Tíminn - 06.03.1993, Qupperneq 11
Laugardagur 6. mars 1993
Tíminn 19
Haley: aldrei um nótt niöri í lest.
fluttur með þrælaskipi, að sögn Ha-
leys.
Grunsemdir kringum
sagnaþul
Allt þetta fór þó heldur lágt meðan
Haley lifði, en hann lést í febrúar s.l.
ár. Síðan hefur gagnrýnin gegn Roots
harðnað og á fjölmiðlum er nú svo að
heyra að Iítið ef nokkuð sé eftir af
orðstír Roots sem „non- fiction".
Meðal þess, sem enn frekar hefur
grafið undan fyrra áliti á Roots, er til-
nefnt ýmislegt ritað efni eftir Haley,
sem var í fórum hans og aðrir en
hann höfðu ekki aðgang að fyrr en að
honum látnum. Lykilatriði í greinar-
gerð Haleys fyrir rannsóknum að
baki Roots var að hann hefði fyrirhitt
í Gambíu vorið 1967 griot nokkum,
sagnaþul er lagt hefði á minnið frá-
sagnir margar kynslóðir aftur í tím-
ann, samkvæmt hefð. Frá sagnaþul
þessum kvaðst Haley hafa haft sög-
una af Kúnta Kinte og brottnámi
hans. „En á segulbandinu (með sam-
tali Haleys og sagnaþulsins, að sögn
þess fyrmefnda) heyrist að frásögn-
inni á því hefur verið hagrætt eða
hún fölsuð og ljóst er að atburðir,
sem áttu að hafa gerst þennan úr-
slitadag (er Haley og sagnaþulurinn
áttu að hafa ræðst við), gerðust ekki,“
stendur um þetta í grein eftir Philip
Nobile í breska blaðinu Sunday Tim-
es.
Aldrei hafðist Haley heldur við næt-
urlangt niðri í lest, að sögn Franks
Ewers, sem var fyrsti stýrimaður á
African Star er Haley tók sér far með
því skipi vestur um haf. „Ég var með
lyklana að Iestinni og Haley fór aidrei
þangað niður að næturlagi," segir
Ewers.
Hæpin heildarmynd
Burtséð frá þessu verður varla sagt
að Roots gefi rétta heildarhugmynd
um þrælaverslunina milli Afríku ann-
arsvegar og Evrópu og Ameríku hins-
vegar. Á Roots er helst svo að skilja að
hvítir menn hafi komið til Afríku sem
hverjir aðrir víkingar og rænt fólki til
þrældóms. En á strandlengjunni frá
Senegal til Kamerún, þaðan sem kom
þorri þrælanna sem Norður-Amer-
íkumenn og Evrópumenn aðrir en
Portúgalar fluttu vestur um haf, var í
þessu sambandi fyrst og fremst um að
ræða verslun, þar sem Afríkumenn
voru seljendur. Til þeirra viðskipta
voru Afríkumenn (aðrir en þeir sem
seldir voru vestur um haf) engu síður
fúsir en kaupendumir frá Evrópu og
Norður-Ameríku. Þá er Kúnta Kinte
sagður hafe verið múslími og helst
svo að skilja á Roots að margir eða
flestir blökkumanna þeirra, sem til
Ameríku voru seldir, hafi verið þeirrar
trúar. Á bak við þetta er að líkindum
tilhneiging sem eitthvað ber á hjá
bandarískum blökkumönnum, á þá
leið að líta á afríska heiðni smáum
augum og reyna í staðinn að Iáta sem
svo að íslam sé afrísk trúarbrögð.
Sumir þræianna, sem seldir voru til
Ameríku frá Afríku, höfðu verið flutt-
ir langt innan úr landi og ekki er ólík-
legt að eitthvað af múslímum hafi
verið meðal þeirra. En þorri þessara
þræla var úr strandhéruðum Vestur-
Afríku eða ekki mjög langt innan úr
landi og ætla má að flestir þeirra hafi
verið heiðnir. Síðan þá hefur íslam
eitthvað breiðst út suður á bóginn á
þeim slóðum, en á okkar dögum er
samt þorri manna í strandhéruðum
Vestur-Afríku kristinn ef ekki heið-
inn, nema hvorttveggja sé.
Miðað við frásögn áðumefhds Nobile
af þessu máli er helst svo að sjá, að að-
alástæðan til þess að Haley slapp
nokkum veginn heilskinna frá öllu
saman, meðan hann lifði, hafi verið
sú að meðal landa hans yfirleitt hafi
verið þegjandi samkomulag um að
halda yfir honum hlífiskildi. í því
sambandi kom ýmislegt til. Pulitzer-
ráðið, sem nýtur mikillar virðingar og
er varla án áhrifa, hefur trúlegt horft
með skelfingu á þann möguleika að
bók sem það hafði verðlaunað sem
sanna ffásögn yrði afhjúpuð sem fals.
Sjálfur er Haíey sagður hafa verið
hrífendi maður í framkomu og vin-
sæll eftir því. Hafi það átt sinn þátt í
því að menn veigruðu sér við að
ganga hart að honum, enda þótt
komið hefði fram að hann hafi oft-
sinnis ferið frjálslega með sannleik-
ann áður en hann skrifeði Roots. No-
bile skrifar að við liggi að kalla megi
Haley Kim Philby bókmenntanna.
„Líkt og njósnameistarinn gat hann
logið sannfærandi til um hvað sem
var.“
„Öfug kynþátta-
hyggja“
Aðrar ástæður vógu hér þó að líkind-
um þyngra. Roots hafði orðið banda-
rískum blökkumönnum til mikillar
uppörvunar og þeir voru eftir því
stoltir af bókinni og höfundi hennar.
Þeim var eftir því óljúft að hún félli
svo gersamlega í áliti sem nú virðist
vera komið á daginn. John Henrik
Clarke, sem hvað mest er virtur
blakkra sagnfræðinga bandarískra og
þeir Haley og Malcolm X leituðu til
báðir, grunaði Haley þannig um
græsku viðvíkjandi Roots, en þagði
yfir því. Hvítir Bandaríkjamenn, eink-
um þeir sem gjaman eru skilgreindir
sem „white liberal establishment",
haldnir sektarkennd út af þrælahald-
inu og meðferð bandaríska samfé-
lagsins á blökkumönnum eftir það,
virðast af þeim sökum ekki hafa treyst
sér til gera að engu hetjusögn þá sem
ættarsaga Haleys var orðin í augum
blökkumanna og raunar fleiri. Ótti
við að blökkumenn almennt myndu
bregðast við reiðir út af slíkri atlögu
að Haley kann að hafa valdið ein-
hverju hér um. Einn þeirra 17, er sitja
í Pulitzerráði, lætur hafa eftir sér að
þeir félagar hafi verið haldnir „þeirri
blekkingu" að með því að hylma yfir
með Haley auðsýndu þeir blökku-
mönnum löndum sínum fölskvalausa
vináttu og bættu þannig fyrir „sögu-
leg mistök ... Auðvitað var það við-
snúin kynþáttahyggja. En viðkvæm
mál eins og þessi eru óviðráðanleg."
Að öllu samanlögðu verður því vart
neitað að mál þetta segi þó nokkra
sögu um hvíta og svarta Bandaríkja-
menn og samskipti þeirra.
Bush forseti ræöir viö blökkumenn í Los Angeles eftir óeiröirnar
þar s.l. vor: viökvæm mál.
óskast f eftirtaldar bifreiðar og tæki, sem veröa til sýnis þriöju-
daginn 9. mars 1993 kl. 13-16 í porti bak viö skrifstofu vora aö
Borgartúni 7, Reykjavík, og víöar.
1 stk. Toyota Land Cruiser STW 4x4 diesel Árg. 1983
1 stk. Chevrolet Suburban 4x4 bensin 1985
1 stk. Suzuki Samurai 4x4 bensin 1988
1 stk. Nissan Patrol pick up m/húsi 4x4 diesel 1985
1 stk. Mitsubishi L-300 Minibus 4x4 bensin 1989
1 stk. Mitsubishi L-200 pick up 4x4 diesel 1990
1 stk. Lada Sport 4x4 bensín 1988
1 stk. Subaru Legacy 4x4 bensín 1990
4 stk. Subaru 1800 station 4x4 bensin 1986-88
4 stk. Toyota Tercel station 4x4 bensín 1987-88
2 stk. Subaru Justy 4x4 bensín 1986
1 stk. Volvo 245 GL station bensín 1986
2 stk. Volvo 240 bensin 1988-89
2 stk. Toyota Corolla bensín 1986-87
7 stk. Nissan Micra bensín 1988-89
2 stk. Suzuki Swift bensin 1989
1 stk. Mazda 323 station bensín 1988
1 stk. Peugeot 504 station bensín 1982
1 stk. Mazda E-1600 Double cab bensín 1987
1 stk. Chevrolet Sport van 11 farþ. diesel 1989
1 stk. Ford Econoline sendiferöabifreið bensin 1982
1 stk. Volvo F-10 vörubifreiö diesel 1980
1 stk. tengivagn
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, birgðastöð, Grafarvogi:
1 stk. festivagn með vatnstanki, 19000 Itr (áltankur).
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Höfn Homafirði:
1 stk. festivagn með vatnstanki, 19000 Itr.
Tilboðin veröa opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30 aö
viðstöddum bjóöendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboöum
sem ekki teljast viöunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVlK
Orðsending
til félagsmanna
Mjólkurfélags Reykjavíkur
Aöalfundir félagsdeilda M.R. fyrir árið 1992
verða haldnir sem hér segir:
SUÐURLANDSDEILD
Þriöjudaginn 9. mars kl. 14.00 í Veitingahúsinu Inghóli,
Selfossi.
MOSFELLS-, KJALARNESS- OG KJÓSARDEILDIR
Fimmtudaginn 11. mars kl. 14.00 í Félagsheimilinu Fólk-
vangi, Kjalarnesi.
INNRI-AKRANESS-, SKILMANNA-, HVALFJARÐAR-
STRANDAR-, LEIRÁR- OG MELASVEITARDEILDIR
Föstudaginn 12. mars kl. 14.00 í Félagsheimilinu Fanna-
hlíð.
REYKJAVÍKUR-, BESSASTAÐA-, GERÐA-, HAFNAR-
FJARÐAR-, MIÐNES-, GERÐA- OG VATNSLEYSU-
STRANDARDEILDIR
Laugardaginn 13. mars kl. 14.00 í skrifstofu félagsins,
Korngörðum 5.
AÐALFUNDUR FÉLAGSRÁÐS
verður haldinn laugardaginn 3. apríl í skrifstofu félagsins,
Korngörðum 5, og hefst kl. 12.00 á hádegi.
Stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur.
Til sölu
Landsberger heyhleðsluvagn 28 rúmm, árg. 1987.
Triolet heydreifikerfi 15 metra, árg. 1988.
Wild súgþurrkun ‘85 einfasa rafmótor með startbúnaöi.
Element. Keöjudreifari árg. ‘82.
Upplýsingar i sima 98-66049 eftir kl. 20.00.
Rangæingar
Arshátíð Rangæingafélagsins veröur haldin f^ÍKOGES-saln-
um í Sigtúni 3, laugardaginn 13. mars n.k. J *'
Hátiöin hefst meö borðhaldi kl. 19.30.
Fjölbreytt skemmtiatriöi. 4-
Miöasala í Sigtúni 3, miðvikudaginn 10. mar»4il. 17.00-19.00
og hjá stjórn félagsins. ?
Rangæingafélagið í Reykjavík.
------------------------------