Tíminn - 12.12.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 12.12.1992, Blaðsíða 9
Laugardagur 12. desember 1992 Tíminn 9 Það sem Kambódla er nú þekktust fyrir: höfuökúpur fólks sem Rauöir kmerar drápu. Pol Pot: tengdir við devaraja. sjálfsstjórn nokkurri. Efri lög sam- félags landsins tóku greiðlega við franskri menningu, en fyrir komu Frakka hafði Kambódía lítt haft af Evrópumönnum og þeirra hugsana- gangi að segja. Eftir heimsstyrjöldina síðari misstu Frakkar fljótlega yfirráð í Indókína. Kambódía varð aftur sjálf- stætt ríki (1955), en um leið fór að örla á gömlu víetnamsk-taflensku úlfakreppunni aftur. Það ástand náði hámarki með því að Víetnamar steyptu Rauðum kmerum af stóli með innrás (1979) og Taílendingar (með Kína, Bandaríkin o.fl. að baki) tóku fallið af Rauðum kmerum. 30 þjóða her Vegna skjótrar hnignunar og hruns sovétblakkarinnar, bakhjarls Víet- nama, urðu þeir að sleppa hendinni af Kambódíu og í framhaldi af því tókst með aðilum kambódíska borg- arastríðsins, af hverjum helstir eru víetnamsinnuð Kambódíustjórn og Rauðir kmerar er ennþá njóta (óop- inberlega) stuðnings Taflandshers, samkomulag um frið á þeim grund- velli að Sameinuðu þjóðirnar settu einskonar „yfirstjórn" yfir landið til bráðabirgða og kæmu þar á lýðræði. Friðargæsluaðgerð S.Þ. í framhaldi af því samkomulagi er sú kostnaðar- samasta til þessa í sögu þeirra og starfa við hana um 20.000 manns, þar af um 16.000 hermenn frá ekki færri en 30 ríkjum. En margra mál er að ekki hafi hér til tekist sem skyldi. Rauðir kmerar hafa haft að engu skilmála samkomulagsins um að afhenda vopn sín, halda þeim hlutum landsins, sem þeir ráða, lok- uðum fyrir S.Þ. og takmarkaðar lík- ur eru taldar á að þeir virði úrslit kosninga er yrðu þeim ekki í vil. Rauðir kmerar eru einskonar kommúnistaflokkur með rætur hjá ofurróttækum, ógagnrýnum vinstriungmennum í skólum París- ar á fyrstu árunum eftir heimsstyrj- öldina síðari, títóisma sömu ára er verið var undir heraga að reisa Júgóslavíu úr rústum stríðsins, ma- óisma og síðast en ekki síst kmerskri/kambódískri þjóðernis- hyggju. Tilvonandi ráðamenn flokks þessa gengu í franska skóla í heima- landinu og síðan í París, skruppu á þeim árum til Júgóslavíu og þótti mikið til koma er alþýðan þar marséraði til vinnu með skóflur um öxl, syngjandi byltingarsöngva. Oft hefur því heyrst haldið fram að for- ingjar Rauðra kmera — sem síðar urðu og eru enn, Pol Pot, Khieu Samphan og aðrir — hafi þegar á þessum árum haft áætlun sína um nýja og mikla Kambódíu tilbúna og í litlu sem engu breytt þeirri áætlun síðan. Hætt er við að þeir félagar hafi frá æsku Iitið svo á að fyrir þá, sem fundið hefðu Sannleikann, sé í hæsta máta óviðeigandi að ræða hann öðruvísi en af ógagnrýninni lotningu. Þetta hefðu landar þeirra (og kannski forfeður) er mynduðu forustukjarnann í ríki Kmerkon- unga, trúlega skilið. Mægðir við goðkonung Fróðlegt er í þessu samhengi að gefa því gaum að þau nánu tengsl goðkonungs og þjóðar, sem fyrr var að vikið, voru í gildi fram á þessa .öld. Fjölmennt kvennabúr Kambód- íukonungs gegndi í því sambandi lykilhlutverki, en í gegnum það var konungur mægður líklega flestum betri bændum landsins. Frænka Pols Pot, sem var sonur vel bjarg- álna bónda, var ein af drottningum Monivongs konungs, fyrirrennara Sihanouks (ekki þó háttsett sem slík), og yngri systir byltingarfor- ingjans var hjákona sama konungs. Það mun hafa verið fýrir tilstilli kvenna þessara tveggja, eða a.m.k. þeirrar fyrrnefndu, sem Pol Pot komst inn í franska skólakerfið. Þótt undarlegt kunni að virðast, miðað við skelfingafrægð þá sem af Rauðum kmerum fer, er ljóst að þeir njóta verulegs fylgis meðal þjóðar sinnar. Sumpart fylgja menn þeim af því að þeir þora ekki annað, en fleira kemur til. Upphaflega náðu þeir fjöldafylgi vegna upplausnar af völdum Indókínastríðsins, sem fyrir Kambódíu leiddi af sér að steypt var af stóli guðlegri konungsætt (Si- hanouk hafði að vísu afnumið kon- ungdóm að formi til, en óvíst er að það hafi dregið úr heilagleika ættar hans í augum landsmanna) og olli þarlendis varla minni eyðileggingu — að tiltölu við stærð og fólksfjölda — en í Víetnam. Sú upplausn virðist hafa rekið mikinn fjölda lands- manna í fangið á foringjum, sem reyndust sigursælir eins og Kmer- konungar hinir fornu og voru ósparir á fyrirheit um nýja tíð mikil- leika og velferðar er kann að hafa minnt alþýðu á dýrðardaga Kmer- veldis. Illa heppnuð „yfirstjórn“ Ríki Rauðra kmera átti að byggjast á landbúnaði, líkt og Kmerkonunga áður. Með því átti Kambódía að hefj- ast til vegs og virðingar á við það sem verið hafði fyrr á öldum og hrinda frá sér ágengum útlending- um, Víetnömum, Taílendingum og öðrum. öllum þeim, sem hugsast gæti að hindruðu starf þeirra er töldu sig þekkja Sannleikann skyldi útrýmt — samkvæmt átrúnaði manna sem trúlega horfðu af hlið- stæðri lotningu til Leníns og Stal- íns og forfeður þeirra á tíð Kmerrík- is til Síva og Búdda. Kambódískir sveitamenn, er samkvæmt fornri hefð líta með ímugusti á borgir sem gróðrarstíur brasks og spillingar, hafa kannski ekki allir tekið sér ör- lög borgarbúa landa sinna á valdatíð Rauðra kmera jafn nærri og Vestur- landamenn, sem af því fréttu. Þjóð- ernishyggja rauðu kmeranna er í samræmi við rótgróna þjóðernis- hyggju kambódískra sveitamanna, mikils meirihluta þjóðarinnar, og liður í þeirri hyggju er djúplæg tor- tryggni gegn útlendingum, sem margir Kambódíumenn telja duga best til verslunar og margskonar vafasams athæfis er þeir setja í sam- band við þá atvinnugrein. Nýja tímanum undir „yfirstjórn" S.Þ. hefur fylgt lausbeislaður kapít- alismi, sem leitt hefur til ríkidæmis nokkurs í borgum, ekki síst hjá kaupsýslumönnum þar sem margir eru útlendingar. I sveitum búa menn á hinn bóginn við engu betri hag en fyrr. Hinn fjölmenni og fjöl- þjóðlegi her S.Þ. aðhefst ekkert gegn Rauðum kmerum, en liðs- menn hans eru þeim mun athafna- samari við vændiskonur og áfengi. Peningarnir sem þeir eyða í þetta hafa hleypt upp verðbólgu, er bætist ofan á annað sem landslýð hrjáir. Allt þetta styður í augum margra Kambódíumanna gamalgrónar grunsemdir þeirra um kaupskap, borgir og útlendinga. Það hugarfar býr undir núverandi kringumstæð- um í haginn fyrir Rauða kmera. . Blítt og strítt eftir Vilhjálm Hjálmarsson Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi ráðherra hefur hér skráð tíu mannlífsþætti um ólík efni - úr lífi fólksins í landinu, í blíðu og stríðu. Hann segirt.a.m. frá meinlegum örlögum og óhappaatburðum, mannfundum og félagsstarfi og rekur þjóðsögur. Vilhjálmi er einkar lagið að segja frá með alþýðlegum og glettnum hætti. Metsölubækur hans, Frændi Konráðs - föðurbróðir minn og Hann er sagður bóndi", bera því glöggt vitni. Blítt og strítt er skemmtileg og fróðleg bók! . - ÆSKANÍ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.