Tíminn - 24.04.1993, Qupperneq 13
Laugardagur 24. apríl 1993
Tíminn 13
Eftir gróðursetningu er mikilvægt að
ekki hlaupi kyrkingur í vöxt plantn-
anna og þarf þá einkum að gæta að
þurrki og hita, hvort heldur er loft- eða
jarðvegshita. Hæfilegt vaxtariými
plantna er um 40-50x35-45 cm.
Þegar líða tekur að uppskeru og haus-
amir íamir að sjást inni á milli blað-
anna er rétt að brjóta eitt til tvö innstu
blöðin yfir kollana þannig að þau skýli
fyrir sól. Hausamir þola illa birtu og
ekki teljandi sólskin; þeir verða þá
seigir og upplitast, verða gulleitir og
jafnvel fiólubláir. Einnig má verja
hausana þannig fyrir næturfrosti, en
frost þola þeir mjög illa. Þroskaðir
hausar þola ekki að standa lengi í garð-
inum, því þeir fara fljótlega að gisna og
undirbúa blómgun.
5. Spergilkál
Spergilkál eða brokkólí hefur átt vax-
andi vinsældum að fagna hin síðari ár.
Það er einært, náskylt blómkáli og
ræktað á svipaðan hátt. Hausar sper-
gilkálsins em, ólíkt blómkáli, lausir í
sér og blómknappamir greinilega að-
greindir. Auk þess em þeir græn- eða
grænbláleitir að lit og þarf ekki að
skýla þeim fyrir sól.
Bæði blómknappamir og blómlegg-
imir em hafðir til matar, ýmist hráir
eða soðnir. Spergilkál er bragðmeira
en blómkál og að flestra mati mjög
bragðgott og auðugt af A- og C-vítam-
ínum. Spergilkál hentar mjög vel til
frystingar.
Spergilkál er að flestu leytd harðgerð-
ara en blómkál og auðveldara í rækt-
un. Af þeim afbrigðum, sem hafa
reynst hér vel í ræktun, má td. nefha
,Skiff og .Corvet’ og af öðmm vænleg-
um afbrigðum má td. nefha ,Corona’,
,Gem’ og .Topper’, sem þurfa um 60-70
vaxtardaga, .Harvester’ er fljótsprottn-
ara og þolir að standa þéttar (30x30
cm) og .Greenia’ sem er ívið sein-
sprottnara og uppskemmeira.
Spergilkál þyrfti um 4-5 vikna for-
ræktun fyrir útplöntun. Hæfilegt
millibil á milli plantna er um 40-50 cm
x 3540 cm.
Auk aðalhauss mynda plöntumar
einnig hliðarhausa, misjafnlega marga
eftir afbrigðum, td. myndar .Greenia’
marga hliðarhausa og ,Gem’ stóran að-
alhaus. Hausana þarf að uppskera áður
en blómknappamir fara að blómstra
og er þá oft skorið 10-15 cm undir
hausnum.
6. Kínakál
Kínakál er einær jurt, sem hefur náð
mjög miklum vinsældum á síðustu ár-
um. Það myndar nokkuð þétta hausa,
sem vega oft um 0,5-1,5 kg. Blöðin og
blaðæðamar eru stökk, bragðmild og
bragðgóð og henta mjög vel í ýmis hrá-
salöt
Kínakál er langdegisjurt og blómstrar
því hér á sumrin, ef ekki eru gerðar
viðeigandi ráðstafanir til að hindra
slíkt Auk langs sólargangs hefur hiti
mikil áhrif á blómgunina. Til að hindra
blómgun er því annað hvort „spilað
inn á“ hita eða daglengd.
Þar sem upphitað gróðurhús er til
staðar, er mun fyrirhafnarminna að
spila inn á hitann. Sé hitinn a.m.k. 18-
20°C í uppeldi, eyðir hann langdegis-
áhrifúnum. Algengast er því í stór-
ræktun að halda um 20°C í uppeldi í
um 4 vikur. Þar sem upphitað gróður-
hús er ekki til staðar og ræktunin ekki
mjög umfangsmikil, má draga mjög úr
hættunni á blómgun með þvf að lengja
nóttina í 12-14 klst Þetta er auðgert
með því að breiða svart plast yfir plönt-
umar um kvöldmatarleytið og taka
það aftur af næsta morgun, endurtekið
allan uppeldistímann.
Kínakál þrífst best í ffjósömum mold-
arjarðvegi. Þar sem rótarkerfið er
grunnstætt, þolir það illa þurrk.
Aburðarþörfin er í meðallagi, en þar
sem plöntumar eru hraðvaxta og rót-
arkerfið veikbyggt, þarf næringin að
vera næg og vel aðgengileg fyrir plönt-
umar allan vaxtartímann. Gera mætti
ráð fyrir um 7-10 kg af garðáburði á
100 m2 fyrir jarðvinnslu og áburðar-
auki á vaxtartímanum ætti yfirleitt að
vera óþarfur, a.m.k. ætti að fara varlega
með mikla köfnunarefnisgjöf, því of
mikið veldur aukinni hættu á innri
rotnun í hausunum og að nítrat safnist
fyrir í blöðunum. Kínakál er viðkvæmt
fýrir bórskorti og til að fyrirbyggja bór-
skort þyrfti að gefa bór í svipuðu
magni og fyrir gulrófur, eða um 150-
250 g af bóraxi á 100 m2.
Af afbrigðum, sem hafa reynst vel hér
á landi, má td. nefna .Kasumi’, ,Hopk-
in’ og ,Nagaoka 50’.
Hæfilegt millibil á milli plantna er
um 35-40x3540 cm. Plöntumar ætti
að gróðursetja grunnt og mjög æski-
legt er að breiða plast- eða acryldúk yf-
ir plöntumar að lokinni gróðursetn-
ingu. Reikna má með uppskem 40-70
dögum eftir útplöntun. Til að eiga
ferskt kínakál sem lengst væri athug-
andi að sá oftar en einu sinni, smá
magni í senn. Uppskeru þarf að vera
lokið áður en frysta tekur að ráði að
hausti, en kínakál þolir dálítið frost
7. Hnúðkál
Hnúðkál er tvíær jurt, sem myndar á
fyrra árinu ætan stöngulhnúð og
blómstrar og myndar fræ á því síðara.
Þrátt fyrir að hnúðkál sé hraðvaxta og
auðræktað, hefur það aldrei náð mik-
illi ræktunarútbreiðslu hér á landi.
Gagnstætt öðm kálmeti, safnar plant-
an forðanæringu í stöngulinn, sem
þrútnar og myndar hnúðinn sem vex
ofanjarðar. Þegar hnúðurinn er skoð-
aður má sjá greinileg ör efdr blöð sem
þar hafa setið. Hnúðurinn er flathnött-
óttur og ýmist gulhvítur, rauðfiólublár
og grænleitur mismunandi eftir af-
brigðum.
Hnúðkál hefur milt og gott kálbragð,
sem svipar svolítið til blómkáls. Það
hentar mjög vel sem hrámeti, en einn-
ig má matreiða það á svipaðan hátt og
gulrófur. Einnig mætti djúpfrysta
hnúðana, þegar búið er að sneiða þá
niður að lokinni forsuðu. Auk hnúð-
anna má einnig nýta blöðin til matar,
einkum þau yngstu sem em meyrust,
en þau em m.a. C-vítamín- og jám-
auðug.
Hnúðkál er ein fárra grænmetisteg-
unda sem ná að skila hér uppskem, við
góð skilyrði, eftir sáningu beint í beð
utandyra. Ömggast er þó að forrækta
plöntumar inni í 5-7 vikur, á sama hátt
og annað kál. Af afbrigðum, sem hafa
gefist hér vel, má td. nefna .Express
Forcer’, ,Lanro’ og ,Blaro’.
Áburðarþörf hnúðkáls er svipuð og
hjá blómkáli. f þurrkum þyrfti að
vökva plöntumar, ella hættir hnúðun-
um til að tréna. Við gróðursetningu
þarf að gæta þess að gróðursetja ekki
það djúpt að hnúðurinn verði niðri í
moldinni. Plöntumar em tiltölulega
blaðnettar og geta því staðið nokkuð
þétt, eða með um 25x15 cm millibili.
Hnúðamir geta spmngið og hættan
þar á eykst með auknu vaxtarrými og
öðmm þeim aðstæðum sem valda
mjög hröðum vexti, svo og með ójafnri
vökvun. Hnúðana ætti að uppskera áð-
ur en þeir hafa náð fullum þroska, þvf
þá er hætta á að þeir séu byijaðir að
tréna, eða 70-80 dögum frá sáningu.
r-
Maxi Crop
þaraáburður
Þörungamjöl
Þurrkaður
hænsnaskítur
Auk þess allur
áburður í
5 og 10 kg.
umbúðum
® FRJÓhf
HEILÐVERSLUN
Fosshálsi 13-15.
Sími: 67 78 60
Fax: 67 78 63
LOTT#
Vinn ngstölur ,---—________
miðvikudaginn: 21. april 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
m eaie 1 / á íslandi 0 20.501.000,-
lÆ 5 af 6 Lín+bónus 1 404.244.-
0 Saf6 7 45.374,-
| 4 af 6 244 2.070.-
3 af 6 Cfl+bónus 10.025 211.-
Aðaltölur:
Æ|l8
23)(30)(36
BÓNUSTÖLUR
Heildarupphæð þessa viku:
21.944.217.-
á Isl.:
1.443.217,
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI91-68 15 11
LUKKULlNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
f<§) Lindab
Pakklæöningar, rennur
Og nÍÖUrfÖII. Leltiðtllbo&a!
BLIKKSMKMAN
SMtÐSHÖFÐA 9
112 REYKJAVÍK
SÍMI 685699
TÖFRARROMARBORGAR
Borgin eiliffa
►
►
►
► 7
►
► *£
►
►
►
►
Stórkostlegur möguleiki á ævintýraferð til
Rómaborgar. Flogið er til Kaupmannahafnar á
miðvikudögum og gist eina nótt á Komfort-
hótelinu rétt við Ráðhústorgið. Næsta dag verð-
ur flogið með ítalska flugfélaginu Alitalia til
Rómaborgar þar sem dvalið verður í 6 daga og
gist á hótel Genova sem er 4ra stjörnu hótel í
hjarta borgarinnar.
Róm gefst kostur á að fara í margs konar
skoðunarferðir, svo sem: dagsferðir til Napólí
og Caprí með viðkomu í Bláa hellinum. Verð á
mann 7.500 kr.
Stórkostlegar skoðunarferðir með enskumæl-
andi fararstjórum. í boði eru bæði hálfs og heils
dags ferðir: Colosseum, Vatikanið, Péturskirkjan.
Fornminjarnar og meistaraverk endurreisnar-
tímans eru alls staðar og magnþrungin listin
heillar. Verð frá 1.500 kr.
Verð: 71.500 kr. Innifalið er flug Keflavík,
Kaupmannahöfn, Róm, Kaupmannahöfn, Kefla-
vík, gisting 1 nótt í Kaupmannahöfn, 5 nætur í
Róm (miðað við mann í tveggja manna her-
bergi), morgunverður, flugvallaskattur á íslandi,
Danmörku og á italíu. Einstakt tilboð.
I^Munið ódýru Billund ferðirnar. Verð 23.900
kr. með öllum flugvallagjöldum ef bókað er fyrir
1. maí. Ferðatímabil 26. maí-25. ágúst.
Ferðaveisla sumarsins.
Ferðaskrifstofan
Alís - s. 652266
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
BESTU KAUPIN í LAMBAKJÖTI
I ofniim, grillið
pottinn eða
pönnuna, aðeins
484fe í næstu verslun