Tíminn - 08.07.1995, Qupperneq 12

Tíminn - 08.07.1995, Qupperneq 12
12 Laugardagur 8. júlf 1995 Suðurland verslun. Hinir dönsku Lefolii feögar höndluöu á Eyrarbakka í kringum aldamótin. Eftir þeim er nefndur veitingastaðurinn Lefolii sem opnaður var fyrr á þessu ári og er í svonefndu Gunnarshúsi, vestast í þorpinu. Stokkseyringar eru heldur ekki minni menn í kaffihúsa- meningunni. Þar var ekki alls fyrir löngu opnað kaffihúsið Við fjöruborðið. Á Stokkseyri er einnig að finna sjóbúð með gamla laginu og við Baugsstaði, nokkru austan við Stokkseyri, er rjómabú sem var byggt snemma á öldinni. ✓ A Þingvelli um Mos- fellsheiði Uppsveitir Árnessýslu eru sér kapítuli. Ef Reykvíkingar heim- sækja þær er ef til vill hentug- ast aö fara um Mosfellsheiði og koma fyrst á Þingvelli, helgasta sögustað þjóðarinnar sem jafn- framt er rómaður fyrir fallega náttúru. Þar var Alþingi íslend- inga um aldir og margar á- kvaröanir í vegferð þjóðarinnar teknar. Frá Þingvöllum er svo á- fram haldið austur um Gjá- bakkaveg og komiö aö Laugar- vatni í Laugardal. Einkum hef- ur verið stefnt að því að fá fjöl- skyldufólk að sækja þann stað heim og íþróttamiðstöð ís- lands, sem aðsetur hefur þar, leggur nú aukna áherslu á fjöl- skylduíþróttir í starfi sínu. Skól- ar og skólahús eru mörg á Laugarvatni og þau eru notuð sem Eddu-hótel yfir sumartím- ann. Þá býöst ferðmönnum að sigla á seglbrettum um vatnið og á bökkum þess er magnað, náttúrulegt gufubað. Neðan við Laugardalinn er Grímsnesið. í þeirri sveit eru vel á annað þús- und sumarbústaðir og margt skemmtilegt að sjá, svo sem hinn merkilegi sprengigígur, Kerið. Allir ab Geysi og Gullfossi Og höldum ferðinni áfram frá Laugarvatni. Þegar komið er austur yfir Brúará taka Biskups- tungur við. Enginn ferðamaður skyldi láta hjá líða aö koma að Geysi, frægasta goshver heims og því síður að Gullfossi, sem er Fjölbrautaskóli Suöurlands á Selfossi er formfagurt mannvirki og hefur vakiö veröskuldaöa athygli. inn er ekið á bökkum Ytri Rangár, en það er ein feng- sælasta fiskiá landsins. í Þykkvibæ, "svona einn komma sex kílómetra frá sænum" eins og segir í alkunnum dægurlaga- texta, byggja flestir íbúar af- komu sína á kartöflurækt. Hinir tveir þéttbýlisstaðirnir eru Hella og Hvolsvöllur. Þeir eiga sammerkt að byggja afkomu sína helst á verslun og þjónustu við sveitirnar í kring. Rangárvallasýsla öll er sögu- sviö Brennu-Njálssögu, einkum þó Fljótshlíð og Landeyjar. Fjöldi ferðamanna heimsækir þessar slóðir á ári hverju - og Ceysir í Haukdal. Magnaöasti gos- hver heims og mikiö aödráttarafl fyrir feröamenn. margir koma erlendis frá. Hafa þeir, líkt margir íslendingar raunar einnig, heillast af hinni mögnuðu sögu um Gunnar, Njál, Skarphéðin, Bergþóru, Hallgerði og fleira gott fólk. Undir Eyjafjöllum Þegar komið er austur yfir Markarfljótsbrú liggur leiðin í Þórsmörk. Yfir óbrúaðar ár þyk- ir gaman að ösla á vel búnum bílum og kannski er það helsti ljóminn yfir Merkurferðum. Áðurnefnd brú yfir Markarfljót skilur að Landeyjar og Eyja- fjallasveit. Veðursæld undir Fjöllum er á orði höfð, og óvíða hefja bændur heyskap fyrr á sumrin. Öll Eyjafjallasveit er vett- vangur sögunnar um Önnu á Stóruborg og Barna-Hjalta - en hún fjallar um ást í meinum milli Önnu, hinnar sterkefnaðu konu af höfðingjaættum, og Hjalta, smalapilts af ættum lág- stéttarfólks. Lengi hafðist Hjalti viö í Paradísarhelli en þegar samfélagið hafði viðurkennt ástir þeirra bjuggu þau á Stóru- borg. Fyrir nokkrum árum grófu fornleifafræöingar upp gamla bæjarhólinn þar. Fund- ust þá allnokkrir munir sem telja má að hafi verið í eigu þeirra og þeir eru varðveittir í byggðasafninu í Skógum ásamt þúsundum annara merkra muna er tengjast lífi og starfi fólks á Suðurlandi. Þegar austur yfir Skógasand Qmna- greininl Öbruvísi verslun, verkstæbi, gallerí! í Grænu-greininni fæst fjölbreytt úrval sér- stæðra og persónulegra gjafa og minjagripa. Þar á mebal Flóatréléikföngin, vörubílar, vöggur, vefir og margt fleira. Allt íslenskt handverk. Austurvegi 52, Selfossi - Sími 482-3908 Tjaldsvœöiö aö Kleifum viö Kirkjubœjarklaustur. með formfegurstu fossum landsins. Frá Gullfossi er lagt á Kjalveg, sem endar norður í Blöndudal og tengir þannig saman Suðurland og Norður- land. Skammt fyrir neðan Gullfoss er svonefnd Brúarhlaðabrú yfir Hvítá, sem tengir saman Bisk- upstungur og Hrunamanna- hrepp. Flúðir í Hrunamanna- hreppi eru vinsæll áningastaður ferðamanna og ekki síst kjósa margir að halda þar ættarmót. Hvítá hefur síöan á allra síðustu árum fengið hlutverk, ef svo má að orði komast. Nú er boðið uppá magnaðar bátsferðir niður ána frá Gullfossi og Brúarhlöð- um að bænum Drumbrodd- stöðum. Þykir mörgum ferða- manninum mögnuö tilfinning að sigla í boðaföllunum niður strauþunga ána. Hekla er magnab eldfjall Hringferö okkar um Árnes- sýslu er nú lokið og inngöngu- dyr okkar í Rangárþing er Þjórs- árbrú. Margt er áhugavert að finna í sýslunni og fyrst sjá ferðamenn Heklu, sem gnæfir upp af sléttlendinu og sést þetta magnaða eldfjall raunar af allri Suðurlandssléttunni. Þegar farið er upp hinn svo- kallaða Landveg er komið að Brúarlundi á Landi, en þar hafi nokkrir framtakssamir Land- menn opnað Heklumiðstöðina svonefndu. Það er fjölbreytt sýning þar sem sjá má ýmis- konar myndir, teikningar, muni og annaö slíkt sem teng- ist fjallinu. Efst á Landi er Leirubakki, en þar er hótel og greiðasala. Þegar haldið er á- fram uppúr Landsveit er hægt ab fara Dómadalsleiö í Land- mannalaugar - eba þá áfram á Sprengisandsleiö og norður í Bárbardal. Nokkru eftir ab kom- ið er upp úr byggb í Landsveit er Hrauneyjarfoss, en í ná- grenni hans hefur verið byggð hálendismiöstöö, þar sem er greiðasala og gistiaðstaða í fjörutíu herbergjum. FERÐAFÓLK SUÐURLANDI Alhliða veitingar: Réttur dagsins, grillréttir, sérréttir, ís, gos og sælgæti. • Gamalgróinn og endurbættur áningar- staður í þjóðbraut. Verið vetkomin Grillskálinn Hellu A Njáluslóbum A f Þéttbýliskjarnar í Rangár- a rero um vallasýslu eru þrír. í Þykkvabæ- GIL'EÐ UM I.ANDIÐ MEÐ AGA gasvorur UMBOÐ FYRIR ISAGA SOLUSKALINN ARNBERGI VIÐ SUÐURLANDSVEG SELFOSSI Suburland Fullyrða má að flestir sem eru á far- aldsfæti um ísland leggi leið sína um Suðurland. Tugir þúsunda ferðamanna skoða landshluta þennan, „... sem hefur óvenju- margt að bjóða feröamönnum," eins og einn viðmælandi okkar sagbi. Fáir ferðamenn láta hjá líöa að heimsækja Þingvelli, Gullfoss, Geysi eða Skálholt en myndin hér til hlið- ar er einmitt frá síðastnefnda staðn- um. Tímanum í dag fylgir leiðsögn um Suöurland og er þar sagt frá því helsta sem í boði er. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.