Tíminn - 07.04.1995, Síða 4

Tíminn - 07.04.1995, Síða 4
4 Föstudagur 7. apríl 1995 STOFNAÐUR 1 7. MARS 191 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 5631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugeró/prentun: ísafoldarprentsmiöja hf. Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verö ílausasölu 150 kr. m/vsk. Glundroöa hafnað Þrátt fyrir aö glundroöastjórn þeirra Davíös Oddssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar komi sér ekki saman um stefnumörkun í neinu máli sem mikilsvert getur tal- ist og þeir félagar séu á öndveröum meiöi í flestu því, sem lýtur aö stjórn landsins, hyggja þeir á endurnýjun samstarfsins ef þeir ná þingstyrk til. Málgögn Sjálfstæö- isflokksins telja annaö stjórnarmynstur ekki æskilegt og forystuliö krata getur vart hugsaö sér aö vinna meö öör- um í ríkisstjórn en íhaldinu. Glundroðinn innan Sjálfstæðisflokksins og í stjórn- arsamstarfinu og klofningsframboð fyrrum varafor- manns Alþýðuflokkins sýnir að þaö er ekki heil brú í stefnumörkun þessara stjórnmálaafla, þar sem ágrein- ingur ríkir um nánast öll þau mál sem einhverju varöa. Stefna íhalds og krata í afstöðu til Evrópusambands- ins er gjörólík og er ósættanleg. í sjávarútvegsmálum og afstöðu til fiskveiðistjórnunar fara flokkarnir hvor í sína áttina. Landbúnaðar- og byggðamál eru allt önnur sam- kvæmt stefnu krata en sjálfstæðismanna. Á skattamálin líta flokkarnir sinn úr hvorri áttinni. Það er nánast sama frá hvaöa sjónarhorni er litiö á Viðeyjarundrin: þeir sem þau skópu koma sér ekki sam- an um eitt eða neinn nema að verma ráðherrastólana í sameiginlegri ríkisstjórn. En glundroöinn er ekki aðeins á milli stjórnarflokk- anna, heldur ekki síður innan þeirra. Brotthvarf Jó- hönnu Sigurðardóttur og hennar liðs sýnir að lítil ein- drægni er á milli svokallaðra jafnaðarmanna og að þeir stefna í ýmsar áttir samtímis. Ekki er glundroðinn minni innan Sjálfstæðisflokks- ins, þótt svo eigi að heita að hann hangi saman aö nafninu til. Sérframboð og heitstrengingar verðandi þingmanna um að þeir muni ekki styðja flokkinn nema með skilmálum sem þeir setja sjálfir, sýnir að innri styrkur fer þverrandi og að Davíð er ekki einasta í for- sæti glundroðastjórnar, heldur er hann einnig formað- ur mesta glundroðaflokksins. Skoðanakannanir sýna að það er borin von að kjós- endur velji samstjórn íhalds og krata yfir sig á nýjan leik. Enda munu þeir flokkar aldrei geta komið saman stjórnarsáttmála, eins og ástandið er innan þeirra og á milli þeirra. Ríkisstjórn getur ekki haft margar stefnur í utanríkismálum, fiskveiðistjórnun, byggða- og at- vinnumálum eða skattastefnu, svo að eitthvað sé nefnt. Glundroðastjórnin, sem ýtt var á flot frá Viðey, hefur gengið sér til húðar og verður ekki endurnýjuð. Hvaða stjórn verður mynduð eftir kosningarnar á morgun er undir kjósendum komið. En það er sama hvort hún verður kölluð hægri- eða vinstristjórn: hún mun leita inn á miðjuna, því öfgasinnaðar kenningar og stjórnarhættir eiga ekki upp á pallborðið undir lok byltingarkenndustu aldar í sögu mannsins. Hreinskilni og traustvekjandi stefnumörkun, þar sem gætt er hófsemdar í stað yfirboða og hagsmunir heildar- innar eru látnir ganga fyrir kröfugerðum einstakra hópa, er valkostur sem kjósendur eiga. Hástemmt orða- gjálfur mannkynsfrelsara eða glundroðakennt samstarf Viðeyjarfara er ekki það veganesti, sem íslenska þjóðin þarfnast á umbrotatímum. Framsóknarflokkurinn og sá stjórnarsáttmáli, sem hann á aðild að og getur sætt sig við, er sú kjölfesta sem hægt er að treysta. Verbur Árna Sigfússyni skipt inná á lokaspretti kosningabaráttunnar núna, eins og gert var í Reykjavík sl. vor? Er tími Árna aö koma, aftur? Kunnuglegt mynstur er nú aö koma fram í kosningabaráttu Sjálfstæöisflokksins. Skoöana- kannanir sýna aö flokkurinn á á brattann aö sækja og hefur heldur tapaö fylgi í kosninga- baráttunni. Viöbrögöin hafa veriö aö flokkurinn eykur aug- lýsingamagniö, en þaö geröist einmitt líka þegar skoöana- kannanir sýndu bága stööu Sjálfstæöisflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum í fyrravor. Annaö aöaleinkenni þessa kosningabaráttumynsturs var aö Sjálfstæöisflokkurinn skipti um stefnu og stefnuáherslur í nánast öllum málum. Þannig hurfu baráttumál eins og einka- væöing eins og dögg fyrir sólu, og hvers kyns mýkri mál fóru skyndilega aö leysa af hólmi steinsteypustjórnmálin sem Davíð Oddsson hafði markað á sinni tíð í borgarstjórastól. Tal- að var um að sjálfstæðismenn og Árni Sigfússon hefðu vaknað upp korteri fyrir kosningar og ætlab að sigra hjarta hins heitt- elskaöa kjósanda á þessum mín- útum sem þeir höföu. Árni var af þessu tilefni kallaður pólitísk- ur korter í þrjú karl, í höfuðið á mönnum sem telja sig geta sigr- að hjörtu kvenna á síðasta kort- eri dansleiks. Korter í þrjú — aftur Nú bregður svo við að þetta korter í þrjú mynstur virðist vera að endurtaka sig. Eftir að Sjálfstæðisflokkurinn er búinn ab hamast á því alla kosninga- baráttuna aö flokkurinn gefi þab eina kosningaloforð aö gefa engin kosningaloforð, kemur allt í einú í Morgunblaðinu í gær auglýsing um kosningalof- orð flokksins! „Varúð, varúð, enga 50 milljarða loforðalista frá félagshyggjuflokkunum" hefur glumið í eyrum kjósenda vikum saman. En nú ber svo við að Sjálfstæðisflokkurinn er far- inn að auglýsa loforð, sem ef- laust mætti reikna upp í 50 milljaröa ef menn nota stærð- fræðireglur Sjálfstæðisflokksins sjálfs, en þær reikningskúnstir felast sem kunnugt er í því að margtelja sömu hlutina þar til búið er að ná 50 milljörðum. (Ef tveir menn sjá eina önd á Tjörn- inni, væri samkvæmt stærð- fræði sjálfstæðismanna ekki um eina önd aö ræöa, heldur tvær: öndina sem annar sá og öndina sem hinn sá = 50 milljarðar). Þá er það ekki síður kunnug- legt aö skoða loforðalistann sem sjálfstæðismenn ryðjast nú með fram á vígvöll kosningabarátt- unnar. Hið fyrsta er svona: GARRI „Gera ungu fólki auðveldara aö eignast sína fyrstu íbúð. Gera húsbréfakerfið sveigjanlegra og lengja lánin verulega." Fyrir þá, sem hlustað hafa á málflutning framsóknarmanna fyrir þessar kosningar, vita að þarna et komið nánast orörétt eitt aðal kosningamál þess flokks. Hin loforöin hljóma líka kunnug- lega ýmist úr kosningastefnu Framsóknar eöa annarra stjórn- arandstöðuflokka. Eins og í fyrra Allt er þetta þó í anda þeirra aöferða í kosningabaráttu, sem Sjálfstæðisflokkurinn tók upp sí. vor í Reykjavík. Auglýsinga- magnið hefur aukist í báðum tilfellum eftir slakar skoðana- kannanir. í báðum tilfellum hefur sjálfstæðisstefnunni kinnroðalaust verið ýtt til hlið- ar og sjónarmið andstæðing- anna tekin upp sem kosninga- stefna flokksins á síöasta „kort- erinu" mál. Þá er aðeins eitt grundvallar- atriði í þessari kosningataktík eftir, atriði sem gæti þó skipt sköpum og búast má við að gripið verði til fyrr en seinna. Raunar eru síðustu forvöð að grípa til þess nú í dag, því á morgun gæti það verið orðið of seint. Það á enn eftir að skipta um forustumann. Eflaust hafa sjálfstæðismenn metið það svo aö síðast hafi þeir skipt um for- ustu of snemma, þannig að hin dramatísku áhrif af því þegar Markús hætti og hinn ungi Árni Sigfússon tók við hafi ver- ið farin að dvína eitthvað þegar að kjördegi kom. Rökrétt fram- hald af því, sem verið hefur að gerast hjá Sjálfstæðisflokknum nú síðustu dægrin, er því að þeir skipti Davíð út og setji Árna inná til aö taka lokasprett- inn í baráttunni, eins og síðast. Nema ef vera kynni að þeir ætli að skipta Þorsteini inná aftur, til að búa til nýtt tilbrigði við þetta kosningastef. Garra heyrðist jú Þorsteinn vera orð- inn nokkuð forsætisráðherra- legur í tali í útvarpinu í gær, þegar hann var aö gefa það út að hann teldi erfitt að mynda ríkisstjórn með krötum eftir kosningar. Kannski Þorsteinn sé þegar kominn í startholurn- ar og hafi verið með dálitla generalprufu í gær? Það kemur væntanlega í ljós í dag, því á morgun verður kosið. Garri

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.