Tíminn - 12.12.1992, Blaðsíða 13

Tíminn - 12.12.1992, Blaðsíða 13
Laugardagur 12. desember 1992 Tíminn 13 kolamyrkur og niðaþoka að auki að menn sáu varla á sér hendumar. Tals- verður snjór hafði fallið og þegar kom að ánni, sem fellur niður í Kefla- víkina, var hún í miklum vexti vegna hlýindanna. Við lögðum út í hana þar sem minnst heyrðist í straumnum og tókst að komast yfir með því að vaða upp undir hendur. Komið var kvöld þegar við héldum út Látraheiði, sem var ekki árennilegt. Enginn okkar hafði farið heiðina áður nema Jó- hannes fyrir tuttugu árum, og við slík skilyrði reið á öllu að forðast bjarg- brúnina. Við urðum að þræða gamla troðninga sem lágu all framarlega á bjarginu, og mátti ekki út af þeim víkja, því þá var voðinn vís. Við hugðumst fara niður Iangan dal, Látradal, sem liggur niður að bæjum á Látrum, en fundum ekki dalbotn- inn. Því héldum við niður hrygg þann sem er á milli Breiðuvíkur og Látra og gekk það vel. En er að Látrum kom, var fólkið sem farið hafði inn á bjargið ekki komið aftur, og héldum við því af stað þangað í fylgd með gömlum manni, Ingimundi Halldórs- syni að nafni. Mættum við fólkinu á miðjum Látradal og fréttum að togar- inn hefði strandað á svonefhdum Langurðum. En meiri tíðindi voru orðin: Tólf menn höfðu sigið niður á svonefnt Flaugamef, sem er í um 80 metra hæð yfir fjöru. Fjórir þeirra höfðu vogað að síga áfram hið ógnvænlega sig í fjöruna og það með þeim árangri að búið var að ná átta Englendingum upp á Flaugamefið. Þaðan voru hins vegar aðrir 80 metrar upp á sjálfa brúnina. Stóðu mál nú svo að menn- imir sextán mundu verða að vera af nóttina á nefinu. Fjórir skipbrots- menn voru enn í fjörunni, ásamt þrem af íslensku björgunarmönnum, þeim Hafliða Halldórssyni, Andrési Karlssyni og Bjama Sigurbjömssyni. Þórður Jónsson var farinn upp að nýju. Þrír af fimmtán manna áhöfn togarans heyrðum við að mundu hafa farist — skipstjórinn, stýrimaður og háseti. Sest í aðsetrið Við urðum fólkinu samferða að Látmm að nýju og þar var tekið að útbúa fleiri vaði, því þeir nægðu ekki sem þegar vom komnir á bjargið. Við þetta var unnið hvfldarlaust þar til seinni part nætur og þá lagt af stað með þessar þungu vaðtrossur um öxl. Meðan við vomm á leið vestur yfir Látraheiðina kvöldið áður hafði flokkur manna komið ffá Patreksfirði úr Örlygshöfn og ætluðu þeir sér að fara þvert yfir fjallið og út á bjarg. En þeir vom heldur betur hætt komnir og var Guðs mildi að þeir fóm ekki fram af bjargbrúninni. Það hafði tekið allan daginn þann aðferðin er kölluð vaðardráttur — og skorðuðum í klofinu þúfukoll eða aðra þústu sem kunni að standa upp úr krapaðri grastónni. Sleipan var af- skapleg í brattanum vegna krapans, sem vitaskuld hefur verið blandaður fuglaskít og því enn hálli. Þetta var eins og gler og dauðinn sjálfur var vís, hefðu menn sleppt hendi af stoð- reipinu. En það var mikil blessun að ekki frysti. Það hefði gert þetta verk gjörsamlega óvinnandi og valdið gíf- urlegri hættu. Þegar eldri mennirnir meðal okkar sáu djarfa fyrir ljósri rönd úti við sjóndeildarhringinn ótt- uðust þeir að nú tæki að frysta, sem hefði getað kostað mörg mannslíf. En það varð ekki sem betur fór. Upp af Flaugameflnu Tveir félaga okkar létu sig síga niður á nefið þar sem skipbrotsmennimir átta og jafn margir björgunarmenn höfðu haldið sig alla nóttina. Vom það þeir Aðalsteinn Sveinsson og Ás- geir Erlingsson, vitavörður á Látmm, sem sigu niður. Við tókum nú að draga skipbrots- mennina upp einn af öðmm. Fyrstur kom upp yngsti maðurinn um borð, hann varð átján ára einmitt þennan dag. Hann sem aðrir, sem við björg- uðum, vom allir hmflaðir og skornir eftir skomr, nibbur og hvassar brúnir á bjargveggnum, því vitaskuld kunnu þeir ekki að „ganga með“ utan á bjarginu eins og sigmenn gera og Á Flaugarnefi. Teikning eftir lýsingu þátttakenda. í aösetunni. (Úr kvikmynd Óskars Glslasonar). Þóröur Jónsson, Hafliöi Halldórsson og Danfel Eggertsson bera saman bækur sínar eftir aö hafa fundiö Dhoon strandaöan. (Úr kvikmynd Óskars Gístasonar.) Strandstaöurinn: ekkert vantar á myndina nema myrkriö, þokuna og illviöriö. 13. desember að komast út að Látr- um og kominn morgunn þess 14. desember þegar við komum á brún- ina. Ausandi regn var á. Við renndum niður tveimur línum, einni til þess að halda okkur í en annarri til þess að draga mennina upp á. Þar með klöngmðumst við niður tuttugu metra halla í aðsetur okkar sem var tuttugu metra ofan við Flaugamefið. Það var í miðju bjarginu, eins og ég gat um. Þangað niður gátu góðir bjargmenn að vísu gengið á summm, en það sýndist ótrúlegt héðan að sjá nú, svo snarbratt var þetta. Þama settumst við einn ofan við annan — hefðu auk þess ekki haft þrek til þess. Þótt þessir ensku sjómenn væm miklu minni og grennri en við og því léttir, þá vom þeir þungir í drætti þegar ekki var annars kostur en toga þá svona upp með bjarginu þar sem varð að slíta þá úr einni festunni af annarri. Þegar við höfðum náð manni upp til okkar tókum við hann úr köðlunum og bámm hann síðan tveir upp snar- hallandi bergið á brúnina. Með mér var í þessu Bragi Thoroddsen, sem nú er á Patreksfirði. Aðeins bátsmaður- inn á togaranum, Albert Head, gat klifrað upp aðstoðarlaust, mikið hraustmenni og sjaldan hef ég séð fallegri skrokk en á þeim manni. Á brúninni höfðu verið sett upp tvö tjöld, bræddur snjór og lagað te sem mönnunum var gefið til að hressa þá. Þessu sinntu tveir menn sem ekki treystu sér niður fyrir brúnina vegna lofthræðslu. Þama fengu þeir líka eitthvað af þurrum fötum, sem breski konsúllinn á Patreksfirði, Garðar Jó- hannesson, hafði sent. Skipbrots- mennimir sóttu ákaft í að éta snjóinn við tjaldið, en það var reynt að banna þeim. Það er örmagna mönnum mjög hættulegt að éta snjó, því hann eyðir þeim votti af kröftum sem eftir hann að vera. Þegar manni hafði verið skii- að hjá tjaldinu, renndum við okkur fótskriðu með kaðlinum niður á ný og tókum að toga þann næsta upp. Þegar Bretunum hafði verið bjargað, kom að því að draga íslendingana upp. Þá vorum við teknir að gerast svo dofnir og þreyttir í vosinu og niðamyrkrinu að þegar síðasti mað- urinn kom upp, varð ég einskis var fyrr en hann datt niður á fætuma á mér. Hann var Hafliði Halldórsson. Hafliði hafði verið niðri í fjömnni sem fyrr segir og hafði steinflís fallið úr bjarginu í höfuðið á honum og rist gat á þykka skinnhúfu sem hann var með. Húfan hefur bjargað lífi hans, því það logblæddi úr svöðusári sem hann fékk. Hljóðuðu eins og sæng- urkonur Þeir skipbrotsmenn höfðu verið bundnir í reipin með þeim hætti að þeir mundu alltaf hanga uppréttir þótt það liði yfir þá. En böndin reyrð- ust aftur á móti svo fast að þeim að þegar þau höfðu verið leyst, gerðu þeir ekki annað en núa á sér kviðinn og hljóða eins og sængurkonur, eink- um fyrsti meistari og kokkurinn. Þeir vom líka komnir fast að sjötugu. Nei, það var enginn leikur að þurfa að þola þessa eldraun og þessir gömlu menn misstu meðvitund þegar á brúnina kom. Komið var með hesta, ekki man ég hvaðan, og á þeim vom mennimir fluttir að Látmm. Illa gekk þeim mörgum að tolla á hestunum, enda lá þeim við öngviti í köldu reng- inu. Það var slíkt að þótt menn væm í góðum regnverjum, vom þeir votir inn að beini. Á leiðinni að Látmm að björguninni afstaðinni skámm við allir glufú á sólana á stígvélunum, því betra var að vatnið læki jafn óðum út en að það bullaði í fullum stígvélun- um. Nógu vom fætumir þungir samt. Furðulegt var að ég veit ekki til að neinn hafi fengið svo mikið sem kvef eftir þetta. Allir vaðimir vom skildir eftir á bjarginu og í fjömnni og ekki hirt um þetta meir. Ný björgunartæki vom komin að sunnan fyrir jól. Fjóra skipbrotsmenn varð að skilja eftir inni á bjarginu næstu nótt, vegna þess hve þeir voru lerkaðir, og vökt- uðu þá tveir björgunarmenn. Þeir vom Aðalsteinn Sveinsson og Andrés Karlsson, sem verið hafði niðri í fjör- unni alla nóttina áður. Það var vask- lega gert! Bundnir nauðugir Þetta hafði verið 72 klukkustunda töm og heim að Látmm komust allir um síðir og þar tóku konumar á bæj- unum við þeim. Þeirra hlutur í þessu var afskaplega mikill, en 70 manns vom gestkomandi á Látmm þessi dægur. Á Látmm vom sjö heimili og veitti ekki af, en þar urðu allir veður- tepptir daginn eftir björgunina. Slag- viðrið með hreinustu fádæmum og þurftu konumar að þurrka spjarimar af öllum þessum skara, sem var ekki árennilegt. Kom það sér vel að Bret- amir vom smávaxnir, svo hægt var að ljá þeim föt, til dæmis dragtarjakka af kvenfólkinu. Dragtarjakkinn var meira að segja hólkvíður á einum þeirra! Nei, þetta var ekki allt glæsilegt. Þeir áttu í erfiðleikum sem niður í fjömna fóm, því þeir þurftu að taka fyrstu mennina nauðuga þegar þeim var sýnt fram á að það átti að draga þá upp þetta ægilega þverhnípi. Ekki bætti málleysið úr skák og að enginn var fær um að róa mennina eða hug- hreysta. Þórður lét draga sig upp fyrstan til þess að sýna þeim að þetta væri óhætt. En happ var það að þok- an var slík að Bretamir munu sjaldn- ast hafa séð langt niður fyrir sig á leiðinni upp. Ég held líka að þeir hafi ekki oft litið niður. Man ekki slíkt myrkur Ég kom heim þann 17. desember. Sesselja varð fegin komu minni, sem skiljanlegt er, því ég hafði verið sex sólarhringa að heiman meðan á þessu stóð. Hún hafði að vísu heyrt fréttir í útvarpi af framvindunni, en vissi ekk- ert hvemig mér hefði reitt af. Nokkm eftir þetta fluttum við frá Stakkadal og leiðin lá eftir sex ár suður til Reykjavíkur eftir búskap á Móbergi og í Skápadal. En oft hvarflar hugurinn vestur á Rauðasand. Þar finnst mér að sé feg- ursti staður á íslandi og hvergi hef ég lifað dásamlegri sumur en þar. Ég minnist daganna síðsumars 1939, þegar við vomm að heyskap í 48 eða 49 stiga hita! En myrkrin gátu líka orðið dimm þar á vetrum. Þau hef ég þó líklega lifað allra myrkust þessa desemberdaga fyrir 45 ámm þegar Dhoon fórst undir Látrabjargi."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.