Tíminn - 24.04.1993, Side 6
6 Tíminn
Laugardagur 24. apríl 1993
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur,
óskar eftir tilboðum I verkið „Suöuraeö — áfangi D“.
Verkið felst f lagningu einangraðrar pípu, DN 350/500 mm., um
1.300 metrar að lengd og tengingu hennar á lokahúsum.
Verkinu skal lokið 1. október 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,101
Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 12. mal 1993
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg-
arverkfræðings, óskar eftir tilboðum I viðgerðir á þaki og glugg-
um Fossvogsskóla.
Hefstu magntölur eru:
Pappalögn 310 m2
Málun þaka og þakkanta 1.340 m2
Endumýjun glerfalslista 150 m2
Málun glugga 500 m
Verktími 1. júní-30. júli 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3,101
Reykjavik, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin veröa opnuð á sama stað þriðjudaginn 4. mai 1993 kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
HRARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð 93004
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að klæða
veggi stöðvarhúss Skeiðsfossvirkjunar í Fljótum. Innifalið í
verkinu er að endurnýja glugga og hurðir og gera við
skemmdir á múrhúð. Sömuleiðis er innifalin smíði þak-
brúna á húsið.
Þá er innifalið i verkinu að steypa undirstöður og olíuþró
undir spenna og rofa í spennivirki stöðvar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Rafmagnsveitna rík-
isins við Suðurgötu 4 Siglufirði, Ægisbraut 3 Blönduósi og
Laugavegi 118 Reykjavík frá og með mánudeginum 26.
apríl 1993 gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu RARIK, Suðurgötu 4,
Siglufirði, fyrir kl. 14.00 föstudaginn 7. maí 1993 og verða
þau þá opnuö í viöurvist þeirra bjóöenda sem þess óska.
Tilboðin skulu vera í lokuðu umslagi merktu RARIK 93004
Skeiðsfossvirkjun.
Unglingaheimili ríkisins mun á næstunni hefja rekstur
meðferðarheimilis fyrir unglinga í vanda á aldrinum 13-15
ára. Hefur starfseminni verið valinn staður í Skagafirði.
Nú leitum við að fólki til að starfa á þessu meðferðar-
heimili. Æskilegt er að stór hluti starfshópsins hafi mennt-
un og starfsreynslu á uppeldis- og meðferðarsviði. En
einnig kemur til greina að ráða fólk með annars konar
reynslu og þekkingu sem getur nýst í meðferðarstarfinu.
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfœstur er til 4. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir forstjóri UHR í síma 91-689270.
Forstjóri UHR
Mcðfr.Ö
fr*0(U
'UNGI INCAMriMII I
RIKISINS
Meðferðar-
heimili
Skagafirði
Gfsli Guðjónsson réttarsálfræðingur. Tímamynd Árni Bjama
Hvað veldur því að menn játa á sig sakir sem þeir eiga ekki?
Uns sekt er sönnuð
Það voru miklar óeirðir í borainni og úti á götu fóra hópar um með rán-
um, ofbeldi og gripdeildum. Á meðal þeirra vora þrir menn, sem ásamt
mörgum fleirum lentu í átökum viö lögreglu með þeim skelfilegu afleiö-
ingum að einn lögreglumaður var myrtur á hrottalegan hátt Þremenn-
ingamir vora sakfelldir fýrir moröið og sátu inni í nokkur ár þar til Gísla
Guðjónssyni, réttarsálfræðingi í Bretiandi, tókst að sanna sakleysi
þeirra. Hann segir að morðjátning sé langt frá þvi fullgild sönnun og oft
sé hætta á þvingunarjátningu í alvariegum sakamálum. Þar geta stjóm-
málamenn m.a reynst drjúgur þrýstihópur.
Nýlega ræddi Gísli á fundi með ís-
lenskum rannsóknarlögreglu-
mönnum um yfirheyrslur og yfir-
heyrslutækni.
Þá fjallaði hann einnig um játn-
ingar sakbominga, þ.e. hvað veld-
ur því að menn játa á sig afbrot og
hversu algengt það sé. Þekktastur
er Gísli líklega fyrir að hafa upp-
lýst um rangar játningar og þar
gat hann sýnt lögreglumönnun-
um myndband, sem fjallaði um
eitt af þeim málum sem hann hef-
ur unnið við.
Gísli nýtur mikillar virðingar í
Bretlandi og er beðinn um að taka
að sér um 500 mál á ári. Þá eru tíð-
ir fundir, sem hann á með dómur-
um, lögfræðingum og lögreglu-
mönnum.
„Rangar játningar geta alltaf átt
sér stað. Fyrir 10 árum trúðu
dómarar í Bretlandi því ekki að
rangar játningar gætu átt sér stað.
Það var erfitt að gera þeim grein
fyrir því að þetta er kannski mun
algengara en menn gera sér grein
fyrir,“ segir Gísli.
„Þetta er svið sem var vanrækt
jafnvel af vísindamönnum þangað
til ég byrjaði að rannsaka þetta. Ég
fékk tækifæri sem var einstakt, og
frá árinu 1980 hef ég unnið að
stærstu og helstu sakamálum í
Bretlandi," segir Gísli og veit ekki
hvort áhuga- eða þekkingarleysi
hafi verið um að kenna.
„Ég held að fólk hafi bara ekki
trúað því að þetta ætti sér stað í
eins miklum mæli og fram hefur
komið."
Saklausir morðingjar
Myndbandið, sem fyrr er nefnt, er
um vitnisburð Gísla í máli sem
hefur verið nefnt „The Tottenham
Three". í október árið 1985 voru
miklar óeirðir í norðurhluta
Lundúnaborgar. Mörg hús brunnu
og bílar voru skemmdir.
„í þessum óeirðum meiddust
margir lögreglumenn og einn var
myrtur á hroðalegan hátt að við-
stöddum fjölda manns," segir
Gísli.
í kjölferið fór fram ein stærsta
lögreglurannsókn sem hefur verið
framkvæmd á Bretlandseyjum, að
sögn Gísla. Hann bætir við að það
hafi torveldað rannsóknina að
vitni hefðu reist eins konar þagn-
armúr um atburðinn.
Það kom samt ekki í veg fyrir að
369 manns væru handteknir og 71
þeirra ákærðir fyrir alvarleg brot
eins og uppþot. Lögreglan taldi sig
þrengja jafnframt hringinn í
kringum meinta morðingja lög-
reglumannsins og voru sex úr
hópnum ákærðir fyrir morðið, að
sögn Gísla.
„Þrír þeirra voru dæmdir fyrir
þetta morð, en hinum, sem voru
unglingar, var sleppt,“ segir Gísli.
Það var svo árið 1988 að Gísli hóf
afskipti af málinu. „Þessir þrír sak-
felldu héldu þá enn fram sakleysi
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra við nýjan leikskóla við Starhaga er
laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. maí nk.
Fóstrumenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson framkvæmda-
stjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir deildarstjóri í síma
27277.
Dagvist bama
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Iþróttahús Kennarahá-
skóla íslands
Tilboð óskast I viögerð á þaki iþróttahúss Kennaraháskóla Islands. Um
er að ræða endumýjun á þakjámi, pappa og tilheyrandi.
Verktlmi ertil 17. ágúst 1993.
Útboðsgögn veröa seld á skrifstofu vom, Borgartúni 7, 105 Reykjavlk, til
og meö þriöjudeginum 11. mal gegn skilagjaldi kr. 6.225,- m/vsk.
Tilboö verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar rlkisins, Borgartúni
7, föstudaginn 14. mal 1993 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK