Tíminn - 23.01.1993, Blaðsíða 1
BMwwwbh
Laugardagur
23. janúar1993
15. tbl. 77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
20 ár
frá Vest-
manna-
eyjagosi
Eldgos hófst á Heima-
ey skömmu eftir mið-
nætti aðfaranótt 23.
janúar 1973. Saga
gossins er rakin í ítar-
legri grein í Tímanum
í dag.
Blaðsíður 10-13
Bandarískt kvikmyndafyrirtæki hyggur á gerð milljóna dollara myndar með stór-
stjörnum hér á landi á næstunni:
Eignumst við Stall-
one að íslandsvini?
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Tímans eru samningavið-
ræður um töku bandarískrar milljóna dollara stórmyndar á iokastigi
og ef af verður verða hafnar tökur á myndinni eftir um sjö vikur en
bandarískt kvikmyndafyrirtæki stendur að gerð myndarinnar. Full-
trúi fyrirtækisins á skrífstofu þess í Bandaríkjunum varðist allra
frétta af málinu í samtali við Tímann í gær.
Þessa dagana er verið að ganga frá
samningum við aðalleikara myndar-
Gríðarleg snjóalög eru nú á ur í byggð. Þessi hreindýr
Austfjörðum og jarðbönn fyrir voru að reyna að krafsa sig
hreindýrin í heimahögum niður úr fönnunum skammt
þeirra á hálendinu þar eystra. frá Djúpavogi í gærmorgun.
Þau leita því í stórhópum nið- Tímamynd KGÞ.
innar en aðalleikari hennar verður
vöðvatröllið Sylvester Stallone. Þá
standa yfír samningar við heims-
þekkta leikkonu og kynbombu sem
mun eiga að leika íslenska stúlku.
Mikil leynd hefur hvílt yfir máli
þessu af hálfu kvikmyndafyrirtækis-
ins en þegar hefúr verið ráðinn ís-
lenskur umboðsmaður. Undanfarna
daga hafa verið staddir hér á landi
tveir aðilar til að kannna aðstæður,
annars vegar frá kvikmyndafyrir-
tækinu til að skoða myndatökustaði
og hins vegar einn af lífvörðum Syl-
vesters Stallone. Leikstjóri myndar-
innar mun vera svissneskur en nafn
hans hefur ekki fengist staðfest hjá
kvikmyndafyrirtækinu. Fulltrúi
kvikmyndaíyrirtækisins sem hefur
verið staddur hér á landi undanfarið
mun um helgina haida til Sviss til
viðræðna við leikstjórann.
Hinn þokkafulla aðalleikkona mun
eiga að leika íslenska stúlku sem
lendir í slagtogi við Sylvester Stall-
one. Mun leikkonan þurfa að læra
nokkrar setningar á íslensku sem
hún á að slá um sig með í myndinni.
Þá mun, samkvæmt heimildum
Tímans, ráðgert að inn í myndina
verði klippt atriði þar sem hinn nýi
forseti Bandaríkjanna, Bill Clinton,
þenur saxafóninn af innlifun. -PS
Vöðvabúntið Sylvester Stallone verður aðal-karlleikari í banda-
riskri kvikmynd sem áætlað er að taka hérlendis.
TOLVUR — KULU-
PENNAR NÚTÍMANS?
Fjallað er um margvíslega notkun tölva og möguleika í Tímanum í dag. Helgarvið-
talið á blaðsíðu 6-7 er við Pétur Þorsteinsson, skólastjóra á Kópaskeri, höfund ís-
lenska menntanetsins.
Þá er fjallað um tölvur og rætt við fólk um þau mál á blaðsíðum 14-15 og 16-17.
ifvstaiiiiíiimiiii'iTíQj
Síðasti pöntunardagur Madntosh-tölvubúnabar meb verulegum afslætti er
BoÍMmw
Innkaupastofnun rikisins
Borgartúni 7, Rvk. Sími: 91-26844