Tíminn - 18.10.1994, Blaðsíða 3
Þri&judagur 18. október 1994
3
Framlag stjórnvalda til neytendastarfs á öörum Noröurlöndum þrefalt til fjórfalt meira en ís-
lenskra. Neytendasamtökin:
Erfið fjárhagsstaöa heimila
kemur niður á starfseminni
Félagsmönnum í Neytenda-
samtökunum fækkabi um
3,6% á sl. tveimur árum, eba
úr 22.808 í 21.994. Á árunum
1992 og 1993 voru samtökin
rekin meb þriggja milljóna
króna halla. Meb fækkun
starfsfólks og öbrum abhalds-
abgerbum er þó stefnt ab því
ab hægt verbi ab greiba upp
þennan fjárhagshalla á yfir-
standandi reikningsári.
Þetta kom m.a. fram í skýrslu
stjórnar samtakanna sem lögb
var fram á nýafstöbnum abal-
fundi þeirra. Þar kemur einnig
fram ab helsta ástæban fyrir
fækkun félagsmanna og tap-
rekstrar sé vegna erfibrar fjár-
hagsstöbu heimilanna. Þótt ab-
eins 30% heimila landsins sjái
ástæðu til að vera félagsmenn í
þeim 15 abildarfélögum Neyt-
endasamtakanna, þá séu sam-
tökin engu að síður þau fjöl-
mennustu í heimi sé miðað við
fjölda landsmanna.
Þótt íslensk stjórnvöld hafi lýst
yfir vilja sínum til aukinnar
neytendaverndar í kjölfar skuld-
bindinga EES-samningsins, þá
virðast þau stefna í þveröfuga
átt sé tekið mið af fjárhagsleg-
um stuðningi stjórnvalda við
þennan málaflokk.
Til dæmis er framlag stjórn-
valda til neytendastarfs á öðrum
Norðurlöndum þrefalt til fjór-
falt hærra en framlag íslenskra
stjórnvalda. Framlag finnskra
stjórnvalda á hvern íbúa er t.d.
135 krónur, 132 krónur í Dan-
mörku og 95 krónur í Svíþjóð.
Framlag íslenskra stjórnvalda til
Neytendasamtakanna og áætl-
aður kostnaður vegna Neyt-
endamáladeildar Samkeppnis-
stofnunar er tæpar 40 krónur.
Þar af fá Neytendasamtökin
13,50 krónur.
í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn-
ar er m.a. gert ráð fyrir að fram-
lag ríkisins til Neytendasamtak-
anna verði lækkað um 200 þús-
und krónur, eða úr 3 milljónum
í 2,8 milljónir.
Minnt er á að samtökin sóttu
um 17,1 milljónar króna fjár-
veitingu vegna yfirstandandi
árs, en fengu aðeins 4,5 milljón-
ir króna og þar af aukafjárveit-
ingu upp á 1,5 milljónir. Þessi
afstaða ríkisins þykir gagnrýnis-
verð og þá sérstaklega vegna
þess að Neytendasamtökin reka
ýmsa þá þjónustu sem stjórn-
völd yrðu ella að sinna, s.s.
kvörtunar- og leiðbeiningar-
þjónustu.
Æfing í ab
klippa nið-
ur bílflök
Slökkvilið Brunavarna Árnes-
sýslu efndi síðastiðinn laugar-
dag til æfingar við að ná mön-
um úr bílflökum. Slökkviliðið
hefur yfir að ráða öflugum
klippum sem hægt er að nota til
að klippa í sundur bílflök og er
stundum kölluð til slíkra starfa
þegar slys verða. Lögregla tók
þátt í æfingunni og sýndi m.a
hvernig búa skal um slasaða, en
hún annast sjúkraflutninga og
slysaþjónustu í sýslunni.
SBS, Selfossi
Krati geröur
aö formanni
Sjúkrahússins
í Eyjum
Frá Þorsteini Cunnarssyni, fréttaritara
Tímans í Vestmannaeyjum.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra skipaði í ágúst
sl. samflokksmann sinn, Sól-
veigu Adolfsdóttur, formann
sjúkrahússtjórnar Vestmanna-
eyja. Sjálf segist hún hafa verið
beðin um að taka formennsk-
una að sér og hún hefði ekki
viljað skorast undan frekar en
fyrri daginn þegar hún telur sig
geta gert gagn.
Málefni sjúkrahússins í Eyjum
hafa verið mjög í sviðsljósinu á
árinu vegna hæstaréttardóms
sem féll hjúkrunarfræðingum í
hag og hafði í för með sér út-
gjöld fyrir sjúkrahúsið upp á 35
til 40 milljónir. Aðeins er búið
að greiða hluta upphæðarinnar.
Fyrir skömmu samþykkti stjórn-
in að framlengja bakvaktir
starfsfólks út októbermánuð en
fjárlög sjúkrahússins hafa ekki
dugað til að halda þeim úti og
gekkst bæjarsjóöur í þriggja
mánaöa ábyrgð fyrir bakvökt-
unum í sumar. „Stjórn sjúkra-
hússins á ótrúlega mikið verk
fyrir höndum og ég ætla rétt að
vona að það eigi ekki að fara að
blása upp moldviðri út af skip-
un minni. Þetta hefur alltaf ver-
ið svona hjá öllum flokkum.
Við róum að því öllum árum að
tryggja öryggi bæjarbúa en við
erum að kljást við uppsafnaðan
vanda undanfarinna ára en sl.
fjögur ár var framsóknarmaður
formaður sjúkrahússtjórnar.
Við fundum nánast daglega til
að taka á vandamálum sjúkra-
hússins og stjórnin er mjög
samstillt í sínu starfi. Og um-
fram allt þurfum vib góban frið
til þess að vinna okkar starf,"
sagði Sólveig í samtali við Tím-
ann.
Kampakátur kanslari — Helmut Kohl hefur ástœöu til aö hlceja dátt. Hann á möguleika á aö slá met
Konrads Adenauer sem sat á valdastóli í 14 ár. Ef Kohl situr út kjörtímabilib sem var aö hefjast hefur hann veriö kansl-
ari lengur en nokkur annar Þjóöverji frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hann tók viö embœtti eftir aö lýst hafbi
veríb vantrausti á stjórn Helmuts Schmits áríb 1983.
Klaus Kinkel, utanríkisráöherra og formaöur Frjálsra demókrata, getur hcett aö halda fyrir nefiö. Hann getur varpaö
öndinni léttar eftir aö flokkur hans komst yfir fímm prósenta þröskuldinn og þar meö inn á þing.
Rudolf Scharping, leiötogi sósíaldemókrata, veröur áfram í stjórnarandstööu en lítiö vantaöi upp á aö hann fengi
tœkifcerí á stjórnarsetu. Scharping þótti ekki spennandi kanslaraefni og vinsœldir hans fóru minnkandi eftirþví sem á
kosningabaráttuna leiö. Ekki þykir ósennilegt aö sósíaldemókratar finni annaö kanslaraefni fyrir nœstu kosningar.
Mannleg mistök ollu því oð Ólafur Hannibalsson flutti pistil á Rás eitt á laugardag:
Reglurnar voru
hertar daginn áöur
Á fundi Útvarpsrábs sl. föstu-
dag voru ítrekabar reglur sem
takmarkaða þátttöku fram-
bjóbenda í prófkjöri í dagskrá
Ríkisútvarpsins. Elfa Björk
Gunnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri útvarpsins, segir mannleg
mistök hafa valdib því ab Ólaf-
ur Hannibalsson flutti pistil á
Rás eitt daginn eftir, sama dag
og hann tók þátt í prófkjöri
Sjálfstæbisflokksins á Vest-
fjörbum.
Reglur sem takmarka þátttöku
frambjóðenda í dagskrá RÚV
voru fyrst samþykktar í tíb Mark-
úsar Arnar Antonssonar sem út-
varpsstjóra. í reglunum segir ab
forðast eigi að leiða frambjóö-
endur fram í dagskrá RÚV eftir ab
frambobsfrestur rennur út og þar
til kosningar eru um garð gengn-
ar nema sterk rök mæli meb því
ab viðkomandi komi fram, eða
til hans sé vitnaö vegna sérstakra
atvika. Sömu reglur gilda um
frambjóbendur í prófkjöri eða
forvali um skipan sæta í fram-
bobi.
Á fundi Útvarpsráös á föstudag
vakti Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir athygli á ab þessum regl-
um væri ekki framfylgt. „Ég benti
á að mér þætti ekki farið að þess-
um reglum þar sem þátttakendur
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
gætu jafnvel veriö umsjónar-
menn þátta stuttu fýrir próflcjör,"
segir Ásta Ragnheiður og vísar
þar í þátt um Vatnsveitu Reykja-
víkur í umsjón Markúsar Arnar
Antonssonar sem var á dagskrá
Sjónvarpsins í síðustu viku.
í framhaldi af þessum umræð-
um voru samþykktar breytingar á
reglunum, einkum til að ítreka
að þær gildi einnig um þátttak-
endur í prófkjöri. Daginn eftir
flutti Ólafur Hannibalsson pólit-
ískan pistil á Rás eitt en sama dag
tók hann þátt í prófkjöri Sjálf-
stæöisflokksins á Vestfjörðum.
Elfa Björk Gunnarsdóttir segir ab
mannleg mistök hafi valdið því.
„Það uppgötvabist ekki fyrr en of
seint að þessi pistill var inni í
þætti á Rás eitt. Aubvitað getur
Ólafur Hannibalsson ekki frekar
en aðrir frambjóbendur verib
með pistla í dagskránni. Þetta
voru því miður aðeins mannlegu
mistök." Pétur Guöfinnsson,
framkvæmdastjóri Sjónvarps,
segir að þátturinn um Vatnsveitu
Reykjavíkur hafi verið settur á
dagskrá áður en vitað var að
Markús Örn tæki þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
„Ég hef ekki hugleitt hvort það
brjóti þessar reglur að frambjóð-
andi sé umsjónarmaður og þulur
þáttar sem fjallar um allt annað
en stjórnmál. Það má vera að það
hafi verib mistök að sýna þennan
þátt núna en ég lít alls ekki á það
sem alvarleg mistök."
Ásta Ragnheiður segir að hún
hafi vissar efasemdir um reglur
sem þessar. „Ég hef samþykkt
þessar reglur vegna þess að það er
vilji fyrir því innan RÚV að hafa
slíkar reglur. Það hefur aftur á
móti sýnt sig á undanförnum
vikum að þaö er erfitt að fara eft-
ir þeim. Auðvitað reyna menn ab
komast að í dagskránni fyrir próf-
kjör og kosningar en starfsmenn
Ríkisútvarpsins ættu ab að gæta
þess að slíkt sé ekki misnotað."
Alnœmisátak:
Samkeppni um
nafn og slagorð
Efnt hefur veriö til samkeppni
um nafn og slagorb átaks í
fræðslu um alnæmi og varnir
gegn kynsjúkdómum. Sam-
keppnin er öllum opin og ber ab
skila tillögum fyrir 1. nóvember
nk. Fræðsluátakið hefst í lok
nóvember. Að því standa
íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur og Alnæmissam-
tökin á íslandi. Aðalmarkhópur
átaksins eru unglingar í grunn-
skóla og vettvangur þess eru fé-
lagsmiðstöðvarnar í Reykjavík.
Þeim sem vilja taka þátt í sam-
keppninni er bent á að þema al-
þjóðlega alnæmisdagsins í ár er
Alnæmi og fjölskyldan. Einnig
yrði það í anda átaksins ab nafn
og slagorö yrðu meb jákvæðum
formerkjum og vektu athygli á
alnæmi og naubsyn aðgæslu í
kynlífi. Nafnib verður aö vera
stutt og grípandi og slagorbin
helst ekki lengra en ein setning.
Hugmyndum má skila í hug-
myndakassa félagsmiðstöðva
eða senda í Hitt húsið Brautar-
holti 20, til Alnæmissamtak-
anna á Islandi Hverfisgötu 69
eða The Body Shop Laugavegi
51 og í Kringlunni.
Verðlaun í hvorum flokki eru
10 þúsund króna úttekt í The
Body Shop en aörar góðar hug-
myndir fá sérstakar viðurkenn-
ingar. ■