Tíminn - 24.04.1993, Page 7
Laugardagur 24. apríl 1993
Tíminn 7
sínu, en þó höfðu tveir þeirra játað
á sig glæpinn," segir Gísli.
Þið bara sannið
þetta á mig
Það er saga í kringum játningu
annars sakbomingsins. „Það lá
fyrir skýrsla lögreglumanns um
játninguna, sem benti til þess að
sakborningurinn hefði óbeint ját-
að á sig ódæðið," segir Gísli og
vitnar til skýrslunnar, en þar var
m.a. þessi setning höfð eftir sak-
borningnum: „Þið bara sannið
þetta á mig. Ég veit að það þorir
enginn að kjafta frá.“
Að sögn Gísla kom svo seinna í
ljós að lögreglumaðurinn hafði
falsað þessa játningu.
„Þegar ég kom inn í málið, beindi
ég sjónum mínum í fyrstu að ein-
um þessara dæmdu þremenninga,
sem var dæmdur þó að hann hefði
ekki játað. Játningin fólst í því að
hann hafði verið á vettvangi og
hefði hann haft tækifæri til, hefði
hann lamið lögreglumanninn. Það
var nóg til þess að hann var dæmd-
ur fyrir morð,“ segir Gísli.
Þar vísar hann til breskra réttar-
reglna. „Þegar menn em í hóp,
hefur hópurinn einn tilgang.
Drepi einn úr hópnum, em allir
hinir einnig sekir,“ bætir Gísli við.
Gísli uppgötvaði fljótlega að sál-
fræðingur og geðíæknir höfðu
gert sig seka um mistök í sam-
bandi við þennan sakboming.
„Þeir höfðu ekki skýrt frá vanda-
málum hans, sem olli því að ég
taldi framburð hans við yfirheyrsl-
ur óáreiðanlegan,“ segir Gísli, en á
þetta féllust þessir sérfræðingar.
Það kom samt fleira til. „í kjölfar
þessa var gerður sjónvarpsþáttur
um málið, sem var byggður á
gögnum frá mér,“ heldur Gísli
áfram.
Til að gera langa sögu stutta,
vom gögn um málið send til inn-
anríkisráðuneytisins, sem ákvað
að vísa málinu aftur til hæstarétt-
ar, sem síðan sýknaði sakboming-
ana. í kjölfarið fylgdi svo lögreglu-
rannsókn, sem nýlega er hafin, að
sögn Gísla.
Stjómmálamenn
virkur þrýstihópur
Er mikið um að sakborningar játi
á sig rangar sakargiftir vegna þess
að yfirheyrsla er ekki rétt fram-
kvæmd? „Þegar litið er til þess
mikla fjölda yfirheyrslna, sem
fram fer dag hvern, er aðeins lítill
hluti sem leiðir til rangra játn-
inga. Það hefúr samt sannast í
rannsóknum okkar að fyrir kemur
að menn játi á sig glæpi, sem þeir
hafa ekki framið, jafnvel í alvarleg-
um málum eins og manndráps-
málum," segir Gísli.
Þar vísar hann til eigin rann-
sókna, því fyrir utan fyrrnefnt mál
hefur Gísli látið til sín taka í
nokkmm öðrum málum þar sem
sakborningar hafa játað á sig al-
varleg brot.
Hvers vegna játa menn ranglega
alvarlegar sakargiftir?
„Það er mjög breytilegt eftir mál-
um og sjaldnast ein ástæða sem
liggur að baki. Þama fléttast sam-
an margir þættir. Einn þeirra er
t.d. sá mikli þrýstingur, sem lög-
reglan verður fýrir í stórum mál-
um um að finna þann seka,“ segir
Gísli og bendir á að oft séu stjórn-
málamenn mjög virkur þrýstihóp-
ur.
„Þegar lögreglan finnur einhvern
líklegan við slíkar aðstæður, ein-
beitir hún sér að viðkomandi. Sé
þá eitthvað, sem bendir til þess að
viðkomandi sé saklaus, er það ekki
rannsakað nógu ítarlega," segir
Gísli.
Játa vegna þvingunar
Þvingun er hugtak sem er ofar-
lega í huga Gísla og er oft undan-
fari rangra játninga. „Það, sem er
þvingun fyrir einn, þarf ekki að
vera þvingun fyrir annan,“ segir
Gísli og vísar til mismunandi mót-
stöðuafls sakbominga. „Það er
ekki alltaf að lögreglumaður telji
að um þvingun sé að ræða, þó sak-
bomingi finnist hið gagnstæða,"
heldur Gísli áfram. Hann leggur
því ríka áherslu á hugarástand
sakbomingsins. „Sé hann Ld.
hræddur um að verða beittur of-
beldi af hálfu lögreglu játi hann
ekki, þó hann hafi ekkert fyrir sér í
því, getur það leitt til játningar,"
segir Gísli.
Þá veit hann dæmi þess að sak-
bomingar telji það ekki skipta
meginmáli þó að þeir játi. „Þeir
gera sér ekki grein fyrir afleiðing-
unum og telja að þar sem þeir séu
saklausir þá sjái lögfræðingur
þeirra um málið eftir að þeir hafi
verið látnir lausir,“ segir Gísli.
Jafnframt bendir hann á þá al-
kunnu staðreynd, að þegar menn
telja sig verða fyrir þvingun reyna
þeir mikið til að losa sig undan
henni. „Þá gefa þeir hugsanlega
meira eftir en þeir ættu að gera,“
bætir Gísli við.
Hann tekur einnig fram að full-
komlega heilbrigðir einstaklingar
játi á sig rangar sakargiftir ekkert
síður en aðrir. „Þegar fólk er í erf-
iðu sálarástandi, er auðveldara að
brjóta það niður en ella,“ bætir
Gísli við.
Ekkí eins mikii hætta
hér á landi
Gísli telur meiri líkur á réttlátari
málsmeðferð hér á landi en í Bret-
landi og Bandaríkjunum, en þar
hefur hann einnig látið til sín taka.
„í svo stómm löndum er mun erf-
iðara að afla sönnunargagna og
upplýsa mál en í litlu landi. Það
gerir rannsóknina mun erfiðari og
býður heim hættu á því að verið sé
að handtaka menn og þvinga þá,“
segir Gísli.
Játning hefur einnig meira að
segja í þessum stóru löndum. í
Bretlandi er t.d. hægt að dæma
menn út frá játningum í morð-
málum. Á íslandi er bundið í lög-
um að gildi játningar þurfi að
kanna,“ segir Gísli og telur að þess
vegna séu minni líkur á röngum
játningum hér á landi.
Hann bendir samt á að það sé
ekki allt fengið þó að rannsókn á
gildi játninga sé bundin í lög. Þar
vísar hann m.a. til mála sem hafa
komið upp í Skotlandi og sumum
fylkjum Bandaríkjanna, en þar
gilda svipaðar reglur og hér á
landi. „Þar hefur þetta verið þynnt
talsvert mikið út,“ segir Gísli.
Hann nefnir dæmi þessu til skýr-
ingar, sem svipar til mála sem
hann hefur unnið við. „Maður ját-
ar á sig morð, sem sannanlega var
framið. Það nægir í sumum fylkj-
um Bandaríkjanna sem sönnunar-
gagn. Ég tel að það væri samt ekki
fullnægjandi sönnunargagn," seg-
ir Gísli og telur að það þurfi að
liggja fyrir fleiri gögn, sem sanni
morðið á morðingjann.
Þá tínir Gísli til fleiri dæmi, sem
geti reynst vafasöm á þymibraut
réttlætisins. „í Bretlandi og
Bandaríkjunum er ofi stuðst við
upplýsingar sakbornii..'s, sem
enginn vissi um nema k nn og
lögreglan. Þá er það oft notaó S1 að
staðhæfa að játning sakborninjs-
ins sé rétt Við höfum komist al
því í rannsóknum okkar að þetta
er rangt, því oft geta upplýsingar
flust á milli lögreglu og sakbom-
ings án þess að það sé augljóst,"
segir Gísli.
Hann nefnir annað dæmi af svip-
uðum toga. „Það er einhver myrt-
ur og síðan yfirheyrir lögreglan
mann, sem veitir upplýsingar um
það hvemig afbrotamaðurinn
komst inn í húsið bakdyramegin
þar sem morðið var framið. Þá er
þessi vitneskja meints morðingja
notuð til sakfellingar og spurt
hvemig hann vissi að morðinginn
hefði farið þama inn. Þarna gætu
upplýsingar hafe farið á milli lög-
reglu og sakbornings, sé ekki farið
nógu gætilega," segir Gísli og vísar
til þess að alltaf verði að athuga vel
hvaðan upplýsingamar komi.
Leiðbeiningar um
þvinganir
„Það er ekkert réttarkerfi sem er
fullkomið og rangar játningar geta
alltaf átt sér stað, jafnvel þó allt sé
gert rétt,“ segir Gísli aðspurður
um hvort slíkt gæti gerst hér á
landi.
íslenskir rannsóknarlögreglu-
menn buðu Gfsla til fundar, en
hver var boðskapur hans til þeirra?
„Ég kynnti fyrir þeim ýmislegt,
sem ég hef verið að gera í Bret-
landi í sambandi við rannsóknir
mála. Það var til þess að fá þá til að
hugsa um yfirheyrslur. Menn
breyta oftast rétt, en það er samt
nauðsynlegt að vekja menn til um-
hugsunar um það sem gæti gerst,
því rangar játningar geta átt sér
stað,“ segir Gísli.
Hann nefnir eitt dæmi um það
hversu mikilvæg kynning þessara
mála sé. „í þjálfunarbók fyrir lög-
reglu í Bandaríkjunum um yfir-
heyrslutækni er sagt að fari lög-
reglumaður eftir þvingun, sem
gerð er grein fyrir í bókinni, fái
hann aldrei fram ranga játningu
sakbornings," segir Gísli og finnst
þetta dæmi bera vott um fárán-
leika, sem þurfi að uppræta.
Gísli er frumkvöðull á sviði rann-
sókna um rangar játningar sak-
borninga. Það var ekki fyrr en í
byrjun síðasta áratugar, sem farið
var að huga að þessum málum
undir forystu hans í Bretlandi.
Það er samt vfða óplægður akur
og t.d. bendir Gísli á Bandaríkin,
sem hann segir að séu mjög
skammt á veg komin í þessum efn-
um. -HÞ
----------------------------------------------------^
UTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir til-
boðum í eftirtalin tvö verk á
Norðuríandi vestra:
1. Noröurlandsvegur—ræsi í Grjótá á Öxna-
dalsheiðl 1993
Helstu magntölur: Stálplöturæsi 21,5 metrar og
fylling og buröarlag 3.000 rúmmetrar.
Verki skal lokiö 1. júll 1993.
2. Hólavegur 1993
Lengd vegarkafla 3,4 km.
Helstu magntölur: Fyllingar 36.000 rúmmetrar,
buröartag 8.500 njmmetrar og ræsalögn 230
metrar.
Verki skal lokiö 1. ágúst 1993.
Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerö rikisins
á Sauöárkróki og I Borgartúni 5, Reykjavlk (aö-
algjaldkera) frá og meö 26. þ.m. Skila skal til-
boöum á sömu stööum fyrir kl. 14.00 þann 10.
mal 1993.
Vegamálastjóri
v____________________________________________________/
Fibertex wovens
JARÐVEGSDUKAR
TIL MARGRA HLUTA NYTSAMLEGIR
Þegar
leggja á
hellur
ÁRMÚLA 21 - 108 REYKJAVlK-SlMI 686455 - FAX 687748
NY FRIMERKI
Á mánudag koma út ný frímerki.
Fyrstadagsumslög fást á pósthúsum um land allt.
Einnig fást þau með pöntun frá Frímerkjasölunni,
PÓSTUR OG SÍMI
Pósthólf 8445, 128 Reykjavik, Simi 63 60 51
Perlan I
ÍÍSLAND