Tíminn - 09.01.1993, Qupperneq 4

Tíminn - 09.01.1993, Qupperneq 4
4 Tíminn Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tíminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoðamtstjóri: Oddur ÓÍafsson Frétfastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,- , verö I lausasölu kr. 110,- Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Verslun á vonarvöl Verslun á víða undir högg að sækja og stórveldi á sviði þeirrar greinar verða til og hverfa eða keppinautar sameinast og oft vita viðskiptavinir ekki við hvaða kaupmann eða fyrirtæki þeir eru að skipta þegar farið er út í búð að kaupa. Verslunin tekur eðlilega miklum stakkaskiptum á tímum örra breytinga og viðskiptahátta en eins og aðr- ar atvinnugreinar verður hún að svara kröfum hvers tíma ef ekki á illa að fara. Vandamál verslunar á íslandi eru margvísleg og kaup- menn kunna að berja sér ekki síður en aðrir. Fámenni og erfiðir aðdrættir standa landsbyggðaverslun fyrir þrifum en í þéttbýlinu á suðvesturhorninu er við ann- ars konar vanda að etja. Tíminn vitnaði f gær í Verslunartíðindi þar sem sýnt er fram á að offjárfesting í verslunarhúsnæði á höfuð- borarsvæðinu valdi kaupmennsku slíkum búsifjum að greinin standi varla undir þeim. Mikil, glæsileg og rán- dýr húsakynni eru að sliga verslunina. Hún stendur ekki undir kostnaðinum. Langt er síðan farið var að vara við þessari þróun en án minnsta árangurs. Löngu eftir að sýnt var að búið var að byggja meira húsnæði yfir verslunina en nokkur þörf var á, og langt framyfir það sem gerist í öðrum neysluþjóðfélögum, var haldið áfram að byggja, stækka og innrétta upp á nýtt og er svo komið að fyrirtækin standa ekki lengur undir sjálfum sér og það sem telja má eðlilegan ágóðahlut fer í offjárfestinguna, ýmist sem afborganir og vaxtagreiðslur eða sem húsaleiga. í tilvitnuðu riti kemur fram að landsbyggðarverslun- in kemur að sumu leyti betur í hvað afkomu varðar en verslun á höfuðborgarsvæðinu. Úti á landi hefur offjár- festingin ekki verið eins ofboðsleg og er því rekstrar- kostnaður verslunarfyrirtækjanna mun lægri en í þétt- býlinu. Einnig kemur fram að margir kaupmenn ráða ekki við að reka verslun af sæmilegu viti. Þá skortir kunn- áttu og nauðsynlega hagsýni til að reka fyrirtækin á þann veg að eðlilegt megi telja. Bruðlið og dellan í verslunarrekstrinum er því miður langt frá að vera einkamál kaupmanna eða verslunar- fyrirtækjanna. Kostnaðurinn lendir allur á viðskipta- vinum þeirra auk þess sem ágóðahluturinn fer í eitt- hvað allt annað en til kaupmannsins og fyrirtækis hans. Of margar verslanir í alltof miklu húsnæði kallar á óeðlilega mikla álagningu sem kemur illa við við- skiptavininn en nýtist kaupmanninum ekki hið minnsta. Þetta er ein af ástæðunum til að fólk flykkist í stór- hópum til útlanda að versla og gerir góð kaup. Þessu svara kaupmenn með því að gera verslanir sínar enn betur úr garði og auka kostnað sinn og fæla viðskipta- vinina frá með óeðlilega háu verðlagi. Svokölluð dagvöruverslun þjáist ekki síður af offjár- festingum og löngum opunartíma, sem eykur allan kostnað en eykur ekki umsetningu. Meginregla í viðskiptum er sú að þegar kaup eru gerð eiga báðir aðilar, kaupandi og seljandi, að hagnast. Á höfuðborgarsvæðinu er það reglan að báðir þessir aðil- ar tapa á viðskiptunum en leigusalinn eða steypustöð- in hirða hagnaðinn. Við þessu er aðeins eitt svar, að kaupmönnum lærist að sníða sér stakk eftir vexti. Þá mun bæði þeim og við- skiptavinunum betur farnast. Laugardagur 9. janúar 1993 Atli Magnússon skrifar: Köttur datt af þakskeggi Pá er búið að signa yfir samning- inn um efnahagssvæðið og ekkert eftir nema jafna sig eftir allt japlið, jamlið og fuðrið. Tilfinningin er svipuð og ætla má að sé hjá ketti sem hrapað hefur ofan af húsþaki. Hann er eitthvað vankaður í bili, skjögrar í hringi og gengur senni- lega haltur í viku. Svo er hann bú- inn að steingleyma að nokkuð hafi fyrir komið og lepur sæll úr sinni skál, þótt hátt hafí hann skrækt í fallinu. Ekkert mælir gegn að hann hrati að nýju ofan af þaki eða út um glugga. Hann er svo væru- kær og afslappaður í ráöleysunni að forsjóninni þótti ekki veita af að búa hann út með níu líf. Það er nefnilega aldrei að vita hvað bíður hins kærulausa neðan við þak- brúnir — kannske blíðar meyjar- strokur en kannske glefsandi rakk- ar. Á vit framtíðar í stjórnmálum kallast stundum atferli sambærilegt við það er kött- ur býr sig undir að hrapa að verið sé að stefna á vit framtíðar. Af þak- skegginu eða úr gluggakistunni er vitanlega víðsýnt en lítið er gert úr því að neðan þess er hyldýpið. Eft- ir tilkomumikla hringsnúninga á brúninni verður hið óumflýjan- lega yfirsterkara takmörkuðum hæfileika til aðgátar. Skeð er skeð og sá sem aldrei vissi hvort hann vildi vera uppi eða niðri hefur sloppið við að ákveða sig. Eftir fall- ið tekur stundarkorn að átta sig á að komið er niður. En svo tekur ekki annað við en að sætta sig við að sú sé raunin og sú sátt fæst venjulega greiðlega. Þökk sé líkn hins sljóa minnis. í vinsemd Þannig hafði EES málinu fyrir löngu verið ráðið til lykta áður en Sjónvarpið sýndi frá þingfundin- um á fimmtudagskvöldið. Allir voru líka teknir að jafna sig á þessu og það lá vel á mannskapn- um íþingsalnum sem skemmti sér hið besta. Einn af öörum marsér- uðu þingmenn í stólinn og æfðu sig í að gera sig stranga á svipinn á leiðinni. Þeir sendu hver öðrum smellnar hnútur og skeyti og þá breiddist út bros á rjóðum vöng- um þess sem verið var að skamma því allt er þetta í vinsemd undir niðri og það er sæmd að vera kall- aður „hæstvirtur" og fá skammir. „Það er um að gera að hafa orð á sér,“ sagði kerlingin og sá er mest- ur brimbrjóturinn sem flest og mest stendur af sér skammaboða- föllin. Hinn margskammaði utanríkis- ráðherra sannaði að hann er orð- inn svo freyðandi mælskur að un- un er á að hlýða. Fimmtudags- fundurinn var honum líka svipað og þegar hljómsveit bregður á leik í aukalaginu eftir að hafa þrælast í gegnum sérlega langa og leiðin- Iega sinfóníu. Þá er kannske spil- aður „Vínarræll" eða „Kampavíns- galopp" og bogarnir fljúga með eldglæringum um strengina í kól- oratúr, kadensum og hverskyns improvísasjónum. Samþingmenn Jóns Baldvins urðu líka langleitir af aðdáun og öfund og hafa margir beðið guð í hljóði að fá að lifa svona dag sjálfir — þótt þeir yrðu að hrata margsinnis ofan af þökum eins og kötturinn til þess að svo mætti verða. Jón gladdi margan með snoturri hnútu í ræðunni sem vakti hljóðlátt þakklæti í hans garð og mun efla vinaböndin í framtíðinni. En kisi karlinn er sannanlega pompaður niður á efnahagssvæð- ið. Þar bíður hans nú að reyna að fóta sig á dofnum loppunum. Það ætti að takast skjótt með aðhlynn- ingunni sem býðst á svæði nægt- anna. Senn finnst honum hann aldrei hafa annars staðar verið. Varnaðarorð afanna Þannig gerist það að nútíðum er gjarnt að hrata eins og köttum inn í framtíðir. Nútíðirnar halda sig vita hvert þær stefna og telja sér trú um að auki að þeim sé sjálfrátt. En það er í verunni sjaldnast. Þannig er augljóst að sjálfstæði ís- lands í framtíðinni verður ekki á þeim nótum sem menn ætluðu ár- iö 1944 að það yrði. Það hefur hratað inn á nýjar brautir. Ótal af- ar hafa komið bálillir út á bæjar- helluna að undanförnu og skekið stafinn að „landsölumönnunum", sem þeir kalla svo. Þeir skrifa les- endabréf í blöðin. Afarnir voru all- ir á Alþingishátíðinni svo ekki sé minnst á lýðveldishátíðina og elska hverja steinvölu af Iandinu frá fjöru og upp á efstu tinda og svo auðvitað sóleyjarnar og berg- vatnslækina. Það eimir meira að segja eftir af léttu Danahatri hjá sumum þeirra. Ellin og arfur Jóns En tímar afanna eru liðnir og svo merkilega vill til að þeir finna það margir sjálfir og nenna ekki að skammast lengi. „Landsölumenn- irnir“ þurfa ekki annað en setja þá í virðingarsæti við veisluborð hjá sér í eitt skipti, hjala við þá og snýta sér með þeim í þjóðrækilegri viðurkomningu yfir „kröfum nýrra tíma.“ Afarnir gangast venjulega upp í slíkri sæmd og verða um leið log- andi hræddir um að teljast orðnir afturhaldssamir í ellinni. Þeir steinþagna um sjálfstæðisbarátt- una og arf Jóns Sigurðssonar, þiggja í staupinu og láta hálfkveð- in karlaraups-heilræði nægja. Þar með leggjast þeir sáttir til svefns í þeirri blekkingu að mark hafi verið tekið á þeim. Því fer þó vitanlega víðs fjarri. Aftur á móti getur vel verið að einhverjir ráðherranna noti ættjarðarþusið úr þeim til þess að dubba upp á næstu mark- lausu skálaræðuna sem hann held- ur. Og nýjar nútíðir búast til að hlussast sjálfum sér að óvörum inn í nýjar framtíðir. Léttstígar læður og kjammabreið fress birt- ast á þakbrún og gluggabrík og hefja gestaspjót sín spakviturlega upp í loftið.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.