Tíminn - 07.04.1995, Blaðsíða 17

Tíminn - 07.04.1995, Blaðsíða 17
Föstudagur 7. apríl 1995 17 UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Óvænt úrslit í for- keppni íslands- mótsins í Allmörg óvænt úrslit uröu um síöustu helgi þegar for- keppni íslandsmótsins í sveitakeppni fór fram. 40 sveitir kepptu um 10 sæti í úrslitunum og komust eftirfarandi sveitir áfram í lokakeppnina. A-riðill Metró Roche B-riðill: S. Ármann Magnússon Samvinnuferðir Landsýn C-riðill: Landsbréf Borgey D-riðill: Ólafur Lárusson VÍB E-riðill: Hjólbarðahöllin Ragnar Jónsson bridge Skagfirbinga sem lenti í 3. sæti. í E-riðli bar þaö helst til tíbinda að A-sveit Flugleiba innan- lands (Nl.ve.) komst ekki áfram. Þar sigraöi Hjólbarða- höllin meb 143 stig, skoraði einu stigi meira en sveit Ragn- ars Jónssonar frá Suðurnesjum, en 18 stig vantaði upp á að Flugleiðir innanlands kæmust áfram. Því munu tvær landsbyggðar- sveitir keppa í úrslitunum, Borgey frá Höfn og Ragnar frá Suðurnesjum, en fulltrúar Norðurlands sitja heima í ár. Sveitir Landsbréfa og S. Ár- manns Magnússonar náðu hæsta skorinu í mótinu, 147 stigum, eða 21 impa að meðal- tali í leik. Lokakeppnin fer fram í dymbilvikunni en nú- verandi íslandsmeistarar eru sveit Landsbréfa. Cylfi Baldursson, liðsmaður Roche, er kominn enn eina ferðina í úrslit íslandsmótsins. Cylfi er einnig þekktur hérlendis fyrir góða frammistöðu í Kontrapunkti. Úrslitin eru sérstaklega eftir- tektarverð í A-riðli en þar gerð- ust þau tíbindi að F-sveit Metró sigraði sinn riðil og A-sveit Tryggingamibstöðvarinnar varð að láta sér þriðja sætið duga. Tryggingamiðstöðina vantaði aðeins 2 stig til að komast áfram en hún hafði leitt allt mótið og var talin nánast örugg þegar 3 umferðir voru eftir. 12-18 ósigur gegn sveit Sparisjóös Mýrarsýslu gerði hins vegar út um það og enn og aftur sannast ab allt getur gerst í bridge. Sveit Roc- he fékk 25 stig í síðasta leikn- um og það dugði henni til að komast áfram ásamt Metró. í B-riðli urðu úrslitin eftir bók- inni, tvær stigahæstu sveitirn- ar, Samvinnuferðir og S. Ár- mann Magnússon, sigldu lygn- an sjó áfram í úrslitin. í C-riöli komst sveit Borgeyjar óvænt áfram ásamt Landsbréf- um en sterk sveit Magnúsar Magnússonar nábi sér ekki á strik. Sveit Málningar varð í þriðja sæti og skildu sex stig 2. og þriðja sætið í lokin. í D-riðli sigraði sveit Ólafs Lá- russonar nokkuð örugglega en sterkasta sveit ribilsins, VÍB, var sein í gang og átti í erfið- leikum með ab ná öðru sætinu. Þeir skoruðu að lokum 5 stig- um meira en sveit Kaupfélags Matthías Þorvaldsson í þungum þönkum í opna salnum. Hann keppir fyrir S. Ármann Magnússon í úrslitunum. Það blés ekki byrlega fyrir Borg- ey í upphafi mótsins og þurfti mikla keppnishörku til að sveitin næði sér upp eftir frem- ur slæma byrjun. í fyrstu umferð mættust sveitir Landsbréfa og Borgeyjar og skuldabi sú síðarnefnda 35 impa í hálfleik. Þar munaði m.a. um þetta spil: S/NS 4 C7642 ¥ 6 ♦ K65 4 D64 4 Á ¥ KG9842 ♦ ÁDC3 * G9 N V A S * 85 ¥ T75 * T72 * T8752 A KDT93 ¥ ÁD3 ♦ 984 4 ÁK í opna salnum spiluðu liös- menn Borgeyjar 6 hjörtu í NS en Guðmundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson létu sér það ekki nægja. Þannig gengu sagnir: (sjá til hægri) Það var margt góðra gesta að fylgjast með íslandsmótinu og dró jón Baldursson (lensgt til hœgri) að marga áhorfendur enda sériega litríkur við spilaborðið. Davíð Oddsson forsœtisráðherra gaf sér tíma til að fylgjast með mótinu og spáði í spilin síðustu daga fyrir kosningar. Davíð er mikill áhugamaður um bridge og spilar reglulega einu sinni í viku. Tímamyndir Bjöm Þomsson jakob Kristinsson átti hugmyndarika sögn í mótinu eins og lesa má um annars staðar á síðunni. Spilafélagi jakobs er Matthías Þor- valdsson en þeir mynda eitt af þremur landsliðspörum í ár. in sín svo, að þau gætu nýst ágætlega í vörninni og sat í do- blinu. Vörnin gaf sagnhafa engan séns: Hartaás, hjarta stungið, laufás, lauf á kóng, hjarta stungið og lauf stungið. Þannig fékk vörn- in 3 slagi á tromp, einn á hjarta og eihn á lauf og 200-kallinn gaf að sjálfsögðu góða skor þar sem AV eiga aöeins bút í spil- inu. Austur/Allir 4 T75 ¥ 9 ♦ DG98 * ÁG543 Sutmr Vestur Norbur Austur 14 pass 2¥ pass 3¥ pass 34 pass 44 pass 4grönd pass 54 pass S¥ pass 64 pass 64 7¥ allirpass 3* og 4+ voru fyrirstöðusagn- ir og 4grönd lykilspilaspurn- ing. 5 *lofuðu 1 eða 3 ls. en Guömundur taldi spaðakóng- inn með. Þorlákur sá að 3 ls. gátu ekki staðist og ætlaði sér að slá af í 5 hjörtum en Gub- mundi nægði ekkert minna en alslemman sem reyndist auð- unnin. Meö eyðu í laufi! í síðustu umferð íslandsmóts- ins í sveitakeppni hafbi sveit S. Ármanns Magnússonar tryggt sér sæti í úrslitunum og Jakob ákvað að bregða á leik með þessi spil: ATxx Áx ÁKDGT xx Matthías vakti á spaða og Jak- ob sagði tvo tígla. Þá komu 3 lauf inn á og Matthías sagði 3 spaða. Nú kemur kannski til álita að segja 4 grönd en Kobba fannst sem þaö leysti lítinn vanda þótt hann fengi svar við einum ás af fimm og fann sögn mótsins. 5 lauf! Sögnin lofaði eyðu í laufi, Matthías sagði 5 spaða og Kobbi hækkaði í 7! Sá sem átti útspil hélt á laufásn- um en treysti landsliösmann- inum náttúrlega og spilaði út trompi. Eftir það var leikur einn ab vinna alslemmuna. Skondin blekking. Bridgefélag Reykjavíkur: Jakob og Matthías á toppnum Nú stendur yfir 3 kvölda tví- menningskeppni hjá BR þar sem 2 bestu kvöldin gilda til úrslita. Matthías Þorvaldsson og Jakob Kristinsson hafa sigr- að sinn riðli tvö fyrstu kvöldin en hæsta skori sl. miðvikudag náðu ísak Örn og Helgi Sig- urðsson. Þeir hafa tamið sér nokkuð hvassan stíl vib spila- borðið sem oft gefst vel, eins og eftirfarandi spil frá síðasta spilakvöldi BR sýnir: Á G84 ¥ Q74 ♦ KT75 * Q82 Austur Subur Vestur Nor&ur Helgi ísak 1¥ pass 14* 24 pass pass dobl** pass pass! pass ísak og Helgi spila precision að grunni með ýmsum breyting- um þó. Opnun Helga var 11-15 p. og 14 hjá ísak lofaði engum spaða en gegndi hlutverki grandsagnar. Norður taldi sak- laust aö lauma sér inn á tveim- ur spöbum og ísak doblaði til úttektar, enda með 4-5 í láglit- um. Helgi mat hins vegar spil- Vetrarmitchell BSÍ Föstudaginn 31. mars var spil- aður eins kvölds tölvureiknað- ur mitchell tvímenningur meb forgefnum spilum. 26 pör spil- uðu 10 umferöir með 3 spilum á milli para eða alls 30 spil. Mebalskor var 270 og bestum árangri náðu: NS: 1. Þorleifur Þórarinsson-Áróra Jó- hannsdóttir 316 2. Nicolai Þorsteinsson-Anton Val- garösson 304 ' AV: 1. Georg Ísaksson-Sigurður Jóns- son 2. Halldór Þorvaldsson-Kristinn Karlsson 309

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.