Tíminn - 06.08.1994, Qupperneq 10
10
&£--1-
Laugardagur 6. ágúst 1994
/ Tansaníu hefur
stjórnarfar veriö meö
mannúölegasta móti
afAfríkuríki aö vera,
en miöstýrt efna-
hagskerfi hennar
misheppnaöist herfi-
lega
Margra mál er að svo-
kölluð þróunaraðstoð
við þriðja heiminn
hafi ekki náö tilætluðum ár-
angri og munu sumir telja það
vægt að orði kveöið. Austur-Afr-
íkuríkið Tansanía er gjarnan
nefnt sem dæmi um það.
Fyrir rúmum þremur áratugum
varð landsvæöi þetta sjálfstætt
ríki og hefur síðan fengið sem
svarar um 1000 milljörðum ísl.
króna í þróunarhjálp. Samt fer
því fjarri að það geti séð fyrir
sjálfu sér. Næstum helmingur
þess fjár, sem varið er þar til
þróunar og atvinnureksturs, er
gjafafé frá útlöndum.
Bœndur hœttu ab framleiba nema handa sjálfum sér.
Hrun Ujamaa
Vinsæll landsfaðir
Tansanía átti áratugum saman
fremur auðvelt með að verða sér
úti um hjálp ab utan, því að
hún hafði álit á sér með besta
móti. Julius Nyerere, fyrsti for-
seti landsins og landsfaðir þar
lengi, naut mikilla vinsælda
heimafyrir og kom Vesturlanda-
mönnum fyrir sjónir sem upp-
lýstur, mannúðlegur og fram-
sýnn leiðtogi. Hann foröaðist
að ánetjast hvort heldur var
vestur- eða austurblökk kalda
stríðsins, varð þó vinsæll í þeim
báðum og fékk eftir því abstob
frá báðum. Alþjóöabankinn,
Norburlönd, Sovétríkin og Kína
kepptust um við að hjálpa hon-
um til að gera Tansaníu ab afr-
ísku fyrirmyndarríki.
Stefna Nyereres var ab endur-
skipuleggja land sitt á grund-
velli einskonar sósíalisma, sem
hann kallaði Ujamaa. Eins og
algengt er um Afríkumenn
töldu Tansanar sér trú um, að
fyrir komu hvíta mannsins
hefbi Afríka sunnan Sahara ver-
ið vandamálafátt velferðarsam-
félag þar sem ríkt hefbi einskon-
ar sósíalismi eða samvinnu-
stefna. Þegar Tansanar tækju
upp Ujamaa væru þeir því ekki
ab flytja inn hugmyndir, heldur
ab hverfa aftur til síns upphaf-
lega fyrirmyndarástands.
Þetta var að sumu leyti klókt
hjá Nyerere. Sovétblökk og Kín-
verjar létu sér vel líka, því ab
þeim sýndist að hér væri verib
að koma upp sósíalisma í lík-
ingu við þeirra eigin. Vestur-
blökk var einnig nokkuð
ánægð, því ab Nyerere kallaði
fyrirætlanir sínar ekki sósíal-
isma. Og jafnaðarmenn Norb-
urlanda, ekki síst samvinnu-
menn meðal þeirra, urbu hvað
hrifnastir allra, því að þeir sáu
ekki betur en ab Nyerere væri
því sem næst einn af þeim. Á
skandinavískum blöðum varð
stundum ekki betur séð en að í
Ujamaa fælist að gervallri
Tansaníu væri breytt í eitt stórt
samvinnusamband.
Nauðungarflutningar
Nú kallar Poul Grosen, fram-
kvæmdastjóri danskrar hjálpar-
stofnunar, Ujamaa „eitt það
skelfilegasta, sem í því landi
hefur gerst". Liður í því var að
árib 1977 áttu sér stað einhverj-
ir stórfelldustu naubungarflutn-
ingar á fólki, sem vitað er um í
Afríkusögu. Um 14 milljónir
sveitafólks voru fluttar í sérstök
Ujamaa-þorp. Var þessi gagn-
gera endurskipulagning á byggð
í landinu framkvæmd með það
fyrir augum að almenningur
hefði betri aðgang að vatni,
læknishjálp og skólakerfi.
Mikill samdráttur í matvæla-
framleibslu varb afleibing þess-
arar umbyltingar, en önnur
þungvæg ástæða til þess var að
stjórnin hélt með tilskipunum
verblagi á landbúnabarafurðum
niðri, til ab tryggja borgarbúum
lágt verð á nauðsynjum. Hið
sama gerbu mörg önnur Afríku-
ríki og afleiðingar þess uröu víð-
asthvar þær sömu, þ.á m. í
Tansaníu: ab bændur hættu ab
framleiða matvæli nema rétt til
eigin nota. Snemma á níunda
áratugnum var svo komib ab
mestallur sá matur, er borgarbú-
ar í Tansaníu neyttu, var fluttur
inn fyrir erlent gjafafé.
„Hvað sem um Nyerere má
segja, slær enginn honum vib
sem betlara," hafði skandina-
vískur blaðamaður þá eftir
heimildarmanni í Dar es-Sala-
am, höfuöborg Tansaníu.
Mikil miðstýring var í efna-
hagslífi landsins og stjórnin
einbeitti fjárfestingum að því að
koma á þungaiðnaði. Áður-
nefndur Grosen segir ab á bak
við það hafi verið kreddutrú
sovéskrar ættar á þá leib, ab ef
þungaiðnaður kæmist upp,
myndu aðrar atvinnugreinar
sjálfkrafa hefjast upp á eftir. En
í margar framkvæmdir var ráö-
ist af lítilli fyrirhyggju, mörg
nýstofnuö fyrirtæki stóðu ekki
undir sér og þá þurfti meiri er-
lenda hjálp til að halda þeim í
gangi.
Vöntun á hreinskilni
Erlendir hjálparaðilar — ríkis-
stjórnir, alþjóðastofnanir, aðrar
stofnanir og einstaklingar —
hafa varla komist hjá því að sjá
að ekki var allt með felldu meb
efnahagsmál Tansaníu, en
fundu ekki ab við stjórnvöld
þar, a.m.k. ekki opinberlega. í
skýrslú frá Alþjóðabankanum
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
segir, að ein helsta ástæðan til
þess hafi veriö að þessir aðilar
hafi ógjarnan viljab tala hrein-
skilnislega við stjórnina um
mistök hennar. í grein í dönsku
blaði um þetta segir að hjálpar-
stofnanir víða í Afríku eigi enn
við þetta „vandamál" að stríða.
Nú hefur Tansanía ákveðið að
skipta um stefnu í efnahagsmál-
um og hefur til þess fulltingi og
stuðning Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Hvernig það gengur á eftir að
sjást.
Þótt illa hafi gengiö í Tansaníu
í efnahagsmálum, er hún enn í
allgóðu áliti af Afríkuríki að
vera. Á mælikvaröa þeirrar álfu
hefur veriö lítið þar um harð-
stjórn og ofbeldi. Landsmenn
skiptast samkvæmt einni heim-
ild skandinavískri í 122
„stammer" (þjóðir, þjóðflokka,
ættbálka), en samlyndið þeirra
á meðal hefur verið heldur gott.
í skóla- og heilbrigbismálum
urbu þar snemma á sjálfstæöis-
tímanum miklar framfarir, en
að vísu kvað grunnskólakerfið
nú komib í hraba hnignun
vegna fjárskorts. Snemma á ní-
unda áratugnum birtist í fjöl-
miblum samanburður á Bangla-
desh og Tansaníu, sem þá voru í
skýrslum talin álíka fátæk og
meöal fátækustu landa heims.
Þar var sagt að 75% íbúa
Bangladesh væru vannærðir, en
næringarskortur hverfandi í
Tansaníu.
Rúandamenn hafa undanfarið
flúið í hundruðþúsundatali til
Tansaníu, en þarlendum stjórn-
völdum og öðrum aðilum hefur
tekist allvel að ráða fram úr
þeim vanda, miðað við aðstæð-
ur. Það er annað en í Saír, þar
sem saman fer harbstjórn og
óstjórn, sem hvortveggja er í
meira lagi miðað við það sem
gerist í heiminum í dag. ■
Sumarferð framsóknar-
manna í Reykjavík
FJallabaksleið syðri
Sumarferð framsóknarmanna I Reykjavlk verður farin laugardaginn 13. ágúst.
Farið verður I gegnum Fljótshllðina, Fjallabaksleið syðri og I gegnum Skaftár-
tungu.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins I slma 624480.