Tíminn - 12.12.1992, Side 11
Laugardagur 12. desember 1992
Tíminn 11
Óður um vináttuna
Undarlegt er líf mitt
Bréf Jóhanns Jónssonar skálds til sr.
Friðriks A. Friðrikssonar.
Vaka-Heigafell 1992.
Ingi Bogi Bogason bókmennta-
fræðingur ritar hér grein um Jó-
hann og æviferil hans. Sigurjón
Jóhannsson, fyrrverandi skóla-
stjóri á Húsavík, gerir grein fyrir
viðtakanda bréfanna.
Það er alkunnugt að Jóhann var
snjall rithöfundur og gott skáld.
Ógleymanleg er frásögn sem hann
ritaði um reimleika í Ólafsvík og
Óskar Halldórsson las í útvarp fyr-
ir nokkrum árum. Vandfundin
mun kröftugri reimleikasaga frá
þessari öld.
Þessi bréf eru öðru fremur óður
um vináttuna. Segja má að öll
bréfin, sem Jóhann skrifar á ís-
landi, séu helguð því efni nánast
eingöngu.
En þegar hann er kominn til
Saga skemmtarans
Eðvarð Ingólfsson:
Lífssaga Ragga Bjama, söngvara og
spaugara.
Æskan 1992.
Mjög er það misjafnt hvað ævisög-
ur eða minningabækur snerta þjóð-
arsöguna. í þessari bók eru vissir
þættir sem snerta hana. Ragnar
Bjamason segir hér frá því tímabili
er stjórnmálaflokkamir höfðu hér-
aðsmót á sumrin með fulltingi ýmis-
konar skemmtikrafta. í framhaldi af
því var svo Sumargleðin, einkafram-
tak samvirkra kunnáttumanna til að
skapa sér sumaratvinnu.
Söguritari virðist hafa lagt kapp á
að koma því til skila að hér væri um
spaugara að ræða. Svo mikið er víst
að þeim félögum hefur tekist að
setja saman bók sem er skemmtileg
aflestrar. En frásögnin minnir á það
að stéttarbræður Ragnars við söng
og hljóðfæraleik á danssamkomum
vom margir drykkfelldir til skaða.
Svo virðist sem mörgum hafi fundist
að vímuefnaneysla tilheyrði list-
greininni. Spaugarinn dregur ekki
fjöður yfir þátttöku sína í þeim lífs-
stfl og er það mála sannast að stund-
um liggur við að meinlausum les-
anda komi í hug orð meistara Jóns
Vídalíns: „Mætti ég skemmta um
hinn óskemmtilegasta hlut.“
Ragnar Bjamason var lífsreyndur
maður þegar Sumargleðin varð til
og hann varð ábyrgur fyrir því liði
sem þar kom til starfa. Þá vissi hann
að ekki dygði annað en svikalaust
áfengisbann. Hann gætti þess að því
væri framfylgt. Hinn gamli lífsstfll
stéttarinnar var ekki gæfulegur, —
raunar óþolandi.
Það er ekki mikið um sterkar
mannlýsingar í þessari bók, en þó
Síðan man ég ekkert meira.“
Svona er hægt að leyna á sér þegar
sagt er frá athyglisverðum hlutum.
Til eru menn sem telja að við ættum
að haga heilbrigðismálum að hætti
Bandaríkjanna. Hér þarf engar ráð-
leggingar. Þetta er nóg.
Það er víða komið við þegar þessi
lífssaga er rakin. Auk þess að hún er
sögð til að skemmta má ýmislegt af
henni læra. H.Kr.
Jóhann Jónsson.
Þýskalands ritar hann í bréfin
hressilegar umsagnir og ályktanir
um ýmsa menningarstrauma, sem
þá voru uppi, og viðhorf íslend-
ingsins gagnvart hinum stóra
heimi. Þetta tengist stundum
komu hans í sögufrægar borgir,
Núrnberg, Weimar, Wartburg,
Dresden og fleiri. Sem dæmi má
nefna þessi orð hans í sambandi
við herbergi Lúthers:
„Sorglegur heimur. Frelsarar
hans fæðast í jötum hirðingja,
guðsmenn hans sitja í myrkra-
stofum en dýrð hans varð einung-
is hlutskipti hins drembiláta vam-
barkýlis. “
Eða um dýrkun Þjóðverja á Goet-
he:
,Jerlega koma 1000 bækur út um
kvennafar Goethes, ja, ef mitt
kvennafar yrði svona vísindalegt
einhvemtíma, þá er ekki til einsk-
is lifað. “
Gegnum öll þessi bréf vakir
draumurinn fagri og mikli að rit-
arinn eigi sér köllun. Honum sé
ætlað að vera skáld sem hefur góð
áhrif á menninguna og tilveruna
og í því sambandi hefur hann stór-
virki í huga. Þau komast yfirleitt
aldrei svo langt að þau séu fest á
bók. Hvort miklu hefur verið
brennt vita menn ekki. En úr því
Jóhann brenndi stundum bréfi
sem hann hafði skrifað vini sínum,
er ekki ólíklegt að sitthvað sem al-
menningi var ætlað hafi farið
sömu leið. En Jóhann verður enn
eins konar huldumaður í bók-
menntasögunni þrátt fyrir þessa
útgáfu. Fegurri og snjallari lof-
gjörð um vináttuna mun ekki auð-
fundin. Bréfin bregða skæru ljósi á
órofa tryggð þessara æskuvina frá
Ólafsvík. Þau eru falleg eftirmæli
um þá báða. H.Kr.
Ragnar Bjarnason.
munu ýmsir verða þakklátir fyrir
lýsinguna á Bjama Böðvarssyni, föð-
ur sögumanns.
Víða koma fram atriði sem vert er
að stansa við, þó að þau láti kannske
ekki mikið yfir sér. Þegar sagt er frá
því að sögumaður leitar sér lækn-
inga með spmngna skeifugörn í
New York, segir hann:
„Það var svo sem eftir öllu þegar ég
birtist fárveikur á sjúkrahúsi í
Bandaríkjunum að ég var fyrst yfir-
heyrður um tryggingar mínar og
fjárhagsgetu áður en ég var spurður
hvað amaði að mér. Ég skrökvaði að
þeim til að draga þetta ekki á lang-
inn að hafa engar áhyggjur, íslenski
heilbrigðisráðherrann væri bróðir
minn, og skipaði þeim síðan að gefa
mér eitthvað við sársaukanum eða
skera mig í hvelli. Þá hafði ég ekki
getað borðað matarbita í þrjá daga.
Hestabóki
Þessi bók, jícm um ueý, eftir
Sigurgeir Magnússon, er um
nafnkennda gæðinga og landsfræga
hestamenn. Bókin er laustengt
framhald annarar bókar sem sami
höfundur skrifaði 1979 um fræga
hesta, sem nefndist, Ég berst á fáki
fráum. Bókin er fallega myndskreytt.
fytcý&fcistdU
Dreifing: íslensk bókadreifing
r
Armann er
sjálfum
sér líkur
Ármann Kr. Einarsson:
Grailaralif f Grænagerði.
Teikningar eftir Búa Kristjánsson.
Vaka-Heigafell 1992.
Ármann Kr. Einarsson er Iöngu
kominn yfir allan löglegan her-
skyldualdur, enda hefur hann verið
þjóðkunnur höfúndur í fulla fjóra
áratugi. Hann er því enginn nýgræð-
ingur í sagnaritun. Vinsældir hans
ná því til þriggja kynslóða þar sem
hann hefur lengstum helgað sig
skrifum fyrir unga fólkið.
Þetta er Reykjavíkursaga og segir
frá Robba, syni efnaðra hjóna. Hann
er að byrja skólagöngu og ekki fyrir-
myndarnemandi, kærulaus og latur
svo að honum leiðist skólagangan.
En atvikin haga því svo að hann
eignast góðan vin sem er mótaður af
öðru umhverfi, auk þess sem upplag
hans virðist annars konar. Amma
Robba kemur og allmjög við sögu.
Ármann er sjálfum sér líkur í þess-
ari sögu. Hann segir frá fólki sem
lesandinn kynnist og þekkir að lestri
loknum. Og það er alltaf eitthvað að
gerast. Því streymir sagan áfram
þannig að hún heldur huganum
föstum. Annars á ekki að þurfa mörg
orð um þetta. Ármann er sjálfum sér
líkur. Sú umsögn mun nægja vinum
hans frá fyrri tíð. H.Kr.
folleg, óvenjuleo
01 ódýr jólagjöf
Ársmappa Pósts og síma með
fiímerkjum ársins 1992 er falleg, ódýr
og óvenjuleg jólagjöf. Hún er vel til
þess fallin að vekja áhuga á
frímerkjasöfnun hjá ungu kynslóðinni.
Stingdu ársmöppunni í
jólapakkann. Hún kostar aðeins
960 krónur og fæst á póst- og
símstöðvum um allt land.
FRIMERKJASALAN
Pósthólf 8445, 128 Reykjavík, Sími 63 60 51
PÓSTUR OG SÍMI