Tíminn - 09.01.1993, Qupperneq 11
Tíminn 11
Lugardagur 9 janúar1993
tfGAR RiGNIR...
Töfrabrögð og
spilagaldrar á allra
færi
Vaka-Helgafell hefur hafið útgáfu
nýs flokks tómstundabóka fyrir böm
og unglinga, sem ber heitið Þegar
rigrtir... Fyrstu tvær bækumar fjalla
um töfrabrögð og spilagaldra.
Bækumar eiga að miða að því að
auka ímyndunarafl bama með stutt-
um og hnitmiðuðum texta, en lit-
myndir og nákvæmar leiðbeiningar
gera hann fyllri og skýrari. Með þess-
ar bækur í höndum eiga langir rign-
ingardagar alis ekki að þurfa að vera
leiðinlegir!
í bókinrú Töfrabrögð er sýnt hvem-
ig hægt er að framkvæma ýmis töfra-
brögð. Einfaldar leiðbeiningar eru
um hvemig hægt er að beita ýmsum
frægum brögðum: klútar og peningar
hverfa og koma aftur í leitimar og
aðstoðarmaður er rekinn í gegn í
kassa án þess að honum verði meint
af! Eftir dálitla æfingu fer töframað-
urinn létt með að halda eigin sýning-
ar og snúa rækilega á áhorfendur!
Hin nýja bókin, Spilagaldrar, flettir
ofan af brögðum sem gera ungum og
upprennandi töframönnum kleift að
halda sínar eigin sýningar. Sýnt er
m.a. hvemig maður getur „séð í huga
annars manns" og finnur spil sem
stungið hefur verið í stokkinn af
handahófi. Allt sem þarf er dálítil æf-
ing og töfraorð. Áður en nokkur veit
af er galdramaðurinn farinn að plata
áhorfendur upp úr skónum!
Bjöm Jónsson skólastjóri hefur þýtt
bækumar Spilagaldra og Töfra-
brögð, en þær eru prentaðar í Belgfu.
Bækumar kosta 980 krónur hvor.
Ný spennubók frá
Úrvalsbókum
Úrvalsbækur hafa sent frá sér
spennusöguna Mömmudrengur eftir
Charles iöng. Þetta er vel valin saga,
eins og aðrar Úrvalsbækur, og ekki
vantar spennuna.
Gagnrýnendur hafa jafnað
Mömmudreng við bókina Lömbin
þagna, sem næstum hvert einasta
mannsbam á íslandi þekkir. f bókinni
Mömmudreng verður það að vem-
leika sem við óttumst mest. Ódæðis-
maðurinn, sem er f senn raðmorðingi
og fjöldamorðingi, læðist að gnm-
lausum fómarlömbum sínum og
þurrkar út heilar fjölskyldur, en lætur
líta svo út sem heimilisfaðirinn hafi
gengið berserksgang og framið
ódaeðið.
Mömmudrengur var næst sfðasta
Úrvalsbókin á árinu 1992. í byrjun
desember kom út síðasta bók ársins:
Meðleigjandi óskast eftirjohn Lutz,
en sú saga var lögð til grundvallar
samnefndri kvikmynd, sem nú er
sýnd í Stjömubíói. Meðleigjandi
óskast hefur verið kölluð „The Inter-
national Thriller of the Year". Hún
hefur hvarvetna fengið mikið lof sem
kvikmynd og góða sölu sem bók og
hvort tveggja að verðleikum.
Fimm nýjar bækur
um Snuðru og
Tuðru
Iðunn hefur gefið út fimm nýjar bæk-
ur um systumar Snuðru og Tuðru
eftir Iðunni Steinsdóttur með mynd-
skreytingum Gunnars Karlssonar.
Þær heita: Snuðra og Tuðra halda
jól, Snuðra og Tuðra eiga afmæli,
Snuðra og Tuðra laga til í skápum,
Snuðra og Tuðra og fjóshaugurinn
og Snuðra og Tuðra láta gabba sig.
fkynningu útgefanda segir: „Syst-
umar litlu, Snuðra og Tuðra, eru
smám saman að læra að það borgar
sig ekki að vera alltaf óþekkar og lat-
ar. Þær skreyta til dæmis jólatréð og
afmælistertuna sína, þær laga til f
skápunum hjá mömmu og pabba,
þær heimsækja Álfhildi frænku í
sveitinni — en á endanum létu þær
þó hann Kidda gabba sig til að gera
svolítið, sem þær hefðu alls ekki átt
að gera."
Bækumar era prentaðar f Prentbæ
hf.
ISLENSK
BÓKMENNTA
SAGA
Upphaf íslenskrar
menningar
Út er komin hjá Máli og menningu 1.
bindi íslenskrar bókmenntasögu.
Ritstjóri er Vésteinn Ólason, prófess-
or við Háskóla íslands, en höfundar
þessa bindis auk hans era Sverrir
Tómasson, fræðimaður við Stofnun
Ama Magnússonar, og Guðrún Nor-
dal, sendikennari við University
CoIIege í London.
í þessu 1. bindi er fjallað um upphaf
menningar og bókmennta í landinu;
um kveðskap fram til 1300, eddu-
kvæði, dróttkvæði og kristileg trúar-
kvæði; um mikinn hluta lausamáls-
verka frá sama skeiði og þó fvið leng-
ur; veraldlega sagnaritun, trúarlegar
bókmenntir, vísindi og fræði. í sam-
felldu máli og lifandi er sagt frá verk-
um og skáldum þessa tíma, og hvort
tveggja tengt samfélagi okkar og
sögu og menningarsambandi við aðr-
ar þjóðir. Höfundar hafa ekki aðeins
leitast við að draga saman mikinn
fróðleik og styðjast hvarvetna við
nýjustu rannsóknir, heldur líka sett
efnið fram á aðgengilegan hátt.
Hátt á þriðja hundrað mynda er f
bókinni, og hefur Hrafnhildur
Schram listfræðingur annast mynda-
ritstjóm verksins. Auk þess era í bók-
inni ítarlegar skýringar, heimilda- og
nafnaskrá.
íslensk bókmenntasaga verður alls
fjögur bindi. 2. bindi fjallar um tíma-
bilið frá ritun íslendingasagna og
fram til upphafs 18. aldar, 3. bindi
nær fram til fullveldisársins og í 4.
bindi er fjallað um 20. aldar bók-
menntir okkar.
Bókin er 625 bls., prentuð í Prent-
smiðjunni Odda hf. Hún kostar 4900
kr.
Að þekkja tímann
Stóra klukkubókin eftir Qaire Llew-
ellyn er komin út hjá Iðunni. Þetta er
nýstárleg og skemmtileg bók sem
auðveldar ungum bömum að öðlast
skilning á tíma og tfmatali og kynnir
fyrir þeim orð og hugtök, sem tengj-
ast mælingum á tíma.
í bókinni er fjöldi þrauta og verk-
efna, sem hvetja bömin til að læra og
gera námið spennandi og skemmti-
legt, einnig er í henni klukka með
færanlegum vísum.
Fjöldi fallegra litmynda er í bókinni
til skýringar og skemmtunar.
Nanna Rögnvaldardóttir þýddi.