Tíminn - 13.08.1994, Qupperneq 6

Tíminn - 13.08.1994, Qupperneq 6
6 'UuKJhMM'AlliMr Laugardagur 13. ágúst 1994 FLUGMÁLASTJÓRN Námskeið í flugumferðarstjórn Námskeið í flugumferðarstjórn verður haldið næsta vetur. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og stendur grunnnámskeiðið frá því í október 1994 fram í maí 1995. Umsóknarfrestur er til 1. sept. n.k., en stöðupróf í íslensku, ensku, stærðfræði og eðlisfræði verða haldin í september. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20-30 ára, hafa lokið stúdentsprófi, tala skýrt mál, hafa gott vald á enskri tungu og standast tilskildar heilbrigðiskröfur. Umsóknareyðublöó liggja frammi hjá Flugmála- stjórn á annarri hæð flugturnsbyggingarinnar á Reykjavíkurflugvelli og á skrifstofu flugvallarstjóra, Leifsstöö, Keflavíkurflugvelli, einnig á umdæmis- skrifstofum Flugmálastjórnar á Akureyri, ísafirði, Egilsstöðum og í flugturninum í Vestmannaeyjum. Umsóknum ber að skila fyrir 1. september 1994, ásamt staðfestu afriti af stúdentsprófi og sakavott- orði. Kynningarfundur fyrir umsækjendur veröur haldinn í skóla Flugmálastjórnar mánudaginn 22. ágúst kl. 20.00. ÚTBOÐ F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið: „Nesjavaliaheimreið — klæðning" Verkið felst í að endurbæta og leggja efra burðarlag og klæðningu á um 800 m kafla af Nesjavallaheimreið á Nesjavöllum. Einnig skal koma fyrir Ijósastólpum og ganga frá veglýsingu ásamt lagningu rafstrengja með- fram vegarkaflanum. Helstu magntölur eru: Neðra burðarlag 2.000 m3 Efra burðarlag 500 m3 Tvöföld klæðning 5.000 m2 Ljósastólpar 22 stk. Verkinu skal lokið 1. nóvember 1994. Útboðsgögn verða afhent, á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.ooo,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 24. ágúst 1994, ki. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR (REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 FORVAL F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir verktökum til að taka þátt í forvali vegna lokaðs út- boðs á byggingu þjónustusels eldri borgara að Þorra- götu 3. Um er að ræða byggingu einnar hæðar þjónustusels að um 385 m2, brúttó. Helstu magntölur eru: Mótasmíði Steypa Steypustyrktarstál Utanhússklæðning úr áli Þakfletir með pappa og einangrun Forvalsgögn liggja frammi á skrifstofu vorri. Lysthafendur skili forvalsgögnum til Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, í síðasta lagi fimmtu- daginn 18. ágúst 1994 fyrir kl. 16.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR (REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800 1.680 m2 265 m3 15,7 tonn 260 m2 340 m2 Páll Pétursson, alþm.: Sameining félagshyggjufólks Félagshyggjufólki á íslandi eru boðuö heilmikil fagnaðartíðindi þessa dagana. Það hefur eignast áberandi sameiningartákn, þau Jóhönnú Sigurðardóttur og Olaf Ragnar Grímsson. Þau hafa farib mikinn í fjölmiðlum undanfarið og sameinab og sameinað. Nýjasta sameiningaraðgerðin var aö kaupa Skáís til að gera skoðanakönnun í Reykjavík sem síban hefur verið túlkuð á lands- vísu. Stofnaður var ímyndabur stjórnmálaflokkur Jóhönnu og Óíafs, Kvennalistanum stolið eins og hann lagbi sig og lagbur undir þau, að Kvennalistanum forspurðum. Fólk var spurt um fylgi við hinn nýja flokk. Reykvíkingum gebj- aðist vel að hugmyndinni og svörin gáfu til kynna að hér væri rísandi stjarna sem skákaði Sjálf- stæðismönnum. Vantar nú bara herslumuninn að þau séu komin í Stjórnarrábið. Rausnarlegt heimbob. Ólafur Ragnar hefur af lítillæti sínu bobið Framsóknarmönnum að slást í hópinn og brugöist ókvæða við þegar Framsóknar- menn hafa hikað við ab þiggja þetta kostaboð. Við Framsóknarmenn megum raunar þakka fyrir ab okkur skyldi ekki vera stolið eins og Kvennalistanum. Að vísu virbist svo sem nokkuð af kjósendum, er í síbustu alþingiskosningum studdu Framsóknarflokkinn í Reykjavík, hafi heillast af hug- myndinni. í síðustu alþingis- kosningum fékk Framsóknar- flokkurinn 10.1% atkvæða í Reykjavík, en í skoöanakönnun Skáíss einungis 7.7%. Flokkur meb hlutverk Framsóknarflokkurinn er ekki orðinn til fyrir tilviljun. Þar hef- ur skipað sér saman fólk meb svipaðar lífsskoðanir og áþekkt gildismat. Við höfum mótaða stefnu í þjóömálum og henni ber okkur, sem valist höfum til for- ystu, að framfylgja. Nú er þab ekki á okkar valdi í framkvæmdastjórn Framsóknar- Páll Pétursson flokksins að ákveða þab ab leggja flokkinn niður. Það yrði að ákveðast á flokksþingi og sam- eiginlegt framboð á landsvísu yrbi ab samþykkjast á öllum kjördæmisþingum. Sigurganga Reykjarvíkurlistans Sameiginlegt framboð félags- hyggjuflokkanna í sveitarstjórn- arkosningunum í Reykjavík tókst vel. Reykjavíkurlistinn, sem skip- aður var fulltrúum tilnefndum af félagshyggjuflokkunum, sigraði Sjálfstæbisflokkinn og hefur far- ið vel af stað vib stjórn borgar- innar. Þetta er þó ekki sambærilegt við sameiginlegt framboð til Alþing- is. Málefni þau sem fulltrúar fé- lagshyggjuflokkanna þurfa að koma sér saman um við stjórn sveitarfélags eru miklu færri og einfaldari heldur en málefni sem þarf ab taka afstöðu til við land- stjórnina. Borgarstjórn Reykjavíkur þarf ekki að taka afstöðu til Evrópu- samrunans, Nató, veiðileyfa- gjalds, hömlulauss innflutnings landbúnabarvara eða byggða- stefnu svo fátt eitt sé nefnt af því sem stjórnmálaflokkur þarf að gera upp. Dirigentar sameiningar Sameiningartáknin, Jóhanna Sigurðardóttir og Ólafur Ragnar Grímsson, eru e.t.v. líkleg til að endurskapa flokkakerfi á Islandi. Ólafur Ragnar hefur af mikilli óeigingirni unnið að því að reikna saman félagshyggjumenn á íslandi um tvo áratugi. Hann hefur verið í forustusveit þriggja stjórnmálaflokka á þessu tímabili og hefur þó ekki lokiö sínu göf- uga verkefni. Jafnvel örlar stund- um á að hann hafi ekki komið á varanlegum fribi í núverandi flokki sínum. Jóhanna Sigurðar- dóttir hefur setið í ríkisstjórn Davíbs Oddssonar þar til fyrir nokkrum vikum og m.a. stjórnað vinnumarkaðsmálum. Ekki hef- ur verib mikill félagshyggjublær á verkum þeirrar ríkisstjórnar né ástand á vinnumarkaði verið með sérstökum velferðarsvip. Jóhanna Sigurbardóttir ber ábyrgb á öllum verkum ríkis- stjórnar Davíðs Oddssonar, ásamt öðrum rábherrum, allan þann tíma er hún átti þar sæti. Þar var því miöur félagshyggjan ekki alltaf höfð að leiðarljósi. Traustari sameining Vel má vera að æskilegt sé að koma á tveggja flokka kerfi á ís- landi þar sem félagshyggjumenn skipuðu annan flokkinn en frjálshyggjumenn hinn. Þetta þarfnast þó ennþá vandaðri und- irbúnings en verið hefur hjá þeim Ólafi Ragnari og Jóhönnu. í sjálfu sér er göfugt markmið að berjast gegn Sjálfstæbisflokknum en hitt er þó miklu meira um vert fyrir hverju er barist. Ef stuðla á að sameiningu fé- lagshyggjufólks í einum stjórn- málaflokki væri eblilegast að það gerðist með þeim hætti að félags- hyggjuflokkar tækju saman höndum við stjórn landsins að kosningum loknum. Ef sú ríkis- stjórn sem þannig væri mynduð reyndist starfhæf og samhent þá kæmi e.t.v. til greina að fara fram í kosningum undir einu merki í framhaldi af vel heppnubu stjórnarsamstarfi þar sem allir þátttökuflokkar hefðu fundið sig heima. Framsóknarflokkurinn er ekki hættur störfum. Athugasemd frá Halli Magnússyni: Stefnir á 3. sætiö Mig tekur það sárt að svo vand- aður fjölmiöill sem Tíminn skuli hafa ummæli mín rangt eftir í frétt um framboðsmál Framsókn- arflokksins í Reykjavík. í frétt Tímans segir að ég stefni ákveðið á 2. sæti listans. Mér er kunnugt um að ummæli mín voru tekin upp á segulband, en þau vom færb í fréttastíl svo ekki færi milli mála um hvað væri að ræða. Um- mæli mín voru orðrétt þessi: „Hallur Magnússon fyrrverandi varaborgarfulltrúi og blabamaður segist stefna ákveðið á 3. sætib, en hefur ekki tekib afstöðu til þrýstings yngra fólks í flokknum sem vill sjá fulltrúa yngri kyn- slóðarinnar í 2. sæti fyrir alþingis- kosningar, eftir rýran hlut á R- listanum." Ég vænti þess að mistök Tímans verði leiðrétt í blaðinu á morgun og vil af því tilefni taka fram ab í þau 10 ár sem ég hef starfað í Framsóknarflokknum hef ég bar- ist fyrir jafnrétti kynjanna og ver- ið talsmaður þess ab konur skipi annað tveggja efstu sæta fram- boðslista floldcsins, svo fremi sem hæfar konur fáist til frambobs. Þó ég hafi ekki strax vísað á bug áskorunum um að keppa um 2. sæti listans, þá tel ég enn ab hæf kona eigi að skipa það sæti. Ég tel einnig að unga kynslóðin í flokknum, sem óneitanlega varð útundan á R- listanum, geti verið vel sæmd af 3. sæti á framboðs- lista Framsóknarflokksins til Al- þingiskosninga. Slíkt myndi styrkja Framsóknarflokkinn. Ég tók þá ákvörðun að bjóða mig fram í þaö sæti eftir að hópur yngra fólks hafði hvatt mig til þess og reyndara fólk innan flokksins lýst yfir stuðningi við þær hugmyndir. Þessi hópur hef- ur einnig bent mér á aö í ljósi 10 ára virks starfs innan flokksins og í tengslum við borgarstjóm, fjöl- breytilegrar menntunar og mikill- ar reynslu miðað viö aldur, þá standi ég jafnfætis aðilum þeim sem verið hafa í umræðunni sem mögulegir frambjóbendur í efstu sætin og eru 7-15 árum eldri. Því mun ég ótrauður stefna á 3. sæti framboðslista Framsóknarflokks- ins í Reykjavík. Með vinsemd og virðingu Hallur Magnússon

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.