Tíminn - 06.03.1993, Qupperneq 16
& 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NÝTT OG Sgfér
FERSKT
DAGLEGA
P
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113 - SÍMI73655
'OS'.
Yj HOGG-
Í DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
w varahlutir
HaoursDöloa s7oT-o/-m
3
Tímmn
LAUGARDAGUR 6. MARS 1993
Kennarar í Kennarasambandi (slands
ekki tilbúnir að fylgja kröfum sínum
eftir með aðgerðum. Naumur meiri-
hluti hafnaði verkfallsboðun; Vara-
formaður KÍ:
Styrkir ekki
samningsstöðuna
„Ég viöurkenni þaö alveg aö
þessi úrslit styrkja ekki samn-
ingsstöðuna. Forusta Kennara-
sambands íslands metur þaÖ
þannig aö hún heföi staöiö betur
viÖ samningaboröiö ef verfefalls-
boöunin heföi veriö samþyfckt,"
segir Eiríkur Jónsson, varafor-
maöur Kennarasambands ís-
lands.
Naumur meirihluti félagsmanna
Kennarasambands íslands hafn-
aöi veríríaiisboðun þann 22. mars
n.k. f aimennri atkvæðagreiðslu.
Af þeim sökum fara grunnskóia-
kennarar og framhaldsskólafeenn-
arar í KÍ efefci í verfefall. Á kjör-
skrá voru 3.540 manns en at-
kvasöi greiddu 3.320 eða 93.28%
sem er metþátttaka. Andvígir
verkfallsboöun voru 1.635 eöa
49.51% en meðmæltir voru
1.493 eöa 45.22%. Auöir og
ógildir atkvæöaseölar voru 174 KÍ aö mæla með samþyfekt verk-
eöa 5,27%. fallsboðunar.
„Þetta er afstaða sem er tekin í „Viö geröum okkur grein fyrir
lýöræöislegri kosningu. Þótt því aö þetta gæti fariö á hvom
stjómin hafi mælt meö samþykkt veginn sem væri. Hfnsvegar var
verkfallsboðunar eru kennarar þessu rangsnúiö af vissum fjöl-
efcki tilbúnir að svo stöddu aö miöhim þar sem því var haidið
fylgja kröfum sínum eftir með fram að verkfall væri markmiðið.
aögeröum. Marfemiöiö er eftir Marírmiðiö var aö nssta hálfa
sem áður aö ná samningum og mánuöinn heföum viö ákveöna
næsti samningafundur er n.fe. pressu gagnvart viösemjendum
þriöjudag klukkan 15.“ ofefear ef verkfallsboðunin heföi
Efríkur segir aö það hafi ekki verið samþykkt.“
veriö rangt stööumat hjá stjóm -grh
Mynd: Eiríkur Jónsson, vara-
formaður K(.
Gunnlaugur Stefánsson alþingismaður segir eðlilegt að sveitarfélögin
á landsbyggðinni séu hikandi að sameinast meðan engin sameining
eigi sér stað á Suðurnesjum þar sem aðstæður til sameiningar séu
ákjósanlegar:
Sameining sveitar-
félaga á að byrja
á Suðurnesjum
„Ef það væri alvara að baki hug-
myndum manna um sameiningu
sveitarfélaga þá væri nærtækast að
sveitarfélögin á Suöumesjum sam-
einuðust fyrst allra þar sem að-
stæöur þar tii sameiningar eru allar
hinar ákjósanlegustu," sagöi Gunn-
laugur Stefánsson alþingismaöur
um hugmyndir um sameiningu
sveitarfélaga.
Gunnlaugur sagðist telja að sam-
eining sveitarfélaga ætti rétt á sér í
mörgum tilfellum. Slíkri samein-
ingu fylgdu ýmsir kostir, ekki síst ef
sveitarfélögum yrðu falin aukin
verkefni. Hann sagði hins vegar að
víða væri erfitt að koma slíkri sam-
einingu við. Gunnlaugur nefndi sem
dæmi sveitarfélögin á Austurlandi.
Þau hefðu í nokkur ár fjallað um
sameiningu eða nánari samvinnu.
Samgöngur væru hins vegar víða
slæmar og gerðu slíka sameiningu
erfiða.
Fjallvegir, skriður og snjóþungir
vegir kæmu til með að skilja sundur
sameinuð sveitarfélög.
Gunnlaugur sagði að staðan væri
önnur og betri á Suðurnesjum. Þar
væru malbikaðir vegir í allar áttir
sem mokaðir væru mörgum sinnum
á dag ef snjóaði á þá.
„Meðan verið er að leggja að sveit-
arfélögum á landsbyggðinni að sam-
einast þá hefur maður skilning þá
Gunnlaugur Stefánsson alþing-
ismaður
því að þau hiki við þegar ekkert ger-
ist þar sem aðstæður eru svo ákjós-
anlegar," sagði Gunnlaugur. „Ég
undrast það, ef þetta er hagkvæmt,
rétt og skynsamlegt, að sveitarfélög-
in á Suðurnesjum skuli ekki vera
búin að sameinast fyrir löngu. Ég
veit ekki hvað það er sem hamlar.“
Gunnlaugur sagði það að sjálf-
sögðu vera íbúa á Suðurnesjum að
taka ákvörðun um hvort þeir vildu
sameinast. Það kynni vel að vera að
þeir sæju sér ekki hag í því, a.m.k.
hefðu sveitarfélögin ekki sameinast
enn. Gunnlaugur sagðist telja að
það gæti hugsanlega greitt fyrir
sameiningu sveitarfélaga vítt og
breitt um landið ef sveitarfélögin á
Suðurnesjum og á höfuðborgar-
svæðinu sameinuðust.
Gunnlaugur sagðist vilja leggja
áherslu á að fólkið í sveitarfélögun-
um réði því hvort af sameiningu yrði
eður ei. Ekki ætti að þvinga fram
sameiningu með stjórnvaldsaðgerð-
um.
Hann sagðist vera ánægður með
starf sveitarfélaganefndarinnar.
Starfið hefði auðveldað sveitarfélög-
unum að taka ákvörðun um samein-
ingu eða ekki sameiningu. í einstök-
um tilfellum þar sem sameining
hefði verið á dagskrá lengi lægju all-
ar upplýsingar á borðinu og ekkert
því til fyrirstöðu að ákvörðun yrði
tekin. Gunnlaugur nefndi samein-
ingu Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvík-
ur sem dæmi.
Á fulltrúaráðsfundi Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga fyrir skömmu
kom fram mikil andstaða við lög-
þvingaða sameiningu sveitarfélaga.
Skiptar skoðanir voru um málið á
fundinum og var að endingu sam-
þykkt að skipaðar yrðu nefndir í
hverjum landshluta til að fjalla um
málið. -EÓ
...ERLENDAR FRÉTTIR...
MOSKVA
Barátta þings og forseta
harónar
Baráttan um völdin I Rússlandi harönaöi I
gær þegar Ruslan Khasbulatov þingforseti
hafnaöi valddeilingaráætlun Bórisar Jelt-
slns forseta sem óviösættanlegri og sakaöi
forsetann um áreitni.
LÚANDA
S.þ. vilja vopnahlé strax
Sameinuöu þjóðirnar hvetja til þess aö
þegar veröi gert vopnahlé I borgarastríði I
Angóla, sem blossaö hefur upp aftur, meö-
an S.þ. komast aö niðurstöðu um hvert
framhaldiö veröi eftir aö friöarviöræöurnar
uröu aö engu.
SKOPJH, Makedóníu
70 farast í flugslysi
Álitiö er aö meira en 70 manns hafi látiö lif-
iö þegar farþegaflugvél af Fokkergerö meö
næstum þvf 100 manns um borö brotlenti
eftir flugtak I höfuöborg Makedónlu, að
sögn sjónarvotta.
TUZLA, Bosnfu
Samþykkja Bosníu-mús-
limar í dag?
Hinn franski yfirmaður liös S.þ. ( Bosnlu
lagði I gær af staö yfir vlgllnur Serba, I lest
brynvarinna farartækja, I sendiför til að
meta bágar aðstæöur umsetnu múslima-
byggðarinnar I Cerska.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR — Eftir margra
mánaöa samningaviðræður gera alþjóö-
legir sáttasemjarar sér vonir um aö mús-
limsk rfkisstjórn Bosnlu muni samþykkja hiö
fyrsta umdeilda skiptingu landsíns I héruð
sem er aðalatriðið í allsherjarfriðarpakka.
WASHINGTON
Leiótogafundur í
Vancouver?
Þess var beöið I gær að Clinton forseti til-
kynnti aö leiötogafundur hans og Bórisar
Jeltslns Rússlandsforseta 4. april nk. yröi
haldinn I kanadlsku borginni Vancouver.
JÓHANNESARBORG
Fjölflokka samningaviö-
ræóur á ný
I gær hófust á ný fjölflokkasamningaviö-
ræöur I Suöur- Afrlku. Hinn voldugi Inkatha
frelsisflokkur Zulu-manna sagöist hafna
valddeilingarfyrirkomulaginu sem stjórn
hvltra og Afríska þjóöarráöiö hefur I huga.
LÚSAKA
Neyöarástand í Zambíu
Lögreglan I Zambíu handtók I gær a.m.k.
10 embættismenn stjórnarandstöðunnar
nokkrum klukkustundum eftir aö Frederick
Chiluba forseti lýsti yfir neyöarástandi
vegna meints samsæris stjórnarandstöö-
unnar um valdarán.
ISLAMABAD
Frióur Afgana f sjón-
máli?
Leiötogar stríöandi fylkinga I Afganistan
sögöu I gær aö friöarsamningur um aö
binda enda á borgarastrlðið (landinu væri I
sjónmáli þó að enn væri ágreiningur um
hver fengi hið valdamikla embætti hermála-
ráöherra. I KABÚL, höfuöborg Afganistans,
gusu upp bardagar milli hersins og and-
stööuflokks sem sækist eftir völdum.
NEW YORK
Múslimskur heittrúar-
maóur kæróur
Rannsókn á sprengingunni I The World Tra-
de Centre beindist í gær aö múslimskum
heittrúarmönnum I Bandarfkjunum eftir aö
ungur róttæklingur var kæröur fyrir árásina.
RÓM
Stjórnarandstaöan
ásakar forsætisráðherr-
ann
Italska stjórnarandstaöan sakaöi i gær rík-
isstjórnina undir forsæti Giuliano Amato um
aö ætla aö veita spilltum stjórnmálamönn-
um sakaruppgjöf I allsherjarhreingerningu (
versta hneyksli sem skekiö hefur Itölsku
þjóöina eftir stríð.
DUBLIN
Má breyta kröfunni um
vald yfir N.- írlandi?
Irski utanrlkisráöherrann Dick Sþring sagöi
I gær aö sljórnarskrárkrafa stjórnenda I
Dublin um yfirráö yfir Noröur- Irlandi væri
ekki steypt I brons eða óhagganleg.
LONDON
Hækkanir á gjaldmiðlum
og kauphöllum
Gjaldmiölar Evrópurlkja og hlutabréf hækk-
uöu I veröi I gær eftir aö þýski seðlabankinn
lækkaöi óvænt vexti. Síöar dró úr ágóðan-
um þegar viöskiptin komust I stööugra
form.
DENNI DÆMALAUSI
„Það er svoleiðis, að fyrst lifir maður lengi og þroskast til að ná
háum aldri, og þá er kominn timi til að kippa manni burt. “
■EBBB