Tíminn - 07.04.1995, Blaðsíða 19

Tíminn - 07.04.1995, Blaðsíða 19
Föstudagur 7. april 1995 19 Gubrún M. Guðmundsdóttir Fædd 17. september 1923. Dáin 29. mars 1995 Útfðr Guörúnar Mjallar Guö- mundsdóttur fer fram frá Lága- fellskirkju í Mosfellsbæ, föstu- daginn 7. apríl kl. 13.30. Guörún fæddist aö Nesjavöll- um í Grafningshreppi þ. 17. september 1923. Hún var næst elst átta systkina, dóttir þeirra heiðurshjóna Guðmundar Jó- hannessonar og Guðrúnar Sæ- mundsdóttur. Fjölskyldan flutti síðar að Króki í Grafningi og þar ólst Guðrún upp. Hún var ósér- hlífin og ibjusöm,kunni vel til verka og gaf bræðrum sínum ekkert eftir í bústörfunum. Var stundum um hana sagt að hún hefði' átt ab fæðast sem karl- maður, þar sem hún var svo lík- amlega hraust og sterk. Til merkis um það dettur mér í hug atburður sem eldri dóttir mín upplifbi á menntaskólaár- um sínum, en þá var hún með tveimur skólasystrum á gangi í Reykjavík og hittir þá fyrir ömmu sína og langafa, sem tóku hana tali og vinkonurnar biðu á meðan. Þegar samræðun- um var lokiö segir önnur þeirra: „Hvaða fólk var þetta eiginlega sem þú varst að tala við?" Ragn- heiður dóttir mín svaraði afar stolt: „Þetta var bara hún amma og hann langafi að koma frá því Mál og menning hefur sent frá sér bókina Veröld Sofpu, skáld- sögu um heimspekina eftir norska rithöfundinn og heim- spekikennarann Jostein Gaar- der. Veröld Sofpu er spennándi saga sem leiðir lesandann inn í heillandi heim heimspékinnar. Aðalpersóna bókarinnar er fimmtán ára gömul nórsk stúlka, Soffía Amundsen að nafni. Forvitni Soffíu vaknaf þegar hún fær bréf frá ókunnum manni. Bréfunum fjölgar og smátt og smátt raðast samari heilleg mynd af kenningum evrópsku hugsuðanna, allt frá goðsögunum og grísku heim- spekingunum til nútímans. Soffía verður’ gagntekin af áleitnum spurningum um til- veruna enda „er hægt aö líkja leit heimspekinganna eftir sannleikanum við leynilög- reglusögu." Líf Soffíu er líka við- burðaríkt og' vísindaleg rökfræði getur komið sér vel þegar greiða þarf úr erfiðum flækjum. Höfundúrinn, Jostein Gaar- der, hefur hlotið margvísleg verðlailn frá því fyrsta bók hans kom út árið' 1986. Veröld Sófpu kom fyrst út í Osló árib 1991 og hefur verib þýdd á rúmlega tutt- ugu þjóðtungur, érida hvort t MINNING að rífa timbur utan af húsi!" Þá var Guðrún Mjöll 66 ára og Guðmundur langafi 92 ára og geri aðrir betur! Ég átti því láni að fagna að eiga Guðrúnu fyrir tengdamóð- ur. Hún var mjög sérstakur per- sónuleiki, með mjög ákveðnar hugmyndir um lífið og tilver- una, mjög tilfinningarík kona og skapmikil, en jafnframt hisp- urslaus og laus við allt sem við nútímafólk gerum kröfur um í dag. Hún var laus við þá stjórn- semi og afskiptasemi sem tengdabörn verða stundum fyrir frá tengdaforeldrum. Ég varð aldrei fyrir slíku frá hennar hendi. Þegar ég hitti Guðrúnu fyrst, varb ég mjög undrandi á því hversu vel hún tók mér, en ég var tveggja barna móðir áður en ástir tókust meb mér og Jóhann- esi frumburði hennar og föður hans Jóhanni Ágústi Jóhannes- syni. Að hennar dómi skipti slíkt ekki máli og ég var henni afar þakklát fyrir það hve einlæg hún var í viðmóti við mig strax í byrjun. Eg tók þegar eftir því hve sér- Fréttir af bókum tveggja í senn: bráðskemmtileg leSning og fróbleiksnáma um menningarsögu heimsins. Aðalheiður Steingrímsdóttir og Þröstur Ásmundsson þýddu. Veröld Sofpu er bók mánaðar- ins í apríl og kostar þá 2.700 kr. eri hækkar í 3.880 kr. frá og með 1. maí. ■ stök hún var, hún hafði lent í hræðilegu bílslysi 9 árum áður og þá hafði henni ekki verið hugað líf. Eftir það var jafnvæg- istaugin nokkub skert, þannig að hún átti þab til að slaga örlít- iö. Guðrún sagði mér frá því, að oftar en einu sinni hefði hún verið tekin fyrir ölvun við akst- ur, því einhver hafði séð til hennar „slangra" inn í bílinn, en Guðrún var algjör reglu- manneskja, svo að hún henti oft grín að þessu „slangri" sínu. Hún var mikil kvenréttinda- kona í sér og fannst fyrir neðan allar hellur hvernig störf kvenna í þjóðfélaginu hafa ver- ið misvirt í launum og hún undraðist stórum hin lágu laun í þágu umönnunar og uppeldis. Hún byggði sér sumarhús á landi sínu í Grafningi fyrir nokkrum árum. Bernskustöðvarnar voru henni ætíð mjög hugleiknar og þarna var hennar unaðsreitur. Þegar hún veiktist var það hennar æðsta ósk ab láta sér batna sem fyrst svo hún gæti farið „austur í bústað" og dvalið þar langdvölum, sem því miður varð ekki af. Guðrún greindist með bein- krabbamein í byrjun síðasta árs og gekk í gegnum afar erfiöa sjúkdómslegu, en hún æðraðist ekki og ekki var hún að súta ör- lög sín, nei, hún sagðist nú ekki hafa yfir neinu ab kvarta, hún lægi í hlýju og góðu rúmi og væri meb fallegt útsýni yfir Fossvoginn! „Yfir hverju ætti svo sem að kvarta?" varð þessari sárkvöldu manneskju að orði við mig! Þegar komið er að kveðju- stund sækja minningarnar á og Guðrúnu Mjöll er fyrir þab að þakka, að einungis skemmtileg- ar og góðar minningar lifa í hugarheimi mínum um okkar samskipti. Faröu í friði, fribur Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Helga Thoroddsen Húsbréf Útdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokki: 4. flokki 19926. útdráttur Koma þessi bréf til inniausnar 1.5. júní 1995. Öll númerin verða bírtí næsta Lögbirtingablaði. Auk þess liggja upplýsingar frammi í Húsnæðis- stofnun ríkisins, á Húsnæðigskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa- fyrirtækjum. cBd húsnæðisstofnun ríkisins . Lj HÚSBRÉFADEILO - SUÐURLANOSBRAU-T 24 - .108 RtYKJAVÍK - SÍMI 69 69 00 Menningarsaga heimsins Framsóknarflokkurínn Alþingiskosningar 1995 Kosningaskrifstofur Framsóknarflokksins Skrifstofa Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 20, 3. hæó. Pósthólf 453,121 Reykjavík. Starfsmenn: jón Kr. Kristinsson, sími 5526088; Skúli Oddsson, sími 5526128; Einar Kristján jónsson, sími 5526135. Fax 5623325. Reykjavíkurkjördæmi Hverfisgata 33,101 Reykjavík. Sími 5517444. Faxnúmer 5517493. Kosningastjóri Björn Ingi Stefánsson. Reykjaneskjördæmi Bæjarhraun 22, 220 Hafnarfiröi. Símar 5655705, 5655717. Faxnúmer 5655715. Kosningastjóri Arinbjörn Vilhjálmsson. Vesturlandskjördæmi Sunnubraut 21, 300 Akranesi. Símar 93-12050, 93-14226. Faxnúmer 93-14227. Kosningastjóri Björn Kjartansson. Vestfjarbakjördæmi Hafnarstræti 8, 400 ísafjör&ur. Símar 94-3690, 94-5395. Faxnúmer 94-5390. Kosningastjóri Kristinn jón Jónsson. Nor&urlandskjördæmi vestra Su&urgötu 3, 580 Sau&árkrókur. Sími 95-36335. Faxnúmer 95-35374. Kosningastjóri Herdís Sæmundardóttir. Norburlandskjördæmi eystra Hafnarstræti 26-30, 600 Akureyri. Símar 96-21180, 96-23150. Faxnúmer 96-23617. Kosningastjóri Ólafur Sigmundsson. Austurlandskjördæmi Tjarnarbraut 19, 700 Egilssta&ir. Símar 97-12582. Faxnúmer 97-12583. Kosningastjóri Kristín SnæjxSrsdóttir. Suburlandskjördæmi Eyrarvegur 15, 800 Selfoss. Símar 98-22547, 98-21247. Faxnúmer 98-22852. Kosningastjóri Árni Magnússon. Kópavogur Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins í Kópavogi era& Digranesvegi 12. Kaffiveit- ingar og kosningavaka á kjördag. Síminn er 41590, 41300, 644291, 644292 og 644671. Fax 644322. Kosningastjóri UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ Verkútboó Utanríkisráðuneuytið auglýsir eftir fyrirtækjum sem áhuga nafa á að taka þátt í útboði á vegum mann- virkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins. í samræmi vib ákvörbun ríkisstjórnarinnar frá í febrúar 1992 verba verk, sem unnin eru á kostnað Mannvirkjasjóbs Atlants- hafsbandalagsins hér á landi, bobin út frá og með 1. apríl í ár. Fyrir dyrum stendur fyrsta reynsluverkefnib af þessu tagi. Um er ræða viðhald á Ratsjárstöðinni á Stokksnesi. í samræmi við útboðsskilmála, sem unnir hafa verib í samstarfi íslenskra og bandarískra stjórnvalda, er öllum fyrirtækjum, sem áhuga hafa á þátttöku í útbobinu, bobið að senda inn gögn vegna forvals verktaka. Viöhaldsverkefniö Verkiö, sem um ræbir, felst í steypuvibgerbum utanhúss, end- urnýjun á þaki og skyldum atribum. Innanhúss yrbi um ab ræða endurnýjun á lögnum, loftræstingu og hreinlætisað- stöbu áuk endurnýjunar á raflögnum. Þá felst í verkinu teng- ingar á nauðsynlegum þúnaði, viðgerb á eldvarnarkerfi og uppsetning á nýju öryggiskerfi. Kostnaðaráætlun við verkið er á bilinu kr. 6.500.000,- til 16.250.000,-. Kröfur til verktaka Fyrirtæki, sem áhuga hafa á þátttöku í útbobinu, þurfa að skila viljayfirlýsingu þar um til yarnarmálaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins fyrir 14. apríl n.k. í viljayfirlýsingunni skal greina nafn og kennitölu fyrirtækis og helstu upplýsingar um fyrir- tækib. Þá þarf að vera unnt ab staðreyna ab fyrirtækib uppfylli eftirtalin skilyrði: • ab vera starfandi í þeirri starfsgrein sem efni sámningsins hljóðaráum. • ab hafa naubsynlega fjárhagslega burbi til að sinna.því verki eba þeirri þjónustu sem samningurinn felurí sér. • ab geta upþfyllt samniriginn á rétturn efndátíma, að teknu tilliti til annarra fyrirliggjandi verkefna. • ab geta sýnt fram á nauðsynleg gæði vinnu sinnar, vöru eða þjónustu í fyrri verkum af sama toga eba við sölu sambæri- legrar vöru. • sé þekkt ab áreiðanleika og heibarlegum vjbskiptaháttum. • ab búa yfir nauðsynlegu innra skípulagi, reynslu óg tækni- legri hæfni til að efna samninginn, eða geta'komið slíku á eba aflað þess. • • að búa yfir nauðsynlegri framleiðslutæknl, mannvirkjum, tækjum og annarri abstöðu, eða geta orðiö sér úti um sliit. • ab hafa nauðsynlegt starfslið til áb efriá sarrininginn eða geta sýnt fram á ab þab geti orðib sér úti um hæft starfslib.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.