Tíminn - 13.08.1994, Page 15
Laugardagur 13. ágúst 1994
15
Helga Steindórsdóttir
Fitjum
Helga Steindórsdóttir fæddist á
Mælifelli í Lýtingsstaöahreppi í
Skagafirði, 21. júlí 1918. Hún
lést á Sjúkrahúsi Sauðárkróks 1.
ágúst s.l. Foreldrar hennar voru
hjónin Margrét Helga Magnús-
dóttir og Steindór Kristján Sijg-
fússon, bóndi á Mælifelli og síð-
an í Hamarsgerði í Lýtingsstaða-
hreppi. Faðir Helgu dó þegar
hún var þriggja ára að aldri.
Móðir Helgu giftist síðar Sigur-
jóni Helgasyni frá Ánastöðum í
Svartárdal og gekk hann Helgu í
föðurstað ásamt bróður hennar
Sigfúsi, sem var tveggja mánaða
gamall er faðir þeirra lést. Helga
ólst upp í Hamarsgerði til ellefu
ára aldurs, flutti þá í Árnes í Lýt-
ingsstaðahreppi með móður
sinni og stjúpa og síðar í Nauta-
bú í sömu sveit. Bræður Helgu
eru Sigfús, búsettur á Sauðár-
króki og Indriði, býr á Hvíteyr-
um. Helga var á Húsmæðraskól-
anum að staðarfelli 1937-38.
Flutti til Siglufjarðar 1941 og
giftist þar Sigurði Einarssyni vél-
stjóra, f. 12.04.1906, d.
27.11.1968, frá Steinavöllum í
Flókadal. Þau hófu búskap á
Siglufirði þar sem þau bjuggu í
fimm og hálft ár, fluttu þá í
Nautabú í Lýtingsstaðahreppi
þar sem þau áttu heima í tvö ár
meðan verið var að byggja upp
nýbýlið Fitjar í sömu sveit. A
Fitjum var stundaöur hefð-
bundinn búskapur, en einnig
rak Helga barnaheimili þar í ald-
arfjórðung. Síðustu árin rak hún
þar ferðaþjónustu bænda, eða
allt þar til hún lést. Helga og
Sigurður eignuðust sjö börn:
Steindór, búsettur í Njarðvík,
kvæntur Kristínu Guðmunds-
dóttur, eiga þau fjögur börn og
tvö barnabörn; Margrét Sigur-
jóna, búsett á Sauðárkróki, gift
Eiríki Sigurðssyni, eiga þau tvo
syni og þrjú barnabörn; Anna,
búsett í Njarðvík, gift Herði
Karlssyni, eiga þau fjórar dætur
og tvö barnabörn, auk þess sem
Anna átti eina dóttur fyrir sem
alin var upp hjá Helgu á Fitjum;
Heiða, búsett á Sauðárkróki, gift
Rúnari Gíslasyni, eiga þau tvö
t MINNING
börn og eitt barnabarn; Sigurð-
ur, býr í Héraðsdal I, Skagafirði,
kvæntur Auði Sveinsdóttur, eiga
þau þrjú börn; Sigmundur Ein-
ar, býr í Héraðsdal II, Skagafirði,
kvæntur Ölmu Stefánsdóttur,
eiga þau fjögur börn; Ástríður
Helga, búsett í Keflavík, hún á
tvö börn. Útför Helgu fer fram
frá Mælifellskirkju I dag.
Nú þegar vinkona mín og
tengdamóðir hefur fengið lausn
frá jarðvistinni og er gengin til
æðri tilveru og til þess Guðs sem
hún ætíð heiðraði á sinn sér-
staka hátt langar mig til að
minnast hennar með nokkrum
fátæklegum orðum, því þótt orð
mín geti aldrei orðið annað en
skuggi verðskuldaðrar minning-
ar um þá kjarkmiklu, þraut-
seigu, eljusömu og auðugu
konu sem tengdamóðir mín
var, þá má ég til, því ég, og
börnin mín og barnabörnin eig-
um henni svo mikið aö þakka.
Þó erum við aðeins örsmár hluti
þess stóra hóps barna sem eiga
henni svo mikið að þakka, því
hve mörg eru ekki orðin börnin
sem hún ól önn fyrir um lengri
eða skemmri tíma á Fitjum? Og
í því fólst kjarninn í auðæfum
hennar, því þótt sárafátæk væri
að veraldlegum efnum þá var
auður hennar mikill, og af hon-
um jós hún af slíkri mildi og
slíkri hlýju að þeim fjölmörgu
sem áttu þeirrar gæfu að njóta
að koma á heimilið að Fitjum til
styttri eða lengri dvalar varð
hún sem móðir.
Ég var 19. ára þegar ég kom
fyrst að Fitjum með tilvonandi
eiginmanni mínum. Það átti
ekki fyrir okkur að liggja að setj-
ast að í hinum fallegu sveitum
Skagafjarðar, þótt hugur minn
stefndi til þess, en ég varð þó
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að
dveljast þar um hríð og mörgum
sinnum síðar. Helga tók mér sem
einu af börnum sínum og vorum
við mjög samrýmdar. Hún bjó
ekki í þá daga við mikil efni, en
börnin voru mörg og þá verkin
sem vinna þurfti, úti sem inni á
heimilinu, en Sigurður húsbóndi
þurfti að dvelja langdvölum við
störf í öðrum landshluta. Ekki
hef ég kynnst duglegri konu en
Helgu. Hún gekk í öll þau störf
sem vinna þurfti og féll aldrei
verk úr hendi. Börnin voru
hennar yndi, og ab þeim hlúbi
hún og helgaði alla starfskrafta
sína. Hún var góð við málleys-
ingjana og hugsaði vel um
skepnurnar sínar. Ekki bar hún
trú sína á torg, en þegar eina kýr-
in í fjósinu veiktist, þá bað hún
Gub um að taka ekki mjólkina
frá börnunum, en bíða meb að
taka kúna þar til hún mætti bet-
ur við því. Þegar síban svo bar
við síöar ab tvær kýr dóu á Fitj-
um, þá varb henni á ab segja að
nú hefði heimilið mátt betur við
því. Þannig var trú hennar.
Helga var vel gefin kona,
greind og víðlesin. Hún las allt
sem hún komst yfir bæði af
óbundnu máli og ljóðum. Þá lét
henni vel að setja saman ljóð
sjálfri þótt ekki færi hátt, en
umfram allt fann hún lífsfyll-
ingu í því að ala önn fyrir öðr-
um. Jafnframt því að undirbúa
sín eigin börn fyrir lífið rak hún
heimili fyrir börn að Fitjum og
gekk þannig í móburstað og
kom til manns fjölmörgum
börnum, einkum ef þau höfðu
átt bágt á einhvern hátt.
Þegar síðan um hægðist og ald-
urinn fór að færast yfir hana, þá
opnaði hún heimili sitt fyrir
gestum og gangandi sem dvelja
vildu næturlangt eða svo í sveit-
inni í Skagafirði með því að
opna gistiheimili ab Fitjum, því
þannig gat hún fundið farveg
sinni einstöku gestrisni og
væntumþykju.
Orð mín í minningu Helgu eru
aðeins veikur ómur þess sem ég
segja vildi, því orð segja svo lít-
ið, en ég bið og ég veit ab sá óm-
ur mun berast þangað sem orð
eru óþörf.
Kristín Guðmundsdóttir
DAGBÓK
r\n^nj\j\j\j\j\ju\J\J\JVJ
225. dagur ársins -140 dagar eftir.
32. vlka
Sólris kl. 5.11
sólarlag kl. 21.48
Dagurinn styttist
um'6 mínutur
Brids í Risinu
Bridskeppni, tvímenningur kl.
13 og félagsvist kl. 14 sunnudag
í Risinu. Dansað kl. 20 til 23.30
sunnudagskvöld í Risinu, Hverf-
isgötu 105.
Lögfræðingurinn er til viðtals
fyrir félagsmenn á fimmtudag,
panta þarf tíma í s. 28812.
Taflmót hjá Helli
Taflfélagið Hellir heldur mán-
aðarmót mánudaginn 15. ágúst
n.k. kl. 20. Tefldar eru 7 umferb-
ir eftir Monradkerfi, 10 mín-
útna skákir. Þátttökugjöld eru
kr. 300 fyrir félagsmenn en kr.
400 fyrir aðra. 60% þátttöku-
gjalda er í verðlaun. Teflt er í
Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi og er mótið opið öllum.
Vetrardagskrá félagsins mun
hefjast mánudaginn 5. septem-
ber n.k. og veröur kynnt betur
síðar.
Orgeltónleikar í
Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 14. ágúst er kom-
ið að sjöundu tónleikunum í
orgeltónleikaröbinni Sumar-
kvöld vib orgelið í Hallgríms-
kirkju. Að þessu sinni leikur
þýski organistinn Hannfried
Lucke verk eftir Olivier messia-
en, Nicolas de Grigny, Johann
Sebastian Bach, Wolfgang Ama-
deus Mozart og Charles-Marie
Widor. Þetta er í þriðja skiptið
sem Hannifried Lucke kemur
hingað til lands. Hann kom
fram á sumartónleikunum í
Hallgrímskirkju á síðasta ári auk
þess sem hann lék á tónleikum
með Mótettukór Hallgríms-
kirkju í nóvember á síbasta ári
og á tónleikaferð hans um Mið-
Evrópu í júní síðastliðnum. Þá
hefur komið út geisladiskur þar
sem hann leikur á Klais-orgel
Hallgrímskirkju
Hannfried Lucke fæddist 1964.
Frá 1990 hefur hann verið dó-
sent við tónlistarskólann Rhein-
bergerhaus í Liechtenstein.
Hann er mjög virkur konsert-
organisti og hefur komib fram á
tónleikum, sem einleikari og
með minni hópum víða um
Evrópu, í Bandaríkjunum, Aust-
ur-Asíu og í Ástralíu.
Af skáldkonum íslands
Þann 16. ágúst nk. kl. 20.30
verður dagskrá í Norræna hús-
inu í umsjá Þóreyjar Sigþórs-
dóttur leikkonu. Þar flytur hún
einleikinn „Skilaboð til
Dimmu" eða „Meddelande till
Dimma" eftir Elísabetu Jökuls-
dóttur í þýðingu Ylvu Hellerud.
Hún flutti verkið á Nordisk
Forum í Finnlandi fyrr í mán-
uðinum.
Einnig verða flutt ljób eftir
Elísabetu, Lindu Vilhjálms-
dóttur, Kristínu Ómarsdóttur og
Gerði Kristnýju á nýstárlegan
hátt í samvinnu við Kristínu
Bogadóttur ljósmyndara.
Ylva Hellerud með aðstoð
Gunnars Randverssonar og Inge
Knutsson þýddu.
Dagskráin verður á íslensku og
sænsku og hefst kl. 20.30.
Allir eru hjartanlega velkomnir
og aðgangur er ókeypis.
Indverska barnahjálpin
Að gefnu tilefni vill Indverska
barnahjálpin koma því á fram-
færi að reikningsnúmer nefnd-
arinnar er 72700 í Búnabar-
bankanum við Hlemm.
Fréttir í vikulok
Haustkosningar úr sögunni
Líkur hafa minnkað verulega á haustkosningum eftir að Dav-
íð Oddsson kallaði formenn flokkanna á sinn fund í vikunni
og greindi þeim frá stöðunni. Alþýðuflokkurinn vildi ekki
ganga til kosninga og því mun rikisstjórnin að öllum líkindum
sitja til næsta vors er kosið verður í apríl. Enn er ekki hægt að
útiloka sameiginlegt framboð einhverra af vinstri flokkunum.
Norðmenn kæröu Hágang ekki fyrir
fiskveiöibrot
Norbmenn gerðu Útgerð Hágangs II að leggja fram 2,2 millj-
óna kr. tryggingafé vegna meintrar skotárásar á dögunum við
Svalbarba en ekki verður kært fyrir fiskveibibrot. Réttarstaba
Norðmanna virðist því óljós á svæðinu við Svalbarða og kann
þessi niðurstaða að verða til þess að útgerðarmenn sendi skip
sín í auknum mæli til veiða á svæðinu. Réttab veröur í máli
stýrimannsins í byrjun næsta mánaðar. Sjávarútvegsráðherra,
Þorsteinn Pálsson, hefur verib gagnrýndur fyrir ab kynna sér
ekki málavöxtu áður en hann gaf í skyn að réttlætanlegt væri
ab Norðmenn skutu á Hágang II. en göt komu á skipið eftir
fallbyssukúlur Norðmanna.
Umdeild ráöning
Jakob Frímann Magnússon hefur verið skipaður forstöðumað-
ur íslenska sendiráðsins í Lundúnum og hefur ráðning hans
vakið miklar deilur. Helgi Ágússtsson sendiherra hefur verið
kallaður heim um næstu áramót. Hannes Ágústsson, fyrrver-
andi sendiherra, segir að þegar sendiherra sé kallaður heim og
sendifulltrúi skipaður í hans stað sé það yfirleitt gert til að mót-
mæla ofbeldi eba yfirgangi og aðgerðin samræmist því ekki
diplómatískum venjurétti. Jón Baldvin Hannibalsson utanríks-
ráðherra segir engin rök hníga að því ab óeðlilega hafi verið að
málum staðið.
Bygging íþróttahallar fyrir HM úr
sögunni?
Stórlega hefur dregið úr líkum á því að sænska fyrirtækið
Electrolux muni byggja fjölnota íþróttahús í Laugardal sem
nýst gæti íslendingum fyrir HM í handbolta 1994. Tilbobib
hljóðaði upp á kaupleigu til tíu ára og átta prósenta vexti en
borgarráð hefur hafnab þeim skilmálum og telur bæði atriðin
óaðgengileg.
Sala kindakjöts heldur sínum hlut
Verbstríð og undirboð á svína- og nautakjöti hefur valdið auk-
inni kjötneyslu landans um 2% en samt hefur kindakjöts-
neysla íslendinga ekki minnkað. Kindakjöt er stærsti hluti
neyslunnar og seldust 7660 tonn á einu ári en heildarkjötsala
er rúmlega 16 þúsund tonn.
Norömenn loka á íslendinga
Norðmenn hafa gefið út nýja reglugerð um veiðar á Sval-
barðasvæðinu og samkvæmt henni er íslendingum einum
þjóða bannað að stunda þar fiskveiðar. í reglugerðinni eru
strangari viðurlög við landhelgisbrotum en ábur og víðtækari
heimildir fyrir norsku strandgæsluna að grípa til aögerða. Út-
gerðarmenn beina því til íslenskra stjórnvalda að þau taki á
málinu með festu og bregðist hart við.
Lyfjalögin illa unnin
Apótekarafélag íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem
fram kemur ab nýju lyfjalögin umdeildu, séu illa unnin og aö
mörgu leyti afleit. Félagið kýs frekari viðræður og samstarf við
stjórnvöld en frábiður sér ritdeilur.
Noröurlandamót í keppni íslenskra
hesta
Norðurlandamótið í keppni íslenskra hesta hófst í vikunni og
hefur árangur íslensku keppendanna verið mjög góður. Jafnvel
er búist við sigri íslands á mótinu.