Tíminn - 06.03.1993, Page 6
6 Tíminn
Laugardagur 6. mars 1993
Litla stúlkan Eydís Anna Sigurbjörnsdóttir varð að missa annað augað í baráttu gegn krabba-
meini. Naumlega tókst að bjarga hinu auganu og lækna barnið:
HORFT FRAM Á VEGINN
TIL SJÁLFS LÍFSINS
Hún var þriggja mánaða þegar hún greindist með mjög sjald-
gæft krabbmeinsæxli í augum. Annað augað var ónýtt en hinu
tókst að bjarga með erfiðri geislameðferð. Eydís Anna er fjög-
urra ára í dag og er talin úr allri hættu. „Það var sem Heimur-
inn hryndi,“ segir móðir hennar Sigrún A. Jónsdóttir. Hún
féllst á viðtal ef það mætti verða til þess að veita aðstandendum
krabbameinsjúkra barna von og vopn í baráttu sem aidrei er
töpuð fyrirfram. í nærri hverjum mánuði greinist eitt barn með
krabbamein.
Heimurinn hrundi
Sigrún segir að ekkert hafi kom-
ið í Ijós við fæðingu Eydísar sem
bent gæti til sjúkdómsins sem
seinna kom í ljós. Það er greini-
lega erfitt fyrir Sigrúnu að rifja
upp daginn þegar hana fór að
gruna að eitthvað mikið væri að.
„Ég var með Eydísi inni í eldhúsi
og þá féll birtan beint á andlit
hennar og ég sá beint inn í aug-
að,“ segir Sigrún. Hún bætir við
að það hafi ekki verið hægt að
greina þetta nema við sérstök
birtuskilyrði.
í framhaldi þessa fékk Sigrún
strax tíma fyrir Eydísi hjá augn-
lækni þrátt fyrir langan biðlista.
Daginn eftir var Eydís litla greind
með augnæxli sem er mjög sjald-
gæfur sjúkdómur sem vart verður
hér á Iandi með tíu til fimmtán
ára millibili. Algengasta einkenni
þessa æxlis er hvítur blettur eða
gulhvítt endurkast úr ljósopi aug-
ans. Talið er að eitt barn 300.000
fái þennan sjúkdóm og getur æxli
fundist í öðru auga eða báðum.
Læknirinn sagði að hún þyrfti að
fara út í meðferð sem yrði dýr og
langvarandi.
„Það er ekki hægt að lýsa við-
brögðum okkar í orðum en heim-
urinn bókstaflega hrundi," segir
Sigrún. Hún bætir við að þegar
hún hugsi til baka séu þessar
fyrstu vikur í þoku og óttinn ráð-
andi. „Maður verður svo hræddur
að það er eiginlega ekki hægt að
lýsa því,“ segir Sigrún.
Erfið bið
Sigrún og Sigurbjörn Sigurðs-
son maður hennar höfðu örfáa
daga til að koma þremur börnum
sínum fyrir áður en haldið var til
London, þar sem meðferðin átti
að fara fram, því nú var um líf eða
dauða að tefla. Þegar út var komið
var hægra auga Eydísar fjarlægt
þar sem það var ónýtt af völdum
æxlisins. í framhaldi af því hófst
ströng geislameðferð á hinu aug-
anu þar sem greindust þrjú æxli. í
fjórar vikur þurfti Eydís litla dag-
lega að gangast undir geislunina
og í hvert skipti varð að svæfa
hana þar sem miklu máli skiptir
að geislinn hitti nákvæmlega á
meinvarpið. „Þetta var spurning
VELKOMIN TIL U.S.A.
Sértilboð frá bandarísk-
um stjórnvöldum
Bandarísk stjómvöld gefa þér kost á að sækja um og öðlast
varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt áætlun AA-1.
Dregiö verður úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki-
færi til að setjast að i Bandaríkjunum og stunda þar vinnu.
(oröiö handhafi „græna kortsins"). Umsóknarfrestur um dval-
arieyfi rennur út 31. mars nk. og þvi nauösynlegt að bregð-
ast viö strax, svo umsókn þín nái fram í tíma.
Allir þeir, sem eru fæddir á Islandi, Bretlandi eða (riandi
og/eða eiga foreldri eöa foreldra af sömu þjóðernum, hafa
rétt til aö sækja um þetta leyfi.
Sendiö 45 Bandaríkjadala greiðslu fyrir hvem umsækjanda
til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæðingar-
stað, nafni hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstað
ógiftra barna undir 21 árs aldri.
Heimilisfangið er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas,
Texas, 75382, USA.
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavikur verður haldinn
mánudaginn 8. mars kl. 20:30 á Hótel Holiday Inn.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
AUGLÝSING FRÁ HEIL-
BRIGÐIS- OG TRYGGINGA-
MÁLARÁÐUNEYTINU
Löggildingarnám-
skeið fyrir fótaað-
gerðarfræðinga
Dagana 22. mars til 30. mars n.k.
gengst heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið fyrir löggildingar-
námskeiði fyrir fótaaðgerðarfræð-
inga samkvæmt reglugerð nr.
184/1991. Löggildingarnámskeið-
ið verður haldið í Ármúlaskóla og
innritun ferfram dagana 8. til 11.
mars n.k. Námskeiðsgjald er kr.
12.000,-. Námskeiðinu lýkur með
prófi.
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum
í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur
dögum fyrir birtingardag. Þœrþurfa að vera vélritaðar.
Eydís Anna Sigurbjörnsdóttir
með mömmu sinni, Sigrúnu A.
Jónsdóttur.
um líf eða dauða,“ segir Sigrún.
Þá tók við sex vikna biðtími
heima á íslandi og aftur var hald-
ið út til London til eftirlits. Þá
kviknaði von um að árangur
myndi nást þar sem við skoðun
leit allt vel út. Ferðunum til
London var samt hvergi nærri
lokið því alls urðu þær sjö að tölu
og alltaf lengdist tíminn á milli
ferða þar sem árangur lofaði
góðu. „í hvert skipti sem við fór-
um fengum við góðar fréttir en
þessi tími stóð yfir í tvö löng ár,“
segir Sigrún.
Nú sér Eydís litla með vinstra
auga en ekki er fullkomlega Ijóst
hversu vel. Þó segir móðir hennar
að sérfræðingur hafi verið ánægð-
ur með sjónina eftir skoðun nú
nýlega.
Sigrún segir að þau hafi fengið
ómetanlegan stuðning bæði
heima og erlendis. Þar getur hún
sérstaklega séra Jóns I. Baldvins-
sonar, sendiráðsprests í London.
„Hann var alveg frábær og tók
alltaf á móti okkur og útvegaði
okkur íbúð á meðan við dvöldum
ytra,“segir Sigrún.
Sorg og reiði
Það er talað um að líðan fólks
sem verður fyrir áföllum sé stig-
bundin og það kannast Sigrún
við. „Fyrstu viðbrögðin voru sorg
og síðan reiði. Ég upplifði heil-
mikla reiði; af hverju hún sem er
svo lítil? Ég man að mér fannst
allt svo óréttlátt," segir Sigrún
„Ég þorði ekki að vona neitt en
varð að búa mig undir það vesta.
Eftir fyrsta reiðarslagið fór maður
að rétta svolítið við því þá gerði