Tíminn - 08.07.1995, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.07.1995, Blaðsíða 3
3 Laugardagur 8. júlí 1995 Enn er deilt um skólahald í Mývatnssveit. Trausti Þorsteinsson, frœöslustjóri: „Fólk hafnar öllum tillögum til lausnar" „Ef ég vissi um einhverja lausn í þessu máli væri ég áreibanlega búinn ab koma henni á framfæri. Sveitar- stjórn Skútustabahrepps hef- ur alfarib meb þetta mál ab gera og tilraunir hennar hafa ekki enn borib árangur og þab er patt-staba í málinu. Fólkib í subursveitinni hafn- ar öllum tillögum til lausn- ar," sagbi Trausti Þorsteins- son, fræbslustjóri á Norbur- landi eystra, í samtali vib Tímann í gær. Enn er deilt um skipan skólahalds í Mývatnssveit. Fram var komin tillaga um ab skólasel yrbi næstu tvo vetur starfrækt á Skútustöbum í svo- nefndri Subursveit. Þau börn sem búa 10 kílómetra eba lengra frá Reykjahlíb myndu þá sækja skólaselib og kostn- abur vib starfsemina væri greiddur sameiginlega af sveit- arsjóbi og íbúum í Subursveit. Ab þeim tíma libnum flyttist allt skólahald yfir í Reykjahlíb — og eftir fjögur ár yrbi staban metin. Allir abilar samþykktu þessa tillögu, nema foreldrar barna í Subursveit. „Þetta mál er alfariö heima- manna og skipan skólahalds innan sveitarstjórnar. Menntamálarábuneyti kemur ekkert ab þessu sem beinn aö- ili, nema þá ab sveitarstjórnin óski þess. Fari þá fram á aöstoö eöa rábgjöf meb einhverjum hætti. Og vissulega hefur ráöu- neytiö nokkuö komiö aö því ab leita leiöa til sátta í þessu máli," sagöi Trausti Þorsteins- son. Hann bætti því vib aö vissulega væri sveitarstjórn ekki búin ab segja sitt síöasta orö í þessu máli, en ljóst væri aö ágreiningur væri enn til stabar. Borun Hvalfjaröarganga hefst á þessu ári: Allt á hillu skribi „Þab eru menn aö vinna í þessu í einum fjórum eöa fimm löndum," segir Gylfi Þóröarson, stjórnarformaöur Spalar hf., fyrirtækisins sem stofnab var um gerö Hval- fjarbarganga, abspuröur um hvenær búast megi viö ab framkvæmdir vib Hvalfjarb- 60 manns til Kína Sigríbur Lillý Baldursdóttir, for- mabur undirbúningsnefndar utanríkisrábuneytis fyrir ráb- stefnu Sameinuöu þjóöanna um málefni kvenna, telur ab alls muni um 60 íslendingar sækja ráöstefnuna og þar af er um 10 manna sendinefnd stjórnvalda. Enn fremur veröur Mannrétt- indaskrifstofan meb áheyrnar- fulltrúa. Skráningu á rábstefn- una lauk í vor en ab sögn Sigríö- ar fær hún nánast daglega hringingar frá fólki sem hefur áhuga á ab sækja ráöstefnuna. En búiö er ab loka fyrir skrán- ingu og því komast ekki fleiri til Kína. ■ argöng hefjist. Hann er bjart- sýnn á ab framkvæmdir hefj- ist á þessu ári. „Þab er nú ekki hægt aö sjá þab alveg strax hvenær þaö veröur sem menn skrifa undir en þeir byrja flótlega þar á eftir, þab er ekki máliö. Þab er ekki hægt ab segja nákvæmlega um tíma núna. Ætli menn skoöi ekki um næstu mánaöamót hvenær þetta getur gerst. Þaö er allt á fullu skriöi núna og verö- ur þennan mánuö," segir Gylfi. „Þaö er nú til komiö útaf aö- ilum sem vildu eignast hlutafé í fyrirtækinu," segir hann ab- spuröur um hugmyndir um aö Skilmannahreppur seldi hluta af eign sinni í Speli hf. „Svo vildi ríkiö ekki aö þaö yröi auk- iö hlutaféö á sínum tíma, held- ur vildi þab bara lána. Þetta var spurning um einn aöila sem vib höföum áhuga á ab yröi inni. Skilmannahreppur og Akranesbær, hugsanlega, myndu þá selja eitthvab til ab fá hann inn af því þaö er ekkert nýtt hlutafé. Þaö er ekki af þvi aö þeir vilji fara út heldur vilja þeir greiöa fyrir aö víkka þetta ef til þess gæti komiö," segir Gylfi. TÞ, Borgamesi. \ ' Grunnur leikskólans viö Laugarnes, en framkvœmdir þar hafa veriö stöövaöar vegna mótmcela foreldra. Tímamynd Pjetur Árni Þór Sigurbsson, formaöur Dagvistar barna, vegna byggingar leikskóla í Laugarnesi: Æskilegt a6 tengsl séu á milli grunnskóla- og leikskólabarna Framkvæmdir hafa veriö stöbvabar vib byggingu leikskóla á lób vib Laugar- nesskóla. Búib var ab grafa fyrir grunninum, en íbúar í hverfinu mótmæltu fram- kvæmdinni vegna umferb- arþunga í grennd vib lóö- ina. Arni Þór Sigurbsson, formabur Dagvistar barna, segir mótmælin hafa komiö sér á óvart og hann telur æskilegt ab byggja leikskóla sem næst grnnskólum, ef því verbur vib komib. „Þab er mikiö um þaö rætt nú aö skólar og leikskólar standi hlib viö hliö og t.d. er unniö eftir slíku skipulagi í nýju hverfunum í Grafarvogi. Þaö er taliö heppilegt út frá uppeldis- og kennslufræbi- legu sjónarmibi. Slík tilhögun er talin stubla aö tengslum milli elstu barnanna á leik- skólum og yngstu barnanna í grunnskólum. Þau geta heim- sótt hvert annaö og unnib saman. Ef hægt er aö koma þessu viö, er þaö mjög til bóta." Árni segir jafnframt aö viö- brögö mótmælenda hafi kom- iö sér á óvart, enda hafi ab- eins ein athugasemd veriö gerb þegar grenndarkynning fór fram. Þá hafi Dagvist barna, Skólamálaráö og Skipulagsnefnd samþykkt samhljóöa ab reisa skólann. íbúarnir, sem hafa skrifaö undir mótmælayfirlýsinguna, eru ekki aö mótmæla leikskól- anum sem slíkum, heldur stabsetningunni, en þetta er gamalt vandamál, aö sögn Bergs Felixsonar hjá Dagvist barna. „Þab, er búiö aö vera kosningamál allra flokka ab Húsasmibnum, sem slasabaist þegar hann fékk steypujárn í gegnum brjóstkassann í vinnuslysi í Reykjavík í fyrra- dag, heilsast eftir atvikum. Slysiö varö í Smáíbúöahverf- inu í Reykjavík þar sem smiöur- inn starfabi vib nýbyggingu. Járniö gekk í gegnum brjóst- fjölga leikskólum, en svo má aldrei byggja inni í miöjum hverfum," segir Bergur. Aö sögn Bergs vantar um 68 heilsdagspláss í Laugarnes- hverfi og 136 hálfan daginn. Eitthvab sé um ab sótt sé um hvort tveggja, en samanlagö- ur fjöldi barna, sem vantar pláss, gæti veriö um 180 börn. Bergur segir þetta ástand slæmt, en þó sé þab verra í Hlíöahverfi og verst í Grafar- voginum. Unniö er ab lausn deilunnar og er vonast til aö hún finnist upp úr helginni. ■ kassa mannsins og var þaö fjar- lægt úr honum á Slysadeild Borgarspítala. Síbar var hann fluttur á skurödeild spítalans og skv. upplýsingum þaban síödeg- is í gær er líöan hans eftir atvik- um. Er vonast til ab hann geti náb fullum bata, aö sögn lækn- is. ■ Húsasmiöurinn sem fékk járn í gegnum brjóstkassann: Vonast eftir fuílum bata Þjónustufulltrúi Búnaöarbankans útskýrir aöstoö hugbúnaöarforritsins Heimis viö heimilisbókhaldiö fyrir viöskiptavini. • Ljósm: GTK Búnaöarbanki íslands setur tölvuhugbúnaö á markaöinn: Heimilisbókftald í tölvu Markabsdeild Búnabarbanka íslands setti í þessari viku á markab nýjan fjármálahug- búnaö sem nota má í heimils- tölvum. Er þar hægt ab færa inn heimilsbókhald og gera ýmsar fjármálaáætlanir fyrir heimili. Ab sögn Eddu Svavarsdóttur hjá markabsdeild Búnaöar- banka er hugbúnaöur þessi í Windows umhverfinu og not- hæfur í svonefndar PC-tölvur, sem ekki mega vera aflminni en 386 og ekki vera meb eldri Windows-útgáfu en 3,1. Hug- búnabur þessi kostar 900 kr. en þátttakendur í Heimilislínunni greiöa 450 kr. Hægt er ab setja ýmsar gefnar forsendur inn í forritiö svo sem greiöslubirgbi lána og mánaöarlegar áætlanir. Á sama hátt má setja þar inn hver ávöxtun er á sparireikning- um og þetta má svo bera saman viö útkomuna á ákveönum tímapunkti og sjá stööuna. Ekki er þó hægt aö færa inn daglegar færslur í forritiö, þær veröur ab handfæra á blaö. Forritib var hannaö í tölvu- deild Búnabarbanka íslands og segir Edda Svavarsdóttir um- hverfi þess vera mög skemmti- legt. Þaö hafi verib afar lítiö kynnt og auglýst þab sem af er, en eftirspurn og áhugi veriö all- nokkur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.