Tíminn - 06.03.1993, Page 9
Laugardagur 6. mars 1993
Tíminn 17
Hrakfallabálkurinn
Out on a Limb ★★
Framleiðandi: Michael Hertzberg.
Handrít: Daniel Goldin og Joshua
Goldln.
Leikstjórí: Francis Veber.
Aðalhlutverk: Matthew Broderíck, Jef-
frey Jones, Heidl Kling og John C. Re-
illy.
Laugarásbió.
Öllum leyfð.
Hrakfallabálkurinn er önnur mynd
franska leikstjórans Francis Vebers í
Bandaríkjunum. Hann starfaði áður
í Frakklandi, fyrst sem handritshöf-
undur og síðar leikstjóri, og voru
myndir hans mjög vinsælar þar.
Tvær bandarískar útgáfur af mynd-
um hans voru framleiddar í Banda-
ríkjunum, íyrst The Toy með Ri-
chard Pryor í aðalhlutverki og síðan
Three Fugitives með Nick Nolte og
Martin Short, en þeirri endurgerð
leikstýrði Veber sjálfur. Sú síðar-
nefnda var ágætis gamanmynd, þótt
hún væri ekki í sama gæðaflokki og
franska útgáfan, Les Fugitifs. Þetta
er ekki eina dæmið um að góð
frönsk mynd sé endurgerð í Banda-
ríkjunum og henni breytt til að
hæfa áhorfendum þar í landi en það
vill stundum brenna við að banda-
rísku útgáfurnar séu hraðsoðnari
og einnig er endinum oft gjör-
breytt. Það er athyglisvert að mörg-
um frönskum leikstjórum tekst illa
að fóta sig í Hollywood og Francis
Veber virðist einn úr þeim hópi því
þótt Hrakfallabálkurinn sé ágætis
afþreying þá verður hún seint talin
með betri myndum Vebers.
í myndinni leikur Matthew Bro-
derick ungan mann á uppleið í <jár-
málaheiminum, Bill Campbell, sem
ætlar að keyra til krummaskuðsins
Buzzack, þar sem móðir hans og lít-
il systir búa ásamt seinni eigin-
manni móðurinnar sem er bæjar-
stjóri þar. Skömmu áður hafði litla
systir hans tilkynnt honum að tví-
burabróðir stjúpföður síns hefði
komið og krafist peningaupphæða
vegna þess að hann hefði setið inni
fyrir glæp sem bæjarstjórinn
framdi. Campbell hlustar að sjálf-
sögðu ekki á hana í fyrstu, enda er
hann sjálfur í nógum vandræðum,
því á leiðinni er bflnum hans stolið
af stúlku á flótta undan lögreglunni
og til að bæta gráu ofan á svart tek-
ur hún veskið hans líka, en í því er
miði með nauðsynlegum upplýs-
ingum um 140 milljón dollara
hlutabréfaviðskipti. Hún skilur
hann eftir nakinn við vegarkant en
honum er bjargað af stórfurðuleg-
um bræðrum sem heita báðir Jim.
Stúlkan sem stal bflnum verður
hins vegar vitni að lokauppgjöri tví-
burabræðranna og Campbell vill
ólmur finna hana til að nálgast mið-
ann góða.
Það eru allnokkrir fyndnir brand-
arar á ferðinni hér en sagan er í
sjálfu sér ekkert sérstök og kemur
aldrei verulega á óvart. Persónurnar
í þessum farsa eru flestar einfaldar
og staðlaðar en margir ágætir
brandarar eru til að vega á móti
þessu lýti. Það er ekki að sjá að Ve-
ber komi með nokkrar nýjungar og
allir sjá endinn fyrir, sem er klass-
ískur bandarískur endir, einfaldur,
barnalegur og væminn. Bræðurnir
Jim og Jim eru að mörgu leyti
bjargvættir myndarinnar, sem hefði
sjálfsagt gleymst fljótt án þeirra.
Það eru uppátæki, eða réttara sagt
uppátektarleysi, þeirra sem gera
þessa mynd minnisstæða.
Matthew Broderick er einn af fáum
leikurum, sem hófu feril sinn í ung-
lingamyndum, sem tekist hefur að
skapa sér nafn í betri kvikmyndum.
Hann er í sæmilegu formi hér en
hefur þó oft leikið betur. Jeffrey Jo-
nes er hins vegar ávallt réttur mað-
ur á réttum stað í svona försum og
hann leikur tvíburabræðurna á
skemmtilegan hátt.
Hrakfallabálkurinn er enn eitt
dæmið um hve erfitt virðist fyrir
franska leikstjóra að gera góðar
myndir í Bandaríkjunum. Meira að
segja Jean Renoir, einum dáðasta
leikstjóra Frakka fyrr og síðar, tókst
ekki að aðlaga sig þar. Myndin er
fyndin á köflum en margt í henni
hefur sést oft áður og framvindan
kemur fáum á óvart.
Örn Markússon.
TVEIR RUGLAÐIR
The Nutty Nut 1/2
Framleiðendur: Brad Wyman og David
Rotman.
Handrít: Alan Smithee Jr., Alan Smlthee
sr. og R.O.C. Sandstorm.
Leikstjórí: Adam Rifkin.
Aöalhlutverk: Stephen Keamey, Amy
Yasbeck og Traci Lords.
Háskólabió.
Öllum leyfð.
Það er í raun stórfurðulegt að þessi
mynd skuli hafa ratað f kvikmynda-
hús en ekki bara endað lífdaga sína á
einhverjum rykföllnum hillum á
myndbandaleigum. Tveir ruglaðir
er svo dæmalaust heimskuleg mynd
að flestir áhorfendur, sem ekki eru
undir sjö ára aldri, fara alvarlega að
hugsa um að gerast kvikmyndagerð-
armenn því verkin þeirra geti varla
orðið jafn vitlaus og þetta. Tveir
ruglaðir á að vera gamanmynd og
vissulega koma einstaka sinnum
fyrir ágætir brandarar og þá helst í
upphafi hennar. Það er eins og
handritshöfundamir hafi fengið
nokkrar góðar hugmyndir að brönd-
urum, sett þær fram strax í upphafi,
orðið uppiskroppa með efni og því
ákveðið að bulla sig einhvem veginn
út úr þessu.
Söguþráðinn er erfitt að rekja en í
grófum dráttum segir af tvíbura-
bræðrunum Philbert og Nathan Nut
sem em aðskildir í æsku. Philbert
elst upp hjá móður sinni og brýst til
frama sem gjörspilltur stjórnmála-
maður. Nathan elst hins vegar upp á
munaðarleysingjahæli og er seinna
vistaður á geðsjúkrahúsi, en hann er
með margklofinn persónuleika. Nat-
han fær þá flugu í kollinn að hann
muni læknast ef hann hitti bróður
sinn á ný og tekst honum að strjúka
af geðdeildinni. Bræðumir em
nauðalíkir og ómeðvitað leggur Nat-
han frama Philberts í rúst með því
að birtast á heimili hans og skipta
um persónuleika á fimm mínútna
fresti.
Það er ekki mikill vandi að sjá fyrir-
fram endinn á myndinni í aðalatrið-
um enda ekki mikill fmmleiki á
ferðinni, nema þá helst að tækni-
brellur em mikið notaðar í sumum
bröndumnum. Dæmi um ófmm-
leikann er að ég held að þetta sé
fimmta myndin sem ég hef séð sem
gerir grín að Amold Schwarzeneg-
ger og Tortímandanum 2. Hluti af
myndinni er langt og fáránlegt at-
riði þar sem persónumar kasta
rjómakökum hver í aðra. í nær 10
mínútur sést lítið annað en fljúg-
andi rjómakökur og hvít andlit.
Þetta er án efa eitt allra heimskuleg-
asta og ófyndnasta atriði sem ég hef
séð og tel ég mig þó hafa séð ansi
mörg slík atriði um ævina.
Það er víst best að segja sem
minnst um leikarana en fæstir
þeirra virðast á réttri hillu í lífinu ef
miðað er við frammistöðu þeirra
hér. Af fólkinu sem lagði hönd á plóg
við gerð þessarar myndar virðist
einungis tæknibrellufólkið hafa innt
starf sitt sómasamlega af hendi.
Nafn myndarinnar á íslensku, Tveir
ruglaðir, ætti að setja fyrir aftan
nafn feðganna sem ásamt þriðja að-
ila em skrifaðir fyrir þessu svokall-
aða handriti myndarinnar. Ég vona
innilega að þeir hætti afskiptum af
kvikmyndaiðnaðinum ef áhorfendur
eiga á hættu að sjá fleiri svona stykki
f framtíðinni. Öra Markússon
íslenski dansflokkurinn:
Eva Evdokimova setur upp
Coppelíu
Eva Evdokimova, ein frægasta ballerína
samtímans, er komin til landsins til að
setja upp Coppelíu með íslenska dans-
flokknum. Frumsýningin er áætluð f
Borgarleikhúsinu 7. apríl næstkomandi.
Auk þess að stjóma uppsetningu mun
Eva Evdokimova væntanlega einnig
dansa aðalhlutverkið í 2-3 sýningum.
Ferill Evu Evdokimovu hófst með kon-
unglega danska ballettinum 1966, en
sfðan var hún aðaldansari með Óperu-
ballettinum í Berlín í mörg ár og var
sæmd titlinum „Prima Ballerina Ass-
oluta“. Evdokimova var í 15 ár einn
helsti mótdansari Rudolfs Nureyev og
dönsuðu þau saman vfða um heim. Eva
er bandarísk að uppruna og fékk nýlega
viðurkenningu Hvíta hússins fyrir störf
sín.
Það er íslenska dansflokknum mikill
heiður að fá að vinna með Evu Evdo-
kimovu við uppsetningu Coppelíu, en
flokkurinn fagnar 20 ára afmæli um
þessar mundir. Þá munu einnig taka þátt
í uppfærslunni nemendur úr Listdans-
skóla fslands, en nú eru 40 ár liðin frá því
hann tók til starfa í Þjóðleikhúsinu. Cop-
pelfa var fyrsti ballettinn í fullri lengd,
sem settur var upp hér á landi árið 1978,
og eins og nú tóku nemendur einnig þátt
í uppfærslunni.
SkrHbær hf. opnar
þjónustudeild
Til að tryggja meiri og betri þjónustu
við SHARP-notendur mun Skrifbær hf.
bjóða upp á ábyrgðarviðgerðir auk við-
halds- og viðgerðarþjónustu fyrir
SHARP-skrifstofutæki, með opnun þjón-
ustudeildar Skrifbæjar hf. 1. mars s.l.
Jafnframt er boðið upp á sömu þjónustu
fyrir hljómtæki, sjónvörp, myndbands-
tæki og annan búnað frá Sharp, Pioneer
og Luxor sem seldur er í verslunum
Hljómbæjar hf. og Skrifbæjar hf„ Hverf-
isgötu 103.
Þjónustudeild Skrifbæjar hf. er að
Hverfisgötu 103, Reykjavík. Símanúmer
þjónustudeildar er 91-627251 og 91-
627253.
Feróafélag íslands
Helgarferð 5.-7. mars. Snæfellsnes—
Snæfellsjökull. Brottför föstudag kl. 20.
Frábær gistiaðstaða að bænum Görðum
f Staðarsveit Jökullinn heillar. Einnig
göngu- og skoðunarferðir um ströndina.
Hægt að hafa með gönguskíði.
Vetrarfagnaður að Flúðum 20.-21.
mara. Frábær skemmtun sem enginn
lætur framhjá sér fara. Gist í Skjólborg.
Göngu- og skoðunarferðir að deginum,
en vetrarfagnaðurinn verður um kvöldið
í félagsheimilinu. Rútuferð. Upplýsingar
og farmiðar á skrifstofunni.
Aðalfundur Ferðafálagsins verður mið-
vikudagskvöldið 10. mars í Ferðafélags-
húsinu (risi) og hefst hann stundvíslega
kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf. Félags-
menn sýni ársskírteini 1992 við inn-
ganginn.
TÍMÁNS
Aðal styrktaraðilar
Handknattleikssambands
íslands
Aðal styrktaraðilar
Handknattleikssambands
íslands
á H.M. í Svíþjóð
9.-21. mars 1993
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
FLUGLEIÐIR
W
SJÓVÁÍ ÁLMENNAR
POSTUR OG SÍMI
LEIKHOPURtNH-
hUsvörðurinn
eftir Harold Pinter í íslcnsku Óperunni.
leikstjóri: Andrós Sigurvinsson.
Sunnud. 7. mars kl. 20:00
Miðv.d. 10. mars kl. 20:00
Sunnud. 14. mars kl. 20:00
Miðasalan cr opin frá kl. 15 - 19 alla daga.
Miðasala og pantanir í símum I H75 og 650190.