Tíminn - 06.03.1993, Page 2
2 Tíminn
Laugardagur 6. mars 1993
Algengustu rannsóknir endurteknar í tíma og ótíma segir landlæknir:
Vantreysta læknar
hverjir öðrum?
„Forrannsóknir á sjúklingum fyrir innlögn hafa aukist verulega hér
á landi, en betur má gera. Galii er að sjúkrahúslæknar virðast lítið
treysta á niðurtöður forrannsókna annarra lækna og stofnana. Al-
gengustu rannsóknir eru nú endurteknar í tíma og ótíma. Þetta
hátterni vekur nokkra furðu því að yfirleitt eru þessar rannsóknir
gerðar á viðurkenndum rannsóknarstofum.“ Þessar athyglisverðu
upplýsingar koma fram í grein um hagkvæmni sjúkrahótela sem
landíæknir, Ólafur Ólafsson, skrifar í Læknablaðið. Sólarhringsdvöl
á góðu sjúkrahóteli telur hann aðeins kosta um 1/3 af dvöl á sér-
greinasjúkrahúsi.
Bæði piltar og stúlkur kepptu í sveitakeppni grunnskóla á Suður-
landi í skák. Hér eigast við sveitir frá skólunum á Eyrarbakka og
Ljósafossi.
Sveitakeppni grunnskóla á Suðurlandi í skák:
100 ungmenni frá
11 skólum tókust á
Að læknar endurtaki algengustu
rannsóknir í tíma og ótíma vekur
spurningar um hvort þar leynist
kannski að hluta skýringin á þeirri
923% hækkun sem varð á raun-
kostnaði TVyggingastofnunar vegna
efna-, blóð og sýklarannsókna á sér-
stökum rannsóknarstofum á árun-
um 1986- 1991, þegar reiknað er á
sama verðlagi bæði árin. Sömu
fimm ár varð einnig 45% raun-
hækkun á kostnaði við rannsóknar-
stofur sérfræðinga. Samkvæmt upp-
lýsingum í annarri grein í sama
„Við gefumst ekkert upp og stjórn
Herjólfs þarf ekkert að haida það að
þeir þreyti okkur þó að við verðum í
verkfalli fram á vor eða fram á næsta
haust. Við munum halda það út. Það
er ekki nokkur vafi á því. Við sam-
þykkjum það aldrei að kyngja þessu
lengur eins og þetta hefur verið."
Stýrimenn á Herjólfi hafa verið í
verkfalli í einn mánuð, en það hófst
þann 3. febrúar sl. Engin lausn er í
sjónmáli og þegar síðast fréttist
Ferðamálaráð Færeyja gengst fyrir
Færeyjakynningu í Norræna hús-
inu í samvinnu við Flugleiðir og
Smyril- Line sem hefst í dag og
stendur til 12. mars. Samtímis
standa yfir færeyskir dagar í húsinu
sem hefjast í dag kl. 17.
Súnfríð Joensen, markaðsfulltrúi
ferðamálaráðs Færeyja, verður með
sýningarbás í Norræna húsinu með-
an kynningin stendur yfir og kynnir
Læknablaði námu þessir tveir
kostnaðarliðir kringum 650 millj-
ónum króna árið 1991.
Grein landlæknis var undir fyrir-
sögninni: „Sjúkrahús — ódýr kost-
ur“. Hann segir miklar breytingar í
gangi á spítalarekstri víða erlendis.
Dýr sérgreinasjúkrahús séu í vax-
andi mæli rekin eingöngu sem
bráðasjúkrahús, sjúklingar séu að-
eins lagðir inn eftir forrannsóknir
og vistist þar nær eingöngu meðan
aðgerð, gjörgæsla eða önnur með-
ferð standi yfir. Strax þegar sjúkling-
hafði ekki verið boðað til nýs sátta-
fundar. Deilan kom til umræðu á
fundi bæjarstjómar Vestmannaeyja í
fyrrakvöld en þar voru engar ákvarð-
anir teknar. Á fúndinum var frestað
að taka afstöðu til tveggja tillagna
sem Ragnar Óskarsson bæjarfulltrúi
lagði fram. Önnur þeirra var um að
fá stýrimenn til að fresta verkfallinu
og hin um að skipuð yrði sáttanefnd
í Eyjum til að vinna að lausn máls-
ins.
þar færeyska menningu, náttúru og
færeyskan mat.
Ferðamálaráð Færeyja vill með
þessari kynningu efla tengsl íslend-
inga og Færeyinga og koma því í
kring að það verði auðvelt, áhuga-
vert og ódýrt fyrir íslendinga að
heimsækja Færeyjar, hvort sem er í
sumarfrí, á ráðstefnur eða í við-
skiptaerindum. —sá
ur hafi fótaferð og sé sæmilega sjálf-
bjarga sé hann fluttur yfir á sjúkra-
hótel sem rekið sé í nágrenni spítal-
ans, jafnvel á spítalalóð.
Landlæknir segir ennfremur hægt
að hugsa sér að „sjúkrahótel" verði
rekin sem deild í sjúkrahúsum en þá
sé nauðsynlegt að aðskilja rekstur-
inn kirfilega frá sérdeildum. Á
sjúkrahótelum segir Ólafur þörf á
góðri hjúkrunar- og félagsaðstöðu
ásamt annarri aðstoð. En endurhæf-
ing og eftirlit fer fram á sjúkrahús-
inu. Jafnframt er rík áhersla á það
lögð að allar forrannsóknir hafi farið
fram undir eftirliti þess læknis er
leggur sjúklinginn inn, áður en
hann er lagður inn á sérgreina-
sjúkrahúsið.
Til að slíkt gæti orðið til hagsbóta
hér á landi, fyrir ríkissjóð jafnt og
sjúklingana, yrðu læknar væntan-
lega að láta af fyrmefndum siðum að
endurtaka algengustu rannsóknir
hverjir annarra í tíma og ótíma.
Á þessum mánuði hefur ekkert ver-
ið rætt við verkfallsmenn nema með
öðrum; búið er að segja upp undir-
mönnum á Herjólfi og deilan Iíklega
í enn meiri hnút fyrir vikið en þegar
verkfallið skall á. Deilan er þegar
farin að hafa veruleg áhrif á bæjarlíf-
ið í Eyjum og í vikunni fóru m.a. um
40 manns með togara frá Eyjum til
lands og að mati framkvæmdastjóra
Stýrimannafélagsins var þar um
verkfallsbrot að ræða en því hefur
verið harðlega mótmælt.
„Ef við værum að tala um laun yfir
200 þúsund krónur á mánuði fyrir
okkar vinnu þá held ég að við mund-
um steinhalda kjafti. En launin mín
í janúar sl. voru 147 þúsund krónur
Hin árlega sveitakeppni í skák á
vegum Skákfélags Selfoss og ná-
grennis fyrir grunnskóla í Ames-
sýslu var haldin þann 27. febrúar á
Hótel Selfossi.
Keppendur komu frá 11 skólum á
svæðinu og eru þá flestir skólar í
sýslunni upptaldir; þó vantaði
keppnislið frá nokkrum stöðum og
brúttó og þá á auðvitað eftir að
draga frá skattinn. Við erum fyrst og
fremst að fara fram á eðlilegan
launamun," segir Jónas Ragnarsson.
Hann segir að þær launatölur sem
Árni Johnsen alþingismaður upp-
lýsti á Alþingi ekki alls fyrir löngu
hafi verið stimplaðar sem trúnaðar-
mál af hálfu stjórnar Herjólfs.
„En það hefur ekki verið meira
trúnaðarmál en þetta. Og ef menn
kalla þetta heiðarleg vinnubrögð þá
veit ég ekki hvað. En þessu er alltaf
snúið þannig að þetta séu launin
okkar, sem er ekki rétt. Það sem
þarna er verið að tala um er stöðu-
gildið í 30 daga og hvað það gæti
gefið í launum." -grh
vonandi sjá þeir sér fært að vera með
næsta ár. Alls voru 17 sveitir mættar
til leiks, 9 úr 1.-7. bekk og 8 úr 8,-
10. bekk. í hverri sveit voru 4 aðal-
menn og 1-4 varamenn.
Heildarfjöldi þátttakenda var því
um 100 manns.
Mótssjóri var Ingimundur Sigur-
mundsson og honum til aðstoðar
voru Magnús Gunnarsson, Úlfhéð-
inn Sigurmundsson og félagar úr
SSON.
Helstu styrktaraðilar mótsins voru
að venju Mjólkurbú Flóamanna og
Landsbankinn Selfossi og eru þeim
færðar bestu þakkir.
Úrslit:
Yngri flokkur........1.-7. bekkur
Röð Skóli vinningar
1. Reykholtsskóli............21.0
2. Bamaskólinn Eyrarbakka....20.5
3. Villingaholtsskóli........19.0
4. Sólvallaskóli.............18.5
5. Grunnskólinn Stokkseyri...18.0
6. Sandvíkurskóli............14.0
7. Grunnskólinn Þorlákshöfn....l3.0
8. Barnaskólinn Þingborg ....11.0
9. Flúðaskóli.................9.0
Eldri flokkur........8.-10. bekkur.
Röð Skóli vinningar
1. Flúðaskóli................21.0
2. Grunnskólinn Þorlákshöfn ...17.5
3. Sólvallaskóli.............17.0
4. Barnaskólinn Eyrarbakka...17.0
5. Héraðsskólinn Laugarvatni ..16.5
6. Reykholtsskóli.............H.o
7. Grunnskólinn Stokkseyri...10.5
8. Ljósafossskóli.............1.5
Veitt voru sérstök verðlaun fyrir
bestan árangur á hverju borði fyrir
sig en það voru veglegar skákbækur
frá Skákprent, sem gefnar vom af
SSON.
Bestum árangri á hverju borði fyrir
sig náðu þessir:
Yngri flokkun
1. borð: Gunnar Helgason Sólvalla-
skóla ásamt Sævari Sigurmundssyni
Eyrarbakka.
2. borð: Guðni Páll Sæland Reyk-
holtsskóla.
3. borð: Ólafur Már Ólafsson Stokks-
eyri.
4. borð: Friðrik Einarsson Stokks-
eyri.
Eldri flokkun
1. borð: Erling Tómasson Eyrar-
bakka.
2. borð: Ingvar Þrándarson Flúða-
skóla
3. borð: Kristján Hafsteinsson Sól-
vallaskóla
4. borð: Kjartan Kárason Laugar-
vatni.
Sýslumaður Reykjavíkur auglýsir uppboð á
húseign Guðmundar Jaka:
Með húsið í
lúkunum í
tuttugu ár
JÞað hefur alltaf verið á uppboði í ins Dagsbrúnar.
20 ár þetta hehdtis hús, en maður f DV í fyrradag auglýsir sýslu-
var bara svo seinn fyrir. Ég hef maðurinn í Reykjavík uppboð á
aOtaf verið með þetta hehdtis hús Fremmristekk 2 mánudaginn 8.
í lúkunum í 20 ár og hef fyrir mars nJc. klukkan 14 á skrifstofu
löngu ætlað að selja það, en það er embættisins að Skógarhlíð 6.
bara ekkert verð á þessu. En ég Þinglýstur eigandi er Guðmundur
held nú að þessu verðl reddað,“ J. Guðmundsson en gerðarbeið-
segir Guðmundur J. Guðmunds- andi er Landsbanki íslands. -grh
son, formaður Verkamannafélags-
- HEl
Stýrimenn á Herjólfi hafa verið í verkfalli í rúman mánuð. Formaður Stýrimannafélags ís-
lands: Mundum steinhalda kjafti ef við fengjum þau laun sem Ámi Johnsen las upp á Alþingi:
Stjórnin skýlir sér,
bakvið pilsfald VSÍ
Það er ekki hægt að segja að stjórn Heijólfs hafí rætt við okkur né
reynt að leysa málið. í sjálfu sér er það allt í lagi að stjórnin hafí vís-
að málinu til VSÍ. En stjórnin er eins og krakkar sem skýla sér á bak
við pilsfald mömmu sinnar og segja: „Mamma sér um þetta. Ég
kem ekkert nálægt þessu,“ segir Jónas Ragnarsson, stýrimaður á
Heijólfí og formaður Stýrimannafélags ísIands.Það er ekki hægt að
segja að stjóm Hetjólfs hafí rætt við okkur né reynt að Ieysa málið.
í sjálfu sér er það allt í Iagi að stjórain hafí vísað málinu til VSÍ. En
stjórain er eins og krakkar sem skýla sér á bak við pilsfald mömmu
sinnar og segja: „Mamma sér um þetta. Ég kem ekkert nálægt
þessu,“ segir Jónas Ragnarsson, stýrimaður á Heijólfi og formaður
Stýrimannafélags íslands.
Færeyskir dagar í Norræna húsinu:
Viltu feröast
til Færeyja?