Tíminn - 12.12.1992, Síða 24
AUGLÝSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími Tímans er 686300 KERRUVAGNAR OG KERRUR Bamaíþróttagallar á ffábæru verði. Umboðssala á notuðum bamavömm. Sendum i póstkröfu um land allt! BARNABÆR, Ármúla 34 Símar: 685626 og 689711.
(Æ \ l .l |VERIÐ VELKOMINíj
Bílasala Kópavogs
Smiöjuvegi 1, 200 Kópavogi
SÍMI 642190
Vantar nýlega bíla.
Mjög mikil eftirspurn.
VERIÐ VELKOMIN
Tíniiiui
LAUGARDAGUR 12. DES. 1992
Hallarekstur í sjávarútvegi og aflaleysi er að breyta útgerðarháttum á Vestfjörðum:
VesHjarðatoguram
hefur mjög fækkað
urinn býr við og ofan á það hefur
síðan bæst aflaleysi. Ingimar segir
að aflaleysi sé í sjálfu sér ekkert nýtt
og bendir á að á sjötta áratugnum
hafí verið viðvarandi aflaleysi hjá
vestfirskum síðutogurum sem
leiddi meðal annars til þess að tog-
araútgerð lagðist af og hófst ekki
aftur fyrr en í byrjun áttunda ára-
tugarins með tilkomu skuttogar-
anna.
Sýnu verst þykir Vestfirðingum að
þurfa að sjá á eftir kvóta úr fjórð-
ungnum og nú síðast 1140 þorsk-
ígildistonnum frá Flateyri. Ingimar
segist ekki kunna þá sögu hvort sá
kvóti hefur verið boðinn til kaups
innan fjórðungs áður en hann var
seldur austur á land.
í staðinn fyrir togaraútgerð hafa
Vestfirðingar meðal annars snúið
sér í auknum mæli að útgerð línu-
báta á meðan tvöföldun línuafla er
enn við lýði. Ingimar Halldórsson
segir að ef tvöföldunin verði afnum-
in, eins og LÍÚ hefur ályktað, muni
verða tekið mið af aflareynslu línu-
bátanna við úthlutun kvótans.
„En hinu er ekki að leyna að það
setur að manni hroll við að heyra
allar þessar hörmungasögur úr
vestfírskum sjávarútvegi og ekki
bætir það ástandið að það er varla
nokkuð að hafa og til dæmis er
svæðið frá Hala og austur í Reykja-
fjarðarál lokað eins og stendur," seg-
ir Ingimar Halldórsson, formaður
Útvegsmannafélags Vestfjarða grh
Á undanfómum árum hefur orðið töluverð fækkun í togaraflota
Vestfirðinga og svo virðist sem það séu afleiðingar af þeim rekstrar-
forsendum sem sjávarútvegurinn hefur búið við og minnkandi afla
á hefðbundnum togaramiðum. Þess í stað hafa vestfirskir útgerðar-
menn snúið sér að útgerð minni báta og sú togaraútgerð sem eftir
er reynir að halda sjó á meðan stætt er á.
Eins og kunnugt er þá verður
Flateyri skuttogaralaus fljótlega í
byrjun næsta árs þegar Gyllir verður
aflientur nýjum eigendum í Nes-
kaupstað. Patreksfirðingar misstu
sína Sigurey hér um árið, Bflddæl-
ingar eru í þann veginn að missa
Sölva Bjarnason og þá er enginn
togari lengur gerður út frá Suður-
eyri við Súgandafjörð frá því Elín
Þorbjarnardóttir var og hét. Dýrfirð-
ingar halda enn sínum togara og
einnig Bolvíkingar en óvíst er hvað
það verður lengi.
Á ísafirði eru gerðir út þrír ísfisk-
togarar, Páll Pálsson, Guðbjartur og
Guðbjörgin auk frystitogarans Júlí-
usar Geirmundssonar. Líklegt er tal-
ið að Guðbjörgin verði seld í staðinn
fyrir frystitogara og þá verða aðeins
tveir ísfisktogarar eftir í plássinu. Þá
er einn ísfisktogari gerður út frá
Súðavík.
Ingimar Halldórsson, formaður Út-
vegsmannafélags Vestfjarða og
framkvæmdastjóri Frosta hf. í Súða-
vík, segist rétt ætla að vona að tog-
arar verði áfram gerðir út frá Vest-
fjörðum en engu að síður séu menn
kvíðnir yfir þessu ástandi og því sem
er og hefur verið að gerast í sjávar-
útvegi á Vestfjörðum. Hann segir að
þessi þróun sé afleiðing þeirra
rekstrarforsendna sem sjávarútveg-
Davið Á Gunnarsson setur ársfund Ríkisspítala 1992 í gær.
Timamynd Ámi Bjarna.
Arsfundur Ríkis-
spítalanna 1992
„Efnahagsþrengingar og það sem
okkur þykir óréttlát skipting verk-
efna hafa þrengt umgjörð Ríkis-
spítalanna um sinn. Þrátt fyrir
þetta eru hér enn sem áður unnir
stórir sigrar. Á árinu 1992 stefna
hjartaaðgerðir í að verða sjötíu
fleiri en var á síðastliðnu ári,“
sagði Davíð Á Gunnarsson, for-
stjóri Ríkisspítalanna, þegar hann
setti ársfund Ríkisspítalanna í gær.
í tengslum við ársfundinn og í til-
efni af 40 ára afmæli Kópavogs-
hælis verður þar opið hús á morg-
un, sunnudag, kl. 13-17.
—sá
Annarri umræðu um flár-
lagafrumvarpið lauk í
gær:
Össur og
Rannveig
á móti
skóla-
gjöldum
Tveir þingmenn Alþýðu-
flokksins, Össur Skarphéð-
insson og Rannveig Guð-
mundsdóttir, greiddu atkvæði
gegn því að lögð yrðu á skóla-
gjöld í framhaldsskólum þeg-
ar atkvæði voru greidd um
fjárlagafrumvarpið á Alþingi
við aðra umræðu. Skólagjöld
voru engu að síður samþykkt
með tryggum meirihluta.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
3.000 krónur verði innheimt-
ar af hverjum framhalds-
skólanema. Menntamálaráð-
herra segir að þetta gjald sé
nú þegar innheimt í flestum
skólum með tilvísun til laga
um framhaldsskóla.
Atkvæðagreiðsla við aðra um-
ræðu um fjárlagafrumvarpið
lauk í gær. Eins og venja er
voru allar tillögur stjórnar-
andstöðunnar felldar en tillög-
ur meirihluta fjárlaganefndar
voru samþykktar. Frumvarpið
fer nú að nýju til nefndar, en
eftir er að taka ákvörðun um
frekari niðurskurð í ríkisfjár-
málum og fjalla um tekjuhlið
frumvarpsins. Það mun því
ekki koma í ljós fyrr en við
þriðju umræðu hver hallinn á
ríkissjóði verður á næsta ári.
Eins og staðan er í dag stefnir í
að hallinn verði um 8 milljarð-
ar.
Ríkisstjórnin fjallaði í gær
um ríkisfjármál á fundi sínum.
-EÓ
...ERLENDAR FRÉTTIR...
MOSKVA
Mótleikur þingsins
Fulltrúar nissneska þingsins réðust I
gær enn gegn áformum Bórisar Jeltsín
forseta og felldu I atkvæóagreiðslu til-
lögu hans um að fram færi þjóöarat-
kvæðagreiðsla um aö leysa upp löggjaf-
arsamkunduna.
MOGADISHU
Tveir tilkynna vopnahlé
Tveir stríðsherranna sem hafa lagt
Sómaliu i rúst tilkynntu i gær tafariaust
vopnahlé. Bardagar hafa nú staöiö i
meira en eitt ár og leitt til stjómleysis I
landinu. Að minnsta kosti 300.000
manns hafa dáið úr hungri og sjúkdóm-
um.
BRUSSEL
Kanar frá Sómalíu?
Dick Cheney, bandariski vamarmála-
ráðherrann, sagöi í gær að hann vonaöi
að flestír amerisku hermannanna yröu
famir frá Sómaliu innan þriggja mán-
aöa. Hann bætti því við aö svo kynni að
fara að landgönguliö yrði um kyrrt viö
ströndina friöargæslumönnum Samein-
uöu þjóðanna til stuönings.
BONN
Þjóöverjar til Sómalíu?
I Þýskalandi var I gær verið að íhuga
hvemig liö frá þeim gæti sinnt mannúö-
arstarfi I Sómaliu, eftir að Frakkar höföu
mildilega sett ofan I við þessa nánu
bandamenn sina fyrir að taka ekki þátt I
hemaðarieiööngrum Sameinuðu þjóð-
anna.
NÝJA DELHI
Þaö versta afstaöiö
P.V. Narasimha Rao, forsætisráðherra
Indlands, sagði I gær aö þaö versta
væri afstaöiö eftir aö átök hindúa og
múslima höföu geisað um allt landið I
fimm daga og kostað um 1000 manns
lifið.
SARAJEVO
Vetrarveöur og hvorki
vatn né rafmagn
Striðshrjáöir ibúar Sarajevo, sem eru
enn máttminni eftir siðustu árásir Serba,
hittu fyrir annan máttugan óvin i gær.
Vetur er genginn I garö og hitastigiö rétt
yfir frostmarki. I ofanálag er hvorki raf-
magn né vatn í borginni.
BRUSSEL
Lætur NATO til sín taka í
Bosníu?
Likur jukust á því i gær aö NATO- rikin
tækjust á viö nýtt friðargæsluverkefni I
Júgóslaviu fynverandi en Bandarikja-
menn sögðu að bandalagiö yrði ekki
langlift ef þaö tæki ekki virkari þátt I að
aöstoða andstæðinga fyrrverandi
kommúnista.
EDINBORG
Grikkir harðir
Grikkir heimtuöu afdráttariaust I gær að
samstarfsþjóðir þeirra i Evrópubanda-
laginu neituðu að viöurkenna gamla
júgóslavneska lýöveldiö Makedóniu á
norðuriandamæmm Grikklands meöan
þaö héldi því heiti.
MOSKVA
Rússar stilla til friöar
Rússneskar friöargæslusveitir I Tadzj-
íkistan hrintu i gær af stað aögeröum
gegn róttækum islömskum bardaga-
mönnum sem þeir sökuðu um að hafa
rænt fjórum liðsforingjum aö þvi er kom
fram i rússnesku sjónvarpi I gær.
ANZA
Dauði á vesturbakkanum
Palestínumaöur, sem komst lífs af eftir
að eldflaugaárás haföi kveikt I felustaö
hans, skaut á flóttanum til bana einn af
Israelunum sem eltu hann og særöi þrjá
aðra áður en hann lét sjálfur lifið I
sprengingu.
SANAA
Róstur í Jemen
Róstur voru I Jemen i gær, þriðja dag-
inn i röð, og lögregla skaut upp I loftið til
aö dreifa mörg hundruö mótmælendum
á götum höfuöborgarinnar, Sanaa.
DENNI DÆMALAUSI
„Vegna þess að ég get ekki slappað af fyrr en þú
slappar af.“