Tíminn - 12.12.1992, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.12.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn Laugardagur 12. desember 1992 Ríkisstjórnin gerir út á sjúklinga, öryrkja, barnafólk og húsnæðis- kaupendur til að fjármagna skattaafslátt stórfyrirtækja og fjármagns- eigenda. Formaður BSRB: Aðgerðir sem valda samfélagslegu tjóni Ögmundur Jónasson, formaóur Bandalags starfsmanna og bæja, segir að með aðgerðum sínum í efnahagasmálum sé ríkisstjómin að gera út á sjúklinga, öryrkja, bamafólk og húsnæðiskaupendur til að fjármagna skattaafslátt stór- fyrirtækja og fjarmagnseigenda. Hann segir að þessar aðgerðir muni valda samfélagslegu tjóni sem ís- lenskt þjóðfélag hefur ekki efni á. Né heldur hafi það efni á að vera til- raunabú fyrir hugmyndir sem ríkis- stjómin virðist sækja með stolti í „ruslakistur frjálshyggjunnar." Ög- mundur segir að ríkisstjómin sé „gramsandi og leitandi í erlendum mistakasmiðjum" og virðist ætla að grafa upp allt það versta sem þar fyr- irfinnist með afleiðingum sem flest- um séu kunnar; gífurlegu atvinnu- leysi og efnahagslegum hörmung- um. „Fólk er alveg dolfallið yfir þessum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem em með algjörum ólíkindum, rang- læti, ranghugmyndir og mgl. Mót- mælin streyma hvaðanæva af land- inu og hvert stéttarfélagið á fætur öðm segir upp kjarasamningum. En hinu er ekki að neita að ríkisstjórn- in er trú sinni köllun og er við sama heygarðshornið og áður í þeirri við- leitni sinni að rústa velferðarkerfið," segir Ögmundur Jónasson. Formaður BSRB segir að þessar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar muni engum árangri skila fyrir atvinnulíf- ið eins og ríkisstjórnin fullyrðir Ögmundur Jónasson, formaöur BSRB. heldur þvert á móti. Þær skerða kaupmáttinn og auka á misskipting- una í þjóðfélaginu og hvorttveggja grefur undan hagvexti í landinu. „Það er nöturlegt til þess að vita að ráðherrar sem eiga að gæta að vel- ferð almennings skuli sérstaklega ráðast á öryrkja og sjúklinga sem virðast vera orðnir helsta tekjulind íslensku þjóðarinnar." Ögmundur Jónasson segir að enn og aftur sé verið að skerða barna- bætur um 500 milljónir króna, verið sé að auka kostnaðarhlutdeild sjúk- linga í lyfjakostnaði, öryrkja og barnafjölskyldna í tannlækninga- kostnaði, vaxtabætur séu skertar svo og mæðra- og feðralaun svo fátt eitt sé nefnt. „Niðurskurðarhnífnum er allstaðar beitt sem síst skyldi og í hvert skipti sem ráðherrar taka til við gerð fjárlaga fyllist almenningur, og þá sérstaklega þeir sem standa höllum fæti í samfélaginu, miklum kvíða,“ segir Ögmundur Jónasson. Hann segir að nú sem fyrr muni BSRB leggja höfuðáherslu á að safna og miðla upplýsingum um áhrif efnahagsaðgerðanna og mikilvægi velferðar- og þjónustugreina fyrir samfélagið og íslenskt atvinnulíf. „í lýðræðisþjóðfélögum er tekið mark á röksemdum fólksins og þótt það hafi ekki enn borið tilætlaðan ár- angur er þetta ekki búið,“ segir for- maður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.-grh Stekkjastaur. Mynd, ÞJóðmlnjasafn. Giljagaur. Mynd, ÞJóömlnJasafn. Jólasveinarnir koma til byggða Jólasveinamir byrja að koma til byggða í dag, laugardag. Þeir munu síðan tínast til byggða, einn á hverjum degi uns allir þrettán bræðumir verða sameinaðir í mannabyggðum á jólum. Fyrsti jólasveinninn er Stekkja- staur og verður hann í heimsókn í Þjóðminjasafni íslands í dag kl. 11.15. Stekkjastaur lá á því lúalag^ inu að sjúga mjólkina úr ánum og Giljagaur bróðir hans sleikti froð- una af mjólkurfötunum. Giljagaur verður í Þjóðminjasafninu á morg- un, sunnudag kl. 11.15. Tvöfaldur og jafnvel þrefaldur verðmunur algengur á brauði og kökum: Brauðin eru ódýrust í Grindavík og Njarðvík Bilun í hugbúnaði veldur vanda hjá Pósti og síma: Konur vekja fólk í stað tölvunnar Það er hætt við því að einhverjum þyki notalegt að vakna við þýða konurödd. Nú er þetta hægt því vegna biiunar í tölvu Pósts og síma hringja þrjár stúlkur í alla þá sem óska eftir að verða vaktir. Danskir sérfræðingar hafa verið fengnir til að leita bilunar í tölvubúnaðinum og búast þeir við að ieysa málið innan tíðar. Ólafur Eyjólfsson, yfirmaður í rit- stýrikerfi hafi valdið því að ekki er Mjög mikill verðmunur á brauði og kökum, oft fyrir 100% og allt uppí 235%, kom í ljós í nýrri könnun Neytendasamtakanna og tíu aðildarfélaga þeirra í 22 bakaríum í öllum landshlutum. „Athygli vekur að ýmis lítil bak- arí á þröngum markaði koma vel út úr könnuninni, á meðan sum bakarí með umfangsmeirí rekstur á stærri markaði eru langt yfír meöalverði", segir meðal annars í tilkynningu frá NS. Miðað við samanlagt verð 14 teg- unda reyndist jafnaðarlega ódýrast að kaupa brauð/kökur í bakaríum í Gríndavik og Njarðvík. Dýrustu brauðin voru aftur á móti hjá einum um- svifamesta bakara Reykjavíkur, Sveini bakara og í Sauðarkróksbakaru, eða 41% dýrari en í Grindavík. símadeild Pósts og síma, segir að síð- ustu nótt og líklega um helgina verði fólk handvakið eins og hann kemst að orði. Þar á hann við að þrjár stúlkur muni hringja beint í alla þá sem óskað hafa eftir að láta símann vekja sig. Áð- ur hefur rödd, sem stjórnað er af tölvu, séð um þessa þjónustu og fólk getað kallað hana upp á lyklaborði símtækisins. Ólafur segir að bilun í hægt að nota tölvu til þjónustunnar þessa dagana. Hann segir að þetta hafi valdið töluverðu ónæði í nokkra daga vegna þess að bilunin virki út á staf- ræna símkerfið. Bilunin sýni sig til dæmis sem sambandsleysi og truflan- ir á símtölum. „Við vorum að setja nýtt stýrikerfi í samband og það tókst svona vel, „segir Ólafur. -HÞ Við verðsamanburðinn var valin sú leið að miða við ákveðið magn af 6 brauðtegundum, 5 tegundum af smábrauðum og 5 tegundum af sætabrauði (samtals um 5,8 kg.) og bera svo saman heildarverð þeirrar „brauðkörfu" milli bakaría. Það reyndist lægst, 2.020 kr. í Bakaríinu í Grindavík, en hæst um 2.840 kr. hjá Sveini bakara og í Sauðárkróks- bakaríi, eða 41% hærra, sem fyrr segir. Fyrir þennan 41% mismun (820 kr.) gæti Grindvíkingurinn til dæm- is fengið 2 franskbrauð, 4 rúnn- stykki, 4 vínarbrauð og vínartertu til viðbótar. Sérstaka athygli vekur að af sex dýrustu bakaríunum í könnuninni J0LATILB0ÐM YAMAHA eru tvö í Reykjavík og önnur tvö á Akureyri, þ.e. á tveim stærstu mark- aðssvæðum landsins þar sem kosta samkeppninnar ætti einna helst að gæta. Var meðalverð þessara fjög- urra Reykjavíkur- og Akureyrarbak- aría um þriðjungi (32%) hærra heldur en í fyrrnefndum bakaríum í Grindavík og Njarðvík og meðal annars nær fimmtungi (18%) hærra en meðalverð allra þeirra brauð- gerða á Suöurnesjum sem könnun- in náði til. Rétt er að taka fram að tvö af fjór- um Reykjavíkurbakaríum í könnun- inni, Ódýri brauða- og kökumarkað- urinn og Bernhöftsbakarí, komu mjög vel úr úr samanburðinum, þ.e. með þriðja og fjórða lægsta meðal- verðið. En næst þeim komu síðan Kökuval á Hellu og Brauðval í Búð- ardal sem einnig voru því í hópi sex ódýrustu brauðgerðarhúsanna. Á verði einstakra tegunda fannst allt að 235% verðmunur á hörðum kringlum. Valgeirsbakarí í Njarðvík bauð kílóið á 291 kr. en Brauðgerð Fram í Neskaupstað selur þær á 976 kr. kg. Meira en 100% verðmunur kom líka í ljós á mjúkum kringlum (382—878 krAg.), snittubrauðum (316—641 kr.), grófum brauðum (147—414 kr.), grófum rúnnstykkj- um (365—800 kr.), pylsubrauðum (386—781 kr.) og vínartertu sem kostaði frá 444 kr. til 919 kr. kílóið í Grindavík og upp í 919 kr. kílóið í Neskaupstað. Verðmunur var hvergi minni en 68%. Neytendasamtökin benda á að þyngd á brauðum og kökum er mjög mismunandi milli brauð- gerða. Samanburður á einingaverði sé því nánast útilokaður. Þótt bakar- íum sé skylt samkvæmt reglugerð að geta samanburðarverðs hunsi þau það öll með tölu. Gegnum einingaverðið er hins veg- ar hægt að fylgjast með verðbreyt- ingum og veita bakaríum aðhald. Könnunin leiddi einnig í ljós að dæmi voru um veruleg frávik frá uppgefinni þyngd vörunnar. Hafi Borgarbakarí og Ódýri brauða- og kökumarkaðurinn komið sýnu verst út úr þeim samanburði. í báðum til- vikum hafi vegin þyngd aðeins náð 87% uppgefmnar þyngdar að með- altali. I flestum bakaríum hafi til- greind þyngd þó verið í samræmi við raunverulega þyngd. - HEI 40% afsláttur af öllum vara-, auka- og fylgihlutum frá YAMAHA. Tilboö þetta stendur tH áramóta, eöa meöan birgðir endast. Hlíf segir upp samningum 99 GRIPIÐ JOLAGÆSINA tí UZlésúdfý HOFÐABAKKA 9 .112 REYKJAVIK . SÍMI 91-634000 Verkamannafélagið Hlíf í Hafnar- fírði hefur samþykkt að segja upp kjarasamningi félagsins við VSÍ og VMS. Uppsögnin tekur gildi fyrsta febrúar 1993. Hlíf samþykkti einnig ályktun á félagsfundi þar sem efna- hagsaðgerðir ríkisstjómarinnar eru harðlega gagnrýndar. Þar segir að aðgerðiraar komi mjög illa við lág- launafólk og baramargar fjölskyldur. „Fundurinn vítir ríkisstjórnina fyr- ir að hafna leið jöfnuðar lífskjara en stuðla þess í stað að sívaxandi ójöfn- uði í þjóðfélaginu. Þvert ofan í gefin loforð fyrir síðustu kosningar hafa stjórnarflokkarnir hækkað skatta og þjónustugjöld, ýtt undir vaxtaokur og boða nú enn meiri álögur á launafólk,“ segir meðal annars í ályktun Hlífar. -EÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.