Tíminn - 12.12.1992, Qupperneq 1

Tíminn - 12.12.1992, Qupperneq 1
Laugardagur 12. desember 1992 215. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Ung stúlka gengst undir kvalafulla lengingar- aðgerð á fæti. Katrín Ósk Garðarsdóttir: Ráðherrafundur EFTA vonast eftir að EES-samningurinn geti tekið gildi á fyrri hluta næsta árs: Eru breytingar 3- verðlauna ' krossgáta Tímans Þriðja verðtaunakrossgátan fyr- Ir jól er f Tlmanum I dag. Dregið verður úr réttum lausn- um og hinn heppnl hlýtur 10 þúsund krðna vöruúttekt i sér- vöruverslunum Kaupstaðari Mjódd, annarri hæð. Blaösíöa 16 bara tæknilegar? dagar til ióla Utanríkisráðherrar EFTA-ríkjanna, annarra en Sviss, ítrekuðu þann ásetning sinn á ráðherrafundi EPTA í Genf að samningurinn taki gildi eins skjótt og unnt er á fyrri hluta ársins 1993. Ákveðið var að þegar í stað yrði hafin athugun á því hvaða breytingar þyrfti að gera á samningnum en sérfræðingar EFTA telja að breytingarn- ar séu aðeins tæknilegs eðlis. Vonast er eftir að bókun þar að lút- andi verði tilbúin snemma í janúar 1993. Ákvörðun svissnesku þjóðarinn- ar að vera ekki aðili að Evrópsku efnahagssvæði var aðalmál ráð- herrafundarins í Genf. Þær ákvarðanir sem teknar voru á Talinn af 31 árs gamall maður frá Filipseyj- um er talinn af en hann féll útbyrð- is af þýska leiguskipinu Nincop um þrjár sjómílur norðvestur af Vest- mannaeyjum í gærmorgun. Maðurinn, sem var ekki í flotgalla, féll útbyrðis eftir að ágjöf kom bak- borðsmegin á skipið í gærmorgun. Skip á þessum slóðum hófu leit og einnig kom þyrla Landhelgisgæsl- unnar á vettvang. Um hádegisbilið í gær var leitinni hætt og maðurinn talinn af. -HÞ fundinum varðandi þetta mál voru í sjálfu sér ekki veigamiklar. Ákveðið var að fela embættis- mönnum að vinna drög að bókun sem tæki á ákvörðun Svisslend- inga að vera ekki með í EES. Ekk- ert liggur fyrir um hvenær EES- samningurinn tekur gildi að öðru leyti en því að ráðherrarnir lýstu yfir vilja til að það mætti verða sem fyrst. Nokkur óvissa hefur verið um málsmeðferðina. EES-samningur- inn gerir ráð fyrir að ef eitthvert ríki kýs að standa utan EES þá verði gerð sérstök bókun við samninginn en hann verði ekki endurskoðaður í heild. Kröfur hafa verið um það hér á landi og á norska þinginu um að samningur- inn verði endurskoðaður og lagð- ur þannig fyrir þjóðþingin. í fréttatilkynningu frá utanríkis- ráðuneytinu segir að lagasérfræð- ingar EFTA-ríkjanna hafi þegar skipst á skoðunum og gert fyrstu athugun á því hvaða breytingu á EES-samningnum það hefur í för með sér, að Sviss verður ekki aðili að honum. Niðurstaða þeirra er að einungis þurfi að gera fáeinar tæknilegar breytingar á EES- samningnum með viðbótarbókun sem þjóðþing samningsaðila stað- festi sérstaklega. Ekki kemur fram í yfirlýsingu frá fundinum hver tekur að sér að greiða kostnað Sviss við EES en Sviss ætlaði með- al annars að greiða þriðjung af hlut EFTA í Þróunarsjóð EES. Ekki náðist í utanríkisráðherra í gær en hann er á leið til landsins. En ríkir óvissa um afgreiðslu EES- samningsins á Alþingi? Ut- anríkisráðherra leggur mikla áherslu á að samningurinn verði afgreiddur fyrir áramót en stjórn- arandstaðan telur það óþarft og krefst þess að samningurinn verði ekki ræddur fyrr en búið er að taka tillit til þess í textum við samning- inn að Sviss verður ekki með. -EÓ Katrin Osk ásamt fjölskyldu sinni. Lengst til vinstri er móöir hennar, Elín Sveinsdóttir, þá systir hennar, Tinna, Katrín Ósk og Garöar Björgvinsson. Timamynd, Árni BJarna. TIL I ALLT TIL AÐ FA JAFNLANGA FÆTUR Fyrir nokkrum árum var greint frá ungum pilti sem leitaði lækn- ishjálpar til Rússlands til að lengja fætur og hendur. Á dögunum fréttist að í það minnsta einn íslenskur læknir stundar sams konar aðgerðir sem hann kynnti sér þar í landi. Hún heitir Katrín Ósk og er 14 ára og nógu gömul að mati Gunnars Þórs Gunnarssonar iæknis til að gangast undir kvala- fulla aðgerð. Ástæðan er sú að annar fótur hennar er 5 sm styttrí en hinn. Að sögn Garðars Björgvinssonar, föður Katrínar, felst aðgerðin í því að fótur hennar er brotinn fyrir neðan hné. Þar er svo nefnd vaxt- arlína beinsins sem þýðir að vöxt- ur er örastur þar. Göt eru boruð í gegnum beinið sitt hvorum megin við vaxtarlínuna og þar í gegn eru settir teinar. Við teinana utan á fætinum er komið fyrir þvingu sem notuð er til að færa beinend- ana sundur um leið og beinvefur myndast á milli þeirra. Búist er við að þegar þessu er lok- ið eftir fjóra mánuði muni fótur- inn hafa lengst um 4-5 sm. Þá má Katrín eiga von á því að þurfa að gangast undir einhverjar útlitsað- gerðir á fætinum. Katrín er ekki óvön að liggja á sjúkrahúsi því að hún hefur þurft að fara í nokkrar aðgerðir sem miðuðu að því að undirbúa fótinn undir lengingaraðgerðina. Beðið var með þá aðgerð þangað til Katr- ín var við það að hætta að vaxa. Það er meðal annars til að sjá hversu Iangur hinn fóturinn verð- ur. Garðar segir að Katrín hafí staðið sig eins og hetja því að aðgerðin sé mjög sársaukafull. Hann á von á því að hún geti legið heima þegar mestur sársaukinn er horfmn og þá muni foreldrar hennar sjá um að hlú að henni og færa þvingurn- ar á fætinum í sundur. Það segir Garðar að þurfi að gera daglega og bætir við að þessu fylgi miklar kvalir. Hann segir þessa aðgerð vera upprunna í Rússlandi en fyrir nokkrum árum fór ungur piítur þangað í svipaða aðgerð. Garðar segir að þar í landi hafi beinin ver- ið skrúfuð í sundur um 1 mm. á dag en hér á landi sé þetta gert á tveimur og hálfum degi til að draga úr þrautum sjúklingsins. Ánægð með að þetta skuli vera hægt Katrín var full eftirvæntingar í gær því þá var hún útskrifuð af sjúkra- húsinu og fór heim. jafnframt var þetta fyrsti dagurinn sem átti að byrja að skrúfa beinin í sundur. Katrínu líður misvel og henni leið ekkert sérstaklega vel í gær. „Stund- um er ég alveg hress og finnst að ég gæti farið fram úr,“ segir hún. Hún var kvíðin fyrir aðgerðina og er fegin að henni sé lokið. Að vísu þurfti hún að fara tvisvar í sömu aðgerðina þar sem ekki tókst nógu vel að höggva beinið í sundur í fyrra skiptið. Hún segist því hafa óttast að ekki tækist nógu vel til í seinna skiptið en er nú fegin að sá ótti reyndist ástæðulaus. Það kemur til með að reyna á þolin- mæði hennar næstu mánuði meðan beinið er að lengjast. „Ég reyni nú að ráöa við það,“ segir hún. „Ég er rosa- lega ánægð með að þetta skuli vera hægt. Það munar svo miklu á fæt- inum. Ég er til í allt til að fá jafn- langa fætur," segir hún. Hún er bjartsýn á árangurinn og segir að læknirinn hennar hafi sagt að þetta myndi ganga. „Ég trúi því,“ bætir hún við. „Eg get núna beygt hnéð, rétt það út og hreyft hæl en svo vona ég að ég megi fara að stíga í fótinn," segir Katrín. Hún getur ekki stund- að skólann þennan tíma sem það tekur að jafna sig en býst við að fá einkakennslu heima. Jólin eru ofarlega í huga Katrínar og hún segist hafa fundið nálægð þeirra þegar hún kom heim. Það er ekki laust við að hugprýði og þol- gæði Katrínar veki aðdáun þeirra sem umgangast hana og vonandi nýtist henni það vegamesti næstu mánuði. -HÞ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.