Tíminn - 25.03.1995, Page 19
Laugardagur 25. mars 1995
yiwtwo
19
Æskunnar örvandi hönd
„Ef æskan vill rétta þér örvandi
hönd, þá ertu á framtíbarvegi,"
sagöi skáldið. Og sama veröur
meö sanni sagt um starf Ingvars
Jónassonar, stofnanda og
stjórnanda Sinfóníuhljómsveit-
ar áhugamanna, sem nú hefur
starfað meö brattstígum hætti í
fimm ár. Hljómsveitina stofn-
aöi Ingvar áriö 1990, og lengst
af síðan hefur hún haldiö
a.m.k. tvenna tónleika á vetri
hverjum. Sunnudaginn 12.
mars hélt hún aðra tónleika
þessa vetrar í Fella- og Hóla-
kirkju undir stjórn Ingvars
sjálfs, og tókst á viö umfangs-
mesta og erfiðasta verkefni fer-
ils síns — 8. sinfóníu Dvoráks.
Auk þess frumflutti hún ís-
lenskt verk, eftir Jónas Tómas-
son, og hærra getur engin ís-
lensk hljómsveit risiö — erfitt
verk og íslenskt verk — nema
meö því aö spila ennþá betur,
sem sjálfsagt er alltaf hægt.
Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna skipa, eins og nafnið
bendir til, spilarar sem ekki hafa
hljóðfæraleik aö atvinnu — fólk
sem læröi á hljóöfæri í árdaga,
en starfar að ööru, uppgjafa-
hljóöfæraleikarar, nemendur í
tónlistarskólum, svo dæmi séu
nefnd — fólk sem hefur gaman
af því aö spila. „Amateur" heitir
þaö á útlensku og merkir alls
ekki aö um vonda spilara sé aö
ræöa — aðeins aö þeir hafi gam-
an af því aö spila.
Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna hefur iðulega meö sér
einleikara eða einsöngvara á
tónleikum, og jafnan af besta og
virtasta taginu. Hinn 12. mars
lék sjálfur Gunnar Kvaran ein-
leik meö hljómsveitinni í tveim-
ur verkum, konsert eftir Vivaldi
og nýju stykki eftir Jónas Tóm-
asson: „Melodia & Consegu-
enza" fyrir selló og strengjasveit.
Um Vivaldi- konsertinn er þaö
aö segja, aö Svíi nokkur, Holger
Hallenberg aö nafni, bjó hann
til úr fimmtu knéfiðlusónötu Vi-
valdis og samdi þar með allan
„sekantinn", nefnilega fiðlu-
raddirnar, inn í konsertinn, en
Vivaldi hafði ekki skrifað annað
en bassahljóma fyrir sembal-
röddina í sónötunni. Meö því aö
þetta er hiö fallegasta verk, eins
og flest eða allt eftir Vivaldi, og
Gunnar Kvaran manna líkleg-
astur til að hefja knéfiðlupart-
inn til flugs, tókst þetta nokkuð
vel, en þó virtist framlag Hallen-
bergs nokkuö fyrirferöarmikið
með köflum og drekkjandi fyrir
knéfiöluna.
TÓNLIST
SIGURÐUR STEINÞÓRSSON
Tónleikaskrá rekur sögu
„Melodia & Conseguenza" Jón-
asar Tómassonar þannig: „Áriö
1979 samdi Jónas einleiksverkið
„Melódíu" fyrir frænda sinn
Ingvar Jónasson víóluleikara.
Gunnar Kvaran heyröi verkið
fyrir tilviljun í útvarpinu fyrir 2
árum, og hreifst svo af því aö
hann baö tónskáldið að umrita
það fyrir knéfiðlu. Jónas varö
viö þeirri beiðni síðastliöiö sum-
ar, en svo var flug hans mikiö
viö þaö starf að hann gat ekki
stöðvað sig og samdi í beinu
framhaldi „Conseguenza" fyrir
selló og strengjasveit." Og þann-
ig frumfluttu Gunnar Kvaran og
Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna þetta verk.
Eins og flest ný íslensk tón-
verk er „Melodia & Consegu-
enza" hægferöugt og innhverft
— naflaskoðun listamanns sem
nálgast nirvana. Gunnar flutti
þetta af mikilli kunnáttu og inn-
lifun eins og hans var von og
vísa, og strengjasveit Sinfóníu-
hljómsveitar áhugamanna
sýndi með ótvíræðum hætti
hvers hún er megnug.
Síðust á efnisskrá var 8. sin-
fónía Dvoráks, hálftíma verk
fullt af tíöindum og tilfinning-
um. Meginþunginn hvílir ab
sjálfsögðu á strengjunum — líkt
og þaö er striginn í málverkinu
sem ber uppi kúnstina — og þeir
eru furöulega góðir í þessari
hljómsveit. Meira áberandi væri
þó vond spilamennska eöa mis-
tök einstakra blásara, og einnig
þar stóöst hljómsveitin prófiö
meö glæsibrag — ég nefni fína
flautu, djarfan einleik trompeta
og ótrúlegt öryggi hinna hljóm-
miklu horna. (Og svo mætti
lengi telja, því Sinfóníuhljóm-
sveit áhugamanna státar af ýms-
um sterkum sólistum, t.d. [á
þessum tónleikum] óbói, klarin-
ettu og fagott).
Á fimm ára ferli sínum hefur
Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna tekist á viö merkisverk
eins og þrjár fyrstu sinfóníur Be-
ethovens og Ofullgerðu sinfón-
íu Schuberts, forleiki eftir Moz-
art og sinfóníur eftir Haydn.
Hvort hljómsveitin skiptir
mikiu máli í lífi „þiggjandi tón-
listarunnenda" á höfuðborgar-
svæöinu skal ósagt látið, en hitt
er pottþétt aö fyrir „gefandi tón-
listarunnendur" (amatöra) er
hún himnasending hin mesta.
Og taki menn mark á Paul Hind-
emith, þá skiptir þetta starf Ing-
vars Jónassonar og Sinfóníu-
hljómsveitar áhugamanna
miklu meira máli (þjóðfélags-
lega séð) en allt þaö fínerí, sem
okkur er boðiö uppá á geisla-
diskum og tónleikum frægöar-
manna — „do it yourself" eða
„sjálfs er höndin hollust" er það
sem máli skiptir, sagöi það
kunnáttufulla tónskáld og upp-
eldisfrömuður.
DAGBÓK
Lauqardaqur
mars
84. daqur ársins - 281 dagur eftir.
12. vlka
Sólris kl. 7.12
sólarlag kl. 19.57
Dagurinn lengist um
7 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Allra síöasta syning a leikritinu
Reimleikar í Risinu kl. 16 í dag, í Ris-
inu, Hverfisgötu 105.
Sunnudagur: Sveitarkeppni í
brids kl. 13 og félagsvist kl. 14 í Ris-
inu. Dansab í Goðheimum kl. 20.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Árshátíð Félags eldri borgara í
Kópavogi er í dag. Eldri borgarar frá
Akranesi verða gestir. Hátíbin hefst
meb borbhaldi kl. 18.30. Fjölbreytt
dagskrá og dans.
Hana-nú, Kópavogl
Kleinukvöld verbur í Gjábakka á
mánudagskvöldib kl. 20. Arngrímur
og Ingibjörg spila fyrir dansi.
Félag um 18. aldar fræbi:
Málþing í Þjóbarbók-
hlöbunni
Félag um átjándu aldar fræði boö-
ar til málþings um frásagnarbók-
menntir átjándu aldar í dag, laugar-
dag, í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal
á 2. hæð. Hefst málþingib kl. 14.
Erindi flytja:
Eiríkur Guðmundsson: „Því nú
skaltu deyja. Um mót rómönsu og
skáldsögu í verkum Jóns Oddssonar
Hjaltalín". Steinunn Inga Óttars-
dóttir: „Af íslenskum Gúllíver og
Ódysseifi. Um Reisubók Eiríks
Björnssonar og Ferbasögu Árna
Magnússonar frá Geitastekk". Stein-
unn Haraldsdóttir: „Skáldsagan —
Tímaspursmál? Um tímavitund í
frásagnarbókmenntum upplýsing-
artímans". Þröstur Helgason: „Til-
urð höfundarins. Efling sjálfsver-
unnar á 18. og 19. öld í ljósi ís-
lenskrar skáldskaparfræði".
Öllum er heimill aðgangur.
Sinfónían á ferb um
Subvesturland
Sinfóníuhljómsveit íslands held-
ur um helgina og í næstu viku tón-
leika í Kópavogi, Grindavík, á Akra-
nesi, Selfossi og í Keflavík, þar sem
leikið er fyrir bæjarfélögin á Suður-
nesjum.
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari.
Einleikari og kynnir: Jónas Ingi-
mundarson. Kórar á vibkomandi
stöðum taka þátt í tónleikunum,
einsöngvari meb kór Fjölbrauta-
skóla Suðurlands er Kristjana Stef-
ánsdóttir.
Á efnisskrá eru verk eftir Dvorak,
Smetana, Britten, Liszt, Franck,
Rodgers og Hammerstein, Jón Ás-
geirsson, Atla H. Sveinsson og Skúla
Halldórsson.
Tónleikarnir verða sem hér segir:
Kópavogur laugardag 25. mars kl.
14 — íþróttahúsinu Smára. Selfoss
mánudag 27. mars kl. 20 — íþrótta-
hús Sólvallaskóla. Akranes þriðju-
dag 28. mars kl. 20 — íþróttahúsið
Vesturgötu. Grindavík miðvikudag
29. mars kl. 20 — íþróttahús
Grindavíkur. Keflavík fimmtudag
30. mars kl. 20 — íþróttahúsið
Sunnubraut.
Kvikmynd um Zhúkov
marskálk í bíósal MÍR
„Zhúkov marskálkur — blöð úr
ævisögu" nefnist heimildarkvik-
mynd, sem sýnd verður í bíósal
MIR, Vatnsstíg 10, á morgun
sunnudag, kl. 16. í myndinni segir
frá frægasta hershöfðingja Sovét-
ríkjanna í síðari heimsstyrjöldinni,
Georgíj Zhúkov, en hann átti m.a.
hlut að sigri sovéska hersins í orust-
unni um Moskvu og rak síban flótta
Þjóðverja vestur á bóginn, allt til
Berlínar.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Hib ísl. náttúrufræbifélag:
Fræbslufundur í mars
Mánudaginn 27. mars kl. 20.30
verður næsti fræöslufundur HÍN á
þessu ári. Funduririn verbur að
venju haldinn í stofu 101 í Odda,
Hugvísindahúsi Háskólans. Á fund-
inum flytur dr. Sigurbur H. Magnús-
son, vistfræðingur á Rannsókna-
stofnun landbúnabarins, erindi sem
hann nefnir: „Landnám plantna á
rofsvæðum". I erindinu er fjaliað
um rannsóknir á landnámi plantna
á svæöum sem orbib hafa örfoka.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans:
Gunnar, Baldvln og Ró-
bert — 50 ára leikafmæli
Á mánudagskvöldið leiklesa leik-
ararnir Gunnar Eyjólfsson og Bald-
vin Halldórsson leikritið „Tilbrigði
vib önd" eftir David Mamet.
Gunnar og Baldvin eiga ásamt
Róbert Arnfinnssyni um þessar
mundir 50 ára leikafmæli og er vel
við hæfi aö heyra þessa ástsælu leik-
ara spjalla um lífið og tilveruna af
stóískri ró öldunganna. Verkið
þýddi Árni Ibsen og leikstjóri er Sig-
ríður Margrét Guðmundsdóttir.
Dagskráin í Listaklúbbnum hefst
um kl. 20.30, en húsið er opnað kl.
20.
Fréttir í vikulok
Aukin harka í kennaraverkfallinu
Kennarar hyggjast afturkalla allar veittar undanþágur frá og
meö nk. mánudegi, ef samningar hafa ekki tekist vib ríkið fyr-
ir þann tíma. Talið er að þessi ráðstöfun muni fyrst og fremst
bitna á fötluðum börnum. Deilan er í hörðum hnút og hafa
forsvarsmenn kennara lýst því yfir ab þeir sjái varla tilgang í
viðræðum við samninganefnd ríkisins eins og málin standa.
Ungum mæbrum fækkar
Fæðingum stúlkna yngri en 20 ára hefur fækkað um tæplega
3/4 á rúmum aldarfjóröungi. Leita verður allt aftur til 1940 til
að finna jafn litlar barneignir hjá þessum hópi.
Flugfreyjur í verkfall?
Flugfreyjur hafa boðað þriggja daga verkfall 28. mars nk. Ef af
því veröur, hyggjast yfirmenn ganga í störf flugfreyjanna, en
þær telja þær ráðstafanir mögulegt verkfallsbrot.
Mikib um snjóflóö
Mörg snjóflóð féllu í vikunni um allt land og ollu sum þeirra
miklum skemmdum á mannvirkjum, en enginn slasaðist.
Helsta tjónið varb á mjölverksmiðju á Seyðisfirði og heilsu-
gæslustöb í Ólafsvík.
Asahláka veldur vatnsskemmdum
Asahláka um mestallt land olli nokkru tjóni í vikunni, aðallega
í Vestmannaeyjum. Þar flæddi inn í híbýli og fyrirtæki með
þeim afleiöingum ab milljónatjón hlaust af.
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýbuflokksins, fullyrb-
ir í kosningabæklingi aö matarkarfan lækki um 40% ef ísland
gengur í ESB. Þessu eru margir ekki sammála og hefur nýlegur
samanburður Danmerkur og íslands á nokkrum algengum
matvörum sýnt aö matarkarfan er ódýrari hérlendis. Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalags, gengur svo
langt að kalla áróöur Jóns „einhverjar grófustu falsanir sem
sést hafa lengi".
jafnmargir treysta Jóhönnu
og Davíb
Skv. könnun Félagsvísindastofnunar treysta jafnmargir lands-
menn Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Jóhönnu Sigurbar-
dóttur, Þjóðvaka, til aö jafna lífskjörin í þjóðfélaginu. I þribja
sæti kemur Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokks-
ins, en aðrir stjórnmálaleibtogar fá mun minni stuðning.