Tíminn - 14.08.1993, Page 24
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NYTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELU 13-SlMI 73655
labriel
HÖGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
Q\varahlutir
Hamarshöfða 1
V
Iíniinn
LAUGARDAGUR 14 ÁGÚST 1993
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga hyggur á landvinninga:
íslenskt kindakjöt í neytenda-
pakkningum til EB-landa
„Viö erum að athuga möguleika á að flytja út dilkakjöt í neytenda-
pakkningum til landa í Efnahagsbandalaginu enda höfum við EB-
ieyfi til að flytja út kjöt í heilum skrokkum, annað tveggja slátur-
húsa í landinu.
Við viljum leggja okkar af mörkum
til að skapa markað fyrir umsýslu-
kjöt og umframbirgðir í landinu,“
segir Pálmi Guðmundsson, kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Austur-Skaft-
fellinga. „í haust eigum við von á
fulltrúa frá EB sem ætlar að yfirfara
aðstöðu Sláturhússins og Kjöt-
vinnslunnar og gerum við okkur
vonir um að fá leyfi til útflutnings á
kindakjöti í neytendaumbúðum.
Þegar kaupandi finnst sem vill
greiða viðunandi verð er okkur ekk-
ert að vanbúnaði að hefja sölu.“
Pálmi segir að búið sé að leggja
mikið fjármagn í að bæta slátur-
húsaðstöðu kaupfélagsins og því sé
mikilvægt að nýta það.
„Við höfum nýlega sótt um styrk
úr Framleiðnisjóði landbúnaðarins
í þetta þróunarverkefni. Einnig höf-
um við kynnt málið fyrir landbún-
aðamefnd Alþingis og fleiri hags-
munaaðilum og hefur það vakið at-
hygli,“ segir Pálmi. „Áður fluttum
við út kjöt í heilum skrokkum sem
var niðurgreitt af stjórnvöldum en
nú hafa þær greiðslur lagst af. Ef
við ætlum að fá hærra verð fyrir
kindakjötið verðum við að selja það
niðurhlutað í neytendapakkning-
um.“
Bændum í héraðinu var kynnt
þróunarverkefnið á deildarfúndi
kaupfélagsins í vor og lýstu þeir al-
mennt yfir stuðningi við það. Þeir
eru jafnvel tilbúnir til að gefa
nokkra skrokka til að leggja sitt af
mörkum til verkefnisins.
-GKG.
Alþjóðleg þingmannaráðstefna um málefni Norðurheimskautssvæð-
anna í Reykjavík:
Noröurheimskautið
verður í brennidepli
Nýting náttúruauðlinda og réttur
þeirra þjóða sem búa á norðurslóð-
um til að nýta þær með skynsam-
legum hætti verður meginefni al-
þjóðlegrar þingmannaráðstefnu
sem hefst í Reykjavík í næstu viku.
Það er Norðurlandaráð sem boðar
til ráðstefnunnar og sækja hana full-
trúar þjóðþinga Norðurlanda, Kan-
ada og Rússlands auk Evrópuþings-
ins og fleiri alþjóðasamtaka en alls
sitja 60 manns ráðstefnuna.
Auk áðumefnds umræðuefnis er
ætlunin að fjalla um umhverfismál,
þróun atvinnulífs, vamarmál og um
málefni frumbyggja.
Halldór Ásgrímsson segir að hval-
veiðar sem slíkar verði ekki sérstakt
málefni ráðstefnunnar. „Inn á nýt-
ingu hvala- og selastofna verður
samt áreiðanlega komið," segir Hall-
dór.
Auk Halldórs sátu þau Eiður
Guðnason, fyrrverandi umhverfis-
ráðherra, og Kristín Á Einarsdóttir
alþingismaður fyrir svörum. í máli
þeirra kom fram gremja yfir því að
Bandaríkjamenn skyldu ekki sitja
ráðstefnuna og sagði Eiður Guðna-
son að þeir væm oft mjög þungir í
taumi í sambandi við umhverfismál.
Halldór sagði að sérstaklega hefði
verið óskað eftir nærvem þeirra.
„Einhverra hluta vegna hefúr það
ekki getað orðið í þetta skipti en ég
vænti þess að þeir muni sýna því
áhuga þegar fram líða stundir," seg-
ir Halldór en vill samt ekki leggja
neina merkingu í það hvers vegna
þeir hafi ekki getað séð sér fært að
taka þátt í ráðstefnunni.
-Hþ
KRINGLAN hélt upp á sex ára afmæli sitt í gær meðal
annars með myndlistarsýningu eftir Tolla. Hanga myndimar
uppi í göngugötu verslunarmiðstöðvarínnar. Yngsta kynslóð-
in fékk að teikna og lita og danssýning fór fram.
...ERLENDAR FRÉTTIR...
BANGKOK — Yfir 20 manns létu llfið
og hundruö slösuöust og/eöa lokuöust
inni I rústum þegar ný hótelbygging I
Tælandi hmndi til gmnna. Hóteliö sem
nefndist Royal Plaza Hotel var i Nakt-
on Ratchasima, 250 km norö- austan
viö Bangkok. Veriö var aö lagfæra þaö
þegar þaö hmndi.
SARAJEVO — Einn af herforingjum
SÞ athugar nú ásamt yfirmönnum
herja Serba hvort þeir slöamefndu
hafi dregiö herstyrk sinn á nægjanlega
sannfærandi hátt frá fjallatoppum um-
hverfis Sarajevo. Niöurstaöa athugun-
arinnar veröur ráöandi um þaö hvort
friöarviöræöur hefjast á ný.
WASHINGTON — Bandarlsk stjóm-
völd halda áfram viöræöum viö
bandamenn slna I NATO um hugsan-
legar loftárásir á Serba I Bosnlu. Þau
neita aö hemaöaraögeröir á jöröu niöri
séu I bígerö.
SÞ — Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri SÞ, segir aö undirbún-
ingur á jöröu niöri undir loftárásir á
stöövar Serba I Bosnfu sé á lokastigi
og aö þær geti þvi senn hafist, veröi
þaö nauösynlegt.
GENF — Radovan Karadic, leiötogi
Bosniuserba, neitar fullyröingu aust-
urrlskra dagblaöa um aö hann hafi
hótaö þvl aö gera kjamorkuárás á V-
Evrópu ef Vesturveldin geröu loftárásir
á sveitir hans f Bosnlu.
LONDON — Bretar em byrjaöir á aö-
geröum til aö bjarga fleiri veikum og
særöum bömum úr strlösvltinu I
Sarajevo. Irma litla fimm ára sem nú
er á sjúkrahúsi I London var á bata-
vegi f gær.
PETROZAVODSK, RUSSLANDI —
Boris Jeltsin, forseti Rússlands, sagöi
I gær leiötogum hálfsjálfstæöra rlkja I
Austurvegi aö hann teldi ekki rétt aö
þau yfirgæfu bandalagiö viö Rússland.
Rlkin ásamt Rússlandi yröu aö vera
áfram sterkt sameinaö herveldi.
WASHINGTON — Bandarikin og
Rússland hafa boöiö fulltrúum Israels,
Sýriands, Llbanons, Jórdanlu og Pal-
estlnu aö taka upp á ný friöarviöræöur
slnar I Washington I lok þessa mán-
aöar. Utanríkisráöuneyti Bandaríkj-
anna segist reiöubúiö til aö leggja mik-
iö á sig til aö mjaka viöræöunum i átt
til varanlegs árangurs, sentimetra fyrir
sentlmetra.
TUNIS — Kreppan sem skapaöist
vegna afsagnar samningamanna Pal-
estlnumanna frá vesturbakka Jórdan-
ar og Gaza-svæöinu I viöræöunum
um friö I Miö- Austuriöndum leystist
þegar Yassir Arafat fór eftir ákvöröun
æöstaráös PLO um aö taka afeögn
þeirra ekki til greina. Israelar kváöust
ekki hafa neitt viö þaö aö athuga aö
semja þannig á óbeinan hátt við PLO.
Þetta þykir benda til að Itrekaöar yfir-
lýsingar Israelsmanna um aö þeir ræöi
ekki við PLO, séu I raun oröin tóm.
DENVER — Þegar Jóhannes Páll páfi
kom til Bandaríkjanna til viöræöna viö
Clinton forseta itrekaöi hann enn af-
stööu kaþólsku kirkjunnar um bann viö
fóstureyöingum og hvatti Bandarikja-
menn til aö standa vörö um llfiö.
MOGADISHU — Bandarískar sveitir
skutu á hóp óvinveittra Sómala I Mog-
adishu og talsmenn SÞ segja aö þeir
hafi hegöaö sér rétt og skotiö yfir höf-
uö uppreisnarmannanna.
BOURNEMOUTH, ENGLANDI —
Lögregla opnaöi aftur I gær sólar-
strendumar viö Boumemouth. Þeim
var lokaö eftir fkveikjusprengjuárásir á
þrjár verslanir og sprengingu á hafnar-
garöi. Irski lýöveldisherinn er talinn
hafa staöiö fyrir þessum tilræöum.
JAKARTA — Suharto, forseti Ind-
óneslu, hefur stytt ævilangan fangels-
isdóm yfir skæruliöaforingjanum
Xanana Gusman frá Austur Timor niö-
ur i 20 ár. Mannréttindasamtök for-
dæmdu réttarhöldin yfir Gusman á
sinum tlma og sögöu þau skopleg.
Gusman var leiötogi Fretilin skæruliöa
sem berjast gegn yfirráöum Indóneslu
I þessari fyrrverandi nýlendu Pcrtú-
gala.
DENNI DÆMALAUSI
\j-\
»Hér er tíkall. Hann er greiðsla fyrir bakvakt sem þú tekur
heima hjáþér."