim
og elti þau á bílnum mínum. Þau
óku út í skemmtigarðinn og stöðv-
uðu bflinn þar. Ég læddist að bílnum
og skaut hann fyrst í höfuðið. Isobel
sat alveg stjörf og starði á mig þegar
ég skaut hana í ennið. Ég gróf þau
niðri við fljótið. Síðan ók ég bflnum
í næsta bflakirkjugarð og faldi hann
meðal bflhræjanna. Númeraplötun-
um henti ég í fljótið."
Lögreglan fann líkin þar sem Dou-
glas hafði bent á þau og höfðu þau
bæði verið skotin í höfúðið.
Sfuff fangavist
Sama dag var ákæra lögð fram á
hendur Douglas um tvöfalt morð og
hann hnepptur í gæsluvarðhald
fram til réttarhaldanna.
Tíl réttarhalda kom þó aldrei.
Klukkan fimm fyrstu nótt Douglas í
gæsluvarðhaldinu fundu fangaverðir
hann látinn í klefa sínum. Hann
hafði rifið sængurfötin í strimla og
hengt sig.
Christine var óumdeilanlega hetja
dagsins í þessu máli. Hún vildi Iengi
vel ekkert láta hafa eftir sér um mál-
ið, en Iét þó að lokum undan þrýst-
ingi fréttamanna að skýra frá því
hvað hefði komið henni á sporið.
„Það var úrið. Það sást greinilega á
myndinni sem Douglas sýndi mér.
Hann hafði haldið því fram að hann
hefði ekki hitt Isobel f tíu eða tólf
daga áður en hún hvar. En hún fékk
úrið í afmælisgjöf tveimur dögum
áður en hún hvarf og sama dag var
myndin tekin. Hvemig hafði Cole
getað fengið myndina nema frá Iso-
bel?
Það var því greinilegt að hann hafði
hitt hana eftir að hún átti afmælið."
Það er margt að varast fyrir þá sem
ætla að reyna að komast upp með
morð.
Ert þú að tapa
réttindum?
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur
á árinu 1991 og 1992:
Lífeyrissjóðurinn Björg
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
Lífeyrissjóður trésmiða á Akureyri
Lífeyrissj. verkafólks í Grindavík
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lífeyrissj. starfsfólks í veitingahúsum
Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar
Lífeyrissjóður matreiðslumanna
Lífeyrissjóðurinn Sameining
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður Sóknar
Lífeyrissjóður Suðumesja
Lsj. verkamanna á Hvammstanga
Lífeyrissjóður verksmiðjufólks
Lífeyrissjóður verkstjóra
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga
Lífeyrissjóður Vesturlands
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
HAFIR ÞU EKKI FENGIÐ YFIRLIT,
en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum
lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa
samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en
1. nóvember n.k.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á
meðal má nefna:
ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI BARNALÍFEYRI ÖRORKULÍFEYRI
Gættu réttar þíns
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
TU þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa vegna gjaldþrota,
skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil
vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum, skal launþegi
innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil, sem
er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega, er viðkomandi lífeyris-
sjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki
sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröf-
una.