Tíminn - 18.10.1994, Blaðsíða 10
Þri&judagur 18. október 1994
10
Ekki eru allir sammála um hvernig standa skuli aö vali í yngri landsliö íslands í knattspyrnu:
Landsbyggðarpólitík ræbur
vali í yngri landslibin
segja þeir Lárus Grétarsson, Halldór og Sigurbur Þórir Þorsteinssynir, unglingaþjálfarar hjá Fjölni og Fylki
Unglingaþjálfararnir í knattspyrnu: Halldór Þorsteinsson (lengst til vinstri), Siguröur Þórir Þorsteinsson og Lárus
Grétarsson segja stefnu KSÍ ívali á yngstu landsliöum íslands vera gagnrýnisveröa. Tímamynd cs
„Hæfileikamótun KSÍ hefur
verið í gangi í nokkurn tíma
og stefnan með henni er ab
byggja upp sterk landslið í
framtíðinni. KSÍ á skilið hrós
fyrir ab koma þessum hóp á
laggirnar, en ekkert er svo gott
að það sé gallalaust. Það, sem
við erum ósáttir með, er
hvernig stabiö er að vali í
þennan hóp," segja þeir Lárus
Grétarsson, yfirþjálfari yngri
flokka Fjölnis, og bræðurnir
Sigurbur Þórir og Halldór Þor-
steinssynir, sem þjálfa yngri
flokka Fylkis. Slakur árangur
yngri landsliða íslands á þessu
ári hefur hreyft aðeins vib
mönnum, og segja þeir félagar
að nokkur tengsl séu að finna
á milli þess hvernig haldið er á
unglingamálum hjá KSÍ og ár-
angursins.
Molar...
... Eyjólfur Sverrisson og
félagar í Besiktas komust í
efsta sæti í tyrknesku knatt-
spyrnunni eftir 2-0 útisigur
á Petrolofisi. Eyjólfur sagbi
vib Tímann ab þó hann
hefbi ekki skorab, þá væri
hann ánægbur meb sína
frammistöbu f leiknum.
Miklar kröfur eru gerbar til
leikmanna Besiktas og kem-
ur ekkert annab til greina en
meistaratitill.
... Besiktas leikur á heima-
velli vib franska libib Aux-
erre í Evrópukeppninni á
fimmtudag og bjóst Eyjólfur
vib mjög erfibum leik. Hann
hefur aidrei fyrr leikib gegn
frönsku libi ábur.
... Þórbur Gubjónsson var
besti mabur vallarins þegar
lib hans Bochum gerbi 2-2
jafntefli vib 1860 Múnchen
í þýsku 1. deildinni um
helgina. Ekki tókst honum
þó ab skora.
... Þorvaldur Örlygsson og
félagar í Stoke gerbu 1-1
jafntefli vib Millwall í ensku
1. deildinni. Ekki gerbi Þor-
valdur mark.
... Ólafur Jóhannesson
þjálfar FH- inga á komandi
tímabili í knattspyrnu, en
hann þjálfabi libib á árunum
1988-1991. Abeins ÍBK á nú
eftir ab rába þjálfara í 1.
deild.
... Þórhallur Víklngsson
leikur meb Fram á næsta
» ári. Hann hefur verib und-
anfarin ár í herbúbum FH-
inga, en þar ábur var hann
hjá Fram.
... Padova vann stórlib AC
Milan 2-0 óvænt f ítalska
boltanum á sunnudag og
gerbi Bandaríkjamaburinn
Alexi Lalas annab markib.
... Bodö/Glimt, lib Kristjáns
Jónssonar og Antonys Karls
Gregory, slapp vib fall úr úr-
valsdeildinni í Noregi eftir
1 -1 jafntefli vib Sogndal.
Landsbyggöar-
pólitík ræöur
vali í hæfileika-
mótunina
„Öll félög á landinu fá einn
leikmann í þennan hæfileika-
mótunarhóp KSÍ og eru þeir
aþir sendir í úrtakshóp á Laug-
arvatn. Þessi aðferð stillir okk-
ur þjálfurunum upp vib vegg.
Við þurfum að gera upp á milli
stráka sem enginn munur var
á. Sum félög höfðu jafnvel úr
6-7 framúrskarandi leikmönn-
um ab velja, sem hefðu allir
sómab sér vel í þessum hópi. Á
móti kemur svo að lið ein-
hverstaðar á landinu er frekar
slakt og enginn leikmaður
þess er framúrskarandi, en
vegna þessarar landsbyggðar-
stefnu þá verður að gjöra svo
vel að senda einn úr liðinu.
Það sjá allir að svona fyrir-
komulag gengur ekki. Hins
vegar má ekki gleyma að það
er alltaf gott ab auka áhugann
á knattspyrnunni á lands-
byggðinni, en þab má ekki
koma niður á vali í landslið
eða úrvalshóp. Vib erum þeirr-
ar skobunar ab ef eitthvert lið
er afburðagott, þá á ekki að
hegna því heldur verblauna
þab. Ef þaö eru 11 frábærir ein-
staklingar í einu liði, þá á að
velja þá alla. Kvótakerfi innan
knattspyrnuhreyfingarinnar
gengur aldrei upp. Menn virð-
ast ekki alltaf velja þá bestu,
vegna hræðslu um að verða
gagnrýndir. Þessi lausn, að
velja einn úr hverju libi, gerir
KSI auðvelt fyrir, en kostar
okkur þjálfarana hjá félagslið-
unum mikil átök, sem geta
haft þær afleiðingar að leik-
menn leiti annað til þess ab
eiga möguleika á að komast í
úrvalslið, eins og dæmi eru til
um.
Spaugilega hliðin á þessu
máli er sú ab þegar ábyrgðinni
er varpaö svona yfir á þjálfar-
ana um að velja leikmenn, þá
reyna þeir náttúrlega að velja
besta manninn, en það getur
farið svo að það séu t.d. aðeins
markmenn og sóknarmenn
sem veljast, en varnar- og
miðjumenn gleymast! Það er
sem sagt lítil sem engin stjórn-
un á þessu."
Úrtakshópa
um allt land
og svo velja í
lokahóp
„Okkar hugmynd er sú ab
vera meb úrtakshópa um allt
land og fleiri en einn leikmað-
ur úr hverju félagi kæmist í
þann hóp. Fylgst væri með æf-
ingum og leikjum á svæðinu
og drengjalandsliðsþjálfarar
og trúnaðarmaður svæðfsms
væru í mjög nánu samstarfi.
Þjálfarar drengjalandslibsins
ferðuðust ab sjálfsögðu um
landib til ab fylgjast með leik-
mönnum. Því næst væru vald-
ir leikmenn úr þessum hóp-
um, sem myndu svo samein-
ast á Laugarvatni. Ef svo kæmi
þar fram að bestu leikmenn-
irnir kæmu úr einum lands-
hluta, þá ætti ekki að hika vib
að velja þá alla. Þessi aðferð
kæmi ekkert verr út fyrir liðin
úti á landi, því þau lið væru
búin að fá sína hæfileikamót-
un í sínu heimahéraði. Þeir hjá
KSÍ myndu sjálfsagt segja að
þetta kostabi alltof mikla pen-
inga og tíminn, sem færi í
þetta, væri of mikill, en það á
ekki að fórna góbum leik-
mönnum fyrir nokkrar krón-
ur."
Ekki fylgst nægi-
lega vel meö leik-
mönnum
„Við viljum sjá þá, sem hafa
með val í U16 ára landsliöið
að gera og koma ab skoða leik-
mennina, gefa sér meiri tíma.
Þab er ekki nóg að þe;r komi
einn og einn hálfleik eða jafn-
vel síðustu tíu mínúturnar í
einhverjum leik til að mynda
sér skoöun á leikmönnum.
Það er alltof lítiö. Með þessu
týnum við mörgum góðum
strákum einfaldlega vegna
þess ab þab er farið í valið í
alltof miklum flýti. Það á líka
að hafa samband vib félögin
og fylgjast með æfingum hjá
þeim. KSÍ þarf að gefa sér
lengri tíma, ef markmibib er
að byggja upp landslib frá
gmnni. Árangur yngri lands-
liðanna í ár í Evrópukeppn-
inni er alls ekki góður og næg-
ir ab skoba tölfræði síðustu ára
í því sambandi. Árangurinn er
að hluta afleibing þess hvernig
haldið er á málunum hjá KSI
og þó þar sé margt gott, þá eru
þau talsvert frá því að vera í
fullkomnu lagi."
Of mikiö lagt á
heröar Ásgeirs og
Gústafs
„Ásgeir Elíasson er fær þjálfari
og hentar A-landsliðinu vel að
okkar mati, og Gústaf Björns-
son er mjög góbur með hon-
um með 21 árs liðið. En það er
ekki veriö að gera þeim neinn
greiöa meb því að láta þá einn-
ig sjá um 16 ára landsliðið og
hópinn í hæfileikamótuninni.
Þarna er verið að leggja mfklar
byrbar á Ásgeir og Gústaf, sem
KSÍ segir þó ab þeir hafi nógan
tíma fyrir. Þeir eiga að geta
einbeitt sér að A-landsliðinu
og ekki vanþörf á því núna,
miðað vib síðasta leik. Það á
bara að vera sérvalinn maður,
eða menn, sem hafa umsjón
með 14-16 ára hópunum og
Ásgeir og Gústaf geta komiö
sem gestir inn í það dæmi."
KSÍ hálfgert
„hvíldarhelmili''
„Margir innan stjórnar KSÍ eru
ágætismenn, en aðrir eru
orðnir mjög þreyttir. Stundum
er talað um KSÍ sem hálfgert
„hvíldarheimili" fyrir þá sem
lengi eru búnir að vera í stjórn
annarra félaga. Þab er margt til
í því, en í raun er kominn tími
á að yngri menn fái þarna að-
gang meö ferskar hugmyndir,
því það verbur ab segjast eins
og er að margar hugmyndir
þessara „þreyttu" manna eru
orðnar ansi úreltar í dag, bæði
hvað snertir þjálfun og annað.
Það hlýtur að vera stefna KSÍ
í unglingamálum ab finna
góða og efnilega stráka, sama
úr hvaða félagi þeir koma, sem
geta haldið merki íslands hátt
á lofti, en ekki að strákar úr
liðum stjórnarmanna komi
fyrst fram. Stóru félögin ráða
mestu innan KSÍ og það er
engin spurning ab það
skemmir ekki fyrir þeim félög-
um, þegar valið er í landslib-
in."
KSÍ veröur aö
bregöast viö
samkeppninni
„Það er mikill uppgangur í
körfuknattleik, sem er að
skjótast fram úr fótboltanum.
Okkur finnst KSÍ ekki taka
nægilega á þeirri samkeppni
sem er um krakkana í íþrótt-
um. Við erum að missa krakka
úr knattspyrnunni yfir í körfu-
bolta einfaldlega vegna þess
ab það er betur staðið að mál-
um hjá Körfuknattleikssam-
bandinu, sem er með t.d.
götukörfuboltakeppni til að
reyna að auka áhuga yngri
kynslóðarinnar. Það mætti al-
veg eins búa til mót á vegum
KSI, sem væri á svipuöum nót-
um þar sem keppt væri þrír á
þrjá, eða fjóra á fjóra, á litlum
velli og þá strax væri búið að
bregðast við samkeppninni.
Einnig hafa verið uppi hug-
myndir um að setja á Iaggirnar
skallatenniskeppni. Þessar
hugmyndir hafa lítib sem ekk-
ert verib ræddar vib okkur
yngriflokkaþjálfarana og í
raun vantar svolítið upp á að
tengslin milli KSÍ og þjálfar-
anna séu nægilega góð. Það er
stundum eins og KSÍ fylgist
ekki nægilega með." ■