Tíminn - 09.01.1993, Síða 14

Tíminn - 09.01.1993, Síða 14
14 Tíminn Laugardagur 9. janúar 1993 Ólafur lagði Ingiberg Sigurðsson með sniðglímu. Jón Birgi á hann margar stjörnur. Fjórði með 3 vinninga var Jón Birgir Valsson. Ánægjulegt að sjá Jón aftur eftir löng frátök meiðsla. Hann var einbeittur en ljúfari. Stífleikinn er honum óþörf beiting. Eins hið langa stig vinstri fótar aftur. Hvorttveggja gerir hann hokinn, þegar til átak- anna kemur. Þegar hann steypti Helga á herðamar úr klofbragði, sýndi hann sérstæða útfærslu. Helgi Bjamason er ávallt knálegur og menn hrökkva af honum. Hann náði 2 1/2 vinning. Sigurbragð hans var klofbragð með vinstra. Hann var annar keppenda, sem breytti fléttum. Leggjarbragð yfir í hælkrók hægri á vinstri og frá leggjarbragði í klof- bragð. Hinn var Orri, sem fléttaði klofbragð við hælkrók utanfótar og þá hælkrók hægri á vinstri. Fjölnir Elvarsson, hár og grannur, stígur og stendur vel að glímu. Sækir ótrauð- ur og stöðugt. Hann bar við 5 teg- undir bragða. Sá eini sem reyndi rist- arbragð (krækju). Sigurbragð hans var hælkrókur hægri á vinstri. Lars Enoksen er Svíi, búsettur í Malmö, en er félagi í Glímufél. Ár- manni. Hann hefur sett sig aðdáun- arvel inn í glímuna og kennt hana bæði unglingum og fullorðnum með undraverðum áhuga. Hingað hefur hann oft komið, æft og keppt. Nú var hann í keppni við úrvals glímumenn. Þá sá á honum, að hann var tauga- óstyrkur, stífur um axlir og hand- leggi, tiplaði hátt á tám. Ólafur var fljótur að nota sér stöðu Lars og leggja á hann hælkrók fyrir báða til sigurs. Lars sótti 4 tegundir bragða. Sveinn Guðmundsson afhenti Ólafi Hauki Ólafssyni Ármannsskjöldinn, flutti þakkir og sleit mótinu. Vonandi fá reykvískir glímumenn að reyna sig í Skjaldarglímu fyrstu daga febrúar 1993. Svíinn, sem glímdi um Ármanns- skjöldinn, hefur í fjögur ár kynnt sér glímu og æft hana hér og í hópi fé- laga í glímufélagi Málmeyjar. Hann hefur sýnt glímu og íslandi slíkan áhuga, að hann hefúr komið út hing- að einu sinni til tvisvar árlega frá því glíman náði tökum á honum og minnsta kosti þrisvar hefur hann staðið fyrir boðum glímumanna til Svíþjóðar. Hann hefur með félögum sínum sýnt glímu í skólum, stofnun- um og söfnum í Svíþjóð og Dan- mörku, sem efnt hafa til sýninga á háttum víkinga. Þá hefur hann ritað um glímu í tímarit. Safnari er hann sérstakur á allt sem viðkemur glímu. Þetta grúsk hans um íþróttina hefur gert hann læsan á íslensku. Faðir Lars Enoksen var norskur, en móðir sænsk. Fæddur er hann 1960. Að loknu skyldunámi nam hann í menntaskóla á myndlistabraut. Ung- ur gerðist hann virkur teiknari og hefur lengi dregið upp myndasögur, sem hafa t.d. verið gefnar út af Walt Disney í Kaupmannahöfn. Sjálfúr hefur hann gefið út myndasögur sín- ar. Hann hefur iðkað judo, lyftingar og listdans. Frá því í síðastliðnum apríl hefur Lars verið lærlingur og starfsmaður viðhaldsdeildar sögu- safns Háskólans í Lundi. Væri affara- sælt glímunni, ef með fleiri erlend- um þjóðum væru slíkir áhugamenn um íþróttina. Fyrir milligöngu Lars Enoksen hafa náðst upplýsingar um Ryggkast, þjóðleg fangbrögð, sem enn eru iðkuð meðal fomra leikja á eyjunni Gotland skammt undan suð- austurströnd Svíþjóðar. Vonandi er að glímuáhugi Lars og Ryggkast Got- lendinga tengi iðkendur beggja íþrótta saman, þeim til góðs og fang- brögðunum til viðhalds. Höfundur er fyrrum fþróttafulltrúi ríkisins. Þann sjötta desember nýliðinn varð loks af að þetta mót færi fram, en reglugerðarákvæði eða hefð er að glímt sé um skjöldinn fyrstu daga febrúar. Keppnin um Grettisbeltið, sem fyrst fór fram 1906, er talin sú elsta hérlendis, en rekja má undanfara Skjaldarglímu Ármanns til 1889, ári eftir að Glímufélagið Ármann var stofnað. Árlega efndi félagið til lausaglímu (einstaklinga) eða bændaglímu (flokka). Mj HMHHj■ Eftir að Ármenningamir stóðu sig svo frækilega í Konungsglímunni á Þingvöllum 1907, þar sem tveir byltu glímukappa íslands frá Akureyri, ákváðu þeir að afla félaginu verð- Iauna til að glíma um. Varð úr silfur- skjöldur í silfurfesti. í málminn mót- uð vangamynd, sem á að vera sú góða vætt Ármann í Ármannsfelli norðan Þingvalla. Fjölda skjaldanna hefi ég ekki, en skjaldarhafarnir hafa verið fræknustu glímumenn okkar, svo og þeir sem fyllt hafa viðfangs- hópana hverju sinni. Skjaldarhafinn nú var Ólafur H. Ólafsson og hafði hann unnið núverandi skjöld einu sinni, en á tvo sem hann hefur unnið sex sinnum í röð, að vísu sjö sinnum unnið en tapað einu sinni, svo að nú gekk hann til leiks í níunda sinni eða jafn oft og Ármann J. Lárusson. Þeir hafa í þessu gengið framar öðmm mætum görpum, til að mynda Sigur- jóni Péturssyni (vann 2 skildi), Hall- grími Benediktssyni, Guðmundi Ág- ústssyni og fleirum. Rétt er að dvelja aðeins við fyrstu Skjaldarglímuna, sem naut þess að Ármenningar höfðu búið sig undir að glíma fyrir Friðrik VIII. 1907. Þeir höfðu kynnst glímuólum Akureyr- inga. Þróuðu þær í tvær ólar um læri sem tengdar voru í mittisól. Fögnuð- urinn yfir að fá betri tök á andstæð- ingnum var það mikill, að á báðum lærisólum var komið fyrir höldum, eins og eyra á bala, og tvö slík á mittisólinni, hægra og vinstra meg- in, gerð til þess að mæta því fyrir- bæri glímunnar, að viðfangsmenn áttu ekki hendur saman, þ.e. hægri var sú sem hafði undirtakið (var glímuhönd), en hinn beitti þeirri vinstri. Á Skjaldarglímunni 1908 báru allir keppendur belti. Einn Ár- menninganna, Jónatan Þorsteins- son, starfrækti söðlaverkstæði og því varð þeim beltagerðin auðveldari. Þeir félagar ræddu einnig hvernig búninga þeir skyldu efna sér. Um þessar hugleiðingar má lesa í fundar- gerðum Ármanns. Þar kemur fram, að þeir félagar hafa mjög hallast að búningi glímumanna úr Suður- Þingeyjarsýslu. Buxur hnepptar neð- an hnés; ermalangar hörskyrtur eða ermalausir bolir; ullarsokkar; sauð- skinnsskór eða leikfimiskór. Snögg breyting varð frá þessu, því að í Kon- ungsglímunni 1907 eru Ármenning- arnir klæddir leistabrókum, bolum, mittisskýlum og með belti. Hvað sem segja má um áhrif fráhvarfs glímu frá fatafangi til beltistaka og leistabróka, þá var þetta breytingastig stigið fullt í fyrstu Skjaldarglímunni. Allir klæddir þessum nýja búnaði. Áttug- asta Skjaldarglíman var í íþróttahúsi Kennaraháskólans á sunnudags- kvöldi. Sjö glímumenn höfðu skráð sig til keppninnar og mættu allir. Ólafur Haukur Ólafsson. varð ein jafnglími (Orri-Helgi). Hin- um lauk með 8 tegundum bragða af þeim 22 algengustu. Oftast eða 6 sinnum var lausamjöðm með vinstri sem færði sigur, klofbragð með vinstri 5 sinnum, hælkrókur hægri á vinstri þrisvar og lausamjöðm með hægri tvisvar. Leggjarbragð, snið- glíma, hælkrókur fyrir báða hvert einu sinni. Fjöldi tegunda er einni færri en í Íslandsglímunni síðustu. Þá var hægri lausamjöðm og klof- bragði beitt oftast til sigurs, en utan- fótar hælkrókur með vinstri þrisvar. Nú sást bragðinu beitt tvisvar. Borin saman við Íslandsglímuna í ár, gætti meira bols, stífleika og að staðið væri á móti bragði. Stígandin vildi hverfa er út í hita Ieiksins kom, nema hjá Ólafi og Fjölni. Lars vildi tipla á tán- um, stífur, Jón Birgir steig vinstra fæti óleyfilega langt aftur á ská og Helgi hefur aftur tekið til við gamla lýtið að sletta fótunum og stappa. Ólafur Haukur vann skjöldinn þann þriðja í annað sinn með því að vinna alla sex viðfangsmenn sína á fjórum tegundum bragða. Lausamjöðm hans með hægri til sigurs á Jóni Birgi var glæsilegt bragð. Orri Bjömsson varð annar með 4 1/2 vinning. Hann hefur aukið lík- amsþyngd. Rólegur sem fyrr. Stóð náið og stóð af sér brögð, missti af mótbragði og féll við. Þriðji var Ingi- bergur Sigurðsson. Ávani hans að halda hné of oft bognu að kviði and- stæðings, gerir þeim sama erfitt fyrir en sjálfur verður hann álútur og er hann færir fótinn niður gefur hann gott færi á sér. Fyrir lausamjöðm með hægri á Fjölni og sniðglímu á Glímdar vom 21 viðureign. Fór mót- ið vel fram og án óhappa. Heyrst hafa aðfinnsluraddir um beitingu þátt- töku- og keppendareglna, þar sem Skjaldarglíman er mót Reykvíkinga en meðal keppenda var Svíi, skráður Ármenningur, búsettur í Malmö og einn okkar bestu glímumanna. Fyrr á árinu var hann keppandi fyrir Umf. Víkverja, en er nú skráður Ármenn- ingur. Mótið setti og stjórnaði Hörður Gunnarsson. Yfirdómari var Sigur- jón Leifsson. Dómarar klæddust ekki dómarabúningum. KR-ingarnir voru, nema einn, í mjög dökkum búningum, sem voru snyrtilegir og fóru vel. Af 21 viðureign mótsins Þorsteinn Einarsson: Attugasta Skjaldar- x glíma Ármanns

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.