Tíminn - 06.03.1993, Qupperneq 1
Námskeið ætluð at-
vinnulausum:
Undanfarið hefur Menningar- og
fræðslusamband alþýðu haldið 38
námskeið fyrir atvinnulausa sem
hátt í 500 manns hafa sótt.
í frétt frá sambandinu segir að
námskeiðin hafi verið með ýmsu
sniði. Eitt þeirra nefnist kjamanám-
skeið og er því ætlað að efla sjálfs-
traust þeirra sem em í atvinnuleit
og kynna þeim réttindi sín og skyld-
ur. Auk þess er fjallað um fjármál
heimilanna, sem sagt hagnýtt
námsefni vegna samdráttar í tekj-
um.
Auk þess segir að sambandið hafi
gengist fyrir tölvunámskeiðum,
tungumálanámskeiðum og bók-
haldsnámskeiðum. Þá hafi verið
haldin hagnýt námskeið í innkaup-
um og matargerð auk hagnýtra
sauma.
Fram kemur að námskeiðin hafa
verið haldin með styrk frá Starfs-
menntasjóði félagsmálaráðuneytis-
ins og eru einnig kostuð af Atvinnu-
leysistryggingasjóði.
Þátttakendur sem hafa setið að
minnsta kosti 80% af námskeiðs-
tímanum fá afhent skjal til vitnis-
burðar.
-HÞ
BSRB og kennarar ætla ekki að boða verkfall 22. mars:
56% félagsmanna BSRB
sögðu nei við verkfalli
Ögmundur Jónasson, formaöur BSRB.
BSRB mun ekki boða verkfall 22.
mars næstkomandi. Tæplega 56%
félagsmanna voru andsnúin verk-
fallsboðun í allsherjaratkvæða-
greiðslu sem BSRB efndi til. Verk-
fallsboðun var samþykkt í sjö fé-
lögum en felld í stærstu félögun-
um. Kennarasamband íslands
felldi einnig verkfallsboðun. Ög-
mundur Jónasson, formaður
BSRB, segir niðurstöðuna von-
brigði.
Starfsmannafélag Kópavogs,
Starfsmannafélag Borgamess,
Starfsmannafélag Neskaupstaðar,
Fóstrufélag íslands, Landssamband
slökkviliðsmanna, Félag opinberra
starfsmanna á Suðurlandi og Félag
opinberra starfsmanna á Austur-
landi samþykktu verkfallsboðun.
Önnur félög felldu verkfallsboðun.
Yfir 70% félagsmanna í Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar
sögðu nei við verkfallsboðun.
Starfsmannafélag ríkisstofnana,
sem í em 4.512 félagsmenn, felldi
einnig verkfallsboðun með 59% at-
kvæða.
Eftir að niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar lá fyrir samþykkti for-
mannafundur BSRB að þar sem
ekki hefði myndast nægilega víð-
tæk samstaða innan BSRB um boð-
un verkfalls þá yrði ekkert af verk-
falli þeirra félaga sem samþykktu
verkfallsboðun.
„Þessi niðurstaða er okkur að
sjálfsögðu vonbrigði. Við höfum
ekki fengið sterkari samningsstöðu
eins og við óskuðum eftir. Við
munum eftir sem áður reyna að ná
eins miklum árangri í viðræðum
við okkar viðsemjanda eins og við
getum miðað við aðstæður. Þær
em hins vegar ekki eins góðar og
við höfðum vonast eftir,“ sagði Ög-
mundur.
Ögmundur sagði að það hefði
komið vel fram á þeim fundum
sem forystumenn BSRB áttu með
félagsmönnum meðan á atkvæða-
greiðslunni stóð að menn væru
mjög sammála þeim kröfum sem
BSRB hefði sett fram í kjaravið-
ræðum við ríkið. „Það er fullkomin
samstaða um okkar málflutning og
þau baráttumarkmið sem við höf-
um. Þegar kemur hins vegar að því
að taka ákvörðun um verkfall þá er
það önnur spurning, spurning sem
meirihluti fólks svarar neitandi,"
sagði Ögmundur. -EÓ
Sjá nánar um niðurstöðu
Kennarasambands íslands á
baksíðu.
Þorbergur stýrir
liðinu í Svíþjóð
íslenska landsliðið í handknatt-
leik heldur til Svíþjóðar á sunnu-
dag þar sem liðið tekur þátt í HM
í Svíþjóð. HM-handbók fylgir
Tímanum í dag. Þar í eru viðtöl,
myndir og kynning á leikmönn-
um íslands.
Blaðsíður 9-16
Meðferðardeild fyrir fimm afbrotaunglinga verður opnuð í
vor. Kostnaður er 30 milljónir á ári:
UNGLINGAFANGELSI
VERÐUR 0PNAÐ1. MAÍ
Ríkisstjómin samþykkti í gær til-
lögu Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra um að stofnsetja
lokaða meðferðardeild fyrir afbrota-
unglinga. Stefnt er að því að deildin
taki til starfa 1. maí næstkomandi
og þar verði hægt að vista fimm
ungmenni.
Verið er að leita að hentugu hús-
næði undir meðferðardeildina. Gert
er ráð fyrir að húsnæðið verði tekið
á leigu, a.m.k. til að byrja með. Enn
hefur ekki verið tekin afstaða til þess
hvort stofnunin verður staðsett á
höfuðborgarsvæðinu eða utan þess.
Jóhanna sagðist vona að innan
skamms tíma fyndist hentugt hús-
næði og í framhaldi af því yrði
starfsfólk ráðið til starfa. Gert er ráð
fyrir að starfsmenn verði 12-15.
Áætlað er að rekstur meðferðar-
deildarinnar kosti um 30 milljónir á
ári. Gert er ráð fyrir að reksturinn
kosti 20 milljónir á þessu ári, þ.e. frá
1. maí.
Jóhanna sagði að um væri að ræða
tíu manna hóp unglinga sem engin
leið virtist vera að hjálpa með þeim
leiðum sem nú væri völ á. Fimm af
þessum tíu eru yngri en 16 ára en
hinir eru 14-16 ára. Stefnt er að því
að fimm þessir yngri verði vistaðir á
nýju meðferðardeildinni, hugsan-
lega gegn vilja sínum.
Jóhanna sagði að erfiðara væri að
beita sömu úrræðum gagnvart eldri
börnunum, m.a. vegna þess að þau
væru sjálfráða. Hún sagði að reynt
yrði að flýta meðferð mála þeirra í
réttarkerfinu og fá þá úrskurðaða í
síbrotagæslu meðan beðið væri nið-
urstöðu þess. Jóhanna sagði það
sína skoðun að þessir fimm ungling-
ar, sem orðnir eru 16 ára, þyrftu
sömu meðferð og þeir yngri. Þeir
gætu hins vegar neitað meðferð þar
sem þeir væru orðnir sjálfráða. Jó-
hanna sagði að til greina kæmi að
hækka sjálfræðisaldur í 18 ár. Það
væri til skoðunar í dómsmálaráðu-
neytinu.
Gert er ráð fyrir að meðferðardeild-
in verði undir stjórn Unglingaheim-
ilis ríkisins. Það rekur í dag nokkur
heimili og göngudeildir. Ljóst er að
þessi heimili henta ekki þeim af-
brotaunglingum sem hér um ræðir.
Þeir hafa hafnað þeirri hjálp sem þar
býðst.
„Ég er að vona að þessi deild leysi
vanda þessara unglinga. Fólk sem
starfað hefur að barnaverndarmál-
um hefur talið að það vantaði slíka
deild. Það er búið að prófa öll önnur
úrræði sem barnaverndaryfirvöld
hafa yfir að ráða, ýmist skammtíma
vistun eða meðferð á Tindum og
öðrum meðferðardeildum. Það hef-
ur ekki dugað og menn hafa því tal-
ið að þetta væri leiðin. Þetta er svip-
uð leið og farin hefur verið í sam-
bærilegum tilfellum á Norðurlönd-
um svo dæmi sé tekið. Þar hefur
þessi leið reynst vel,“ sagði Jóhanna.